Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ 685 episodes

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: samstodin.simplecast.com

Author

Samstöðin

Category

News

Podcast website

samstodin.simplecast.com

Latest episode

Oct 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 15 11.04.2025

Föstudagur 11. apríl Vikuskammtur: Vika 15 Í Vikuskammtinn mæta að þessu sinni Rauða borðs-liðar Samstöðvarinnar og gera upp samræðu vikunnar og ársins og ræða um persónuleg tengsl sín við páska. Gunnar Smári og Sigurjón Magnús, Björn, María Lilja og Oddný Eir ásamt Laufeyju Líndal spyrja hvert annað spjörunum úr.

Rauða borðið 9. apríl - Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, þingmaður, vá og ópera 10.04.2025

Miðvikudagur 9. apríl Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, óþekktur þingmaður, vá og ópera Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, ræðir um tolla og efnahag...

Rauða borðið - Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði 08.04.2025

Þriðjudagur 8. apríl Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði Hagfræðingarnir Þorsteinn Þorgeirsson og Gylfi Magnússon ræða um um tolla og efnahagsstefnu Trump. Og eru ekki á sama máli í samtali við Gunnar Smára. Þorsteinn segir þá leiða til góðs en Gylfi til ills. Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og Valgerður Þ. Pálmadóttir, kennari í Háskóla Íslan...

Rauður raunveruleiki - Vistkerfiskrísa kapítalisma: Sósíalískir Umhverfissinnar 07.04.2025

Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.  Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti!  Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn Kristjánsson um stofnun baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.

Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál 06.04.2025

Sunnudagurinn 6. apríl Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Hallgrímur Helgason rithöfundur og ræða fréttir vikunnar og stöðu...

Hipp-hopp varpið - 1. þáttur - Sesar A og Laufey 05.04.2025

Atriðaorðalisti: Hipp hopp varpið 1.þáttur  Þjóðviljinn  Rokk í Reykjavík  Grace Jones  Bob Marley  Prince, Purple rain  Poppkorn (tónlistarþáttur) Skonrokk (tónlistarþáttur) Eric B & Rakim, “Microphone fiend”  Mc Lyte, platan: Lyte as a rock  Eric B & Rakim, “Follow the leader”  Wham, hljómsveit  Duran duran, hljómsveit  Mc Lyte, “Cappucino” - platan: Eyes on this  EPMD, “So what cha sayin”  Dura...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Ólöf Arnalds 05.04.2025

Laugardagur 5. apríl Helgi-spjall: Ólöf Arnalds Ólöf Arnalds, söngvaskáld, kemur í helgi-spjall og segir frá ástinni á tónlistinni og á öllu hinu, ræðir um sönginn, sorgina, gleðina og samruna skynsviðanna.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 14 04.04.2025

Föstudagur 4. apríl Vikuskammtur: Vika 14 Ingibjörg Reynisdóttir, leikkona og jógi - Maren Freyja Haraldsdóttir, félagsfræðingur - Björgvin Gunnarsson blaðamaður á Mannlífi og Egill Viðarsson, rafbókaframleiðandi og tónlistarmaður koma í vikuskammt til Maríu Lilju í dag.

Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur: Litlar útgerðir, strandveiðar og útflutningur 03.04.2025

Fimmtudagur 27. mars Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur Grétar Mar fær til sín þá Arnar Atlason og Rúnar Björgvinsson að þessu sinni en þeir ræða litlar útgerðir, strandveiðar, útflutning og fleira.

Rauða borðið 3. apríl: Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál 03.04.2025

Rauða borðið 3. apríl Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Fida Abu Libdeh varaþingmaður Framsóknarflokksins, Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi Garðarbæjarlistans og verkefnisstjóri S78 og Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum ASÍ fóru yfir málefni flóttafólks og kerfislegar hindranir með Maríu Lilj...

Sósíalísk stjórnarandstaða - 11. þáttur: Sósíalistar á Akranesi 03.04.2025

Miðvikudagur 2. apríl Sósíalísk stjórnarandstaða - 11. þáttur Gestir þáttarins eru félagar í Sósíalistaflokknum, þeir Valdimar Andersen Arnþórsson frístundabóndi og Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur sem eru búsettir á Akranesi. Í þættinum munum við kynnast þeim, félagsstarfi sósíalista á Akranesi og þeirra hugarefnum, kjördæminu, sveitarfélaginu þeirra og væntanlegum sveitarstjórnarkosningu...

Rauða borðið - Fiskur undir steini, brottvísun, Reynsluboltar, Borgarahreyfing og tækniauðvald 03.04.2025

Miðvikudagur 2. apríl Fiskur undir steini, brottvísun, Reynsluboltar, Borgarahreyfing, fólkið og tækniauðvald Byrjum þáttinn á Stiklu úr umræðuþætti frá 1974 um Fisk undir steini og förum svo í viðtal við þá Ólaf Hauk Símonarson leikskáld og Þorstein Jónsson kvikmyndaleikstjóra sem gerðu á sínum tíma heimildarmyndir fyrir Ríkissjónvarpið, meðal annars Fiskur undir steini sem fjallaði um menningarn...

Rauða borðið 1. apríl - Flóttafólk, fjármálaáætlun, Breiðholt, tungumál, Kristni og Íslam 01.04.2025

Þriðjudagur 1. apríl Flóttafólk, fjármálaáætlun, Breiðholt, tungumál, Kristni og Íslam Fundur stjórnmalafræðinema um málefni flóttafólks fór fram í HÍ í dag. Við María Lilja og Pétur Fjelsteð vorum þar og tókum Vilhjálm Árnason þingmann sjálfstæðisflokks tali eftir fund. Hann sagði á fundinum að helsta hindrun frjáls flæðis á landamærum væri í raun verkalýðshreyfingin og við þurftum að vita meira....

Rauða borðið 31. mars: Fjölmiðlar, skattur, veiðigjöld, No Other Land og útskriftartónleikar 31.03.2025

Rauða borðið 31. mars Fjölmiðlar, skattur, veiðigjöld, No Other Land og útskriftartónleikar Í dag eru tvö ár liðin síðan Fréttablaðið fór á hausinn og hætti starfsemi. Stórt gat varð til í fjölmiðla- og þjóðmálaumræðu landsmanna sem hefur ekki verið fyllt. Þau Sigurjón Magnús Egilsson, María Lilja, Gunnar Smári og Björn Þorláks ræða áhrifin af falli Fréttablaðsins og stöðu fjölmiðlunar í dag. Tölu...

Synir Egils 30. mars - Veiðigjöld, átök, börn og Flokkur fólksins 30.03.2025

Sunnudagurinn 30. mars Synir Egils: Veiðigjöld, átök, börn og Flokkur fólksins Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vik...

Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur: Litlar útgerðir, strandveiðar og útflutningur 30.03.2025

Fimmtudagur 27. mars Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur Grétar Mar fær til sín þá Arnar Atlason og Rúnar Björgvinsson að þessu sinni en þeir ræða litlar útgerðir, strandveiðar, útflutning og fleira.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Gyrðir Elíasson 30.03.2025

Laugardagur 29. mars Helgi-spjall: Gyrðir Elíasson Gyrðir Elíasson, rithöfundur, skáld, myndlistarmaður og þýðandi ræðir um líf sitt og köllun í skáldskap og listum en líka í einmanaleika og jaðartilvist, um vináttutengslin við textann og náttúruna.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 13 28.03.2025

Föstudagur 28. mars Vikuskammtur: Vika 13 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félag kvenna í atvinnulífinu, Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir bókmenntafræðingur, Þórdís Claessen grafískur hönnuður og Hringur Hafsteinsson sköpunarstjóri Gagarín og ræða fréttir vikunnar sem voru fjölbreytilegar og snertu alla strengi mannssálarinnar, færðu okkur harm, gle...

Rauða borðið 27. mars - Flóttafólk, börn í vanda, orðræða fjölmiðla, framtíð lýðræðis og bókabúðarhljómsveit 27.03.2025

Fimmtudagur 27. mars Flóttafólk, börn í vanda, orðræða fjölmiðla, framtíð lýðræðis og bókabúðarhljómsveit Við hefjum leik á nýrri frétt um að flóttafólk er að lenda á götunni hér á næstu vikum. María Lilja Þrastardóttir ræðir við Þóri Hall Stefánsson umsjónarmann gistiskýlis hjá Rauða krossinum. Í dag hafa verið sagðar fréttir um öryggi og auknar eftirlitsheimildir lögreglu. Oddný Eir Ævarsdóttir...

Rauða borðið 26. mars - BNA, reynsluboltar, óþekkti þingmaðurinn, gerjun, víðerni og diplómati deyr 26.03.2025

Miðvikudagur 26. mars BNA, reynsluboltar, óþekkti þingmaðurinn, gerjun, víðerni og diplómati deyr. Íslenskir fræðimenn eru farnir að hunsa boð um ráðstefnur í Bandaríkjunum í mótmælaskyni við harðlínustefnu yfirvalda í garð minnihlutahópa og skerðingu málfrelsis þar í landi. Björn Þorláksson fær til sín þá Rúnar Helga Vignisson og Guðmund Hálfdánarson, prófessora við Háskóla Íslands til að ræða br...

Sósíalísk stjórnarandstaða - 10. þáttur: Breytingaskeiðið og heilsa kvenna 26.03.2025

Miðvikudagur 26. mars Sósíalísk stjórnarandstaða - 10. þáttur Gestir þáttarins eru Halldóra Skúladóttir frá Kvennaráð.is, sjúkraliði, markþjálfi, sérfræðingur í fræðslustjórnun og þjálfun starfsfólks og sérfræðingur í breytingaskeiði kvenna, og Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur, heimspekingur og blaðamaður á Samstöðinni. Við ræðum um breytingaskeiðið, áhrif þess á heilsu kvenna og bjargráð.

Rauða borðið 25. mars - Rektorskjör, sönglist í hættu, sósíalísk hreyfing og trúmál 25.03.2025

Þriðjudagur 25. mars Rektorskjör, sönglist í hættu, sósíalísk hreyfing og trúmál Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali Gunnars Smára Egilssonar við rektorsefnin tvö, Magnús Karl Magnússon og Silju Báru Ómarsdóttur. Kosning milli þeirra tveggja fer fram á morgun og hinn daginn. Hver eru einkenni rektorsefnanna? Við ætlum líka að standa fyrir umræðu um stofnanir í listheiminum. Söngnám er í hæt...

Rauða borðið 24. mars: Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár 24.03.2025

Rauða borðið 24. mars Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri um gjaldþrot Kvikmyndaskólans, en Friðrik var um tíma rektor skólans. Hvað áhrif hafði skólinn á uppbyggingu kvikmyndagerðar og hver verða áhrifin af hruni hans? Friðrik Þór kemur í spjall við Gunnar Smára. Einyrkjafjölmiðlun og blaðamennska á litlum fjölmiðlum verður til umr...

Synir Egils 23. mars - Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni 23.03.2025

Sunnudagur 23. mars Synir Egils: Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni Fjórir gestir koma í þáttinn Synir Egils að þessu sinni. Þau eru: Birta Björnsdóttir yfirmaður erlendra frétta, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður. Staða Ásthildar Lóu Þórsdóttur munu örugglega rata á góma gestanna. Mörg önnur...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson 22.03.2025

Laugardagur 22. mars Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður í Hólavallakirkjugarði er gestur í Helgi-spjallsins þessa vikuna. Heimir Björn kann margar sögur úr garðinum. Í spjalllinu segir hann Sigurjóni Magnúsi Egilssyni nokkrar ómetanlegar sögur.

Listen to the Samstöðin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.