Lovísa og Linda
Fljúgum hærra
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum
Author
Lovísa og Linda
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
31) George Michael 08.07.2026 2:00:58
Hvað svo sem sumum okkar, og þar á meðal mér, finnst um Wham! þá getur enginn sagt annað en að George Michael hafi verið frábær söngvari og líka lagahöfundur og oft vanmetinn sem slíkur. Hann gaf ekki út margar sólóplötur á ferlinum en þar er að finna fjöldan allan af ódauðlegum popp lögum. Hann átti við allskonar vandamál að stríða seinni hluta æfinnar og lést langt um aldur fram 2016 aðeins 53 á...
30) Guns ´n´ Roses - The Most Dangerous Band in the World 20.05.2026 1:28:58
Margir segja að Guns ´n´ Roses séu síðasta risa rokk bandið sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Þeir spiluðu sína blöndu af pönki, blues og classic rock og komu með, eins og einhver sagði "danger, attitude and legitimacy" þegar hair metalið hafði gengið allt of langt í hárspreyi og eyliner. Þó þeir hafi bara gefið út 4 stórar plötur með frumsömdu efni á öllum sínum ferli þá er hljómsve...
29) Lou Reed - Með og án Velvet Underground 21.04.2026 1:22:06
Einhver blaðamaðurinn sagði um Lou Reed: Það eru til allskonar áhrifavaldar. Sumir hafa áhrif á ákveðna bylgju tónlistar meðan aðrir hafa áhrif á ákveðna kynslóð. Áhrif Lou Reed náðu langt út fyrir eina tónlistarbylgju eða eina kynslóð heldur náði hann að setja sitt mark á allt frá pönkinu á fyrri hluta 8. áratugarins og öllu sem á eftir því fylgdi yfir í alternative rock 10. áratugarins
28) Metallica 26.03.2026 1:40:26
Metallica er án nokkurs vafa ein áhrifamesta og goðsagnakenndasta metal hljómsveit sögunnar. Ferill þeirra spannar áratugi og milljónir aðdáenda um allan heim hafa hlustað á lögin þeirra, mætt á tónleika og keypt plötur allar götur síðan Kill ´em all kom út. Saga Metallica er saga þrautsegju og ástríðu fyrir tónlistinni og þeir hafa alltaf haldið ótrauðir áfram sama hvað á hefur dunið
27) Billy Idol - Breski pönkarinn sem fann frægð og frama í Bandaríkjunum 23.02.2026 1:10:23
Billy Idol er eflaust ein af mest áberandi persónum 9. áratugarins í tónlistarbransanum. Það þekkja allir ljósa aflitaða hárið, rámu röddina og glottið sem hann var alltaf með á andlitinu. En hann vann fyrir þessu öllu. Hann flytur frá Bretlandi til Bandaríkjanna með ekkert í höndunum annað en drauminn um að öðlast frægð og frama sem tónlistarmaður og það tókst honum svo sannarlega. Hann var rétt...
26) Aerosmith 02.02.2026 1:25:51
Aerosmith eru risastór áhrifavaldur á heila kynslóð rokktónlistarmanna í Bandaríkjunum hvort sem það eru Guns´n´Roses, Van Halen eða Skid Row. Í heil 56 ár hefur hljómsveitin starfað og nánast allan þann tíma með sömu meðlimunum sem byrjuðu að spila saman í íbúðinni sem þeir deildu í Boston sem er alveg ótrúlegt miðað við lífernið. Að þeir séu allir ofan moldu í dag, komnir á áttræðisaldur er hrei...
25) Duran Duran 12.01.2026 1:25:35
Á sínum 48 ára ferli hafa Duran Duran farið frá því að vera ein vinsælasta hljómsveit heims með með hysterískar unglingsstelpur við hvert fótmál yfir í að vera droppað af þrem mismunandi útgáfufyrirtækjum og vera skítblankir og skulda svimandi háar upphæðir. En sama hvað á dundi þá komu þeir alltaf til baka og er hljómsveitin í dag enn skipuð fjórum af fimm uprunalegu meðlimunum og er enn í fullu...
24) Van Halen 10.12.2025 1:29:11
Fyrsta plat Van Halen kom út í febrúar 1978 og rokktónlistin varð aldrei söm aftur. Hún kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn í tónlistarumhverfi þar sem var disco annars vegar og pönk og nýbylgja hins vegar og ruddi veginn fyrir það sem á eftir kom og dró gítarhetjuna og flamboyant söngvarann aftur fram í sviðsljósið auk þess að sýna að gleði og húmor áttu alveg heima í rokktónlist
23) KISS - The hottest band in the land! 17.11.2025 1:37:12
KISS hafa verið með okkur í 52 ár og eru ekkert að fara. Þó að tónlistarpressan hafi hatað hljómsveitina allan hennar feril þá létu þeir það ekkert á sig fá og það eru ófáir tónlistarmennirnir sem hafa verið KISS aðdáendur á unglingsárunum og margir eru það enn. En KISS eru ekki bara hljómsveit heldur heimsþekkt vörumerki sem metið er á um 300 milljónir dollara
22) Prince - Margur er knár þó hann sé smár 22.10.2025 1:26:14
Það eru engar ýkjur að kalla Prince einn áhrifamesta, hæfileikaríkasta og jafnframt afkastamesta tónlistarmann okkar tíma. Hann virtist geta spilað á hvaða hljóðfæri sem var og lögin sem hann samdi teljast í þúsundum. Tónlistin sem hann gaf út spannar allt frá disco, synth poppi og r´n´b til jazz, funk og acid rock og hafa plötur hans selst í um 150 milljón eintökum um allan heim sem gerir hann a...
21) Bon Jovi 01.10.2025 1:35:36
Hljómsveitin Bon Jovi er búin að vera starfandi samfleytt í 42 ár og innihelddur enn þrjá af upprunalegu meðlimunum. Það virðist vera alveg sama hvaða nýju straumar og stefnur koma og fara í tónlistinni, ekkert virðist trufla vinsældir Bon Jovi og þeir standa allt af sér. Ætli galdurinn sé bara ekki sá að geta endalaust samið grípandi lög sem límast við heilann í þér og áður en þú veist af ertu fa...
20) Ozzy Osbourne - The Prince of Darkness 02.09.2025 1:42:05
Ferill Ozzy Osbourne spannaði 6 áratugi. Hann varð stjarna með Black Sabbath á áttunda áratugnum, hóf gríðarlega farsælan sólóferil á níunda áratugnum, gerðist þungarokksfrumkvöðull á tíunda áratugnum með Ozzfest tónlistarhátíðinni og árið 2002 varð hann raunveruleikasjónvarpsstjarna, þökk sé MTV þáttunum The Osbournes. Í sínum villtustu draumum hefur hann örugglega ekki séð þetta fyrir sér þega...
19) Bruce Springsteen 13.08.2025 1:43:30
Ferill Bruce Springsteen spannar 6 áratugi og hefur hann gefið út 21 stúdíóplötu auk óendalegs magns af safnplötum, live plötum og allskonar box settum sem eru stútfull af lögum sem honum fannst á þeim tíma ekki passa á neina af þeim plötum. Skilgreiningin "heartland rock" hefur verið notuð fyrir tónlist hans þar sem hann tvinnar saman rokktónlist og samfélagslega meðvitaða texta sem end...
18) Ramones - Hey ho, let's go!! 09.06.2025 1:22:10
Þegar Ramones koma fram á sjónarsviðið í byrjun 8. áratugarins færðu þeir rokkið aftur til upprunans og komu í leiðinni með uppskriftina að pönkinu. Lögin voru einföld og hröð og helst ekki mikið lengri en 2 mínútur. Það væri mjög margt öðruvísi í tónlistarheiminum ef Ramones hefði aldrei notið við. En þó þeir hafi haft gríðarleg áhrif á ekki bara einstaka hljómsveitir og tónlistarfólk heldur á he...
17) Eurovision - Saga keppninnar til dagsins í dag 12.05.2025 1:30:00
Eurovision er stórmerkilegt menningarfyrirbæri og stundum veit maður ekki hvort maður er að horfa á grínþátt eða háalvarlega söngvakeppni. En það er einmitt það sem gerir þetta svo heillandi. En hvernig byrjaði þetta ævintýri allt saman? Af hverju er Ísrael með í keppni sem heitir Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva? Og af hverju vinnur Svíþjóð?
16) Depeche Mode 21.04.2025 1:14:28
Þeir voru kallaðir synthesiser boy band af Bresku pressunni og Bay City Rollers of the electronic age, þegar hljómsveitin var að byrja að vekja athygli. Nintendo tónlist spiluð með einum fingri myndi ég skilgreina tónlistina sem þeirra þarna fyrstu árin. En svo skánaði þetta með hverri plötunni 45 árum síðar, þar sem tískustraumar hafa komið og farið og tónlistarstefnur risið og fallið eru Depeche...
15) Black Sabbath 27.03.2025 1:35:53
Þann 5. júlí næstkomandi munu allir upprunalegu meðlimir Black Sabbath stíga á svið í síðasta skiptið á stórtónleikum á Villa Park í Birmingham...ef enginn þeirra hrekkur upp af áður en að þar að kemur. Því er ekki úr vegi að fara í gegn um skrautlegan feril þessarar hljómsveitar sem er án nokkurs vafa ein áhrifamesta rokkhljómsveit allra tíma.
14) Phil Spector og "The wall of sound" 10.03.2025 1:19:46
Það fór aldrei á milli mála að Phil Spector var hæfileikaríkur. Hann hlóð saman hverju hljóðfærinu ofan á annað og bjó til þetta fyrirbæri sem er kallað "Wall of sound" og dæmi um það er lagið "River deep, mountain high" með Tinu Turner sem væntanlega allir þekkja. Brian Wilson var mikill aðdáandi Spectors og tók þessa hugmynd hans yfir í Beach Boys og Jim Steinman hlustaði öru...
13) Iggy Pop - Ber að ofan í rúmlega hálfa öld 20.02.2025 1:22:30
Iggy Pop er búinn að vera að gefa út tónlist síðan 1969. Hann hefur verið kallaður "the godfather of punk" og án hans og The Stooges væri örugglega ýmislegt öðruvísi. Hann átti mjög farsælt samstarf við David Bowie, hefur gert ambient jazz plötu, komið fram fyrir hönd Madonnu á innsetningarathöfn hennar í Rock´n´roll hall of fame og gaf út sína vinsælustu plötu þegar hann var orðinn 69 á...
12) Grunge: Seattle, flannelskyrtur og hermannaklossar 06.02.2025 1:08:38
Þegar 70´s rock og punk eignuðust afkvæmi varð útkoman grunge og þetta gerðist í Seattle af öllum stöðum í heiminum. Borg sem fram að þessu hafði verið þekktust fyrir rigningu, ryðgaðar brýr og aðeins of mikið af efnum sem voru ekki holl fyrir neinn. Meðan hair metalið var að tröllríða öllu þá var hrátt gítarrokk með óþarflega þunglyndislegum textum að spretta úr kjöllurum og bílskúrum í þessari...
11) CBGB - Litla sóðabúllan á Manhattan sem varð vagga pönksins og nýbylgjunnar 22.01.2025 46:19
CBGB var miklu meira en bara einhver sóðabúlla með veggjagroti og brotnum klósettum. Í 33 ár átti grasrót rokktónlistar í New York þar sinn samastað og fékk tækifæri til að vaxa og dafna og þar réði sköpunargleðin ríkjum. Þar áttu sitt athvarf allt frá Ramones og Blondie til Patti Smith, Talking Heads og Bad Brains.
10) ABBA 08.01.2025 1:42:29
ABBA var á sínum gullaldarárum ein allra vinsælasta hljómsveit heims. Þó að hljómsveitin hafi algerlega legið í dvala í einhver 35 ár þá var hún langt frá því gleymd og grafin. Það voru allsstaðar ABBA laumuaðdáendur og komu þeir út úr öllum skúmaskotum þegar safnplatan ABBA Gold var gefin út 1992. Síðan þá hefur hljómsveitin gengið í algerlega endurnýjun lífdaga þar sem gerðar hafa verið bíómynd...
9) Þegar Bretar uppgötvuðu blues: Frá Alexis Korner til Led Zeppelin 11.12.2024 51:25
Hvernig kom það til að Bandarísk blues tónlist náði jafn kirfilega að festa sig í sessi í Bretlandi í byrjun 7. áratugarins og raunin varð á? Tónlist sem engin hefð var fyrir þar í landi, var ekki spiluð þar í útvarpi og var bara fáanleg á plötum eftir krókaleiðum? Sérstaklega þegar horft er til þess að það var engin stemming fyrir blues tónlist í heimalandinu og þeir sem enn ströggluðu við að spi...
8) Motown: Litla útgáfan í Detroit sem breytti tónlistarsögunni 28.11.2024 1:39:41
Motown útgáfan var stofnuð í Detroit 1959 og á örfáum árum hafði hún breytt tónlistarsögunni. Þar lögðust allir á eitt við að skapa þetta sérstaka sound sem kennt hefur verið við Motown og stórsmellirnir runnu þaðan á færibandi. Frá Motown hafa komið óendanlega mörg lög sem eru löngu orðin klassísk popp lög og við þekkjum öll flytjendur eins og Supremes, Jackson 5, Marvin Gaye og Stevie Wonder
7) Britpop - Suede, Oasis, Blur og Cool Britannia 13.11.2024 1:04:35
Britpoppið kom fram á sjónarsviðið í Bretlandi fyrri hluta 10. áratugarins. Það var efnahagsuppgangur og aukin bjartsýni hjá ungu fólki í landinu. Bæði tónlistin og textarnir sóttu fyrirmyndir í eldri Breskar hljómsveitir og til Breskrar menningar og það að vera Breti var eitthvað til að vera stoltur af. Og allir voru rosa hressir alla vega til að byrja með nema auðvitað Gallagher bræðurnir. Og v...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.