Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: fotbolti.net
Autor
Fotbolti.net
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
11 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Grasrótin - 2. umferð, Vogarnir í stuði og 4. deild farin af stað 15.05.2025
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 2. umferð í 2. og 3. deild karla og 1. umferð í 4. deild karla. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2. deild, 1:00, 3. deild, 32:50, 4. deild, 1:05:20.
Tveggja Turna Tal - Samantha Smith 15.05.2025
Samantha Smith afrekaði það að vera valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar og vera valin í lið ársins í Bestu deildinni í fyrra, það er afrek! Samantha kom til mín á Ölhúsið í Hafnarfirði og við ræddum uppvaxtarárin, tímann í Texas, hvernig hún svo endaði á Reyðarfirði og í kjölfarið á Breiðablik. Sammy svarar því svo til hvort hún hafi áhuga á að spila fyrir Íslands hönd ef einhver á þing...
Hugarburðarbolti GW 36 Man Utd og Tottenham í 16 og 17 sæti! 13.05.2025
Liverpool og Arsenal gerðu 2-2 jafntefli á Anfield í stórleik helgarinnar. Newcastle upp í 3 sætið eftir sterkan sigur gegn Chelsea. Man City misstigu sig á suðurströndinni gegn Southampton. Ollie Watkins með sigurmark á útivelli gegn Bournemouth. Nottingham Forest gerði einungis jafntefli 2-2 gegn föllnum Leicester liðum. Kevin Schade heldur áfram að spila vel og Eze var kóngurinn á Tottenham Hot...
Leiðin úr Lengjunni - Keflvíkingar brjálaðir og Grindvíkingar snúa heim 12.05.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
Tveggja Turna Tal - John Andrews 12.05.2025
John Andrews hefur þjálfað í Mosfellsbæ, á Húsavík, í Indlandi, Bandaríkjunum og nú í hamingjunni í Víkinni. John er fæddur í Cork í Írlandi, er frábær trúbador, stórskemmtilegur náungi og er hluti af Víkingsliðinu sem afrekaði það sem ekkert annað lið hefur afrekað í íslenskum kvennafótbolta - að verða bikarmeistari sem Lengjudeildarlið. Við ræddum þetta, Roy Keane, Matt Le Tissier, Kei...
Innkastið - Almarr með áhyggjur, sögulegt mark og Maggi fær VAR 11.05.2025
Innkastið eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Baldvin Borgars og sérstakur gestur er Almarr Ormarsson. FH-ingar gjafmildir gegn Víkingi, Hallgrími fannst ákvörðun Hallgríms fáránleg, Túfa fékk stórsigur en Jón Þór er brjálaður, Jökull og kuðungurinn, Alexander sló met Eiðs Smára og Maggi fær VAR.
Útvarpsþátturinn - Rautt í Keflavík og KR dúett úr Grafarvogi 10.05.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 9. maí. Dregið í fyrstu umferð Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda og Baldvin Már Borgarsson ræðir um Lengjudeildina. Gestir þáttarins eru Halldór Snær Georgsson og júlíus Mar Júlíusson sem gengu í raðir KR frá Fjölni fyrir yfirstandandandi tímabil. Rýnt er í komandi umferð í Bestu deildinni.
Enski boltinn - Enn eitt titlalausa tímabilið og augun á Bilbao 09.05.2025
Enn eitt titlalausa tímabilið hjá Arsenal er staðreynd eftir tap gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni. Er Arteta kominn á endastöð? Arsenal mennirnir Engilbert Aron og Jón Kaldal mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og sögðu frá sínu áliti á tímabilinu og því sem koma skal. Þá mætast Manchester United og Tottenham í mjög svo áhugaverðum úrslitaleik í Evrópudeildinni. Það er aðallega...
Grasrótin - 1. umferð, KFA og Hvíti með statement 08.05.2025
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Halli Óla og Tómas Helgi settust niður og ræddu stóru málin í 2. og 3. deild karla. Tímabilið er hafið og það fer svo sannarlega skemmtilega af stað.
Tveggja Turna Tal - Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir 08.05.2025
Guðjörg Ýr Hilmarsdóttir er stemmningskona úr Kópavogi. Hún er Dj á heimaleikjum Breiðabliks og er svo góð í starfi að re-mixin hennar eru spiluð í Þýsku Bundesligunni. Gugga skilaði nýlega upplifunarhandbók sem lokaverkefni í Háskólanum sem fjallar um hvernig hægt er að fjölga áhorfendum á íþróttaviðburðum. Gugga settist niður með mér og útskýrði fyrir mér hvernig við getum hækkað meðal...
Asmir Begovic ræðir við Fótbolta.net - Spenntur að koma aftur til Íslands 07.05.2025
Asmir Begovic, markvörður sem hefur spilað lengi í ensku úrvalsdeildinni, mun í sumar mæta til Íslands annað árið í röð og vera hér með markvarðarakademíu fyrir efnilega íslenska markverði. Námskeiðið í fyrra sló í gegn þar sem fjöldi efnilegra markvarða hvaðanæva af landinu og erlendis æfðu undir handleiðslu frábærra þjálfara. Þjálfarar í ár verða Begovic, David Smalley og Jack Hadley ásamt íslen...
Hugarburðarbolti GW 35a Cole Palmer svaf í 110 daga! 06.05.2025
Cole Palmer vaknaði loksins eftir 110 daga. Liverpool og Arsenal töpuðu bæði sínum leikjum. Aston Villa ætla sér meistaradeildar sæti. Nottingham Forest sitja í sjötta sætinu og Brighton og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli á Amex. Baráttan um meistaradeildar sætin verður rosaleg!
Betkastið - Upphitun 2 & 3.deild 06.05.2025
Ástríða neðri deildanna hefur loksins snúið aftur í hlaðvarpsheima. Stóra spáin sem allir hafa beðið eftir! Alli Davors, Aron Ýmir og JP mættu ræddu stóru málin. - 2. deildar spá - 3. deildar spá - Öll lið rætt, ásamt félagsskiptum, þjálförum og umgjörð - Spurningar úr sal - Rýnum í 1. umferð - Spáum í 2. umferð - Hvernig fer Champions League?
Innkastið - Markaregn og málaliðar 05.05.2025
Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Baldvin Borgars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og KR-ingurinn Valur Páll Eiríksson. Það er ekkert samhengi í Bestu deildinni! Leikurinn í Kópavogi stóð undir væntingum, Afturelding fór illa með Stjörnuna, Gylfi skoraði í sigri Víkings, FH vann fyrsta sigurinn gegn málaliðum Vals, KA í vandræðum og Vestramenn hylltir í Herjólfi.
Leiðin úr Lengjunni - Fyrsta umferð gerð upp 05.05.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.
Tveggja Turna Tal - Adda Baldursdóttir 05.05.2025
Ágerður Stefanía, eða Adda eins og hún er oft kölluð, er alinn upp í Breiðabliki en er í dag goðsögn í Stjörnunni og Val, þar sem hún raðaði inn Íslands- og bikarmeistaratitlum. Þegar leikferlinum lauk hélt hún strax áfram að móta sigurlið – nú í þjálfarateymi með Pétri Péturssyni. Í þessum þætti förum við yfir magnaðan feril, hvernig sigurhugarfar mótast, hvað þarf til að byggja upp sigursælt lið...
Útvarpsþátturinn - Lengjan hafin og Björn Hlynur naut sín í Liverpool 03.05.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. maí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Baldvin Már Borgarsson ræddi um Lengjudeildina og rennt er yfir komandi umferð og helstu tíðindi í Bestu deildinni. Gestur þáttarins er Björn Hlynur Haraldsson sem var í Liverpoolborg um síðustu helgi þegar titillinn var tryggður.
Uppbótartíminn - Íslenski kvennaboltinn á mannamáli 02.05.2025
Uppbótartíminn er nýtt hlaðvarp á Fótbolta.net þar sem fjallað er um kvennaboltann á Íslandi. Umsjónarmenn eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson. Í þessum þætti er farið yfir stöðu liða eftir fyrstu þrjár umferðirnar í Bestu deild kvenna og einnig er farið aðeins yfir neðri deildir sem eru að fara af stað. Hertz er stoltur stuðningsaðili kvennaboltans á Fótbolta.net.
Tveggja Turna Tal - Agla María Albertsdóttir 01.05.2025
Gestur dagsins er Agla María Albertsdóttir, barnastjarna úr Kópavoginum! Agla María hefur spilað á tveimur stórmótum með íslenska landsliðinu, unnið Íslands- og bikarmeistaratitla með bæði Stjörnunni og Breiðabliki og leikið sem atvinnumaður í Svíþjóð. Hún er í dag fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks – og útskrifaðist aðeins 24 ára gömul með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja. Góða skemmtun!
Innkastið - Enginn skilaréttur! 28.04.2025
Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór gera upp 4. umferð Bestu deildarinnar í Innkastinu. Jafntefli á Hlíðarenda, Framarar grýttu Eldingunni aftur niður á jörðina, Eyjamenn á siglingu, skemmtikraftarnir í KR fóru á kostum, útlitið svart hjá FH og aftur kom Höskuldur Blikum til bjargar.
Hugarburðarbolti GW34 Þig er ekki að dreyma, Liverpool eru Englandsmeistarar! 28.04.2025
Liverpool Englandsmeistari! Pökkuðu Tottenham saman á Anfield. Baráttan um meistaradeildarsætin 3-5 sætið heldur áfram. Newcastle fór upp í 3.sætið með þægilegum sigri á Ipswich. Matheus Chuna er listamaður Úlfanna. Chelsea sigraði Everton á Brúnni. Man City og Crystal Palace sem spiluðu ekki í umferðinni mætast í úrslitum FA bikarsins.
Enski boltinn - Liverpool er Englandsmeistari 2025 (Staðfest) 28.04.2025
Liverpool vann í gær sinn 20. Englandsmeistaratitil. Þetta hafði verið lengi í loftinu en Liverpool er búið að vera langbesta liðið þetta tímabilið. Baldvin Már Borgarsson og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag og gerðu upp magnað tímabil hjá Liverpool. Einnig var rætt um komandi Evrópuleiki og aðeins farið í spænska boltann í lokin.
Tveggja Turna Tal - Guðjón Örn Ingólfsson 28.04.2025
Fyrir 15 árum síðan var Guðjón Örn Ingólfsson að lyfta með Blaz Roca þegar Erpur hvatti hann til að mennta sig í styrktarþjálfun — ráð sem átti eftir að móta feril hans. Síðan þá hefur Guðjón verið lykilmaður í ótrúlegri uppbyggingu hjá Víkingi Reykjavík, þar sem hann varð Íslandsmeistari tvisvar sinnum og bikarmeistari fjögur ár í röð. Einnig tók hann þátt í velgengni FH á sínum tíma. Í dag starf...
Grasrótin - Upphitun fyrir 4 og 5. deild 27.04.2025
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum þætti er hitað upp fyrir 4 og 5. deild karla sem fer senn að hefjast. Rætt er um öll liðin og spáð fyrir um það hvar þau enda á komandi tímabili. Þáttastjórnendur eru Haraldur Ingi og Tómas Helgi.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice