Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands
Til skjalanna
Hvað er Þjóðskjalasafn Íslands? Forvitnileg skjöl, sögulegir viðburðir og nýjar rannsóknir
Author
Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Grindavíkurskjölin 18.12.2023 35:25
Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits og Árna Jóhannsson skjalavörð um aðkomu og framkvæmd Þjóðskjalasafns Íslands á flutningi skjala Grindavíkurbæjar þegar náttúruvá steðjaði að.
Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi 29.11.2023 40:40
Benedikt Eyþórsson ræðir við Báru Baldursdóttur sagnfræðing um bók hennar Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi sem nýlega kom út. Óhætt er að segja að gögn sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni Íslands hafi varpað nýju ljósi á samneyti íslenskra kvenna og hermanna á hernámsárunum.
Íslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn 19.10.2023 34:35
Íslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn. Helgi Biering ræðir við Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur sagnfræðing um rannsóknir hennar á íslenskum sakamönnum sem sendir voru til refsivistar í Kaupmannahöfn á árunum 1736-1830
Hverjir völdu fulltrúa fólksins? 01.06.2023 29:20
Ragnhildur Anna Kjartansdóttir ræðir við Hrafnkel Lárusson skjalavörð og nýdoktor í sagnfræði um rannsókn hans á kosningum og kjörhegðun Íslendinga á landshöfðingjatímanum (1874-1903), en verkefnið hlaut nýverið nýdoktorsstyrk frá Rannís
Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 13.12.2022 39:45
Benedikt Eyþórsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur sagnfræðing og ljóðskáld um nýútkomna bók hennar um farsóttarhúsið í Reykjavík
Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu 14.11.2021 47:22
Unnar Rafn Ingvarsson og Jón Torfi Arason ræða við Kristjönu Vigdísi Ingvadóttur um nýstárlega sagnfræðirannsókn hennar um tungumálanotkun á Íslandi, dönsk áhrif á 18. og 19. öld og um mikilvægi íslensku frá siðaskiptum
Lénið Ísland 13.10.2021 31:12
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Kristjönu Kristinsdóttur sagnfræðing um tímamótarannsókn hennar: Lénið Ísland: Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld.
Jarðskjálftar á Þjóðskjalasafni 15.07.2021 40:57
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Pál Einarsson jarðeðlisfræðing og prófessor emeritus um sögu jarðskjálftamælinga á Íslandi og stafræna afritun sögulegra mæligagna um jarðskjálfta, sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni, og hafa að geyma ómetanlegan vitnisburð um hreyfingu jarðarinnar
Einkabréf alþýðukonu frá 19. öld 30.06.2021 28:12
Jón Torfi Arason ræðir við Helgu Hlín Bjarnadóttur sagnfræðing og skjalavörð um safn sendibréfa lausakonunnar Arnfríðar Þorkelsdóttur (1830-1885) sem nýlega komu fram í dagsljósið á Þjóðskjalasafni. Tilefnið er grein Helgu Hlínar í Sögu, þar sem hún kynnir þessar ómetanlegu hversdagsheimildir
Um skjalfræði og mikilvægi upprunans 11.06.2021 30:33
Jón Torfi Arason ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur sagnfræðing og lektor í skjalfræði um fræðigreinina skjalfræði, upprunareglu í skjalavörslu og námsleið í hagnýtri skjalfræði við Háskóla Íslands
Lýðræði í mótun 02.06.2021 38:07
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um doktorsritgerð hans: Lýðræði í mótun: félagastarf, fjölmiðlun og þátttaka almennings 1874-1915
Skjöl á skriðusvæði 24.03.2021 34:34
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Karen Sigurkarlsdóttur forvörð og Andra Má Jónsson skjalavörð, en þau aðstoðuðu bæði við björgun á skjölum úr skriðunum sem féllu á Seyðisfirði í desember árið 2020
Smitvarnir og bólusetningar 26.02.2021 29:46
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Erlu Dóris Halldórsdóttur sagnfræðing um bólusetningar á 18. og 19. öld og þá kröfu sem var gerð til skipa að þau væru smitfrí
Ættarsaga óperusöngvara 08.02.2021 34:03
Unnar Rafn Ingvarsson og Benedikt Eyþórsson ræða við Bjarna Thor Kristinsson óperusöngvara um rannsóknir hans á sögu fjölskyldunnar.
Dánarbú 30.000 Íslendinga 12.01.2021 35:53
Rætt er við Má Jónsson prófessor um gagnagrunn og leitarvél sem nú er orðin aðgengileg á vef Þjóðskjalasafns og tekur til dánarbúauppskrifta, skiptabóka og uppboða á 18. og 19. öld. Dánarbússkrárnar innihalda nákvæmar skrár yfir eigur fólks og taka m.a. til fatnaðar, verkfæra og búfjár og eru ómetanlegar upplýsingar um lífskjör fólks
Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins 21.12.2020 42:03
Benedikt Eyþórsson fagstjóri og Freyr Snorrason sagnfræðingur ræða við Pétur Ármannsson arkitekt og sviðstjóra hjá Minjavernd um nýútkomna bók hans um ævistarf Guðjóns.
Í hers höndum 02.12.2020 28:06
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við sagnfræðinemana Atla Björn Jóhannesson og Daníel Godsk Rögnvaldsson um skönnun og skráningu skjala sem varða stríðsárin 1940-1945. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
Stormhúfa og harmóníka. Um hagsögusafn Þjóðskjalasafns Íslands 25.11.2020 30:01
Í upphafi árs 2020 lauk endurskráningu á gríðarstóru safni verslunarskjala sem verið höfðu óaðgengileg um áratuga skeið á Þjóðskjalasafni. Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við sagnfræðingana Gunnar Örn Hannesson og Jón Torfa Arason sem báðir komu að verkefninu. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
Raddir frá liðnum tíma 04.11.2020 32:24
Njörður Sigurðsson ræðir við Bjarka Sveinbjörnsson fagstjóra Hljóð- og myndsafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabóksafns um björgun hljóðs af pappaplötum frá árinu 1944. Á upptökunum má heyra raddir margra af fyrstu forystumönnum Alþýðuflokksins. Hér er því um einstakar heimildir að ræða sem heyrast nú í fyrsta skipti í áratugi. Plöturnar eru varðveittar í skjalasafni Alþýðuflokksins í Þjóðskjala...
Landsnefndin 1770-1771 26.10.2020 27:59
Störf og hlutverk Landsnefndarinnar fyrri sem starfaði á árunum 1770-1771. Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur og Helgu Hlín Bjarnadóttur, en þær komu allar að útgáfu 5. bindis skjala Landsnefndarinnar. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
Þjóðskjalavörður hefur orðið 21.10.2020 27:44
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur þjóðskjalavörð um hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands og verkefni þess í bráð og lengd. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.