Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: fotbolti.net

Autor

Fotbolti.net

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

fotbolti.net

Cel mai nou episod

11 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Fylkir vs MBL 21.11.2024

Þetta er síðasti þátturinn í 16-liða úrslitum og eftir þennan þátt er það ljóst hverjir munu taka þátt í 8-liða úrslitunum. Í þessum þætti tekur Haraldur Örn á móti Ragnari Braga Sveinssyni sem keppir fyrir Fylki og Jóhanni Inga Hafþórssyni sem keppir fyrir MBL.

Innkastið - Eigum að gera okkur vonir um HM 2026 20.11.2024

Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni eftir 1 - 4 tap gegn Wales í gær. Sjö stig en þau hefðu átt að vera miklu fleiri miðað við frammistöðuna. Baldvin Már Borgarsson og Haraldur Örn Haraldsson settust niður með Guðmundi Aðalsteini og fóru yfir landsleikjagluggann. Einnig rætt lengi um Age Hareide og hans framtíð sem landsliðsþjálfara. Næst er það undankeppni HM 2026 og þó það...

Tveggja Turna Tal - Nik Chamberlain 18.11.2024

Gestur vikunnar er Íslandsmeistari í fótbolta 2024. Nik Chamberlain kemur frá Englandi, lærði í Alabama og tengdist Íslandi þar í gegnum m.a. Sigga Sör, Kára Ársæls og Hjört Hjartar! Nik kom til Íslands og spilaði á Álftanesi og ÍH áður en hann spilaði fyrir austan hjá Hugin og KFF. Hann setti mark sitt á Íslenskan fótbolta hjá kvennaliði Þróttar og var á haustmánuðum Íslandsmeistari með Breiðabli...

Útvarpsþátturinn - Máni fer um víðan völl 16.11.2024

Það er landsleikjagluggi og þáttur vikunnar litast að sjálfsögðu af honum. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stjórnartaumana og með þeim er Máni Pétursson sérstakur gestur og fer yfir helstu mál.

Frá Akranesi til Gana: Fer aftur með fótboltabúnað fyrir jólin 14.11.2024

Hin ganverska Samira Suleman safnar nú fótbolta- og íþróttabúnaði sem hún fer með til Gana um jólin. Samira gerði þetta líka um síðustu jól en hún fór þá með mikið magn af treyjum, skóm og öðrum búnaði í heimabæ sinn og gladdi þar mörg börn sem eiga ekki fyrir slíkan búnað. Fyrir börnin skiptir þetta gríðarlega miklu máli en í Gana er ekki sjálfsagt mál að eiga fótboltaskó og aðra hluti til fótbol...

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Víkingur vs Íþróttavikan 13.11.2024

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Víking og Íþróttavikunni. Fyrir Víkinga keppti Davíð Örn Atlason en fyrir Íþróttavikuna keppti Hrafnkell Freyr Ágústsson.

Hugarburðarbolti GW12 Man City tapaði fjórða leiknum í röð! 12.11.2024

Man City tapaði fjórða leiknum í röð í öllum keppnum! Liverpool eru í góðum gír með 5 stiga forskot á City. Yoane Wissa drjúgur fyrir Brentford eftir meiðslin. Joao Pedro með alvöru innkomu hjá Brighton! Bruno Fernandes kom loksins með frammistöðu og Sammie Szmodics afgreiddi Tottenham í London.

Enski boltinn - Liverpool er bara besta lið Evrópu 11.11.2024

Liverpool stuðningsmenn eru í skýjunum þessa dagana en það er óhætt að fullyrða að liðið þeirra sé það besta í Evrópu um þessar mundir. Hvern hefði grunað það fyrir tímabilið? Útvarpsmennirnir Bolli Már Bjarnason og Heiðar Austmann komu í heimsókn í dag og fóru yfir tímabilið hjá Liverpool til þessa en liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot. Þá var einnig farið yfir aðra...

Tveggja Turna Tal - Jóhann Birnir Guðmundsson 11.11.2024

Gestur vikunnar er Jóhann Birnir Guðmundsson, eðalnáungi. Jói æfði eiginlega ekki fótbolta í 3 og 4 flokki því það var ekki lið í Garðinum, þaðan sem  kemur. Elton John keypti hann til Watford og þar spilaði hann undir goðsögninni Graham Taylor. Jóhann spilaði svo i Englandi, Noregi og í Svíþjóð áður en hann kom heim til að spila með Keflavík. Eftir ferilinn hefur Jói verið þjálfari Keflavíku...

Útvarpsþátturinn - Kári Árna, Evrópuvelgengni Víkings og landsliðið 08.11.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi. Fjallað er um helstu fréttir úr íslenska boltanum, Evrópuvelgengni Víkings og íslenska landsliðið sem býr sig undir leiki gegn Svartfjallalandi og Wales í Þjóðadeildinni.

Fékk traustið áfram og gerði KA að bikarmeisturum 08.11.2024

Sæbjörn Steinke ræddi í vikunni við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, og gerði upp nýliðið tímabil með honum. KA varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins og endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar. Stigasöfnunin var lítil í byrjun móts og hugsuðu einhverjir hvort KA þyrfti hreinlega að skipta um þjálfara. Það var ekki gert og gengi liðsins batnaði til muna, við tók kafli þar sem KA tapaði ekki...

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Breiðablik vs Þungavigtin 06.11.2024

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Breiðablik og Þungavigtinni. Fyrir Breiðablik keppti Höskuldur Gunnlaugsson en fyrir Þungavigtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.

Hugarburðarbolti - Liverpool aftur á toppinn! 05.11.2024

Liverpool aftur á toppinn eftir magnaðan leik á Anfield Road gegn Brighton. Man City og Arsenal töpuðu bæði. Dominic Solanke skein skært hjá Spurs gegn Aston Villa. Viðurinn heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. Dýrlingarnir með sinn fyrsta sigur í deildinni og Harry Wilson hetjan á Craven Cottage.

Enski boltinn - Liverpool á toppnum og velkominn Amorim 04.11.2024

Það eru viðburðarríkir dagar að baki í enska boltanum og nóg um að ræða að venju. Liverpool er á toppnum eftir frábæra byrjun og Manchester United var að ráða nýjan stjóra. Svo er Nottingham Forest heitasta lið deildarinnar. Magnús Haukur Harðarson og Gylfi Tryggvason settust niður og ræddu málin í dag ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni.

Rólegi stríðsmaðurinn sem aldrei vék frá Stjörnunni 04.11.2024

Daníel Laxdal lagði skóna á hilluna á dögunum eftir stórkostlegan feril með Stjörnunni. Daníel lék allan sinn feril í Garðabænum og skilur eftir sig mikla arfleifð hjá félaginu. Mikill stríðsmaður innan vallar en afar rólegur samt sem áður. Þessi mikli Stjörnumaður mætti í hlaðvarp á Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi aðeins um ferilinn, ákvörðunina um að hætta og hvað sé næst.

Tveggja Turna Tal - Haraldur Árni Hróðmarsson 04.11.2024

Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður. Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tufa og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna. Kvikmyndaunnendur landsins mu...

Útvarpsþátturinn - Besta, Valur og Amorim tekur við 02.11.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir helstu tíðindi Bestu deildarinnar eftir að tímabilinu lauk, og nýr formaður fótboltadeildar Vals, Björn Steinar Jónsson er á línunni. Í seinni hlutanum mætir Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins, og gerir upp fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar. Ráðning Manchester United á...

Halldór Árnason - Íslandsmeistari í fyrstu tilraun 31.10.2024

Halldór Árnason gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum síðasta sunnudag eftir úrslitaleik gegn Víkingi í Fossvogi. Halldór var á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Breiðabliks en hann hafði áður verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar með liðið. Halldór mætti í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir frábært tímabil Blika, sem og sína leið í þjálfun.

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Afturelding vs Dr. Football 30.10.2024

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Aftureldingu og Dr. Football. Fyrir Aftureldingu keppti Arnór Gauti Ragnarsson en fyrir Dr. Football keppti Sigurður Gísli Bond Snorrason.

Hugarburðarbolti GW9 Erik ten Hag rekinn! 29.10.2024

Chris Wood heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. 2-2 sanngjarnt jafntefli í stórleiknum á Emirates. Jarrod Bowen setti síðasta naglann í kistu Erik ten Hag. Haaland skoraði eina markið gegn dýrlingunum. Cole Palmer átti enn einn góða leikinn fyrir Chelsea og Welbeck skoraði auðvitað fyrir Brighton í hörku 2-2 jafntefli gegn Úlfunum.

Enski boltinn - Ten Hag rekinn og dramatík á Emirates 28.10.2024

9. umferð í ensku úrvalsdeildinni kláraðist um helgina. Það var jafntefli í stórleik umferðarinnar og Erik Ten Hag var rekinn sem stjóri Manchester United.

Innkastið - Grimmir Blikar verðskuldaðir meistarar 27.10.2024

Síðasta Innkast tímabilsins. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke ræða um síðustu umferðina og gera upp tímabilið. Lið ársins og verðlaunaafhending. Opinberað er val .Net á leikmanni ársins, þeim efnilegasta, dómara ársins og þjálfara ársins. Til hamingju Íslandsmeistarar Breiðabliks! HK-ingar féllu með hvelli og Valur tryggði sér Evrópusæti.

Útvarpsþátturinn - Láki og leikurinn stóri 26.10.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað vel upp fyrir úrslitaleik Víkings og Breiðabliks. Gestur er Þorlákur Árnason nýr þjálfari ÍBV, Hilmar Jökull stuðningsmaður Breiðabliks kemur í heimsókn og Haraldur framkvæmdastjóri Víkings er á línunni. Hitað er upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, rætt um Evrópusigur Víkings og farið yfir fréttir v...

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: ÍA vs Stöð 2 23.10.2024

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti ÍA og Stöð 2. Fyrir ÍA keppti Arnór Smárason en fyrir Stöð 2 keppti Valur Páll Eiríksson.

Hugarburðarbolti GW8 Jón Steinsson var aftur hetja bláliða! 22.10.2024

Curtis Jones var munurinn á liðunum í leik Liverpool og Chelsea. Tvö frábær mörk hjá Man Utd í seinni hálfleik tryggðu sigurinn gegn Brentford. Man City eru ekki bara með gæðin heldur lukkudísirnar líka. Tottenham með glæstan sigur um helgina í Lundúnaslag gegn West Ham og Arsenal tapaði fyrsta útileik sínum á árinu sanngjarnt á suðurströndinni gegn Bournemouth.

Ascultă podcastul Fotbolti.net în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice