Útvarp Saga

Síðdegisútvarpið

News IS ↓ 1381 episodes

Opin og beinskeitt umræða um þjóðfélagsmál.

Author

Útvarp Saga

Category

News

Podcast website

www.utvarpsaga.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Mr. He Rulong Sendiherra kína á Íslandi 30.10.2025

Mr. He Rulong, Kínverski Sendiherrann á Íslandi verður hér í viðtali á Sögu í dag og ræðir um mikilvægustu málin í Kína - samskipti þeirra við Bandaríkin - heimsókn Höllu Tómasdóttir Forseta Íslands til Kína - opnun fiskimarkaða í Kína gagnframt Íslenskum fyrirtækjum - uppsveiflu fjármálamarkaðarins í Kína - hvað er helst að sjá í Kína og síðan er tekið við símtölum frá hlustendum.  -- 30. okt. 20...

Ábyrgð ríkislögreglustjóra - Fjölnir Sæmundsson rannsóknarlögreglumaður 29.10.2025

Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Fjölnir Sæmundsson rannsóknarlögreglumaður og formaður Landssambands lögreglumanna um störf lögreglunnar. Hvað segja lögreglumenn um ábyrgð ríkislögreglustjóra á fjármálagjörningum við verktaka og starfsmenn sem gegna ekki lögreglustörfum. 29. okt. 2025

Stjórnmálaumræðan - Pétur Gunnlaugsson & Ólafur Adolfsson 28.10.2025

Stjórnmálaumræðan: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Ólaf Adólfsson nýkjörinn þingflokksformann og alþingismann Sjálfstæðisflokksins í  Umhverfis- og Samgöngunefnd um atvinnuástandið í norð-vesturkjördæmi eftir spenna-bilunina á Grundartanga.  -- 28. okt. 2025

Netsvindl - Arnþrúður Karlsdóttir & Guðrún Kristín Ívarsdóttir 24.10.2025

Netsvindl: Guðrún Kristín Ívarsdóttir miðill og heilari ræðir við Arnþrúði Karlsdóttur um varasamar blekkingar á netinu og hlustendum gefst kostur á að hringja í útsendinguna í síma 588 1994 og ræða um netsvindl.  -- 24. okt. 2025

Rafbílar - Kristján Örn Elísson & Egill Jóhannsson 23.10.2025

Rafbílar: Kristján Örn Elísson ræðir við Egil Jóhannsson forstjóra Brimborgar um stöðuna á bílamarkaði, innflutningur á nýjum bílum og verðbreytingar og skattaálögur á eigendur bifreiða.  -- 23. okt. 2025

Stjórnmálaumræðan - Pétur Gunnlaugsson & Arnar Þór Jónsson 23.10.2025

Stjórnmálaumræðan: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Arnar Þór Jónsson lögmann og formann Lýðræðisflokksins um breytingar á stjórnarháttum Alþingis þegar Ísland gerðist aðili að EES samningnum fyrir rúmum 30 árum. Alþingi var gerð að einni málstofu en hafði áður verið í efri og neðri deild þingsins.  -- 23. okt. 2025

Arnþrúður Karlsdóttir & Guðlaugur Þór Þórðarson 22.10.2025

Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann og fyrrverandi utanríkisráðherra um varnarsamningurinn við Bandaríkin og undirritun núverandi utanríkisráðherra undir viljayfirlýsingu um tvíhliða milliríkjasamning í varnar og öryggismálum við Þjóðverja. Mikilvægi hafnarsvæða við Ísland og Evrópusambandið.  -- 22. okt. 2025

Pétur Gunnlaugsson, Haukur Hauksson & Ólafur Ragnar Grímsson 21.10.2025

Pétur Gunnlaugsson og Haukur Hauksson ræða við Ólaf Ragnar Grímsson fyrrverandi forseta Íslands um Hringborð norðursins og mál Norðurslóða, ásamt öðrum málum sem tengjast heimsmálum þessa tíma.  Einnig hringja hlustendur inn í þættinum og koma með spurningar.  -- 21. okt. 2025

Jón Bjarnason fyrrverandi sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra 20.10.2025

Upphaf og endir umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu í stjórnartíð Jóhönnu og Steingríms. Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Jón Bjarnason fyrrverandi sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra sem átti sæti í þeirri ríkisstjórn. Gríðarlega margt gekk á eftir bankahrunið og stóra málið var umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Arnþrúður og Jón Bjarnason rifja þetta tímabil upp. 20. okt. 2025

Þöggun í samfélaginu - Arnar Freyr Reynisson og Gunnlaugur Auðunn Júlíusson 17.10.2025

Arnar Freyr Reynisson og Gunnlaugur Auðunn Júlíusson fyrrum sveitarstjóri Borgarbyggðar ræða um þöggun í samfélaginu og á meðal þjóða heims. Hvað er að gerast á bak við tjöldin og af hverju er margt af því þaggað niður.  -- 17. okt. 2025

