RÚV

Rokkland

Music IS ↓ 109 episodes

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Author

RÚV

Category

Music

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rokkland á Roskilde 29.06.2025

Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni verða nokkrir eldri þættir endurfluttir á Rokklands-tímanum í sumar. Þáttur dagsins er frá 3. Júlí árið 2011 og var sendur út beint frá Roskilde festival, en Hróarskelduhátíðin fer einmitt fram núna í vikunni og um næstu helgi.

Karl J. Sighvatsson 22.06.2025

Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni verða nokkrir eldri þættir endurfluttir á Rokklands-tímanum í sumar. Þátturinn sem við heyrum núna er frá 31. Ágúst 2014 og maður dagsins er Karl J. Sighvatsson – orgel og hljómborðs-séníið Kalli Sighvats - Skagamaðurinn Kalli sem var lykilmaður í öllum helstu hljómsveitunum þegar rokkið var að slíta barnsskónum á Íslandi. Hann var í Dátum, Flowers, Náttúr...

Brian Wilson - Beach Boys og Pet Sounds 15.06.2025

Rokkland vikunnar fjallar um Brian Wilson leiðtoga Kaliforníu-hljómsveitarinnar Beach Boys og meistaraverk hans og sveitarinnar, plötuna Pet Sounds, en Brian Wilson féll frá á dögunum. Brian Wilson er einn af stærstu meisturum popp og rokksögunnar. Hann er .t.d. maðurinn sem Paul McCartney segir að sé séní, og Gunni Þórðar segir það líka. Paul hefur sagt að Brian Wilson hafi haft áhrif á sig bæði...

Springsteen og Trump, Bono og Joe Rogan, Suzanne Vega, Gulli og Finnbogi í Chicago og hjá Prince 08.06.2025

Bruce Springsteen og Donald Trump koma aðeins við sögu í Rokklandi vikunnar - en forsetinn sagði á Truth Social um daginn að hann hefði aldrei verið hrifinn af Bruce eða hans músík og hans róttæku vinstri pólitík. Hann væri hæfileikalaus ýtinn asni sem hafi stutt Crooked Joe Biden – þann heilalausa hálfvita – versta forseta sögunnar. Við skoðum þetta aðeins og hvað varð til þess að forsetinn skrif...

Á ferð um rætur rytmans í Nashville - Clarksdale og Nashville með Gulla og Finnboga 01.06.2025

Í Rokklandi vikunnar förum við í ferðalag að rótum rythmans með tveimur gömlum vinum og tónlistaráhugamönnum sem hafa safnað músík – plötum og diskum síðan þeir voru börn – eiga óheyrilegt magn af plötum – hafa klikkaðan áhuga á músík – og annar þeirra á græjum lika – hljómflutningstækjum – og báðir safna þeir fyrst og fremst geisladiskum – segja að það sé besta formatið og sándið. Þetta eru þeir...

PS & CO - Helgar - Þorleifur Gaukur ofl. 25.05.2025

PS & CO er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag. Þar er aðal maðurinn Pjetur Stefánsson myndlistarmaður og rokkskáld. Hann kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins og við spjöllum um nýju plötuna, Í Brennandi húsi, lífið og listina. Helgi Pjetur heitir maður sem var að senda frá sér sitt fyrsta lag og hann kallar sig HELGAR. Hann hefur komið nálægt músík á ýmsa vegu í langan tíma, en ekki sem flytja...

GG Blús, Dóra og Döðlurnar, Pétur Ben, Chris Cornell og Sleep Token 18.05.2025

Dúettinn GG Glús var að senda frá sér plötuna Make it right sem er önnur stóra platan þeirra og í raun einskonar systurplata plötunnar Punch sem kom út 2019. GG Blús er tveggja manna blúshljómsveit – skipuð þeim Gumma trommara og Gumma gítarleikara sem syngja báðir og svo eru þrjár konur gestir á plötunni, Brynhildur Oddsdóttir, Bryndís Ámundsdóttir og Unnur Birna Björnsdóttir. Þeir Gummi og Gummi...

Neil Young heiðursplata, Pavarotti ofl. 11.05.2025

Neil Young kemur við sögu í þættinum en það var að koma út plata sem gefin er út honum tiul heiðurs – en líka til að safna peningum fyrir Bridge skólann í Kaliforníu sem fyrrum eiginkona hans, Pegi, stofnaði fyrir næstum 40 árum. Bridge skólinn er fyrir fjölfötluð börn – eins og Ben son þeirra Neil og Pegi. En Neil er líka að fara að senda frá sér nýja plötu með nýrri hljómsveit, The Chrome Hearts...

Bryan Adams - beinin ber og hvað ef það væru engin lið... 04.05.2025

Bryan Adams er aðalgestur Rokklands að þessu sinni. Hann var með tvenna tónleika hérna um daginn í Eldborg í Hörpu sem seldist upp á - á svipstundu. Rokkland spjallaði við hann nokkrum dögum áður en hann kom og við heyrum það spjall í þættinum í bland við músíkina hans Bryans Adams.

Karl Hallgrímsson og lög um skólastarf, Steindór Andersen, Egill og Soffía og fleira. 27.04.2025

Egill Ólafsson kemur aðeins við sögu í Rokklandi í dag, Steindór Andersen sem lést núna á dögunum – mikill heiðursmaður – vann mikið með Sigur Rós – einn helsti kvæðamaður Íslands undanfarna árutugi – Soffía Björg Óðinsdóttir – Teitur Magnússon – Mark Knopfler – allskonar – splunkuný músík og eldri. En við heyrum líka á eftir í Karli Hallgrímssyni sem er Meistaranemi í stjórnun menntastofnana, en...

Úrslit Músíktilrauna 2025, Brimbrot og Rúnar Júlíusson 13.04.2025

Úrslit Músíktilrauna 2025, Brimbrot og Rúnar Júlíusson

Steinar Berg Ísleifsson - seinni hluti 30.03.2025

Steinar Berg Ísleifsson hlaut á dögunum heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir ævistarf sitt. Steinar var áratugum saman einn mikilvægasti maðurinn í tónlistarlífinu á Íslandi. Hann gaf út fyrstu plötu Stuðmanna- Sumar á Sýrlandi. Hann fór með Mezzoforte til Englands. Hann gaf út fyrstu 10 plötur Bubba Morthens og svo Nýdönsk, Todmobile, Sálina hans Jóns Míns, Jet Black Joe og fleira...

Steinar Berg Ísleifsson fyrri hluti 23.03.2025

Steinar Berg Ísleifsson hlaut á dögunum heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir ævistarf sitt sem er langt og umfangsmikið. Steinar var áratugum saman einn mikilvægasti maðurinn í tónlistarlífinu á Íslandi. Hann var útgefandi sem gaf út plötur með flestum helstu stjörnum íslensks tónlistarlífs: Stuðmenn, Spilverk þjóðanna, Þú og ég, HLH flokkinn og Björgvin, Laddi, Start, Jóhann Helga...

Hafdís Huld, Supersport, Spacestation, Marianne Faithful, Dolly Parton, Múr ofl. 16.03.2025

Hafdís Huld kemur í heimsókn og spjall en hún sendi frá sér plötuna Darkest night í fyrra. Hafdís er svo eiginlega alltaf mest spiluð á Spotify á Íslandi – platan hennar Vögguvísur sem kom út 2012 er yfirleitt öll inn á top 50. Marianne Faithful og Dolly Parton koma aðeins við sögu, og Múr sem var valin bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum í vikunni sem leið, líka Spacestation sem fékk...

Rósa Guðrún Sveinsdóttir, ÍTV önnur tónlist, Bubbi 1986, Mikael Máni ofl. 09.03.2025

Rósa Guðrún Sveinsdóttir kemur í heimsókn með splunkunýja plötu sem heitir Drangar. Hafdís Huld Þrastardóttir kemur aðeins við sögu – en meira í næsta þætti eftir viku. Mikael Máni Ásmundsson kemur aðeins við sögu – hann er á tónleikaferðalagi um landið. Við heyrum lögin sem tilnefnd eru til ÍTV í flokknum Önnur tónlist – og rifjum upp þegar Bubbi Morthens mætti í Morgunútarpið á Rás 2 árið 1986 o...

The Icelandic Pop Orchestra - Roberta Flack - Daníel Hjámtýsson - Neil Young 02.03.2025

Rokkland í dag - The Icelandic Pop Orchestra sem fór í Abbey road til að taka upp plötu. Útgáfutónleikarnir eru á sama tíma og þátturinn (sunnudagur 2. mars kl. 16.00). Í þessari stóru hljómsveit eru t.d: Þórir Baldursson, Tryggvi Hübner, Björn Thoroddsen, Lýður Árnason og Vignir Jóhannsson. Þeir Vignir og Lýður eru gestir Rokklands í dag. Robert Flack kemur líka við sögu - Daníel Hjálmtýsson og N...

