RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hælisleitendur, vextir, umönnunarstéttir, Ecowas, losun og skógeyðing 17.08.2023 30:00
Spegillinn 17. ágúst 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Reykjavíkurborg vísar réttindalausum hælisleitendum frá neyðarskýlum borgarinnar, þar sem sveitarfélögin telja sér óheimilt að veita þeim aðstoð. Valur Grettisson ræðir við Einar Þorsteinsson. Fyrrverandi fulltrúi í peningastefnunefnd Seðlabankans segir ólíkleg...
Landris við Torfajökul og aukin tíðni skorpulifrar. 16.08.2023 11:02
Spegillinn 16. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Það er brýnt að bæta tækjakost og mælingar við Torfajökul að dómi Kristínar Jónsdóttur, deildarstjóra eldvirkni á Veðurstofunni. Líklegra sé að gjósi fyrr í Öskju en Torfajökli. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman. Kórónuveirusmitum hefur fjölgað síðustu vi...
Loftslagsbreytingar ógna lýðheilsu og uppvakningadóp í Bandaríkjunum 15.08.2023 30:00
Staðan í umhverfismálum hér á landi er sótsvört og aðgerðir stjórnvalda eru grænþvottur sem fær falleinkunn. Þetta segir Hjalti Már Björnsson formaður Samtaka lækna gegn umhverfisvá sem segir að lýðheilsu sé ógnað. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hann. Ekkert símasamband er við Öskju og því gæti verði erfitt að koma boðum og viðvörunum til fólks sem er þar á ferð ef byrjar að gjósa. Lilja A...
Brennisteinsfnyk leggur af Öskju, hælisleitendamál 14.08.2023 30:00
Samband íslenskra sveitarfélaga mótmælir því að þau séu gerð ábyrgð fyrir málefnum hælisleitenda. Það sé málaflokkur sem heyri undir ríkið. Hatursorðræða, hróp og gelt eru ólíðandi, segir formaður Samtakanna 78. Ákveðinn hópur fólks sýni hinsegin fólki oft slíka framkomu. Helmingslíkur eru á að árið í ár verði það heitasta frá upphafi mælinga. Þetta er mat Haf- og loftslagsrannsóknastofnunar Banda...
Framhald hvalveiða, þyrlusveit úti á landi, útlendingalögin 11.08.2023 30:00
Spegillinn 11. ágúst 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Svandís Svavarsdóttir segir ákvörðun um framhald hvalveiða liggja fyrir síðar í þessum mánuði. Haukur Holm ræddi við hana. Landhelgisgæslan ætlar að hafa bakvakt þyrlusveitarinnar víðar en í Reykjavík um helgar þegar ferðamannastraumurinn er sem mestur. Ari Páll Karlsson...
Ríkissjóður, hamfarir, málefni barna, sorphirða og ferðaþjónusta 10.08.2023 30:00
Spegillinn 10.08. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Yfir fjögur þúsund manns hafa verið flutt brott frá flóðasvæðunum í Noregi. Miklar rýmingar standa yfir í bænum Hönefoss þar sem yfirborð árinnar Storelva hækkar hratt. Rætt er við Huldu Björk Jóhannsdóttur kennara í Hönefoss Havaí-eyjar hafa verið lýstar hamfarasvæði ef...
Óveðurslægðin Hans veldur usla og þolmörk ferðaþjónustunnar 09.08.2023 30:00
Spegillinn, 9. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Stífla virkjunar norðaustur af Osló í Noregi er brostin og óttast er að járnbrautarbrú í Ringebu gefi sig. Óveðrið Hans hefur valdið miklu eignatjóni. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir sagði frá. Kristín Eysteynsdóttir, rektor Listaháskólans segir það stóran áfanga að búið...
Mengunarkvótar á sjóflutninga og hvalrekaskattur á ítalska banka 08.08.2023 30:00
Spegillinn 8. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra segir að Ísland verði að standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Mengunarkvótar í skipaflutningum séu hluti af heildarmyndinni og komi ekki á óvart. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana. Ítalski...
Suðurnesjalína samþykkt, börnum á flótta fjölgar, skógareldar í Kanada 30.06.2023 9:08
Spegillinn 30. júní 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Kári Guðmundsson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Fulltrúar Landsnets og Sveitarfélagsins Voga skrifuðu í dag undir samkomulag um lagningu Suðurnesjalínu 2, eftir rúmlega tíu ára harðvítugar deilur, sem margoft rötuðu fyrir dómstóla. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóra í Vogum og Gu...
Íslandsbanki, fasteignamarkaður, Sorpa, ofbeldi ungmenna o.fl. 29.06.2023 9:04
Spegillinn 29. júní 2023. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Jón Guðni Ómarsson, nýr bankastjóri Íslandsbanka segist kominn til að vera og vill endurheimta traust. Hann hafi sjálfur ekki komið að sölunni á fimmtungshlut í bankanum, að öðru leyti en því að hafa kynnt bankann fyrir fjárfestum. Pétur Magnússon ræðir við Jón Guðna....
Bankasýslan um Íslandsbanka og umboðsmaður skuldara um nauðungaruppboð 28.06.2023 30:00
Spegillinn 28. júní 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríksins ítrekar þá skoðun sína að útboðið á hlut ríkisins í Íslandsbanka í fyrra hafi verið eitt farsælasta hlutafjárútboð Íslandssögunnar. Hvorki skýrsla Fjármálaeftirlitsins né Ríkisendurskoðunar breyti því. Pétur Magnúss...
Ábyrgð stjórnenda Íslandsbanka og traust til kerfisins 27.06.2023 30:00
Spegillinn 27. júní 2023. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra telur ekki að stjórnvöld hafi verið of bláeyg með því að treysta stjórnendum Íslandsbanka fyrir sölu á hlut í bankanum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að fólk sem ítrekað brjóti lög, blekki vísvitandi og ljúgi, njóti ekki trausts og þurfi að íhuga stöðu sína. Útleiga hoppukastala er ekki leyfisskyld starfsemi og ekkert...
Íslandsbanki í fókus: Villandi upplýsingar og brostið traust 26.06.2023 30:00
Bankasýslu ríkisins voru veittar villandi upplýsingar um flokkun þátttakenda í útboðinu í fyrra, samkvæmt skýrslu fjármálaeftirlits Seðlabankans. Dæmi eru um að starfsmenn bankans hafi átt frumkvæði að því að selja almennum fjárfestum bréf, þó útboðið væri aðeins ætlað fagfjárfestum. Lárus Blöndal, formaður Bankasýslunnar segir alvarlegt ef salan á bankanum rýri traust almennings til fjármálakerfi...
Íslandsbankasalan, hvalveiðibann, uppgjör Loftslagsráðs 23.06.2023 30:00
Spegillinn 23. Júní 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir Íslandsbanka viðurkenna lögbrot með samningi um sáttagreiðslu við fjármálaeftirlitið. Arndís Anna. K. Gunnarsdóttir, varamaður Pírata í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, segir að ve...
Sokkinn kafbátur, uppsagnir á Hólmavík, loftslagsmál og flóttafólk 22.06.2023 30:00
Spegillinn 22. júní 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Sandra Silfá Ragnarsdóttir Brak fannst í dag úr kafbátnum Titan, sem leitað hefur verið síðan á sunnudag. Hallgrímur Indriðason greinir leitinni. Fimmtungur félaga í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga missir vinnuna eftir uppsagnir í rækjuvinnslunni Hólmadrangi á Hólmavík. Urður Örlygsdót...
Dómar mildaðir í Rauðagerðismáli, öfgar í sjávarhita og lóðaskortur 21.06.2023 8:53
Hæstiréttur mildaði í dag dóma yfir sakborningum í Rauðagerðismálinu. Þar á meðal var dómur yfir konu styttur um ellefu ár. Valur Grettisson tók saman og talaði við Karl Georg Sigurbjörnsson, verjanda konunnar. Útlit er fyrir að aldrei hafi meira af jarðefnaeldsneyti verið brennt á vegum landsins en í ár. Loftslagsráð telur að stjórnsýsla loftslagsmála þurfi að fara á neyðarstig. Óskhyggja dugir e...
Hvalveiðar, átök í ríkisstjórn og næringarráðleggingar 20.06.2023 30:00
Fyrirvaralaust og ámælisvert, segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, um stöðvun hvalveiða út sumarið. Ríkið gæti verið bótaskylt standi ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem segir spurningu hvort atvinnugrein þar sem ekki sé hægt að tryggja velferð dýra eigi sér framtíð. Óskiljanleg ákvörðun segir Árni Sverrisson, formaður skipstjórnarm...
Hættulegar hitabylgjur, gagnsókn Úkraínu, heyrnarskertir bíða lengi 19.06.2023 30:00
16.000 Evrópubúar létust vegna mikils hita í fyrra. Íbúar álfunnar þurfa búa sig undir fleiri hættulegar hitabylgjur. Þetta kemur fram í nýrri loftslagsskýrslu. Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, segir stjórnvöld víða um heim ekki gera nóg. Karitas M. Bjarkadóttir sagði frá og ræddi við Önnu Huldu. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku...
Hvammsvirkjun, Stígamót kæra, Reiðhjólahvíslarinn reiður, Searchers 16.06.2023 30:00
Spegillinn 16. júní 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Eggert Valur Guðmundsson, oddviti í Rangárþingi ytra, segir að framkvæmdaleyfi verði ekki veitt fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fyrr en gilt virkjanaleyfi liggur fyrir. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir ræddi við hann og Harald Þór Jónsson, oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Stígamót hafa lagt fra...
Virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar fellt úr gildi, Boris Johnson snupraður 15.06.2023 30:00
Spegillinn 15. júní 2023. Virkjanaleyfi vegna Hvammsvirkjunar hefur verið fellt úr gildi. Ógilding leyfisins kemur Landsvirkjun á óvart. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra vill harðari löggjöf og skilvirkari vinnubrögð í málefnum fólks sem hér sækir um alþjóðlega vernd. Hann lætur væntanlega af embætti á mánudag en hefði viljað sitja lengur. Jóhanna Vigdís Hjaltadótt...
Úkraínumenn sækja fram, kaupmáttarrýrnun og El Niño 14.06.2023 30:00
Hagnaður fyrirtækja í hitt í fyrra skýrist ekki af verðlagshækkunum þeirra. Í vetur verður að semja þannig að verðbólga hjaðni segir Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Rækjuvinnslu verður hætt um næstu mánaðamót hjá Hólmadrangi á Hólmavík og um tuttugu starfsmönnum sagt upp. Um fimmtán þúsund umsóknir hafa borist um háskólanám næsta haust í stærstu háskólum landsins. Aldrei...
Netárásir, Úkraína, bensínverð, samgönguáætlun og málaferli dómara 13.06.2023 30:00
Spegillinn 13. júní 2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstjóri netöryggissveitarinnar Certis telur líklegt að lokun sendiráðs Íslands í Moskvu sé ein ástæða þess að netárásir voru gerðar á opinbera stjórnsýslu og Alþingi í dag. Rætt við Guðmund og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur...
Hryðjuverkamál, Davíð minnist Berlusconi, veggjalús tekur sér bólfestu 12.06.2023 9:13
Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik kemur ítrekað fyrir í samskiptum mannanna tveggja sem grunaðir eru um að skipuleggja hryðjuverk hér á landi. Áður óbirt samskipti mannanna koma fram í nýrri ákæru sem var tekin fyrir í héraðsdómi í morgun. Tvímenningarnir neita sök. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars mannsins gagnrýndi fyrri ákæru fyrir að vera óskýra og þótt þessi sé skýrari fin...
Þorskstofninn vex hægt, MS hissa á brenndum fernum, Trump ákærður 09.06.2023 9:10
Spegillinn 9. Júní 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Nýliðun er slök í mjög mörgum sjávarnyjategundum, segir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Þorskstofninn er þó hægt vaxandi og ýsustofninn stendur vel. Benedikt Sigurðsson talaði við hann. Margrét Gísladóttir, talsmaður Mjólkursamsölunnar, segir að fréttir af óendurunnum fernum haf...
NOVIS í vanda, strandveiðar í uppnámi, flóttafólk og hamfarahlýnun 08.06.2023 30:00
Spegillinn 8. júní 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Hermannsdóttir Um fimm þúsund og sex hundruð Íslendingar eru með samning við vátryggingafélagið NOVIS í Slóvakíu. Farið verður fram á það fyrir slóvenskum dómstólum að félaginu verði skipuð slitastjórn. Benedikt Sigurðsson segir frá. Kunnugleg staða er komin upp í stran...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.