Kop.is
Gullkastið
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.kop.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Gullkastið – Liverpool Borg Er Rauð 03.04.2025 58:21
Liverpool borg er og hefur alltaf verið rauð, sigur á David Moyes og Everton var aðalatriði í leik sem tók vel á þolrifin og þökk sé því hvernig hann var dæmdur. Tólf stig þarf úr átta síðustu leikjunum til að klára titilinn. Hlóðum í nýtt Ögurverk lið og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Fulham um helgina og leikjaprógrammið í þessum mánuði. Allir leikir Liverpool sem eftir lifa tímabilsins verð...
Gullkastið – Hvað gerir Liverpool á leikmannamarkaðnum? 27.03.2025 1:22:05
Allar helstu fréttir vikunnar benda til að Trent sé við það að skrifa undir hjá Real Madríd og fari þangað á frjálsri sölu. Afskaplega leiðinlegur viðskilnaður hjá uppöldum leikmanni og lykilmanni í algjöru toppliði. Óháð framtíð Trent er ljóst að Liverpool þarf að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar og tókum við púlsinn á því hvaða leikmenn eru líklegir til að fara og hvað er í boði í...
Gullkastið - Allur fókus á deildina 17.03.2025 1:02:35
Arne Slot valdi hreint afleita viku til að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta skipti á ferlinum. Liverpool lauk leik í 16-liða úrslitum þrátt fyrir að hafa toppað deildarfyrirkomulagið í Meistaradeildinn og tapaði svo með afar þreyttum og ósannfærandi hætti gegn Newcastle Wembley, versta frammistaða Liverpool þar síðan 1988. Alls ekki gott og ágætt að fá bæði landsleikjahlé og bikarhelgi í kjölfa...
Gullkastið - PSG og Anfield South 10.03.2025 1:01:28
Bilið breikkaði um tvö stig í viðbót í deildinni og staðan orðin vægast sagt góð. Seinni leikurinn gegn PSG er næst á dagskrá og Wembley um helgina. Liverpool spilar bara stórleiki. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Gullkastið – Farið Að Sjást í Endamarkið 03.03.2025 1:03:10
Forskotið á toppnum er komið í 13 stig og heldur betur farið að sjást í endamarkið. Þrátt fyrir bókstaflega allan katalóginn af afsökunum frá Arsenal mönnum hafa þeir í raun aldrei komist almennilega í titilbaráttuna og eru með stigasöfnun sem jafnan er meira á pari við liðin í baráttu um Meistaradeildarsæti. Liverpool á Southampton næst á Anfield og er sá leikur á undan leik Arsenal gegn United ú...
Gullkastið - Sex stiga helgi 24.02.2025 1:03:00
Síðasta helgi var líklega besta helgi tímabilsins fyrir Liverpool þegar Man City var loksins lagt á Etihad í deildarleik og það í kjölfarið á tapi Arsenal á Emirates vellinum. Ekki alltaf sem úrslitin á þessum olíuvöllum falla svona með okkur. Það var dregið í Meistaradeildinni, hörku vendingar í deildinni, Everton og Man Utd eru m.a. bara þremur stigum á eftir Liverpool, sko samanlagt. Næst er þa...
Gullkastið - Sjónvarpið fékk að heyra það! 17.02.2025 1:03:19
Liverpool er í mjög þungu prógrammi þessa dagana og það sást vel í báðum leikjum vikunnar sem tóku á taugarnar. Framundan eru tveir risastórir útileikir gegn Villa og Man City. Ögurverk liðið er á sínum stað og fagmaðurinn í boði Deloitte Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / D...
Gullkastið – Síðasta ferðin yfir Stanley Park 10.02.2025 47:34
Liverpool fer í síðasta skipti þennan tæplega kílómeter sem er frá Anfield yfir á Goodison núna á miðvikudaginn í alvöru mikilvægum nágrannaslag. Tap þarna síðast og það er ekki í boði aftur. Um helgina eru það svo Úlfarnir sem mæta á Anfield og því tveir deildarleikir í þessari viku. Síðasta vika var bikarleikavika, Liverpool er komið í úrslit í öðrum bikarnum en tapaði gegn versta liði Champions...
Gullkastið – Leikmannaglugganum lokað 03.02.2025 1:01:27
Það er síðasti dagur leikmannagluggans í dag eða mánudagur eins og við stuðningsmenn Liverpool köllum hann. Rosalega tíðindalítill mánuður hjá okkar mönnum sem er kannski skiljanlegt miðað við gengi liðsins og meiðslalista. Flottur útisigur á Bournemouth um helgina sem varð ennþá mikilvægari eftir að Arsenal pakkaði vonlausu City liði saman. Næsta vika fer svo í báðar bikarkeppnirnar, fyrst undanú...
Gullkastið - Meistara-deildarmeistarar 30.01.2025 57:27
Liverpool endaði á toppi deildarinnar í Meistaradeildinni þrátt fyrir tap gegn PSV í lokaumferðinni og ljóst hvaða fjórum liðum okkar menn geta mætt í 16-liða úrslitum. Flottur sigur á Ipswich í deildinni og toppsætið ennþá okkar. Það er mjög margt svipað núna og fyrir ári síðan í deildinni en með undantekningum þó sem vonandi eru okkar mönnum í vil, skoðuðum það aðeins. Leikmannamarkaðurinn er op...
Gullkastið – Ys og Þys Út Af Engu 20.01.2025 1:14:55
Liverpool fór inn í þessa mjög svo þungu viku með 6 stiga forskot á toppi deildarinnar og endaði tveimur leikjum seinna á nákvæmlega sama stað. Leikurinn gegn Everton á Goodison er svo ennþá inni. Ljómandi góð niðurstaða í ljósi þess að útlitið var bara alls ekkert sérstakt eftir 180 mínútur af fótbolta í útileikjum gegn bæði Nottingham Forest og Brentford. Vindum okkur í nýtt Ögurverk lið og spáu...
Gullkastið - Prófavika 13.01.2025 1:07:32
Það eru stór próf framundan í þessari viku, fyrst er það útileikur gegn sjóðandi heitu liði Nottingham Forest, eina liðið sem vann Liverpool í deildinni á þessu tímabili. Brentford á útivelli bíður svo um helgina Liverpool fór áfram í FA Cup síðustu helgi og fær Plymoth úti í næstu umferð. Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður vikunnar í boði Húsasmiðjunnar. Stjórnandi: Einar Matthías...
Gullkastið – Slæm byrjun á árinu 09.01.2025 1:11:02
Það hefur alls ekki verið sama flug á Liverpool núna eftir áramót og var yfir hátíðarnar, slæmt 2-2 tap á Anfield gegn okkar gömlu erkifjendum og svo tap í fyrri hálfleik deildarbikarsins gegn Tottenham, þeir þurftu reyndar að vanda óhemju mikla hjálp frá dómarateyminu sem eyðilagði þann viðburð. Engin heimsendir en viðvörunarbjöllur á Anfield og stór leikur næst í deildinni. Það er nóg að frétta...
Gullkastið – Frábær Jól og Gleðilegt nýtt Liverpool ár 30.12.2024 1:22:37
Liverpool er búið að spila fjóra leiki um jól og áramót, sigur í einum þeirra gegn Southampton í deildarbikar og slátrun í hinum þremur. Fjórtán mörk í þremur deildarleikjum og þar af ellefu í London. Geggjaður endur á árinu og við hæfi að henda í smá uppgjör. Leikmannaglugginn opnar á miðvikdaginn og Liverpool fær Man Utd í heimsókn á sunnudaginn. Ögurverk liðið er á sínum stað og sem og fagmaður...
Gullkastið – Tvö Töpuð Stig 16.12.2024 1:08:24
Liverpool lenti í ótrúlegu mótlæti gegn Fulham og tapaði á endanum ósanngjarnt tveimur stigum í leik þar sem stóru atvikin féllu svo sannarlega ekki með okkar mönnum, ekkert þeirra. Engu að síður sæmilegt stig m.v. að liðið var marki undir þegar Robertson var sendur í bað og því manni færri í 74.mínútur plús 16.mínútur í uppbótartíma. Samtals 90 mínútur og það voru svo sannarlega ekki 10 leikmenn...
Gullkastið – Þáttur 500 10.12.2024 1:01:58
Hlaðvarpsþættir Kop.is hófu göngu sína 25.maí árið 2011 og hafa síðan þá verið stór partur af starfsemi síðunnar. Þátturinn í þessari viku er númer 500 og er Gullkastið elsta starfandi hlaðvarp landsins og reyndar þó víðar væri leitað. Til að fagna þessum tímamótum fengum við tvær kempur með okkur í þáttinn í þessari viku sem vart þarf að kynna frekar, meistara Bjössa Hreiðars og Hödda Magg. Liver...
Gullkastið – Olíulaust Man City 02.12.2024 1:13:47
Þvílík vika, Real Madríd var pakkað saman í miðri viku og Man City jafnvel ennþá meira sannfærandi um helgina. Liverpool er afgerandi á toppnum allsstaðar fyrir vikið. Framundan eru tveir erfiðir útileikir, Newcastle á St. Jamses áður en Liverpool heldur í síðasta skipti yfir Stanley Park til að spila í Guttagarði. Ljómandi að losna við þá úr hverfinu. Ögurverk liðið er á sínum stað, það var töluv...
