Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ 685 episodes

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: samstodin.simplecast.com

Author

Samstöðin

Category

News

Podcast website

samstodin.simplecast.com

Latest episode

Oct 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rauða borðið 4. mars - Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur 04.03.2025

Þriðjudagur 4. mars Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um hvort Trump takist að sveigja Úkraínustjórn og Evrópu undir sín markmið. Við förum síðan í Múlakaffi með Maríu Lilju og hefjum svo viðræðu um háskólasamfélagið við þau sem hafa boðið sig fram til rektors. Magnús Karl Magnússon prófessor í læknadeild ríður á vaðið og ræði...

Rauða borðið 3. mars: Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþrá 03.03.2025

Mánudagur 3. mars Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþrá Við ræðum Trump á bolludegi. Fyrst ræðir Gunnar Smári við Þorvald Gylfason prófessor í hagfræði um áhrif stefnu Trump á efnahag heimsins. Hver er stefna Trump og er hún til eftirbreytni? Gunnar Smári ræðir einnig við Jón Ólafsson prófessor í heimspeki um áhrif stefnu Trump á stöðu Rússlands. Í millitíðinni ræðir Björ...

Synir Egils 2. mars - Átök á vinnumarkaði, á þingi og í öryggismálum 02.03.2025

Sunnudagurinn 2. mars Synir Egils: Átök á vinnumarkaði, á þingi og í öryggismálum Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum blaða- og þingkona, Róbert Marshall fjallamaður og fyrrum frétta- og þingmaður og Sunna Valgerðardóttir fyrrum fréttakona og starfsm...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson 01.03.2025

Laugardagur 1. mars Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson Pétur Gunnarsson rekur ferð sína um hugmyndir og heimsmyndir, hugsjónir sem hafa risið og hnigið, byltingar sem blómstruðu eða koðnuðu niður og aðrar sem runnu sitt skeið og reynir að skilja stöðu heimsins í dag, sem er kannski háskalegri en nokkurn tíma um daga Péturs.

Vikuskammtur: Vika 09 28.02.2025

Föstudagur 28. febrúar Vikuskammtur: Vika 09 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson nemi í mannfræði, Freyr Eyjólfsson öskukarl, Theódóra Björk Guðjónsdóttir nemi í félagsráðgjöf og Halldór Auðar Svansson fyrrverandi borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af viðbrögðum við stefnu Donald Trump, nýjum meirihluta í Reykjavík, samningum k...

Sjávarútvegsspjallið - 41. þáttur: Strandveiðar, kvóti og Hafró 28.02.2025

Fimmtudagur 27. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 41. þáttur Grétar Mar ræðir við Örn Pálsson

Rauða borðið 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð 27.02.2025

Fimmtudagur 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð Helen Ólafsdóttir ráðgjafi í öryggismálum ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Evrópu og Íslands eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump. Bjarni Már Magnússon prófessor í lögfræði við Bifröst og Kristján Þór Sigurðsson, doktor í mannfræði takast á undir stjórn Maríu Lilju um hugmynd Bjarna um að kominn sé tími til að Íslendi...

Rauða borðið 26. feb - Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð 26.02.2025

Miðvikudagur 26. febrúar Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð Við hefjum leik á umræðu um spillingu og skyldum fjölmiðla að sporna gegn spillingu í stað þess að strjúka henni. Hefur fallið á trúverðugleika Fjórða valdsins með flokkadráttum? Sigurjón Magnússon Egilsson og Björn Þorláks ræða málin auk þess sem Sigurjón segir frá erfiðasta fréttamáli sem hann hef...

Sósíalísk stjórnarandstaða - 6. þáttur: Fordómar í fjölmiðlum 26.02.2025

Miðvikudagur 26. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 6. þáttur Gestur þáttarins er María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp blaðamaður á Samstöðinni. Í þættinum ræðum við almennt og vítt um fordóma, fáfræði, menningu í íslensku samfélagi og birtingarmyndir áróðurs sem er oft á tíðum dulinn.

Rauða borðið 25. feb - Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og landbúnaður 25.02.2025

Þriðjudagur 25. febrúar Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og íslenskur landbúnaður Daníel Thor Bjarnason, Pétur Eggerz, mótmælendur og Oddur Ástráðsson lögmaður ræða við okkur um Mótmælin í skuggasundinu, afleiðingar þess og málaferlin við ríkið. Við spyrjum almenning og heyrum skoðanir fólks á valdbeitingu lögreglumanna. Halldór Guðmundsson bókaútgefandi með meiru rýnir í úr...

Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi 24.02.2025

Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari ríður á vaðið í dagskránni með áhrifaríku viðtali við Björn Þorláks. Gunnar segir þúsundir langveikra Íslendinga hafa fallið milli skips og bryggju hjá heilbrigðisyfirvöldum. Gunnar er sjálfur í hópi þeirra sem þjást af ,,longcovid." Hann lýsir persónulegum áskorunum sem fel...

Synir Egils 23. feb - Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump 23.02.2025

Sunnudagurinn 23. febrúar Synir Egils: Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir verkefnastjóri, Katrín Júlíusdóttir almannatengill, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sanna Magdalena Mörtudó...

