Kop.is
Gullkastið
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.kop.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Gullkastið – Hvert er leikplan Liverpool? 20.10.2025 54:17
Fjórða tapið í röð og núna óboðlegt tap á heimavelli gegn United. Slot er fyrir vikið kominn undir pressu sem enginn stjóri Liverpool hefur verið í áratug núna. Hann þarf að finna gáfulegri lausnir og liðið þarf að finna betra svar í þessari viku gegn Frankfurt og Brentford. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur a...
Gullkastið – Man Utd á Anfield um helgina 15.10.2025 1:01:36
Liverpool tapaði þremur leikjum í röð fyrir landsleikjahlé, þar af tveimur deildarleikjum sem töpuðust á marki í uppbótartíma. Það má því léttilega færa rök fyrir því að þetta landsleikjahlé er búið að vera þrjá mánuði að líða en er nú blessunarlega að renna sitt skeið. Alvöru verkefni strax á sunnudaginn þegar Amorim mætir á Anfield með Man United. Liverpool er eitt af örfáum liðum sem ekki hefur...
Gullkastið – Hveitibrauðsdagar Slot Á Enda 07.10.2025 55:09
Enn ein ósannfærandi spilamennskan hjá Liverpool, þriðji tapleikurinn í röð og annað skipti á rúmlega viku sem Liverpool tapar á flautumarki á útivelli í London. Hveitibrauðsdagarnir eru á enda hjá Arne Slot og stuðningsmenn réttilega farnir að spyrja þyngri spurninga en hingað til. Liverpool fer inn í landsleikjahlé með þrjá tapleiki í röð á bakinu en það sem verra er þá hefur liðið ekki ennþá sp...
Gullkastið – Tveir Tapleikir! 02.10.2025 44:50
Heldur betur þung vika hjá okkar mönnum og tveir ákaflega ósannfærandi og pirrandi tapleikir staðreynd. Annar í London sem tapaðist á flautumarki og hinn í Istanbul þar sem boltinn var í leik 50% af leiktímanum. Chelsea bíður um næstu helgi, enn einn útileikurinn. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Gullkastið – Borgin er Rauð 22.09.2025 1:11:53
Liverpool borg er að sjálfsögðu rauð, góður sigur á Everton í kjölfarið á sigri í miðri viku gegn Atletico Madrid. Liverpool er því með fullt hús stiga áfram en á meðan töpuðu bæði Arsenal og Man City stigum, reyndar í sama leiknum. Það var Breiðholtsþema í þættinum að þessu sinni í stjórn Magga sem fékk þá Addó og Garðar Gunnar til sín. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Garðar Gunnar Ásgeirsson og...
Gullkastið – 90 mínútur plús uppbótartími! 18.09.2025 48:40
Fótboltaleikur er 90 mínútur plús uppbótartími, blessunarlega! Liverpool er búið að klára fimm leiki í röð með sigurmarki á lokamínútunum. Þrír af þeim reyndar eftir að hafa hent frá sér 2-0 forystu. Tveir afar ólíkir leikir í þessari viku og alvöru stórleikur framundan um helgina. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa...
Gullkastið – Fáum við að sjá Isak? 11.09.2025 58:22
Landsleikjahlé að renna sitt skeið og Isak mættur til æfinga klár í slaginn með toppliðinu. Tókum stöðutékk á byrjun mótsins, fréttum vikunnar og næstu umferð. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Gullkastið - Isak mættur 01.09.2025 1:18:58
Alexander Isak er mættur til Liverpool og var síðasta viðbótin við hópinn í sumar eftir ótrúlegan leikmannaglugga og nokkuð fáránlegan lokadag. Marc Guéhi var líka búinn með læknisskoðun og kveðjumyndbönd hjá Palace aðeins til að fá svo ekki að fara þökk sé stjóra Palace sem tapaði alveg gleðinni og hótaði að hætta. Liverpool vann svo auðvitað frábæran sigur á flugher Arsenal, það lið ber sannarle...
Gullkastið - RIO 26.08.2025 1:03:51
Við þurftum að upplifa einn mest pirrandi leik Liverpool í langan tíma til að fá eitt besta augnablikið í tíð Arne Slot. Ngumoah kom inná eftir að hafa beðið í 5-6 mínútur á hliðarlínunni horfandi á háloftabolta Newcastle manna, kom loksins inná og slúttaði stuttu seinna nánast einu góðu sóknaraðgerð Liverpool í seinni hálfleik. Reyndum að ná utan um hvernig við erum núna búin að fá tvö svona augn...