Vesen býr til hamingju (Mugison í Hallgrímskirkju í Saurbæ 7. desember 2024) 23.02.2025

Mugison er maður dagsins í dag. Hann hlaut Krókinn 2024 – viðurkenningu Rásar 2, fyrir framúrskarandi tónlistarflutning á árinu, eiginlega fyrir tónleikaferð ársins. 5. apríl í fyrra hélt hann tónleika í Súðavíkurkirkju – fyrstu tónleikarnir í 100 kirkjum í 100 póstnúmerum í fyrra, Tónleikaröðina kláraði hann í Hallgrímskirkju í Reykjavík skömmu fyrir jól, þá búinn að spila í 100 kirkjum í 100 pós...

Stuðmenn og Tivoli 16.02.2025

Í Rokklandi dagsins er rifjaður upp þáttur frá 2014 þar sem Stuðmennirnir Valli, Kobbi, Egill og Bjóla segja frá tiluðr plötunnar Tivoli sem er önnur plata Stuðmanna og kom út haustið 1976.

Wacken Open Air - Janne Schaffer og Marianne Faithful 09.02.2025

Wacken Open Air - Janne Schaffer og Marianne Faithful

Grammy 2025 og Þorgeir og Bob Dylan 02.02.2025

Grammy verðlaunin verða afhent í kvöld í Los Angeles í 67 sinn og við ætlum aðeins að skoða þau í fyrri hluta þáttarins. Oscarsverðlaunin verða svo afhent eftir mánuð, sunnudagskvöldið 2. mars og leikna heimildarmyndin um Bob Dylan, A complete unknown er með 8 tilnefningar. En hver er hann þessi Bob Dylan eiginlega? Og er hann eitthvað merkilegur? Þorgeir Tryggvason sem við þekkjum úr Kiljunni hjá...

Björk og Cornucopia og Ellen eins og hún er 26.01.2025

Það eru tvær magnaðar konur í aðalhlutverki í Rokklandi í dag – Reykvískar tónlistarkonur – Ellen kristjáns og Björk. ***Kvikmyndin Cornucopia er nýjasta verk tónlistakonunnar Bjarkar. Myndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi þann 1.febrúar næstkomandi og síðar á árinu um heim allan. ***Í Cornucopia kannar Björk samband náttúru, tækni og mannsins við umhverfið í gegnum tónlist. Myndin byg...

Berlínarbjarmar David Bowie + Árna Futuregrapher minnst 19.01.2025

***Valur Gunnarsson er gestur Rokklands í dag en í nýjustu bók sinni sem heitir Berlínarbjarmar: Langamma, Bowie og ég – er Valur að flétta saman allskyns sagnfræði og pælingum – hrærir heimspólitíkinni og stríðsbrölti saman við rokk og ról- David Bowie og Bítlana, Við ætlum að tala um Berlín og Bowie – Elvis og Springsteen og U2 – kalda stríðið – og hvort Bítlarnir hafi fellt Berlínarmúrinn á sín...

Stína Ágústsdóttir, Skálmöld, Led Zeppelin 12.01.2025

***Hljómsveitin Skálmöld hélt tónleika í Eldborg í Hörpu í nóvember þrjú kvöd í röð þar sem þeir strákarnir spiluðu öll lögin af öllum sex plötunum sem hljómsveitin hefur gefið út. Þetta gekk allt upp hjá Þeim. Hugmyndin fæddist á bar í útlöndum eftir vel heppnaða tónleika og var svo framkvæmd. Þetta var mikið þrekvirki sem kallaði á miklar æfingar og sum lögin höfðu aldrei verið spiluð á tónleiku...

Eru þetta bestu lögin 2024? 05.01.2025

Í fyrsta Rokklandi ársins er boðið upp á lög sem eru kannski „bestu lög síðasta árs“ - en ekkert endilega – þetta er allt bundið við smekk þess sem hlustar – eða hvað? Ólafur Páll ætlar samt sem áður að spila lög sem honum þykja standa uppúr eftir árið, – íslensk og erlend og honum til aðstoðar er Birgir Örn Steinarsson sem heldur úti ásamt félaga sínum tónlistarsíðu á Facebook sem heitir Nýleg ís...

29.08.2023

Listen to the Rokkland podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.