Run&Gun

Run and Gun with Mate Dalmay

Umræðuþáttur í umsjón Mate Dalmay um íslenskan körfubolta þar sem slegið er á létta strengi en farið í dýptina.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: rundandgunmd.podbean.com

Autor

Run&Gun

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

rundandgunmd.podbean.com

Cel mai nou episod

6 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Run and Gun - Þáttur 20 (Nú mega Jólin koma) 23.12.2025

Það var fjölmennt í sófunum undir Myntkaup merkinu á jóla sunnudegi. Veitt voru mid season verðlaun í efstu tveimur deildum í 100 mismunandi flokkum. Áhorfendur og hlustendur eru hvattir til að fylgja Runandgunmd á Instagram en þar verða öll spjöldin úr þættinum birt.

Run and Gun - Þáttur 19 (Bóbó Dan og Manni Vill) 18.12.2025

Það var meira slúðrað en yfirleitt í Myntkaup Aréna á þessum miðvikudegi, enda gestir þáttarins í jólastuði. Fundnar voru lausnir fyrir Álftnesinga við öll þeirra vandamál, Fyrsta Deildin var Power Rönkuð og spáð í síðustu umferðina fyrir hið illa jólafrí.  

Run and Gun - Þáttur 18 (Sá Slæmi og GB Jr.) 11.12.2025

Tvær umferð eru fram að jólafríinu langa sem sumir hata. Gestir þáttarins fóru aðeins yfir síðustu umferð og spáðu vel í leikina sem framundan eru. Þá var "You go airport" listi Run and Gun uppfærður.

Run and Gun - Þáttur 17 (Manni Vill og Sá Slæmi) 04.12.2025

Sá Slæmi og Manni Vill, Mosfellingur í fótbolta, mættu í Myntkaup Aréna og settu saman sín sterkustu lið eftir ákveðnum reglum. Kani+2x evrópumenn+2xÍslendingar+sjötti maður úr fyrstu deild. Farið var yfir komandi umferð og þjálfarar sendir til Tenerife, reknir.

Run and Gun - Þáttur 16 (Tommi Steindórs og Fuglinn) 28.11.2025

Pása í deild þeirra bestu er í pásu og eftir úrvalsdeildarhjal var fyrsta deildin tekin fyrir. Tómas Steindórsson og Hraunar Karl aka Fuglinn mættu í Myntkaup Aréna að þessu sinni á fimmtudegi.

Run and Gun - Þáttur 15 (Spáð í 8 umferð Bónus deildar með GB Jr. og Slæma) 20.11.2025

Spáð var í 8.umferð Bónus deildarinnar með Seinari Arons og Gunnar Bjarti. Power Rankið var uppfært og nokkur stór mál rædd.

Run and Gun - Þáttur 14 (Stonyknows og Fuglinn í heimsókn) 13.11.2025

Tveir mestu körfubolta spekingar landsins mættu í Myntkaup Arena og spáðu í sjöundu umferð Bónus deildarinnar. Stonyknows fór vandamál hvers liðs í deildinni. ATH fyrsta mínúta þáttarins er í ruglinu.

Run and Gun - Þáttur 13 (Stöðu tjekk á öllum liðum eftir 5 umferðir og spáð fyrir 6. umferð) 06.11.2025

Tveir með jákvætt sigurhlutfall mættu í Myntkaup Arena á miðvikudagskvöldi, Gunnar Bjartur Álftanes prins og Bóbó Dan Breiðhyltingur ársins 2013. Farið var yfir öll liðin í Bónus deild karla, hvaða beytingar hafa verið á liðunum frá því í lok sumars og hvaða breytingar er hægt og ætti að gera. Að sjálfsögðu spáðum við svo í sjöttu umferð sem hefst í kvöld.

Run and Gun - Þáttur 12 (Spáð í umferð 5 Bónus deildarinnar og margt annað) 30.10.2025

Um tveggja tíma þáttur í boði Myntkaups og félaga okkar hjá Körfufréttum þetta miðvikudagskvöldið. Tommi Steindórs mætti ásamt Manna Vill en Grindjánar eru einir taplausir á toppi deildarinnar. Við power rönkuðum 1.deildina, hent var í gestina hot takes og margt fleira en þó ekkert létt hjal.

Run and Gun - Þáttur 11 (Spáð í umferð 4 Bónus deildarinnar) 23.10.2025

Halli Karfa og Sá Slæmi mættu í Myntkaup Arena seint á miðvikudegi til að rýna í fjórðu umferðina sem hefst í kvöld í deild þeirra bestu. Leikmannalistar voru áberandi um þá sem hafa staðið sig vel, MVP race Íslenskra og erlendra leikmanna voru rædd sem og bestu nýju kaupin eins og þau líta við okkur í dag.

Run and Gun - Þáttur 10 (Spáð í umferð 3 Bónus deildarinnar) 16.10.2025

Manni Vill Grindjáni og GB Jr. Álftnesingur mættu í Myntkaup Arena og spáðu í spilin fyrir þriðju umferð Bónus deildarinnar. Stórleikur umferðarinnar er viðureign þar sem lið þeirra beggja einmitt mætast, tvö af fjórum taplausu liðum deildarinnar.

Run and Gun - Þáttur 9 (Spáð í umferð 2 Bónus deildarinnar) 09.10.2025

Þáttur 9 beint frá Myntkaup Arena. Gestir þáttarins eru Sá Slæmi og Gunnar Bjartur sem fékk boðsmiða eftir stórsigur Álftnesinga í fyrstu umferð. Overreaction eftir fyrstu umferð Bónusdeildar, spáin fyrir 1.deildina opinberuð, margir erlendir leikmenn voru sendir heim strax og svo var að sjálfsögðu spáð í 2.umferð. ATH aðeins hálftími af þættinum endaði á youtube í mynd í þetta skiptið en það eru...

Run and Gun - Þáttur 8 (Stjarnan og spáin) 02.10.2025

Stóri upphitunar þátturinn, sérfræðingar skiluðu spám. Farið er yfir Stjörnuna, geta þeir unnið þetta aftur? SÁP, Hraunar og Tommi Steindórs mættu í Myntkaup Arena miðvikudagskvöldið 1.október og spáðu í tímabilið sem hefst Í DAG.

Run and Gun - Þáttur 7 (Grindavík, Keflavík og Njarðvík) 26.09.2025

Næstsíðasti upphitunarþáttur Run and Gun, sá sjöundi. Suðurnes, Falur Harðarson og Ármann Vilbergs köfuðu í Keflavík, Njarðvík og Grindavík í rúmar 90 mínútur í Myntkaup Arena.

Run and Gun - Þáttur 6 (Valur og ÍR) 18.09.2025

Steinar "Sá Slæmi" besti vinur Valsara mætti ásamt tveimur ástríðufullum ÍR-ingum, Bóbó Dan og Elvari Guðmunds í Myntkaup Arena. Umræðuefni dagsins voru tvö Reykjavíkurlið, ÍR og Valur.

Run and Gun - Þáttur 5 (Álftanes) 10.09.2025

Tveir harðir Álftnesingar komu í fimmta þáttinn í Myntkaup Arena og fóru yfir allt sem viðkemur liðinu sem fer nú inn í sitt þriðja tímabil í deild þeirra bestu.  Gestir þáttarins eru Brjánsi sem vill bara vera titlaður Álftnesingur og Fannar Ingi sem fólk kannast einnig við sem söngvara hljómsveitarinnar Hipsumhaps.

Run and Gun - Þáttur 4 (Fallbarátta-Ármann, ÍA og ÞórÞ) 07.09.2025

Geta nýliðarnir haldið sér uppi? Haddi Bryll og Hraunar Karl mættu í fjórða þátt Run and Gun og ræddu möguleika Ármenninga og ÍA. Einnig var lið Þórs Þorlákshafnar krufið en þeir enduðu pikkfastir í 10.sæti í fyrra.

Run and Gun - Þáttur 3 (KR) 01.09.2025

Heill þáttur tileinkaður KR. Böddi fyrrum formaður og Auðunn Örn Gylfason mættu og rýndu í komandi tímabil með Brynjari Þór sem var á línunni frá Danmörku.

Run and Gun - Þáttur 2 (Tindastóll). 25.08.2025

Við rýnum í fyrsta liðið í Bónus deildinni fyrir komandi tímabil. Til umræðu er Tindastóll og Tindastóll einungis. Gestir eru Hugi og Halldór Halldórssynir. 

Run and Gun - Þáttur 1. 19.08.2025

Fyrsta deild karla, upphitun með Ísaki Wium og Tomma Steindórs rúmlega 6 vikum fyrir fyrstu umferð.

Ascultă podcastul Run and Gun with Mate Dalmay în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice