Run&Gun
Run and Gun with Mate Dalmay
Umræðuþáttur í umsjón Mate Dalmay um íslenskan körfubolta þar sem slegið er á létta strengi en farið í dýptina.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Run and Gun - Þáttur 41 (Mið-sumar talning með Slæma og Hrafni Kristjáns) 01.07.2026 1:48:36
Það er komið að því að taka stöðuna á öllum liðum efstu deildar fyrir komandi tímabil. Margir alvöru bitar eru búnir að skipta um lið, Run and Gun teymið fékk þjálfara Blika Hrafn Krisjánsson til að koma í þáttinn. Á tveimur klukkutímum var skipt liðum deildarinnar í fjögur þriggja liða level. 1. Álftanes, Tindastóll, Grindavík (menn ósammála hér). 2. Stjarnan, KR, Keflavík. 3. ÍR, Njarðvík, Valur...
Run and Gun - Þáttur 39 (Sá Slæmi og Manni Vill) 18.05.2026 1:07:09
Eftir ákall úr öllum áttum tók Run and Gun upp þátt á sunnudags hádegi eftir messu hjá gestum þáttarins. Úrslita einvígið var loksins rætt í þaula og efnið ekki týnt. Þjálfara möguleikar Garðbæinga voru ræddir, Sindra mönnum óskum við til hamingja með sæti í deild þeirra bestu og gestir þáttarins fóru í giskleik - hvaða þjálfarar og leikmenn hafa fengið tækni villur í vetur?
Run and Gun - Þáttur 38 (Tommi og Manni Vill) 12.05.2026 42:09
Bras á þætti 38 þar sem síðustu 20 mínútur týndust. Umræður í Myntkaup Aréna eru því einungis um 1.deildina, Stjörnuna og Val. Allir spáðu Tindastól sigri í leik tvö. Hlökkum til að ræða leik 2 og 3 eftirá, áfram allir.
Run and Gun - Þáttur 37 (Manni og Slæmi beint eftir leik) 05.05.2026 1:08:25
Menn voru ennþá volgir hálftíma eftir leik Vals og Grindavíkur á mánudagskveldi í Myntkaup Aréna.
Run and Gun - Þáttur 36 (Tommi og Slæmi í playoffs neyðar pod) 27.04.2026 1:08:37
Eftir ákall komu sérfræðingar saman á mánudegi í Myntkaup Aréna og ræddu úrslitakeppnina sem náði um helgina hápúnkti til þessa.
Run and Gun - Þáttur 35 (Mannig Vill og GB Jr.) 22.04.2026 1:09:20
Run and Gun settist niður í Myntkaup Aréna eftir svakalega fyrsta leik í undanúrslitum í gær. Við gerðum leikinn upp með Manna Vill og Gunnari Bjarti og spáðum svo augljóslega í leik kvöldsins. Seth Le Day fékk afsökunarbeiðni í beinni og þá var rýnt í 1.deildina þar sem spennan er að magnast.
Run and Gun - Þáttur 34 (Sá Slæmi og Rúnar Birgir ráðgjafi þjóðarinnar) 16.04.2026 1:43:36
Það var nýr gestur af gamla skólanum í Myntkaup Arena á þessum apríl miðvikudegi. Liðin sem hafa kvatt í bæði Bónus og 1.deild voru rædd og seasoninu gefin einkunn. Hvað gerist svo í næstu einvígum í báðum deildum?
Run and Gun - Þáttur 33 (Steinar og Tommi Steindórs) 09.04.2026 1:12:29
Eftir tvo fyrstu leikina í úrslitakeppninni settust sérfræðingar landsins í Myntkaup Arena og rýndu í það sem við höfum séð. Þáttastjórnandinn er hálfan þáttinn ekki í mynd en það er eins og það er sumir fagna því. Hvernig getum við minnkað skjáfíkn dómara?
Run and Gun - Þáttur 32 (Steinar og Manni: Uppgjör og Playoffs) 31.03.2026 1:19:56
Á þessum mánudegi var tímabilið gert upp í Bónus deildinni í Myntkaup Aréna, gestir gáfu öllum liðum, þjálfurum, íslenskum og erlendum leikmönnum einkunnir. Bragi Guðmunds var kosinn undisputed MVP Run and Gun. Að lokum var að sjálfsöðgu rýnt í playoffs einvígin og opinber spá Run and Gun sett saman.
Run and Gun - Þáttur 31 (Tommi og Geir gera upp 1.deildina) 25.03.2026 1:15:34
31. þáttur tímabilsins í Myntkaup Aréna var helgaður 1.deild karla. Tveir pjúristar mættu í heimsókn og gáfu öllum liðum ítarlegar einkunnir, Geir Elías Úlfur Helgason og Tommi Steindórs. Þátturinn í dag er í boði Myntkaups, Körfufrétta en einnig voru með okkur Chad Grooming menn að þessu sinni.
Run and Gun - Þáttur 30 (GB Jr. og Bóbódan) 18.03.2026 1:04:30
Þrítugasti þáttur Run&Gun og það aðeins tveimur umferðurm fyrir úrslitakeppni. Gestir í Myntkaup sem hafa ekki komið lengi og mikið stuð.
Run and Gun - Þáttur 29 (Slæmi og Tommi Steindórs) 11.03.2026 1:08:22
Tommi Steindórs og Steinar Arons voru gestir dagsins í Myntkaup Aréna þennann miðvikudag þegar þrjár og aðeins þrjár umferðir eru eftir af regular season. Spáð var í næstu umferð Bónus deildar og umferðirnar tvær sem eru eftir í Fyrstu deild karla. Gestirnir hlóðu meðal annars í 5 hötuðustu leikmenn deildarinnar lista og MVP race pælingar.
Run and Gun - Þáttur 28 (Slæmi og Manni Vill) 05.03.2026 1:25:39
Eftir landsliðspásu var tekið upp á fimmtudegi í Myntkaup Aréna. Gestir settu þig í stóla stjórnarmanna liða sem funda á þessum tíma um næsta tímabil. Rýnt var í næstu fjórar umferðir og sett saman loka spá fyrir tímabilið og útlit úrslitakeppninnar.
Run and Gun - Þáttur 27 (Slæmi og Tommi Steindórs) 19.02.2026 1:12:16
Það var mikil stemning í Myntkaup Arena þennan miðvikudag. Rýnt var í 1.deild karla og næstu umferð í þeirri efstu. Farið var yfir þrjá bestu uppöldu leikmenn allra félaga efstu deildar sem enn eru að spila ásamt allskonar öðrum skemmtilegheitum.
Run and Gun - Þáttur 26 (Slæmi og Mikael Máni) 11.02.2026 1:01:38
Steinar Arons og Mikki gerðu upp bikarúrslitaleikinn í Myntkaup Arena nokkrum dögum eftir veisluna, búnir að jafna sig. Hvaða þjálfarteymi hafa mestu verkin að vinna næstu vikur til að koma liðum sínum á þann stað sem þau vilja vera á í vor?
Run and Gun - Þáttur 25 (Manni Vill og Atli Aðalsteins) 04.02.2026 1:19:51
Bikarstemning. Undanúrslitin voru gerð upp og spáð í framhaldið sem og auðvitað bikarúrslitaleikinn sjálfan. Það kostar 20.000 krónur að kýla mótherja og engin leikbönn, því ber að fagna. Menn voru sammála í Myntkaup Arena að það er yfirleitt þess virði.
Run and Gun - Þáttur 24 (GB Jr. og Mikael Máni) 29.01.2026 1:13:43
Geta einhverjir keppt við Stjörnuna á þessum tímapúnkti? Við power rönkuðum með ungum og efnilegum gestum bestu Íslensku leikmenn deildarinnar og spáðum í næstu umferð.
Run and Gun - Þáttur 23 (Manni Vill og Atli Aðalsteins 22.01.2026 1:16:13
Fyrsta deildin var Power Rönkuð þennann miðvikudag í Myntkaup Aréna. Manni fór í trade hugmyndir, leikmannahópar Stjörnunnar og Tindastóls voru bornir saman og að sjálfsögðu var rýnt í leiki umferðarinnar.
Run and Gun - Þáttur 22 (Tommi Steindórs, GB Jr. og Slæmi) 15.01.2026 1:13:32
Farið var yfir allar breytingarnar sem liðin hafa gert síðustu vikur. Eru Tindastóll og Stjarnan að komast í sérflokk? Þrír gestir og meiri hiti en oft áður í Myntkaup Arena fyrir fjórtándu umferð.
Run and Gun - Þáttur 20 (Nú mega Jólin koma) 23.12.2025 1:22:11
Það var fjölmennt í sófunum undir Myntkaup merkinu á jóla sunnudegi. Veitt voru mid season verðlaun í efstu tveimur deildum í 100 mismunandi flokkum. Áhorfendur og hlustendur eru hvattir til að fylgja Runandgunmd á Instagram en þar verða öll spjöldin úr þættinum birt.
Run and Gun - Þáttur 19 (Bóbó Dan og Manni Vill) 18.12.2025 1:19:45
Það var meira slúðrað en yfirleitt í Myntkaup Aréna á þessum miðvikudegi, enda gestir þáttarins í jólastuði. Fundnar voru lausnir fyrir Álftnesinga við öll þeirra vandamál, Fyrsta Deildin var Power Rönkuð og spáð í síðustu umferðina fyrir hið illa jólafrí.
Run and Gun - Þáttur 18 (Sá Slæmi og GB Jr.) 11.12.2025 1:02:37
Tvær umferð eru fram að jólafríinu langa sem sumir hata. Gestir þáttarins fóru aðeins yfir síðustu umferð og spáðu vel í leikina sem framundan eru. Þá var "You go airport" listi Run and Gun uppfærður.
Run and Gun - Þáttur 17 (Manni Vill og Sá Slæmi) 04.12.2025 1:29:51
Sá Slæmi og Manni Vill, Mosfellingur í fótbolta, mættu í Myntkaup Aréna og settu saman sín sterkustu lið eftir ákveðnum reglum. Kani+2x evrópumenn+2xÍslendingar+sjötti maður úr fyrstu deild. Farið var yfir komandi umferð og þjálfarar sendir til Tenerife, reknir.
Run and Gun - Þáttur 16 (Tommi Steindórs og Fuglinn) 28.11.2025 1:08:54
Pása í deild þeirra bestu er í pásu og eftir úrvalsdeildarhjal var fyrsta deildin tekin fyrir. Tómas Steindórsson og Hraunar Karl aka Fuglinn mættu í Myntkaup Aréna að þessu sinni á fimmtudegi.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.