RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Orðalag eins „og/eða annar ófyrirséður kostnaður“ á ekki heima í lánaskilmálum 18.06.2024 16:25
EFTA-dómstóllinn gaf álit á dögunum um að skilmálar lána sem bera breytilega vexti séu ekki nægilega skýrir. Álitið snýr annars vegar að máli Neytendastofu gegn Íslandsbanka og hins vegar máli Neytendasamtakanna gegn Íslandsbanka og Landsbankanum. Í öllum tilvikum snúast málin um það hvort skilmálar lána, bæði neytendalána og fasteignalána, séu nægilega skýrir. Neytandinn hringir ekki bankann og s...
Íslenskar löggur heimsþekktar meðal barnaníðinga 14.06.2024 16:14
Íslenskir lögreglumenn eru orðnir heimsþekktir meðal þeirra sem eru haldnir barnagirnd eða sækjast í gróft kynferðislegt barnaníðsefni á netinu. Lögreglumennirnir hafa komið fyrir myndböndum af sér á myrkrum kimum internetsins þar sem barnaníðingar halda sig og deila grófu efni sín á milli. Ævar Pálmi Pálmason segir frá þessum aðgerðurm lögreglunnar. Sumar sem horft hafa á myndböndin hafa þegið hj...
13.06.2024 14:59
Umræðurnar með skrítna nafnið - Eldhúsdagsumræður - fóru fram á Alþingi í gær. Tveir þingmenn frá hverjum flokki stíga í pontu, engin andsvör, engar spurningar, bara einn af öðrum með ræðu um stefnu ríkisstjórnar, fjármál og störf Alþingis, svona hálfgerða spariræðu. Það þarf stundum að taka til í eldhúsinu og koma hlutunum á hreint. Eldhúsdagsumræðurnar í gær fóru fram undir taktföstum köllum mót...
Ofbeldi sem eltir þig hvert fótmál 12.06.2024 16:48
Hvaða áskoranir mæta þeim sem reyna að brjótast undan nauðungarstjórnun? Hvernig geta þolendur hafið nýtt líf þegar ofbeldi fylgir þeim hvert fótmál í gegnum snjallsíma? María Rún Bjarnadóttir yfirmaður netöryggis hjá ríkislögreglustjóra hefur rannsakað hverjir beita stafrænu ofbeldi og hvers vegna. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfs segir ofbeldið nú fylgja konum inn í athva...
Börn hjóla, fullorðnir hjóla ...en ungt fólk hjólar síst 11.06.2024 15:21
Þrátt fyrir að framhaldsskólar séu almennt smekkfullir af hraustu ungu fólki yfir skólaárið þá eru litlar líkur á að koma auga á framhaldsskólanema á hjóli. Aðeins um þrjú til fimm prósent framhaldsskólanema hjóla í skólann og hlutfallið er svipað krökkum í efstu bekkjum grunnskóla, unglingadeild, þrátt fyrir að í fyrsta til sjöunda bekk sé hjólið allsráðandi farartæki. Þórarinn Alvar Þórarinsson...
Átta stiga aðdragandi að manndrápum í nánum samböndum 10.06.2024 17:22
Skoðun lögreglunnar á aðdraganda manndrápa í nánum samböndum, sýnir átta stig af nauðungarstjórnun. Lögreglan vil því að fólk þekki helstu einkenni stjórnunarinnar svo unnt sé að rjúfa vítahringinn áður en eitthvað hræðilegt gerist. Lögreglukonurnar Þóra Jónasdóttir og Marta Kristín Hreiðarsdóttir ræða um einkenni nauðungarstjórnunar. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins seg...
Stríð verkalýðshreyfingarinnar við Wolt 06.06.2024 17:17
Verkalýðshreyfingin víða um Evrópu heyjar harða baráttu við heimsendingarfyrirtækið Wolt og sakar það um að dansa í kringum leikreglur vinnumarkaðarins. Hreyfingin sakar Wolt um að stunda gerviverktöku, fyrra sig ábyrgð á sendlunum og skræla af þeim réttindi launþega. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja verkalýðsfélögin þurfi að laga sig að nútímanum. Þóra Tómasdóttir ræðir við fulltrúa ASÍ, upplýsin...
Hjólað allt árið 05.06.2024 16:49
Sífellt fleira fólk velur að hjóla allt árið. Anna Hulda Ólafsdóttir skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofunni er ein þeirra sem hjólar nær allra sinna ferða. Hún segir innviðauppbyggingu á borð við hjólastíga skipta máli en að réttur búnaður og gott hjól skipti ekki síður máli. Þá sé mikilvægt að vinnustaðir geri fólki það auðveldara að fara til vinnu á hjóli, til dæmis me...
Barnalæknir vil gefa umdeilt lyf við ungbarnakveisu 04.06.2024 17:12
Í þessum þætti er rætt um ástandið sem skapast á heimilum nýbura með ungbarnakveisu og hvað sé best að gera fyrir börnin á meðan kveisunni stendur. Það eru skiptar skoðanir á því meðal lækna hvernig best sé að tækla kveisuna. Viðar Örn Eðvarsson barnalæknir syndir svolítið á móti straumnum í þeim efnum. Hann telur undanþágulyfið dísíklóverin öfluga leið til að lina þjáningar erfiðustu tilfellanna...
Ungt fólk, TikTok og baráttan um Bessastaði 03.06.2024 16:15
Kosningabaráttan um Bessastaði var háð í fjölmiðlum, úti á meðal fólks og á samfélagsmiðlum. Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands var áberandi á Tik Tok og fleiri samfélagsmiðlum auk þess sem framboðið rak sérstaka kosningamiðstöð fyrir ungt fólk. Auður Ína Björnsdóttir, nemi í sálfræði og dóttir Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og Björns Skúlasonar, tók virkan þátt í kosningabaráttunni a...
Kemur dómur yfir Trump í veg fyrir að hann verði forseti? 31.05.2024 18:09
Donald Trump fyrrum forseti Bandaríkjanna var fundinn sekur um skjalafals í svokölluðu mútugreiðslumáli til Stormy Daniels. Í hverju felast brot hans, um hvað snýst málið og hvaða pólitísku áhrif hefur dómurinn á möguleika hans til að verða næsti forseti Bandaríkjanna? Kári Hólmar Ragnarsson lektor við lagadeild Háskóla Íslands hefur legið yfir málinu.
Bakvið tjöldin á kosningavöku RÚV 30.05.2024 16:09
Um eða yfir hundrað manns koma að Kosningavöku RÚV sem hefst klukkan tíu á laugardagskvöld eftir að kjörstöðum í forsetakosningum lokar. Stífar æfingar fyrir stóra kvöldið hafa staðið yfir alla vikuna. Undirbúningur fyir kosningaumfjöllun RÚV hófst strax í janúar, en síðastliðinn mánuð hefur allt verið sett á fullt í að tryggja að kosningavakan gefi sem besta mynd af niðurstöðum kosninga og áhorfe...
Hvernig gengur að byggja nýjan spítala? 29.05.2024 17:22
Við bregðum okkur inn fyrir girðinguna sem umlykur eina stærstu, dýrustu og flóknustu byggingaframkvæmd Íslandssögunnar. Það er að sjálfsögðu bygging nýs Landspítala við Hringbraut. Við ætlum að kanna hvernig framkvæmdin gengur, hvaða hús við sjáum vera að rísa á lóðinni og hvað sé langt í að þau verði tekin í notkun. Þóra Tómasdóttir ræðir við Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóra Nýs Landspítala.
Áfengi í netverslunum. Hvað er löglegt og hvað ekki? 28.05.2024 15:30
Netverslun með áfengi hefur færst í vöxt. Hún byggir á einni af meginstoðum EES-samningsins - frjálsum vöruflutningi milli landa innan evrópska efnahagssvæðisins. Í skjóli samningsins geta verslanir í löndum utan Íslands, en innan svæðisins, selt áfengi í netverslun þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins á smásölu í gegnum ÁTVR. Vegna einkaleyfisins mega netverslanirnar ekki vera skráðar hér á landi. Ísl...
Mannabein á Bessastöðum 27.05.2024 16:41
Þegar ráðist var í umbætur á aðgengi að kirkjunni á Bessastöðum, reyndust mannabein í jörðu hvar sem stungið var niður skóflu. Hundruð beinagrinda hvíla í jörðinni við bæinn. Ekki aðeins undir þeim fáu legsteinum sem sjá má í kirkjugarðinum. Sumar þeirra hafa gægst upp á yfirborðið að undanförnu. Leikarinn og arkitektinn Þorsteinn Gunnarsson segir frá þessari stórmerkilegu kirkju og Hermann Jakob...
Konur verða að vita af góðum launum í upplýsingatækni 24.05.2024 16:53
Upplýsingatæknigeirinn er að langmestu leyti mannaður af karlmönnum. Ef kynjahlutföllinn ekki breytast í þessum ört vaxandi geira verða tæknilausnir framtíðarinnar þróaðar af einsleitum hópi. Anna Sigríður Islind, dósent í tölvunarfræði við HR, og Þóra Rut Jónsdóttir, stjórnarkona í Vertonet, vilja vekja athygli kvenna á því að há laun séu í boði í geiranum.
Anton Sveinn McKee og staða afreksíþróttafólks 23.05.2024 16:21
Lengi hefur verið ljóst að staða afreksíþróttafólks hér á landi er erfið. Þau sem keppa á efsta stigi fá vissulega styrki en þeir eru lágir og íþróttafólk þarf gjarnan að treysta á að mamma eða pabbi geti hlaupið undir bagga. Anton Sveinn McKee segir mömmu sína hafa í gegnum árin verið sinn helsta stuðningsmann, en að það sé ekki eðlileg staða að þurfa að reiða sig á stuðning ættingja til að geta...
Veðmálafíkn hverfist um að tapa 22.05.2024 15:08
Umfang íþróttaveðmála eru að aukast hér á landi. Íslenskt veðmálafyrirtæki heldur því fram að veðmál geri íþróttir meira spennandi og leikinn skemmtilegri. Kristinn Hjartarsson er einn þeirra sem hefur kynnst myrkum hliðum veðmálanna. Um tíma stjórnaðist allt hans líf af veðmálum og tók sinn toll af heilsunni og fjölskyldulífinu. Pétur Magnússon ræddi við hann um fíknina sem hann þróaði með sér, s...
Hvenær kemur svo þessi Sundabraut? 21.05.2024 15:22
Sundabraut er löngu þekkt orð í almennri umræðu hér á landi. Svo margumrædd að við tökum stundum ekki eftir því þegar hún er enn einu sinni komin á dagskrá, eftir nokkurra áratuga flæking í ýmsum kerfum. Samfélagslegur ávinningur, arðsöm framkvæmd, minni heildarakstur, minni mengun, tímasparnaður, styttri vegalengdir og færri slys. Allt þetta hefur verið nefnt sem kostir brautar um Sundin. Sundabr...
Andstæðir pólar um óstuddar fæðingar 17.05.2024 16:27
Konur sem aðhyllast fæðingar án aðkomu fagfólks vilja að kerfið virði val þeirra og ákvarðanir. Landlæknir og yfirljósmóðir á Landspítalanum taka undir að konur eigi að hafa val en ítreka áhættur sem því fylgja að fæða án fagmenntaðra. Það séu margir áhættuþættir sem konur ekki geti greint sjálfar og að skima þurfi fyrir til að tryggja öryggi. Rætt er um tortryggni á báða bóga og hvort eitthvað sé...
Er verðlaunafé ógn við Ólympíuandann? 16.05.2024 16:53
Fyrir hvert Ólympíugull í frjálsum íþróttum í París í sumar ætlar alþjóða frjálsíþróttasambandið að greiða sem nemur sjö milljónum króna í verðlaunafé. Þetta verður í fyrsta sinn sem íþróttafólk fær greitt fyrir verðlaun á Ólympíuleikum. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd, meðal annars af Alþjóða Ólympíusambandinu og ðrum alþjóðlegum íþróttasamböndum. Aðeins verður greitt fyrir gullverðlaun,...
Konur sem afþakka mæðravernd og ungbarnaeftirlit 15.05.2024 16:25
Kerfið verður að hlusta á og aðlaga sig að þörfum kvenna sem velja að fæða börn sín utan heilbrigðiskerfisins og án aðkomu fagfólks. Það þýðir ekki bölsóttast út í ákvarðanir þeirra. Þetta segir Berglind Hálfdánsdóttir ljósmóðir og dósent við Háskóla Íslands. Þóra Tómasdóttir heldur áfram umfjöllun um svokallaðar óstuddar fæðingar sem eru að ryðja sér til rúms á Íslandi.
Lögregluofbeldi og stúdentamótmæli 14.05.2024 15:49
Stúdentar hafa sýnt Palestínufólki samstöðu víða um heim með mótmælum gegn stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gaza. Alda samstöðumótmæla stúdenta sem hófst við Columbia háskóla í New York um miðjan apríl hefur nú breiðst út um háskóla víða í Evrópu. Tjaldbúðir má sjá á háskólalóðum í Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Hollandi og fleiri löndum. Að mestu leyti fara þessi mótmæli friðsamlega fram, en athygli...
Að fæða barn án aðkomu heilbrigðiskerfisins 13.05.2024 16:56
Sex börn fæddust utan heilbriðgðiskerfisins og án aðkomu fagfólks á Íslandi í fyrra. Við heimsækjum Brynhildi Karlsdóttur sem fæddi dóttur sína í anda hugmyndafræði um óstuddar fæðingar eða free birthing. Við ræðum líka við blaðamanninn Klöru Ósk Kristinsdóttur sem hefur fjallað um málið í Morgunblaðinu frá sjónarhóli fagfólks. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.
Ef stúkan er gul þá er það heimavöllur 10.05.2024 16:12
Íþróttastarf Ungmennafélags Grindavíkur heldur áfram þótt það verði með breyttu sniði. Félagið hefur háð baráttu fyrir tilvist sinni í vetur en á nú í viðræðum við ríkið, sveitarfélög og önnur íþróttafélög um að tryggja áframhaldandi starfsem í einhverri mynd. Meistaraflokkar félagsins í körfubolta og fótbolta eru á fullri ferð og Þetta helst leit við á leik karlaliðsins í körfubolta í Smáranum í...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.