Gullkastið – Ballið Byrjað 18.08.2025 53:50
Sigur á Anfield í fyrsta leik tímabilsins en frekar ósannfærandi. Lokakaflinn á leikmannamarkaðnum að hefjast og ljóst að Liverpool má ekki vera búið á markaðnum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Gullkastið - Næstu leikmannakaup í vinnslu 12.08.2025 1:10:00
Fréttir um Marc Guéhi til Liverpool og Leoni frá Parma fóru á yfirsnúning á meðan upptöku stóð og í morgun komu fréttir af Isak sem er heldur betur að gera sitt til að fá sín félagsskipti til Liverpool í gegn. Rosalega spennandi dagar og vikur framundan á leikmannamarkaðnum, Liverpool þarf að fylla í nokkrar stöður áður en glugganum lokar það er ljóst. Enska deildin fer af stað á föstudagskvöldið...
Gullkastið – Æfingatímabilið á lokametrunum 05.08.2025 1:02:37
Alexander Isak er ennþá leikmaður Newcastle aðallega vegna þess að þeim gengur ekki nokkurn skapaðan hlut að kaupa arftaka fyrir hanna eða bara nokkrun skapaðan hlut. Liverpool spilaði tvo leiki saman daginn og vann báða með fullt af spennadi atvikum og æfingaleikirnir fara upp um eitt level um helgina þegar Liverpool mætir Palace í Góðgerðarskildinum. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Mag...
Gullkastið – Mikið meira en bara reykur! 29.07.2025 1:11:30
Slúður um Alexander Isak til Liverpool er orðið mikið meira en bara reykur, þetta er orðið að björtu báli og jafnvel talað um að hann sé farinn í verkfall hjá Newcastle til að pressa á sölu til Liverpool núna í sumar. Spáum í þeirri viðbót ef af verður og öðru slúrði tendu Liverpool í vikunni. Luis Diaz virðist t.a.m. vera farin til Bayern. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að...
Gullkastið – Isak til Liverpool? 15.07.2025 59:02
Silly season er farið aftur af stað með látum eftir afar þunga viku og alvöru bombur tengdar Liverpool, Alexander Isak var sterklega orðaður við Liverpool af blaðamönnum eins og David Ornstein sem gefur til kynna að þar sé einhver reykur. Minna áreiðanlegir miðlar tala um Rodrygo líka frá Real Madríd auk þess sem Liverpool á eftir að selja nokkrar stórar kanónur líka, eða hvað? Það hefur aldrei ve...
Gullkastið – Harmleikur í Portúgal 08.07.2025 1:03:37
Fráfall Diogo Jota og André bróður hans er auðvitað ofsalegt áfall fyrir alla tengda Liverpool og knattspyrnuheiminn í heild. Þessi vika átti að vera spennandi þar sem nýir leikmenn mæta til æfinga í fyrsta skipti ásamt öllum hópnum en byrjaði á jarðarför Diogo Jota í Portúgal. Erfitt í raun að ná utan um þennan harmleik. Hvaða áhrif hefur þetta á Liverpool og hvernig bregst félagið við? Stjórnand...
Gullkastið – Leikmannasölur framundan? 26.06.2025 1:03:55
Kerkez er kominn til Liverpool og því búið að staðfesta alla sem voru líklegastir til að koma núna strax í júní. Þá eru leikmannasölur líklega næstar á dagskrá og líklegt að þar verði ekki minna að gera hjá okkar mönnum. Skoðum líka stöðuna á leikmannamarkaðnum hjá hinum stórliðunum. Minnum svo á að Verdi Travel er komið með ferðir á Anfield í sölu fyrir næsta tímabil Stjórnandi: Einar Matthías V...
Gullkastið - Wirtz Vikan 19.06.2025 1:08:19
Frá því að FSG keypti Liverpool hefur leikmannaglugginn aldrei farið eins spennandi af stað og núna. Það er búið að staðfesta kaup á Frimpong frá Leverkusen, eins er svo gott sem búið að staðfesta kaupin á besta vini hans og dýrasta leikmanni í sögu Liverpool, Florian Wirtz. Besta leikmanni þýsku deildarinnar undanfarin tvö tímabil. Ungverjinn Milos Kerkez hefur svo hamast við það sjálfur að staðf...
Gullkastið – Leikmannaglugginn að opna 29.05.2025 1:08:06
Tímabilið 2024-25 er búið og bara gat ekki farið mikið betur fyrir Liverpool, létt uppgör á því. Sigurhátíð um helgina og almenn gleði þar til eitt fífl setti stóran svartan skugga á hátíðarhöldin. Leikmannaglugginn opnar eftir helgi og Liverpool virðist heldur betur ætla að vera með og gera stórar breytingar á hópnum fyrir næsta tímabil. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi...
Gullkastið – Schadenfreude 22.05.2025 1:10:28
Þvílíka snilldar tímabilið sem þetta er að verða, Liverpool eru Englandsmeistarar og lyfta bikarnum á loft um helgina á meðan lið eins og Arsenal, Man City og Man Utd fara öll titlalaus í gegnum mótið. Leikmannaglugginn virðist heldur betur ætla að verða fjörugri í sumar en hann var síðasta sumar og mjög spennandi nöfn orðuð við Liverpool, jafnvel strax í næstu viku. Stjórnandi: Einar Matthías Vi...
Gullkastið – Slúðrið komið á fullt en tímabilið þarf að klára 16.05.2025 1:01:50
Seint mætti Gullkastið þessa vikuna, sem er til marks um ákveðinn slaka í hugum okkar, enda Englandsmeistarar. Við fórum yfir töluvert af safaríku slúðri sem fjallað hefur um okkar menn undanfarið, veltum fyrir okkur fílupúkanum Arteta og hans stöðu hjá Arsenal. Skoðuðum stöðuna í Meistaradeildarbaráttunni, völdum framherja í Ögurverksliðið og skoðuðum síðasta útileik vetrarins í EPL, viljum klára...
Gullkastið – Hvað Næst? 06.05.2025 1:19:25
Arne Slot gaf hópnum aðeins séns um helgina töluverðum timburmannaleik gegn Chelsea og frammistaðan var ekki til að hrópa húrra fyrir. Skipti ekki öllu enda Liverpool nú þegar búið að vinna titilinn og stemningin á pöllunum í takti við það. Trent nýtti tækifærið til að staðfesta loksins brottför sína eftir tímabilið eftir að hafa forðast blaðamenn (og þannig stuðningsmenn Liverpool) mest allt þett...
GULLKASTIÐ – LIVERPOOL ENGLANDSMEISTARAR 27.04.2025 51:53
Það er komið (Staðfest) á Englandsmeistaratitilinn og tilfinningin er vægast sagt frábær. Meistarar á Anfield og samt eru fjórar umferðir eftir. Liverpool hafa einfaldlega verið langbestir í vetur sama hvað hávær hópur stuðningsmanna annarra liða hefur grenjað. Loksins fá leikmenn og stuðningsmenn að fagna almennilega saman og líklega er veislan bara rétt að byrja. Stöðutaflan í deildinni er eins...
Gullkastið – Eitt Stig! 23.04.2025 1:09:10
Liverpool er með 89 stig eftir sigur gegn Leicester um helgina, Arsenal getur max náði 79 stigum á þessu tímabili vinni þeir alla leikina sem þeir eiga eftir og markatalan er 10 mörkum Liverpool í vil með leik til góða. Án þess að segja (Staðfest) er óhætt að fullyrða að staðan hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Jafntefli Arsenal gegn Palace gerir það að verkum að Liverpool geta klárað fótbolta...
Gullkastið – Endamarkið Nálgast 16.04.2025 1:10:14
Það er ennþá styttra í fyrirheitna landið eftir leiki vikunnar. Liverpool náði í þrjú stig á Anfield á meðan Arsenal tapaði stigum. Sex stig duga því til að vinna deildina þannig að tölfræðilega gæti einmitt það gerst núna um helgina. Liverpool mætir Leicester en Arsenal fær Ipswich í heimsókn þannig að við höldum ekkert niðri í okkur andanum. Veljum í Ögurverk liðið og skoðum stöðuna í deildinni...
Gullkastið – Salah og Van Dijk að semja? 10.04.2025 52:47
Annað tap tímabilsins í deildinni um síðustu helgi og löng vika fram að næsta leik fyrir vikið. Góðar fréttir af Salah og Van Dijk Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice