RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
,,Það eru allir Miðflokksmenn þessa dagana" 09.10.2024 16:00
Miðflokkurinn mælist nú með næstum því jafn mikið fylgi og allir ríkisstjórnarflokkarnir til samans. Það er óhætt að segja að það sé létt yfir fólkinu í flokknum í þessum svakalega meðbyr. Þetta helst fylgdi þingmanninum Bergþóri Ólasyni eftir brot úr degi og fékk nasaþef af stemningunni í flokknum fyrir mikilvægan fund hans um helgina.
Saga Constantins og dómsmálið gegn starfsmannaleigunni Seiglu 08.10.2024 14:32
Þegar Rúmeninn Constantin Barbieru Manolache hætti að vinna hjá starfsmannaleigunni Seiglu í mars í fyrra fékk hann ekki greidd laun fyrir síðasta mánuðinn. Constantin hafði fengið fimm menn frá bænum sem hann kemur frá í Rúmeníu hingað til lands í vinnu. Þeir voru í sömu stöðu og Constantin og áttu inni laun hjá Seiglu sem þeir fengu ekki greidd. Constantin fann til ábyrgðar gagnvart þeim vegna þ...
Ráðgátan um rússneskumælandi svikahrapp 07.10.2024 16:46
Þegar lögregla var kölluð að heimili í Reykjavík í fyrra vor, vegna gruns um heimilisofbeldi, komst hún óvænt á spor svikahrapps sem á sér ekki hliðstæðu á Íslandi. Svindl hans virðist teygja anga sína um heilbrigðis- og velferðarkerfi landsins og langt út fyrir landsteinana. Svindlið hleypur á i tugum milljóna króna, það hefur kostað geðlækni læknisleyfið og útheimt óheyrilega rannsóknarvinnu. Í...
Kjarabrotamálin hjá verkalýðshreyfingunni gegn starfsmannaleigunni Seiglu 04.10.2024 18:20
34 kjarabrotamál eru opin hjá Verkalýðsfélaginu Hlíf gegn starfsmannaleigunni Seiglu. Verkalýðshreyfingin hefur þurft að hafa ítrekuð afskipti af starfsmannaleigunni fyrir hönd félagsmanna sinna. Þessi afskipti hófust um vorið 2023 þegar starfsmaður Seiglu varð fyrir líkamsárás og Verkalýðsfélagið Hlíf þurfti að aðstoða hann. Síðan þá hafa tugir nýrra mála komið upp. Eigandi Seiglu og lögmaður sta...
Saga JL-hússins- viðskiptahöll verður móttaka flóttafólks 03.10.2024 16:26
JL-húsið er eins konar minnisvarði um sögu Vesturbæjar. Það var tákn um velsæld og blómleg viðskipti en síðustu ár hefur ólukka verið yfir þessu reisulega húsi. Nú verður húsið að úrræði Vinnumálastofunar fyrir hátt í 400 flóttamenn. Þóra Tómasdóttir rifjar upp sögu hússins og ræddi við tvo fyrrum eigendur þess, Skúla í Subway og Áslaugu Thorlacius skólastjóra Myndlistarskólans.
Formaður bæjarráðs Ölfuss vill byggja 95 íbúðir í sveitarfélaginu 02.10.2024 17:27
Formaður bæjarráðs Ölfuss, Grétar Ingi Erlendssson, á hlut í eignarhaldsfélagi sem ætlar að byggja tæplega 100 íbúðir í Ölfusi. Íbúðirnar eiga að rísa á svæði sem kallast Bakkamelur. Þetta svæði liggur við veginn á milli Þorlákshafnar og Hveragerðis. Grétar Ingi er einn af eigendum félagsins Bakkamelur ehf. sem mun standa að byggingu íbúðanna. Viðskipti og framkvæmdir þessa félags eru nú til meðfe...
True Detective-áhrifin á kvikmyndageirann 01.10.2024 17:14
Kvikmyndagerðarfólk segir fögur fyrirheit menningarmálaráðherra um meiri pening í kvikmyndasjóð hafi verið svikin. Þau telja að núverandi styrkjafyrirkomulag þjóni þörfum erlendra kvikmyndarisa en geri útaf við innlenda kvikmyndagerð og útiloki frumsköpun á íslensku efni. Þau hafa áhyggjur af True Detectice-áhrifunum. Við ræðum málið við Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra og kvikmyndaframle...
Ríkisstyrkir til rafbílakaupa: Eitt fyrirtæki fékk rúmlega 100 milljónir af 510 30.09.2024 15:51
Bifreiðaumboðið Brimborg fékk rúmlega 100 milljónir króna af þeim 510 sem íslenska ríkið veitti nýlega fyrirtækjum í ríkisstyrki til rafbílakaupa. Þá fær Brimborg líka stóran hluta af styrkjunum með óbeinum hætti þar sem stór hluti af fyrirtækjunum sem fá styrkina ætla að kaupa rafbíla af þessu umboði. Um er að ræða ríkisstyrki vegna kaupa á rafmagns vörubílum í atvinnuskyni. Samtals eru veittir s...
Skipulögð glæpastarfsemi Puff Daddy 27.09.2024 16:43
Puff Daddy, eða Sean Combs eins og hann heitir, er ákærður fyrir að hafa í áraraðir stundað skipulagða glæpastarfsemi, mansal og kynlífsþrælkun. Saksóknari í New York segir hann hafa notað viðskiptaveldi sitt, Combs Enterprise, til að fremja brotin og hylma yfir þau. Árni Matthíasson tónlistarspekúlant hefur fylgst náið með málinu og telur litlar líkur á að Puff Daddy verði frjáls á ný. Þóra Tómas...
Hversu mikinn þrótt hafa Líbanir? 26.09.2024 17:12
Hvers vegna stigmagnast átökin milli Hezbollah og Ísraela nú? Við heyrum af því sem mótar líf fólks í Líbanon, hvaða áhrif sprengjuregn Ísraela hefur á þjóðina og hvernig málin blasa við frétta- og mannúðarstarfsfólki. Þóra Tómasdóttir ræddi við Láru Jónasdóttur frá Læknum án landamæra, Ólöfu Ragnarsdóttur fréttamann Rúv og Antoun Issa fyrrum fréttamann The Guardian.
Svörtu sauðirnir í ferðaþjónustunni: 90 milljóna þrot og starfsfólk situr eftir 25.09.2024 15:59
Í dag fjöllum við um misbresti í rekstri og regluverki í íslenskri ferðaþjónustu og áhrif þessa á starfsfólk í greininni. Fjallað hefur verið um þetta efni út frá mismunandi vinklum í síðustu tveimur þáttum. Ferðaþjónustufyrirtækið Reykjavík Outventure varð gjaldþrota fyrr á árinu. Gjaldþrot félagsins er upp á um 90 milljónir króna, segir skiptastjórinn Helga Vala Helgadóttir. Eftir situr starfsfó...
Vill refsingar við launaþjófnaði og grimmara eftirlit með síbrotamönnum 24.09.2024 17:04
Ekkert lát er á fréttum af brotum á erlendu starfsfólki á íslenskum vinnumarkaði. Launaþjófnaður, hótanir og skipulögð brotastarfsemi þrífst í byggingageiranum, ferðaþjónustu og veitingageira. Þóra Tómasdóttir ræðir við Finnbjörn Hermannsson forseta ASÍ um síbrotamenn og leiðir að bættum vinnumarkaði.
Hótað brottrekstri fyrir að ganga í stéttarfélag 23.09.2024 15:48
Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um einstakt mál sem komið er fyrir félagsdóm. Málið snýst um hótun eiganda ferðaþjónustufyrirtækis í garð spænsks starfsmanns þess. Í spjalli á samfélagsmiðlinum Slack var starfsmanninum hótað brottrekstri ef hann gengi í stéttarfélag. Slíkar hótanir kallast union busting á ensku eða niðurbrot á stéttarfélagi á íslensku. Hið meinta brot í málinu snýr að því að...
Norskur læknir ákærður fyrir nauðganir á 88 sjúklingum 20.09.2024 14:35
Í vikunni var héraðslæknir í litlu byggðinni Frosta, norður af Þrándheimi í Noregi, ákærður fyrir nauðganir gegn 88 konum. Konurnar voru sjúklingar mannsins og við þær aðstæður tók hann yfir sex þúsund klukkustundir af myndefni af konunum. Við ræðum málið við Henning Levold fréttamann NRK og heyrum lýsingar af samfélaginu frá Rósbjörgu Rósenberg sem bjó í Frosta fyrir skömmu.
Vaxtavalsinn: Hvað ætlar um fjórðungur íslenskra heimila að gera? 19.09.2024 16:32
Á þessum árshelmingi og fyrri hluta 2025 munu tæplega 350 milljarðar af húsnæðislánum losna undan vaxtabindingu. Þetta er um fjórðungur af öllum þeim sem eru með húsnæðislán á Íslandi. Um er að ræða fólk sem festi hjá sér vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum með breytilegum vöxtum þegar stýrivextir voru miklu lægri en þeir eru núna. Fjallað er um stöðu þessa stóra hóps í þættinum í dag. Hvað ætlar...
Ofbeldið sem fylgir ópíóíðafíkn og heimilisleysi 18.09.2024 17:17
Hæglega má fullyrða að á Íslandi sé ópíóíðafaraldur. Viðmælendur okkar í dag benda á að lítið sé talað um er ofbeldið sem verður daglegt brauð í lífi þeirra sem glíma við slíka fíkn. Við heimsækjum konu sem þekkir það af eigin raun. Hún segir neysluna harðari en áður, hnífaburður sé algengari og sífellt yngra fólk ánetjist efnunum á örskotsstundu. Kristín Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur í nýju ney...
Meðferðin á erlendu starfsfólki á veitingahúsum Elvars 17.09.2024 15:45
Stéttarfélagið Efling stóð fyrir mótmælum fyrir framan veitingastaðinn Ítalíu í lok síðustu viku. Tilgangurinn var að mótmæla launaþjófnaði gegn starfsfólki sem stéttarfélagið segir að fari fram þar. Samkvæmt heimildum þá hefur Efling opnað rúmlega 20 mál fyrir hönd félagsmanna sinna gegn Ítalíu og öðrum veitingahúsi sem er í eigu sama fyrirtækis, Antico. Í Þetta helst í dag ræðir Ingi Freyr Vilhj...
Fötin sem við viljum ekki verða vandamál annarra 16.09.2024 17:29
Í þessum þætti höldum við áfram að ræða um hið risastóra fjall af fötum og textíl sem safnast upp á Íslandi. Því neysla Íslendinga á fatnaði er svo gígantísk að við skerum okkur úr hópi annarra þjóða. Sorpa fær nú það verkefni að taka við fataúrgangi höfuðborgarbúa. Við ræðum við Gunnar Dofra Ólafsson samskiptastjóra Sorpu og Sigrúnu Söndru Ólafsdóttur sem hefur skoðað skaðsemi hraðtískunnar. Þóra...
Fatafjallið sem safnast upp á Íslandi 13.09.2024 16:25
Við heimsækjum fataflokkun Rauða krossins og skoðum magnið sem þjóðin hendir af textíl. Við ræðum við Guðbjörgu Rut Pálmadóttur sem hefur staðið við færibandið og flokkað föt í tólf ár. Þorbjörg Sandra Bakke, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun, segir brýnna að skrúfa fyrir kranann en að ræða um hvernig best sé að endurnýta fatafjallið sem safnast upp hér á landi. Þóra Tómasdóttir ræddi við þær.
Brasið á Brák og leigumarkaðurinn úti á landi 12.09.2024 12:56
Mikill skortur er á leiguíbúðum víða á landsbyggðinni. 31 sveitarfélag stofnaði óhagnaðardrifið íbúðafélag, Brák, til að tryggja framboð á leiguíbúðum fyrir tekju- og eignalitla. Brák hefur hins vegar ekki náð að klára þær íbúðir sem félagið lofaði að byggja. Staðan hefur haft àhrif á marga. Einn þeirra er Hilmar Þór Baldursson á Egilsstöðum Ingi F. Vilhjálmsson ræðir við hann og Einar Georgsson,...
Græðgi í ræktun og eldi í landbúnaði 10.09.2024 16:26
Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um hættur sem steðja að íslenskum landbúnaði. Meðal annars í hrossa- og sauðfjárrækt, laxeldi í sjókvíum og eldi á hafbeitarlaxi. Fjallað er um nýja Landsáætlun erfðanefndar landsbúnaðarins. Ingi Freyr Vilhjálmsson ræðir við formann nefndarinar, Árna Bragason, sem lýsir áætluninni og áhyggjum sínum af því græðgi við ræktun og eldi á dýrum á Íslandi geti orðið u...
Fjöldamótmæli í Brasilíu og skautun í stjórnmálunum 09.09.2024 17:04
Fjöldamótmæli voru í borginni Sao Paulo í Brasilíu um helgina. Í mótmælunum voru stuðningsmenn fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro meðal annars að láta í sér heyra vegna lokunar á samskiptaforritinu X, áður Twittter. Mótmælin eru enn ein birtingarmynd þeirrar miklu skautunar sem hefur átt sér stað í brasilískum stjórnmálum á liðnum árum. Á sitt hvorum pólnum eru núverandi forseti Lula og Bolsonar...
Dráttarvélaslys hafa kostað tugi barna og bænda lífið 06.09.2024 15:43
79 banaslys hafa orðið vegna dráttavéla eða tengdra tækja í landbúnaði á Íslandi. Banaslys vegna dráttarvéla voru þrisvar sinnum algengari meðal barna en fullorðinna. Slysin urðu flest í kringum 1960-70 fyrir tíma áfallahjálpar. Því má ætla að fæstir hafi unnið úr þeim áföllum sem fylgdu dráttarvélaslysunum. Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði barna, sagði frá rannsóknum sínum á dráttarvéla...
Fundu sig í einu fátækasta landi í heimi, Gíneu-Bissaú 05.09.2024 17:03
Í þessum þætti ræðum við um Gíneu Bissá, lítið land í vestur-Afríku sem er á topp tíu lista yfir lönd sem fæstir ferðamenn heimsækja. Hjónin Geir Gunnlaugsson læknir og Jónína Einarsdóttir mannfræðingur hafa verið með annan fótinn í Gíneu Bissá í rúm 40 ár. Þar hafa þau eignast góða vini, alið upp börn sín og stundað rannsóknir á ýmsum mannlegum málefnum. Við heyrum líka af kynnum þeirra af hljóms...
Nýr klettastígur í Esjunni 04.09.2024 16:35
Í þessum þætti förum við eftir nýlögðum klettastíg sem reistur hefur verið um Fálkaklett í Esjunni. Stígurinn er í anda hinna ítölsku via ferrata leiða sem fyrst voru lagðar um klettabelti alpanna fyrir nokkur hundruð árum siðan og voru m.a. mikilvægar flóttaleiðir á stríðstímum. Það sem byrjaði sem galin og óraunhæf hugmynd vatt fljótt uppá sig. Ekki síst eftir að Haraldur Örn hafði samband við F...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.