Gullkastið – Átta Stiga Forskot 25.11.2024 1:08:18
Það var hvorki sannfærandi en sérstaklega fallegt þessa helgina en Liverpool er komið með átta stiga forskot á toppnum eftir aðeins 12 umferðir, það er sérstaklega fallegt og sannfærandi. Framundan er rosalegt leikjaprógramm sem byrjar á Real Madríd með Man City í eftirrétt! Bætum miðvörðum við Ögurverks liðið og óskum eftir djúpum miðjumanni við næst í þetta lið Brostinna vona. Spáum svo auðvitað...
Gullkastið - Southampton á Sunnudaginn 21.11.2024 46:58
Síðasta landsleikjapása ársins er á enda og deildarleikur gegn Southampton framundan úti á sunnudaginn. Eftir það taka við öllu stærri verkefni með Real Madríd og Man City á dagskrá. Skoðum hvernig landið liggur eftir landsleiki, spáum í leikjum helgarinnar. Ögurverk liðið er að sjálfstöðu á sínum stað. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Happatreyjur.is – Gjafaleikur Fyrir ykkur sem...
Pub Quiz Kop.is 17.11.2024 1:11:05
Kop.is samsteypan kom saman laugardaginn 2.nóvember og tók upp Pub Quiz sem Daníel Brandur hélt utan um strax í kjölfarið á góðum sigri Liverpool á Brighton. Vægast sagt ekki auðvelt quiz en við ákváðum að prufa að taka þetta upp og leyfa hlustendum að vera með líka. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda...
Gullkastið – Liverpool Á Toppnum Allsstaðar! 12.11.2024 1:03:49
Það er erfitt að teikna fótboltahelgi mikið betur upp en við gerðum núna um helgina. Kop.is fór í frábæra hópferð til Liverpool, kvöldleikur á laugardegi á Anfield með frábæru upphitunaratriði frá Man City rétt fyrir leik. Arsenal og Chelsea töpuðu stigum daginn eftir og svo þegar við lentum á Íslandi var dómaraferli David Coote lokið. Þetta allt í kjölfar þess að Liverpool pakkaði ósigrandi liði...
Gullkastið – Fullkomin helgi 04.11.2024 56:57
Liverpool vann og allir helstu keppinautarnir töpuðu, það var erfitt að teikna þessa helgi mikið betur upp. Tveir baráttusigarar á þrælgóðu Brighton liði og City og Arsenal misstigu sig bæði nokkuð illa. Nýtt Ögurverk lið er á sínum stað skipað helstu vonarstjörnum Liverpool og byrjum við á stöðu markmanns. Endilega hjálpið okkur að velja fyrir næstu viku þegar við ætlum að skoða vinstri bakverði....
Gullkastið – All eras come to an end 28.10.2024 1:02:33
Liverpool kom tvisvar til baka í London til að næla í ágætt stig á Emirates í stórleik helgarinnar eftir góðan sigur í Leipzig í miðri viku. Slot heldur áfram að standast stóru prófin með sóma. Svekkjandi að vinna ekki Arsenal auðvitað en alvöru áfallið kom í dag þegar Man Utd sagði Erik Ten Hag mjög ósanngjarnt upp störfum, hann sem var bara rétt að byrja. Nýtt Ögurverk lið og þessi vika inniheld...
Gullkastið - Milljarðaliðið lagt 21.10.2024 1:00:38
Arne Slot er ennþá að sanna sig í hlutverki stjóra Liverpool enda að stíga í risastór fótspor Jurgen Klopp. Leikur helgarinnar var töluvert blásinn upp sem fyrsta alvöru stóra prófið á hann sem stjóri Liverpool jafnvel þrátt fyrir að hann þriðji leikir hafi varið á Old Trafford, fynda við það er reyndar að hann hefur talað þannig sjálfur. Niðurstaðan var góður sigur á þessu sterka milljarðaliði Ch...
Gullkastið – Þyngra prógramm 15.10.2024 1:06:29
Enski boltinn fer að rúlla aftur um helgina, Chelsea bíður okkar mönnum á Anfield á sunnudaginn. Hitum upp fyrir það, skoðum hvaða áhrif innkoma Slot hefur á mismunandi leikmenn liðsins og stöður á vellinum. Bætum vængmanni við Ögurverk liðið og hitum upp fyrir helgina. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að hal...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice