Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Autor

Fotbolti.net

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

fotbolti.net

Cel mai nou episod

10 iul. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 5 mil.+ descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Útvarpsþátturinn - Áhugaverð umferð og leikar æsast á HM 10.07.2026

Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri. Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni. Þá er fjallað um HM þar sem 8-liða úrslitin eru farin af stað.

Cecilía Rán fer yfir allt milli himins og jarðar í nýju hlaðvarpi 09.07.2026

Runólfur Trausti Þórhallsson settist niður með Cecilíu Rán, markverði Inter og íslenska landsliðsins. Farið var yfir víðan völl en þrátt fyrir ungan aldur hefur Cecilía Rán upplifað margt á sínum ferli. Kaffispjallið er nýr hlaðvarpsþáttur hér á síðunni þar sem rætt verður við leikmenn um allt milli himins og jarðar. Í fyrstu seríu hlaðvarpsins verður rætt við markmenn og svo vinnum við okkur upp...

Innkastið - Áfall í Evrópusigri 07.07.2026

Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkasti vikunnar. Víkingur vann nauman sigur á Györ en varð fyrir áfalli, Fram gerði jafntefli í Keflavík, Eyjamenn unnu Val og ungstirni Breiðabliks skína skært. Farið er yfir helstu fréttir og slúður.

HM hringborðið - Azteca stóð undir nafni og falleg vinátta forsetanna 07.07.2026

Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga. Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit.

Harkið - Írskir dagar kalla 07.07.2026
Útvarpsþátturinn - Besta, bestir í Lengju og HM 04.07.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars. Byrjað er á íslenska boltanum. Besta deildin, tíðindi tengd henni og Víkingur er á leið í erfitt Evrópueinvígi. Svo er það Lengjudeildin sem fær sviðsljósið og opinberað er val á úrvalsliði umferða 1-11. Í seinasta hluta þáttarins er farið yfir 32-liða úrslit HM og spáð í spilin fyrir 16-liða úrsliti...

HM hringborðið: Söguleg stund fyrir Ronaldo og uppáhalds HM leikmenn 03.07.2026

HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir að þessu sinni. Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir leikina þrjá sem eftir eru í 32-liða úrslitum. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds HM leikmenn.

HM hringborðið: Sævarssynir fara yfir 32-liða úrslitin 01.07.2026

Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir voru gestir HM hringborðsins að þessu sinni. Þeir fóru yfir liðna leiki í 32-liða úrslitum og spáðu í spilin fyrir komandi leiki. Þá fór Birkir jafnframt yfir sigur Íslands á Englandi og heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018.

Uppbótartíminn í mynd - Kristianstad, pælingar með Nik og slúður 01.07.2026

Það er landsleikjahlé í Bestu deild kvenna en við gefum út aukaþátt af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, þessa vikuna. Nik Chamberlain, þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, er í heimsókn á Íslandi og hann mætti í þáttinn til að fara yfir tíma sinn hjá Kristianstad til þessa. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Nik fóru einnig yfir tölfræði úr Bestu deildinni, leikstíla og aðrar p...

Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar 29.06.2026

Innkastið eftir tólftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn eftir sigur Vals gegn Þór, Akureyri er í frjálsu falli, Keflavík vann KR og umferðinni lauk með leik ÍA og Fram á Akranesi. Þá er fjallað um sigur Breiðabliks gegn Víkingi í undanúrslitum bikarsins og einnig er Lengjudeildarhorn.

Harkið - Skandall í Sandgerði 29.06.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í 10 umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum auk þess var farið yfir verstu velli í 2. og 3. deild. -Uppgjör 3.deildar - 07:50 -Uppgjör 2.deildar - 37:50 -Spá og leikmaður umferðarinnar - 01:08 :00 Harkið er í samstarfi með Serrano og AB Sportvörum. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11 26.06.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Víkingar voru ekki sáttir þrátt fyrir 4-1 sigur í Kópavogi, úrvalslið umferða 1-11 í Bestu deildinni er opinberað... og líka vonbrigðaliðið! Gestur þáttarins er Óskar Borgþórsson sem hefur verið gjörsamlega frábær með Víkingum. Þá er sigur Íslands gegn Englandi 2016 rifjaður upp og f...

Uppbótartíminn - Þrjú lið á leið í titilbaráttu? 24.06.2026

Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist í gær með tveimur áhugaverðum leikjum. Farið var yfir alla leiki umferðarinnar í Uppbótartímanum í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur og þau fóru yfir leikina ásamt öllum helstu sögulínum.

HM hringborðið - Stjörnurnar standa undir nafni 24.06.2026

HM hringborðið á miðvikudegi. Kári Snorrason, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fóru yfir úrslit og atburði síðustu daga á heimsmeistaramótinu.

Harkið - Göngutúr í Garðinum 23.06.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í níundu umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmönnum umferðar í báðum deildum. -Uppgjör 3.deildar - 06:00 -Uppgjör 2.deildar - 40:00 -Spá - 01:24 Harkið er í boði Serrano Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson

Innkastið - Dalur martraðanna 22.06.2026

Innkastið eftir 11. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Runólfur Trausti íþróttafréttamaður og markvarðaþjálfari. Víkingar sýndu mátt sinn og megin þegar þeir tóku Framara í kennslustund, KR vann markaleik gegn ÍA, Eyjamenn eru komnir á mjög gott ról, fimmtán ára markaskorari þegar Breiðablik vann KA, jafntefli í Krikanum og á Hlíðarenda.

Útvarpsþátturinn - Keli í Dal draumanna og Freysi í Þrándheimi 20.06.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir komandi umferð í Bestu deildinni og Þorkell Gunnar ræðir um Fram og stemninguna í Dal draumanna. Freyr Alexandersson nýr þjálfari Rosenborgar er á línunni beint frá Þrándheimi. Þá er rætt um heimsmeistaramótið í fótbolta.

HM hringborðið - Tíu menn og stytta 19.06.2026

Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í HM hringborðinu þennan föstudaginn. Stóru þjóðirnar mættu til leiks og gerði Messi frábæra þrennu gegn Alsír, sömu sögu má ekki segja um Ronaldo og félaga hans í Portúgal sem gerðu 1-1 jafntefli við Kongó.

UTAN VALLAR: Yfirferð á ársreikningum - Fylkir í miklu brasi 18.06.2026

- Hægt er að horfa á þáttinn í mynd á Youtube Sævar Þór Sveinsson, umsjónarmaður Utan vallar, fór yfir ársreikninga liða úr Bestu- og Lengjudeildinni ásamt Kára Snorrasyni. Farið var yfir helstu tölur, sýnd gröf og rýnt í stöðu liðanna út frá ársreikningunum.

Harkið - Bann í Búdapest 18.06.2026

Harkið fór yfir stærstu atvik í áttundu umferð 2. og 3. deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. Guðbjörn Smári var vant við látinn hjá tannlækni því var kallað í Freysa. - Uppgjör 2.deildar: 8:00 - Uppgjör 3.deildar: 51:00 - Spá: 01:24 Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Innkastið - Eru ósigraðir Víkingar óstöðvandi? 16.06.2026

10. umferð Bestu deildar karla gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og fótboltalýsandinn Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður KR, er gestur. Víkingur vann toppslaginn gegn KR, Stjarnan gerði markajafntefli gegn Breiðabliki í fyrsta leik Jóns Þórs og ÍA vann Val. FH vann sinn fyrsta sigur í Keflavík, ÍBV fór illa með Þór og Fram vann KA í markaleik.

HM hringborðið - Snyrtilegir Japanir og bitlausir Spánverjar 16.06.2026

Kári Snorrason, Elvar Geir Magnússon og Sölvi Haraldsson í HM hringborðinu á þriðjudegi. Það var af nægu að taka í öðrum þætti hringborðsins þetta árið. Farið var yfir alla leiki, helstu atburði og sögulínur.

Uppbótartíminn - Nú stöndum við upp og klöppum 15.06.2026

Farið var yfir áttundu umferð Bestu deildar kvenna í Uppbótartímanum í kvöld. Stjarnan gerði sér lítið fyrir og skellti Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á Kópavogsvelli. Við stöndum og klöppum fyrir Stjörnunni sem er á góðu róli í Bestu deild kvenna. FH er komið á toppinn og Grindavík/Njarðvík vann mjög sanngjarnan sigur. Þá voru tvö 0-0 jafntefli. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjör...

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti í Garðabæ og Einar Örn um HM 13.06.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 13. júní. Elvar Geir og Tómas Þór hafa umsjón með þættinum. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV er gestur þáttarins. Þjálfaraskiptin í Garðabæ eru rædd. Aðalmálin í þættinum eru 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins og auðvitað heimsmeistarakeppnin sem er farin í gang. Þá er næsta umferð í Bestu deildinni skoðuð og Lengjudeildin.

Harkið - Hjólari á Króknum 12.06.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í sjöundu umferð 2. og 3. deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - Uppgjör 3 deildar - 6:30 - Uppgjör 2 deildar - 39:00 - Spá - 01:09 Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Ascultă podcastul Fotbolti.net în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice