Útvarp Saga
Síðdegisútvarpið
Opin og beinskeitt umræða um þjóðfélagsmál.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.utvarpsaga.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Pétur Gunnlaugsson, Haukur Hauksson & Ólafur Ragnar Grímsson 21.10.2025 1:52:18
Pétur Gunnlaugsson og Haukur Hauksson ræða við Ólaf Ragnar Grímsson fyrrverandi forseta Íslands um Hringborð norðursins og mál Norðurslóða, ásamt öðrum málum sem tengjast heimsmálum þessa tíma. Einnig hringja hlustendur inn í þættinum og koma með spurningar. -- 21. okt. 2025
Jón Bjarnason fyrrverandi sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra 20.10.2025 56:51
Upphaf og endir umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu í stjórnartíð Jóhönnu og Steingríms. Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Jón Bjarnason fyrrverandi sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra sem átti sæti í þeirri ríkisstjórn. Gríðarlega margt gekk á eftir bankahrunið og stóra málið var umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Arnþrúður og Jón Bjarnason rifja þetta tímabil upp. 20. okt. 2025
Þöggun í samfélaginu - Arnar Freyr Reynisson og Gunnlaugur Auðunn Júlíusson 17.10.2025 58:53
Arnar Freyr Reynisson og Gunnlaugur Auðunn Júlíusson fyrrum sveitarstjóri Borgarbyggðar ræða um þöggun í samfélaginu og á meðal þjóða heims. Hvað er að gerast á bak við tjöldin og af hverju er margt af því þaggað niður. -- 17. okt. 2025
Þöggun í samfélaginu - Arnar Freyr Reynisson og Arndís Hauksdóttir 16.10.2025 52:09
Þöggun í samfélaginu: Arnar Freyr Reynisson og Arndís Hauksdóttir prestur ræða um þöggun, áróður og ritskoðun í samfélaginu. -- 16. okt. 2025
Stjórnmálaumræðan - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 16.10.2025 54:53
Stjórnmálaumræðan: Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra um stefnu Miðflokksins og viðbrögð við nýjum áherslum utanríkisráðherra í utanríkismálum - Bókun-35, Evrópusambandið og Efnahagsmál landsins. -- 16. okt. 2025
Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum 15.10.2025 50:03
Dómur Hæstaréttar í vaxtamálinu - Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum ræðir niðurstöðu dóms Hæstaréttar Íslands frá i gær við Pétur Gunnlaugsson . 15. okt. 2015
Sigurjón Þórðarson alþingismaður 14.10.2025 52:21
Stjórnmálaumræðan: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Sigurjón Þórðarson alþingismann úr Flokki fólksins um helstu málin á þingi og það sem bíður ríkisstjórnarinnar núna eins og lækkun vaxta. -- 14. okt. 2025
Guðmundur Ólafsson hagfræðingur - 13. okt. 2025 13.10.2025 55:57
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Ólafsson hagfræðingur. -- 13. okt. 2025
Vélfang fryst - Alfreð Tulinius 10.10.2025 54:19
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að setja fyrirtækið Vélfang á Akureyri í gjaldþrot á grundvelli refsiaðgerða Evrópusambandsins á eignum fyrirtækja sem talið eru tengjast Rússlandi eða rússneskum ríkisborgurum. Eignir félagsins eru frystar í Arionbanka. Alfreð Tulinius starfandi formaður stjórnar Vélfangs verður gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og segir frá málinu og segi...
Framboð Miðflokksins - Ingibjörg Davíðsdóttir 09.10.2025 54:23
Ingibjörg Davíðsdóttir þingmaður Miðflokksins og frambjóðandi til varaformanns Miðflokks og Arnþrúður. -- 9. okt. 2025
Varðmenn Íslands - Arnór Sigurjónsson og Daði Freyr 09.10.2025 50:16
kl.13:00 Varðmenn Íslands. Arnór Sigurjónsson liðsforingi og Daði Freyr verkfræðingur mæta og segja frá hugmyndinni um íslenskan her. -- 9. okt. 2025
Tónlistarþáttur - Edda Borg og Jóhann Helgason 08.10.2025 52:43
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti tónlistarfólkinu Eddu Borg og Jóhanni Helgasyni og munu þau taka lagið í beinni. Jóhann mætir með gítarinn og leikur og syngur eins og honum er einum lagið... Fjallað verður um tónlistarferil þeirra og tónleika Jóhanns Helgasonar í Salnum 18. október n.k. -- 8. okt. 2025
Framboð Miðflokksins - Snorri Másson 08.10.2025 45:14
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Snorra Másson þingmann Miðflokksins sem býður sig fram sem varaformann Miðflokksins. -- 8. okt. 2025
Framboðið - Pétur Gunnlaugsson & Bergþór Ólason 07.10.2025 45:55
Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins ræðir um framboð sitt til varaformanns Miðflokksins og stöðuna í stjórnmálunum. -- 7. okt. 2025
Nýtt framboð - Sigfús Aðalsteinsson og Baldur Borgþórsson 07.10.2025 53:11
Nýtt framboð í borgarstjórn: Sigfús Aðalsteinsson og Baldur Borgþórsson frá Ísland þvert á flokka kynna framboð til borgarstjórnar. -- 7. okt. 2025
Sambands ungra Sjálfstæðismanna - Júlíus Viggó Ólafsson 06.10.2025 50:00
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Júlíus Viggó Ólafsson nýkjörinn formann SUS - Sambands ungra Sjálfstæðismanna um stefnu þeirra og stöðuna í stjórnmálunum í dag. -- 6. okt. 2025
Málþingið í Iðnó - Arnar Þór Jónsson 06.10.2025 54:55
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Arnar Þór Jónsson lögmann og formann Lýðræðisflokksins um stöðu Íslands í utanríkismálum, málþing í Iðnó annað kvöld og um Bókun 35 sem nú er til meðferðar á Alþingi. -- 6. okt. 2025
Arnar Freyr Reynisson & Sigurður Már Jónsson 03.10.2025 52:51
Arnar Freyr Reynisson ræðir við Sigurð Má Jónsson blaðamann um tvískilning í umfjöllun ofbeldis í fréttum, ástandið í Nígeríu og dráp á kristnum mönnum þar í landi. -- 3. okt. 2025
Evrópumálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Haraldur Ólafsson 02.10.2025 50:44
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Harald Ólafsson prófessor í Hí um Evrópumálin og stefnu og þátttöku Íslands í því samhengi. -- 2. okt. 2025
CarbFix & Skólakerfið - Arnþruður Karlsdóttir & Kristinn Sigurjónsson 01.10.2025 54:16
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Kristinn Sigurjónsson efnaverkfræðing og kennara um CarbFix, skólakerfið og tæknimenntun. -- 1. okt. 2025
Rafrænar málsmeðferðir - Guðmundur Ásgeirsson 01.10.2025 55:05
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðmund Ásgeirsson lögfræðing og formann Hagsmunasamtaka heimilanna um rafrænar málsmeðferðir og nýju hlutdeildarlánin. -- 1. okt. 2025
Friðartillögur Trumps - Sveinn Rúnar Hauksson 30.09.2025 51:47
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Svein Rúnar Hauksson lækni og frá samtökum Ísland Palestína um viðbrögðin við Friðartillögum Trump Bandaríkjaforseta og að Netanyahu hafi samþykkt þær áætlanir og múslimaríkin og arabaríkin líka og skora á Hamas að samþykkja. -- 30. sept. 2025
Play - Pétur Gunnlaugsson & Vilhjálmur Birgisson 29.09.2025 38:38
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Vilhjálm Birgisson formann Verkalýðsfélags Akranes og formann Starfsgreinasambandssins um rekstrarstöðvun Play og fjöldauppsagnir - Átti hávaxtastefnan þátt í að fella fyrirtækið? Hvað tapa lífeyrisjóðir miklu við þetta gjaldþrot? -- 3. júlí 2025
Olíubyrgðir landsins - Arnþrúður Karlsdóttir og Halla Hrund Logadóttir 26.09.2025 48:09
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Höllu Hrund Logadóttur þingmann Framsóknarflokksins um áskorun til ríkisstjórnarinnar um eldsneytisbirgðir á Íslandi og orkumál. -- 26. sept. 2025
Stjórnmálin - Arnþrúður Karlsdóttir & Guðlaugur Þór Þórðarson 26.09.2025 55:59
Stjórnmálin: Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson fyrrverandi utanríkisráðherra og loftslags og umhverfisráðherra um helstu málefni líðandi stundar. -- 26. sept. 2025.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.