Sölvi Tryggvason

Sölvi Áskriftarþættir

Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir

Author

Sölvi Tryggvason

Category

Education

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#313 Númi Snær með Sölva Tryggva 13.10.2024

Númi Snær Katrínarson er þrautreyndur íþróttamaður og þjálfari. Í þættinum ræða Sölvi og Númi um mánuðina í frumskóginum, heilsu, tilgang, markmið, dáleiðsluna samfélaginu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/

#312 Siggi Jóhannesson með Sölva Tryggva 08.10.2024

Siggi Jóhannesson er flugumferðarstjóri og fyrirtækjaeigandi. Hann á langveikt barn sem fékk mikla bót á flogaköstum við inntöku CBD olíu og í kjölfarið varð Siggi ástríðufullur um notkun hamps, CBD og kannabis til lækninga. Í þættinum ræða Sölvi og Siggi um allt sem snýr að CBD, kannabis og hampi, áskoranir þess að eiga langveikt barn, baráttuna við kerfið, þolgæði, æðruleysi og fleira Þátturinn...

#311 Þorgerður Katrín með Sölva Tryggva 06.10.2024

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er formaður Viðreisnar og einn reyndasti Alþingmaður Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Þorgerður um stjórnmálin, samfélagið, ferilinn, íþróttirnar, skautun, lífsreynslu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/

#310 Ólafur Aron með Sölva Tryggva 01.10.2024

Ólafur Aron Sveinsson er nuddari og markþjálfi. Í þættinum ræða Sölvi og Ólafur um andlega heilsu, stöðuna í samfélaginu, andlega vakningu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/

#309 Sigríður Andersen með Sölva Tryggva 29.09.2024

Sigríður Andersen er lögmaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra. Í þættinum ræða Sölvi og Sigríður um samfélagið, stjórnmál, hugrekki, kraftlyftingar og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/

Brot af því besta: Jónas Sig, Gummi Ben og Logi Bergmann 27.09.2024

Brotið er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/

#308 Jói Fel með Sölva Tryggva 22.09.2024

Jóhannes Felixson er bakari, frumkvöðull, sjónvarpskokkur og metsöluhöfundur. Mögnuð saga og stórmerkilegur maður. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/

#307 Sölvi og Frosti snúa aftur 18.09.2024

Í þættinum ræða Sölvi og Frosti um helstu atburði líðandi stundar í samfélagsmálum. Hlutdrægni fjölmiðla. óeirðirnar í Bretlandi, hatursorðræða, forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og margt margt fleira Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/

#306 Diljá Mist með Sölva Tryggva 15.09.2024

Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður sem hefur vakið athygli fyrir að tjá skoðanir sínar umbúðalaust síðan hún kom inn á vettvang stjórnmálanna. Í þættinum ræða Sölvi og Diljá um sögu Diljár, stjórnmálin, rétttrúnaðinn, eineltisseggina, hlutverk ríkisins og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www...

#305 Rakel Hlynsdóttir með Sölva Tryggva 10.09.2024

Einkaþjálfarinn Rakel Hlynsdóttir hefur gengið í gegnum margt þó að hún sé ung að árum. Í þættinum ræða Sölvi og Rakel um dimmustu dalina, sigrana, sjálfsábyrgð, heilsu og margt fleira.  Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/

#304 Sigmundur Davíð með Sölva Tryggva 08.09.2024

  Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er alþingismaður og fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Flokkur hans hefur undanfarið mælst í hæstu hæðum í skoðanakönnunum og Sigmundur hefur vakið athygli fyrir að tjá sig umbúðalaust í ýmsum málum. Í þættinum fara Sölvi og Sigmundur yfir stöðuna í stjórnmálunum, samfélaginu. fjölmiðla, málin sem ek...

#303 Gunnar Wiium snýr aftur 03.09.2024

Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um karlmennsku, sannleika, kærleika, stöðuna í samfélaginu og margt fleira.

#302 Vigdís Hauksdóttir með Sölva Tryggva 01.09.2024

Vigdís Hauksdóttir var um árabil bæði Alþingismaður og borgarfulltrúi og oft á tíðum gustaði mjög um hana, enda þekkt fyrir að segja sínar skoðanir. Í þættinum ræða Sölvi og Vigdís um stjórnmálin, ferilinn, lífið eftir stjórnmál, fjölmiðla, hugrekki og margt fleira.

Brot af því besta: Steindi Jr., Ingó Veðurguð og María Birta 30.08.2024
#301 Hjálmar og Siggi Bond með Sölva Tryggva 28.08.2024

Aukaþáttur um enska boltann og fleira: Sigurður Bond og Hjálmar Örn fara yfir tímabilið sem er framundan í enska boltanum, Fantasy, það besta í íþróttum og margt fleira.

#300 Ragnar Sigurðsson með Sölva Tryggva 25.08.2024

Ragnar Sigurðsson er einn þekktasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar. Hann var maður leiksins í stærsta sigri landsliðsins frá upphafi þegar Ísland sló England út af EM 2016. Í þættinum ræða Sölvi og Ragnar um magnaðan feril Ragnars, tímann í Rússlandi, ævintýrin með landsliðinu, lykilinn að árangri, þjálfun og margt margt fleira.

#299 Greta Salóme með Sölva Tryggva 21.08.2024

Greta Salóme Stefánsdóttir er löngu orðin landsþekkt fyrir hæfileika sína á sviði tónlistar. Í þættinum ræða Sölvi og Gréta um móðurhlutverkið, samkennd, tónlist, bjartsýni, hugarfar og margt margt fleira.

#298 Bjarni Ben með Sölva Tryggva 18.08.2024

Bjarni Benediktsson er forsætisráðherra Íslands. Hann hefur um árabil verið formaður Sjálfstæðisflokksins og einn umdeildasti stjórnmálamaður Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Bjarni um samfélagsmál, feril Bjarna, gagnrýnisraddir og margt fleira.

Sölvi Sería 15.08.2024

Áður óbirt efni þar sem Sölvi ræðir á persónulegum nótum um útgáfu bókar sinnar, tímann í útlegð og fleira.

#297 Jón Steinar snýr aftur 12.08.2024

Jón Steinar Gunnlaugsson er hæstaréttarlögmaður og prófessor í lögfræði. Hann hefur vakið athygli í gegnum árin fyrir að segja skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Jón Steinar um samfélagsmál, dómstóla, rétttrúnað, fíkniefni og fleira.

Brot af því besta: Óli Stef, Fjölnir Tattoo og Bubbi Morthens 12.08.2024
Brot af því besta: Erpur, Emmsjé Gauti og Herra Hnetusmjör 09.08.2024
Sölvi hjá Snorra Björns 06.08.2024

Í þættinum ræða Sölvi og Snorri um allt sem snýr að heilsu og fara meðal  annars rækilega yfir bók Sölva: ,,Á Eigin Skinni" þar sem farið er yfir alls  kyns leiðir til að bæta andlega og líkamlega heilsu.

#296 Anna Bariyani með Sölva Tryggva 05.08.2024

Anna Bariyani er söngkona hljómsveitarinnar Curawaka, sem hefur notið mikilla vinsælda víða um heim á undanförnum árum. Í þættinum ræða Sölvi og Anna um listsköpun, minna þekkt samfélög frumbyggja víða um heim, andlega vakningu á jörðinni, tengslin á milli myrkurs og ljóss og margt fleira.

Brot af því besta: Ólafur Darri, Magnús Scheving og Jónína Ben 02.08.2024

Listen to the Sölvi Áskriftarþættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.