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 8 21.02.2025

Föstudagur 21. febrúar Vikuskammtur: Vika 8 Grín á Alþingi, heimur á heljarþröm, nýr borgarmeirihluti, landsfundur sjalla, hrútspungafýla og fleiri spennandi umræðuefni verða krufin með gestum Rauða borðsins í dag klukkan 16 í Vikuskammti af fréttum. Í beina útsendingu mæta Snorri Ásmundsson listamaður, Kristín Erna Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Karl Héðinn Kristjánsson fræðslufulltrúi og Lenya...

Rauða borðið 20. feb - Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting 20.02.2025

Fimmtudagur 20. febrúar Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur ræðir um áhrif Trump á Evrópu og alþjóðastjórnmálin við Gunnar Smára. Hann ræðir síðan við þær sem vilja verða formenn Félags hjúkrunarfræðinga um kjaramál, starfsaðstæður og heilbrigðiskerfið. Helga Rósa Másdóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen og Hulda Björg Óladóttir koma...

Sjávarútvegsspjallið - 40. þáttur 20.02.2025

Fimmtudagur 20. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 40. þáttur Grétar Mar fær til sín Ólaf Ragnar Sigurðsson, skipsstjóra, útgerðarmann og bónda.

Rauða borðið 19. feb - Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti 19.02.2025

Miðvikudagur 19. febrúar Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti Tjörvi Schiöth doktorsnemi greinir breytta stöðu í Úkraínu og Evrópu eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump í samtali við Gunnar Smára. Karl Garðarsson, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða málin við Sigurjón Magnúsi. Víða var komið við, í Úkraínu, hér og þar í Evrópu, í Hvíta húsi Trump, í...

Sósíalísk stjórnarandstaða - 5. þáttur: Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks 19.02.2025

Miðvikudagur 19. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 5. þáttur Í þætti kvöldsins er María Pétursdóttir, myndlistarkona, aðgerðarsinni og baráttukona um réttindi fatlaðs fólks. Í þættinum munum við fara yfir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. í ljósi þess að loksins eigi að leggja samninginn fyrir sem frumvarp til laga á Alþingi í mars.

Rauða borðið 18.feb - Nató í neyð, Dylan, kjaramál, kvennasögur, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn 18.02.2025

Þriðjudagur 18. febrúar Nató í neyð, Bubbi um Dylan, kjaramál, femínísk sagnfræð, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og Kristinn Hrafnsson blaðamaður ræða um upplausn í Nató og öryggishagsmuni Íslands og Evrópu í samtali við Gunnar Smára. Hann fær síðan Bubba Morthens til að segja okkur frá áhrifum Bob Dylan á sig sem tónlistarmanns, skálds, manneskju og...

Rauða borðið 17. febrúar: Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík 17.02.2025

Mánudagur 17. febrúar Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsir fyrir Gunnar Smára hvernig ræstingarfyrirtæki hafa grafið undan lífskjörum ræstingakvenna og í ofan á lag haft af þeim umsamdar kjarabætur. Hiti varð í umræðunni við Rauða borðið vegna Moggans og innflytjendamála í dag þegar Valur Grettisson Heimildinni, María Lilja Ingveld...

Synir Egils 16. febrúar: Samdráttur og sundrung, pólitíkin og Sjálfstæðisflokkurinn 16.02.2025

Sunnudagurinn 16. febrúar Synir Egils: Samdráttur og sundrung, pólitíkin og Sjálfstæðisflokkurinn Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Karen Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi og fara yfir skrautlegar fréttir vikunnar, átök og áre...

Heimsmyndir - Valur Arnarson 15.02.2025

Laugardagur 15. febrúar Heimsmyndir - Valur Arnarson Valur Arnarson verkfræðingur og net-aktívisti kom í þáttinn að spjalla um umræðumenninguna í netheimum og vókið. Þeir Kristinn reyndu að segja allskyns hættulega hluti og verða argir og rífast, en þetta varð ósköp vinalegt spjall.

Sjávarútvegsspjallið - 39. þáttur - Aflafréttir 15.02.2025

Fimmtudagur 13. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 39. þáttur Grétar Mar og Ólafur Jónsson (Óli ufsi) fá til sín Gísla Reynisson sem heflur úti vefnum aflafrettir.is

Sósíalísk stjórnarandstaða - 4. þáttur: Glundroðinn í borginni 15.02.2025

Miðvikudagur 12. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 4. þáttur Í þættinum í kvöld er gestur þáttarins Atli Þór Fanndal, verkefnastjóri Háskólans á Bifröst. Við stikluðum á stóru um glundroðann í borginni og fórum meðal annars yfir sögu Framsóknar í borginni, viðræður oddvita flokkanna sem leggja allt kapp á að mynda nýjan meirihluta og vonina á bættu ástandi í borginni með velferð borgarbúa í fyr...

Grimmi og Snar #34 - Kassinn þarf hjálp 📦 15.02.2025

Fimmtudagur 13. febrúar Grimmi og Snar #34 - Kassinn þarf hjálp 📦 Heiða Vigdís Sigfúsdóttir kom í Grimma og Snar og master multitaskaði á skrifstofunni 🥷💻

Helgi-spjall 15. febrúar: Þórhildur Þorleifsdóttir 15.02.2025

Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og fyrrum þingkona ræðir um lífið og leikhúsið, uppvöxt og þroska, feminisma, pólitík, átök og sigra.

Listen to the Samstöðin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.