Þöggun í samfélaginu - Arnar Freyr Reynisson og Arndís Hauksdóttir 16.10.2025

Þöggun í samfélaginu: Arnar Freyr Reynisson og Arndís Hauksdóttir prestur ræða um þöggun, áróður og ritskoðun í samfélaginu.  -- 16. okt. 2025

Stjórnmálaumræðan - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 16.10.2025

Stjórnmálaumræðan: Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra um stefnu Miðflokksins og viðbrögð við nýjum áherslum utanríkisráðherra í utanríkismálum - Bókun-35, Evrópusambandið og Efnahagsmál landsins.  -- 16. okt. 2025

Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum 15.10.2025

Dómur Hæstaréttar í vaxtamálinu - Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum ræðir niðurstöðu dóms Hæstaréttar Íslands frá i gær við Pétur Gunnlaugsson . 15. okt. 2015

Sigurjón Þórðarson alþingismaður 14.10.2025

Stjórnmálaumræðan: Pétur Gunnlaugsson ræðir við Sigurjón Þórðarson alþingismann úr Flokki fólksins um helstu málin á þingi og það sem bíður ríkisstjórnarinnar núna eins og lækkun vaxta.  -- 14. okt. 2025

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur - 13. okt. 2025 13.10.2025

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Ólafsson hagfræðingur.  -- 13. okt. 2025

Vélfang fryst - Alfreð Tulinius 10.10.2025

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að setja fyrirtækið Vélfang á Akureyri í gjaldþrot á grundvelli refsiaðgerða Evrópusambandsins á eignum fyrirtækja sem talið eru tengjast Rússlandi eða rússneskum ríkisborgurum. Eignir félagsins eru frystar í Arionbanka. Alfreð Tulinius starfandi formaður stjórnar Vélfangs verður gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og segir frá málinu og segi...

Framboð Miðflokksins - Ingibjörg Davíðsdóttir 09.10.2025

Ingibjörg Davíðsdóttir þingmaður Miðflokksins og frambjóðandi til varaformanns Miðflokks og Arnþrúður.  -- 9. okt. 2025

Varðmenn Íslands - Arnór Sigurjónsson og Daði Freyr 09.10.2025

kl.13:00 Varðmenn Íslands. Arnór Sigurjónsson liðsforingi og Daði Freyr verkfræðingur mæta og segja frá hugmyndinni um íslenskan her.  -- 9. okt. 2025

Tónlistarþáttur - Edda Borg og Jóhann Helgason 08.10.2025

Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti tónlistarfólkinu Eddu Borg og Jóhanni Helgasyni og munu þau taka lagið í beinni. Jóhann mætir með gítarinn og leikur og syngur eins og honum er einum lagið... Fjallað verður um tónlistarferil þeirra og tónleika Jóhanns Helgasonar í Salnum 18. október n.k.  -- 8. okt. 2025

Framboð Miðflokksins - Snorri Másson 08.10.2025

Pétur Gunnlaugsson ræðir við Snorra Másson þingmann Miðflokksins sem býður sig fram sem varaformann Miðflokksins.  -- 8. okt. 2025

Framboðið - Pétur Gunnlaugsson & Bergþór Ólason 07.10.2025

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins ræðir um framboð sitt til varaformanns Miðflokksins og stöðuna í stjórnmálunum.  -- 7. okt. 2025

Nýtt framboð - Sigfús Aðalsteinsson og Baldur Borgþórsson 07.10.2025

Nýtt framboð í borgarstjórn: Sigfús Aðalsteinsson og Baldur Borgþórsson frá Ísland þvert á flokka kynna framboð til borgarstjórnar.  -- 7. okt. 2025

Sambands ungra Sjálfstæðismanna - Júlíus Viggó Ólafsson 06.10.2025

Pétur Gunnlaugsson ræðir við Júlíus Viggó Ólafsson nýkjörinn formann SUS - Sambands ungra Sjálfstæðismanna um stefnu þeirra og stöðuna í stjórnmálunum í dag.  -- 6. okt. 2025

Málþingið í Iðnó - Arnar Þór Jónsson 06.10.2025

Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Arnar Þór Jónsson lögmann og formann Lýðræðisflokksins um stöðu Íslands í utanríkismálum, málþing í Iðnó annað kvöld og um Bókun 35 sem nú er til meðferðar á Alþingi.  -- 6. okt. 2025

Arnar Freyr Reynisson & Sigurður Már Jónsson 03.10.2025

Arnar Freyr Reynisson ræðir við Sigurð Má Jónsson blaðamann um tvískilning í umfjöllun ofbeldis í fréttum, ástandið í Nígeríu og dráp á kristnum mönnum þar í landi.  -- 3. okt. 2025

Listen to the Síðdegisútvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.