RÚV
Rokkland
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Utangarðsmenn - Geislavirkir 28.12.2025 1:47:06
Í Rokklandi vikunnar ætlum við að hlusta á eina plötu eins og við gerum stundum í þessum þætti: Geislavirkir með Utangarðsmönnum sem Alda music gaf nýlega út í 45 ára afmælisútgáfu sem hefur bæði að geyma upphaflegu plötuna með Sigurður var sjómaður og Hiroshima, og líka ensku útgáfuna sem var hugsuð fyrir útlönd. Hún var gefin út í litlu upplagi en var aldrei fáanleg hér á Íslandi. Í aðalhlutverk...
Happy Xmas - War is over (JólaRokkland 2025) 21.12.2025 1:47:57
Bítlarnir eru besta hljómsveit sögunnar og John mikilvægasti Bítillinn. Já þetta eru sannarlega fullyrðingar en höfum þetta svona í dag. Og ég ætla að bæta um betur og segja: jólalag Lennons – Happpy Christmas - War is over er hugsanlega og líklega og jafnvel það Bítlalag (köllum það Bítlalag) sem á eftir að lifa lengst allra Bítlalaga. Við köfum við tilurð lagsins í Rokklandi dagsins og skoðum hv...
Aðventugleði Rásar 2 2025 14.12.2025 1:49:02
Aðventugleði Rásar 2 fór fram föstudaginn 5. desember – var send út beint hér á Rás 2 og á RUV 2. Við fengum fjölda af frábæru tónlistarfólki í heimsókn allan daginn: Jazzkonur, Margrét Eir mætti með kór og hljómsveit, Vitringarnr þrír komu í heimsókn með svaka band, Dóra og Döðlurnar. Við vorum með atriði frá Akureyri – Svavar Knút og Jónínu Björt, og svo komu Páll Óskar og Benni Hemm Hemm líka í...
Majones Jól og Spíra Ólafar Arnalds 07.12.2025 1:50:01
Það er sunnudagur í aðventu í dag og Rokkland dagsins ber þess merki. Við komum aðeins við í aðventugleði Rásar 2 sem fór fram á föstudaginn – heyrum í Páli Óskar og Benna Hemm Hemm sem fluttu meðal annars lagið hans Magga Eiríks, Gleði og friðarjól. Ólöf Arnalds var að senda frá sér plötuna Spíru á föstudaginn. Spíra er fimmta platan hennar og sú fyrsta sem er öll sungin á Íslensku síðan fyrsta p...
Pétur Ben - Uppáhalds jólalmúsík Jonna í Reykjavík Record Shop og Jimmy Cliff 30.11.2025 1:48:14
Það er fyrsti í aðventu í dag og við verðum í aðventufötunum í seinni hluta Rokklands í dag – heimsækjum Jonna í Reyjavík record Shop á Klapparstígnum og hann velur fyrir okkur 5 jólalög sem passa fyrir fyrsta í aðventu og heyra aðeins um búðina hans og hvað hann er að gefa út líka. Svo er það Pétur Ben og nýja platan hans sem heitir Painted Blue, þriðja sólóplatan hans á 19 árum. Pétur hefur líka...
Kaktus og Rosalía 23.11.2025 1:50:30
Sykurmolar tengja Rokkland vikunnar saman! Ein af plötum síðasta árs er platan hans Kaktusar Einarsson – Lobster Coda. Hún var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum plata ársins - Kaktus er sonur Einars Arnar Sykurmola. Rokkland hitti Kaktus á Eurosonic Festival í Hollandi fyrr á árinu og átti við hann gott spjall sem við heyrum í seinni hluta þáttarins í dag og tónlistin af Lobst...
Jón Geir 50 + Sumar á Sýrlandi 50 16.11.2025 1:50:00
Stuðmenn héldu upp á 50 ára afmæli meistaraverksins Sumar á Sýrlandi í Eldborg tvisvar á laugardaginn. Rokkland var á svæðinu á fyrri tónleikunum og ræddi við Stuðmenn og konur. Rokkland var líka á svæðinu í Austurbæ á föstudaginn þegar glaðasti trommari íslandssögunnar – Jón Geir Jóhannsson trommari úr Skálmöld – Ampop og fleiri sveitum hélt upp á 50 ára afmæli sitt, – með tónleikum þar sem 6 af...
Rokkland 30 - öll lögin 02.11.2025 1:52:18
Roklkand vikunnar er tileinkað afmælistónleikum Rokkklands sem fóru fram í gærkvöldi í Hofi á Akureyri. Við heyrum öll lögin sem voru flutt og sögurnar á bakvið lögin. Við eigum eftir að útvarpa síðar upptökunum frá Hofi, en tónleikarnir voru líka teknir upp fyrir Sjónvarpið - RÚV.
Cell 7, Stairway to Heaven, Jóga, Joni, Blindsker, Oyama 26.10.2025 1:49:38
Cell 7 – Ragna Kjartansdóttir var að senda frá sér þriðju og persónulegustu plötuna sína. Þar syngur hún og rappar um ástina og lífið – sambandsslit og að að finna ástina upp á nýtt sem fullorðin manneskja. Cell 7 er gestur Rokklands. Svo förum við aðeins yfir 3 af lögunum sem verða flutt á Rokklands afmælistónleikunum í Hofi Á Akureyri 1. nóvember nk. Eitt eftir Joni Mitchell, eitt eftir Bubba –...
Robert Plant - ABBA Voyage - Iron Maiden og Trooper 19.10.2025 1:50:19
Í Rokklandi vikunnar heyrum við söguna á bakvið eitt af lögunum sem verða flutt á 30 ára afmæli Rokklands í Hofi á Akureyri 1. Nóvember – þar sem SinfoníaNord – todmobile bandið og fjöldi frábærra söngvara flytja haug af frábærum lögum, lagið The Trooper eftir Iron Maiden. ABBA kemur við sögu en Rokkland var í London um síðustu helgi á ABBA Voyage í ABBA Arena og var hann Ray sem er búinn að fara...
Eyrarrokk 2025 - Oasis endurkoman – 100 club – Gegnum holt og hæðir 12.10.2025 1:50:11
Í Rokklandi vikunnar heyrum við söguna á bakvið eitt af lögunum sem verða flutt á 30 ára afmæli Rokklands í Hofi á Akureyri 1. nóvember – þar sem SinfoníaNord, Todmobile bandið og fjöldi frábærra söngvara flytja haug af frábærum lögum. Við heyrum líka um endurkomu Oasis en Rokkland var á lokatónleikum Oasis í Bretlandi 28. september sl. á Wembley Stadium. Rokkland kom líka við í einum sögufrægasta...
Sigur Rós og Takk 20 ára 05.10.2025 1:51:25
Sigur Rós hélt núna í vikunni ferna tónleika í Royal Albert hall í London með London Contemporary Orchestra. Royal Albert hall sem Bítlarnir minnast á í laginu A day in the life – Royal Albert hall sem var tekin í notkun árið 1871 og var vígð af Viktoríu drottningu – enda er nafnið komið frá eiginmanninum Albert prins. Og þarna voru strákarnir okkar fjögur kvöld í röð og allt uppselt. Um þessar mu...
Palli & Benni og Alveg + Oyama í std. 12 + Bowie og Life on mars 28.09.2025 1:52:56
Í Rokklandi vikunnar heyrum við söguna á bakvið eitt af lögunum (Life on Mars eftir Bowie) sem verða flutt á 30 ára afmæli Rokklands í Hofi á Akureyri 1. nóvember, en þar mun SinfoniaNord – Todmobile bandið og fjöldi frábærra söngvara flytja haug af frábærum lögum. Við heyrum líka aðeins í hljómsveitinni Oyama sem er afskaplega fín hljómsveit sem gaf út plötuna Everyone Left fyrir tæpu ári. Oyama...
ROKK GEGN HER - Árný Margrét 21.09.2025 1:49:57
ROKK GEGN HER voru tónleikar eða listahátíð sem ungt fólk stóð fyrir í Laugardalshöll í september fyrir 45 árum síðan. Unga fólkið sem stóð fyrr þessu var úr röðum herstöðvarandstæðinga – friðarsinna sem vildu losna við bandaríska herinn af keflavíkurflugvelli í nafni friðar – sögðu að herstöðin í Keflavík virkaði hreinlega eins og segull fyrir kjarnorkusprengjur – á marga vegu. Þeir Sveinn Rúnar...
Hildur Vala - Rock´n roll trip - Rokkland 30 ára 14.09.2025 1:48:45
Hildur Vala er aðalgestur Rokklands í dag - hún hélt upp á 20 ára tónlistarafmæli með tónleikum í Salnum laugardaginn fyrir viku. Það eru 20 ár síðan hún bar sigur úr býtum í annari Idol stjörnuleitinni og varð landsþekkt á augabragði. Síðan eru liðin 20 ár - hún er að vinna í fjórðu stóru plötunni og hún á líka fjögur börn sem komu í heiminn á þessum 20 árum. Hildur Vala er tónlistarkennari við F...
Radiohead- hail to the thief (2003) 07.09.2025 1:49:38
Rokkland vikunnar er endurtekið frá 8. júní 2003 og í brennidepli er hljómsveitin Radiohead og platan Hail to the thief sem kom út 9. júní 2003. Radiohead tilkynnti núna í vikunni að það væri tónleikaferð framundan um nokkur Evrópulönd.
Rokkland í 15 ár (frá 2010) 31.08.2025 1:50:16
Rokkland vikunnar er endurfluttur þáttur frá 7. nóvember 2010 og hann var settur saman úr brotum úr ýmsum þáttum frá fyrstu 15 árum Rokklands. Við sögu koma t.d. Oasis, Björk, U2, Strokes, White Stripes, Beatles, Rolling Stones, Led Zeppelin, Hróarskelduhátíðin, John Lennon, Neil Young, Coldplay, Wilco, Micahel Jackson, Blur og Jeff Buckley.
Neil Young í 60 ár 24.08.2025 1:53:31
Rokkland vikunnar er endurfluttur frá 13. nóvember 2005 og viðfangsefnið er þá - 60 ára Neil young. Hann var nýbúinn að senda frá sér plötuna Praire Wind.
Oasis og Definitely Maybe og endurkoma Utangarðsmanna 17.08.2025 1:54:14
Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni höfum við verið að endurflytja gamla þætti í sumar. Rokkland stendur heldur betur undir nafni í dag vegna þess að við heyrum brot úr tveimur þáttum þar sem eru í aðalhlutverki tvær magnaðar og frábærar ROKK-hljómsveitir; Utangarðsmenn og Oasis. Í seinni hlutanum heyrum við brot úr þætti 176 (21. mars 1999) þegar Utangarðsmenn komu saman í fyrsta skipti síð...
U2 og I-phone platan 10.08.2025 1:53:48
Rokkland er 30 ára í ár – og af Því tilefni eru afmælistónleikar í HOFI 1. Nóvember. En við erum líka að endurflytja vel valda þætti í sumar – af þessum 1379 sem eru búnir – og þátturinn í dag er frá 14. september 2014 og í aðalhlutverki er hljómsveitin U2 og platan Songs of innocence sem kom út þarna í septmeber 2014 með miklum látum í tengslum við kynningu Iphone 6 á blaðamannafundi í Cupertino...
Með Hljómum í Cavern og öðrum Bítlaslóðum 03.08.2025 1:46:32
Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni erum við að endurflytja nokkra vel valda gamla þætti á Rokklands-tímanum í sumar. Rokkland dagsins er endurflutt frá 8. júní 2008 og þetta er Bítlaþáttur. Í helstu hluverkum eru Paul Mccartney, Liverpool, Hljómar frá Keflavík, og 100 Íslendingar sem smelltu sér í bítla-pílagrímsferð til Bítla-borgarinnar undir dyggri fararstjórn Jakobs Frímanns Magnússonar...
Höfundur óþekktur - 100 ára kosningaréttur kvenna 27.07.2025 1:51:16
Rokkland er 30 ára í ár – og af Því tilefni erum við að endurflytja vel valda þætti í sumar – af þessum 1379 sem eru búnir – og þátturinn í dag er frá 21. júní 2015 og er að uppistöðu upptaka frá tónleikum sem Kítón stóð fyrir í Hörpu í tilefni af hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna þann 19. júní með hátíðartónleikum. Á öldum áður þóttu konur ekki hafa hæfileika til að iðka tónlist og leifar...
Endurkoma Led Zeppelin í London í desember 2007 20.07.2025 1:57:00
Rokkland er 30 ára í ár og af því tilefni erum við að endurflytja nokkra vel valda gamla þætti á Rokklands-tímanum í sumar, og Rokkland vikunnar er frá 2007 (þáttur 601) endurkoma Led Zeppelin í London 2007.
Iron Maiden til Íslands og sagan öll 13.07.2025 1:52:25
í Rokklandi vikunnar rifjum við upp þátt nr. 466 í tilefni af 30 ára afmæli Rokklands - Iron Maiden kemur til Íslands árið 2005.
Popp í Reykjavík 1998 06.07.2025 1:49:13
Í tilefni af 30 ára afmæli Rokklands endurflytjum við vel valda þætti á Rokklands-tímanum í sumar. Þáttur vikunnar var upphaflega á dagskrá 6. júlí 1998, sunnudaginn eftir tónlistarhátíðina Popp í Reykjavík, og var tileinkaður hátíðinni sem sett var upp í þeim tilgangi að gera kvikmynd um tónlistarlífið í Reykjavík sumarið 1998.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.