Einar Bárðarson
Einmitt / Menn eins og við
Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.
Author
Einar Bárðarson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare" 10.07.2026 1:22:19
Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi o...
Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund 30.06.2026 1:08:40
Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmars...
Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum 20.06.2026 53:55
Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt. Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunveruleg...
Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu 12.06.2026 1:03:35
Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið. Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólm...
Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?" 02.06.2026 1:03:17
Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga....
Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?" 16.05.2026 1:09:24
Nú er það grillin sem taka mesta athyglina. Strákarnir sóttu sér ráð inni á pabbatips um hvernig sé best að þrífa gasgrillin fyrir sumarið. Þá kom hugtakið "sumarkvíði" upp í samtalinu og það var greint í döðlur. Einnig fá klósett með heitri setu, lúxusrúm og sumar heima hjá sér hefðbundna litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.i...
Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?" 08.05.2026 1:13:27
Baldur glímir við afleiðingar hásinarslits á meðan Einar hefur verið í spænskri endurhæfingu frá íslenskum raunveruleika. Í þættinum ræða þeir meðal annars salerni með skol- og þurrkkerfum, hvort karlmenn eigi að pissa sitjandi, gróðurhúsadrauma, tómatarækt og slátturóbóta. Einnig fá Bjarni Benediktsson, Friðrik Dór og Auddi Blö sína hefðbundnu litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://...
121 Einar Þorsteins "Við sjáum öfgarnar aukast í borginni" 07.05.2026 1:17:14
Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík og fyrrum Borgarstjóri er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum komandi kosningar og stöðu flokksins á Höfuðborgarsvæðinu, er erindi flokksins búið í borgaralegu samhengi eða er ennþá eftir spurn eftir rödd á miðjunni? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: bkhonnun.is < http://bkhonnun.is/ > hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is bpro.is < http...
120. Elís Árnason „Nýtt líf í sólinni á Spáni" 18.04.2026 1:29:46
Elís Árnason eða Elli í Sjallanum fasteignasali á Spáni er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum Sjallann, Hótel Kea, Eina með öllu, Hard Rock, árin í Smáralind og lífið á Spáni en síðustu 15 ár hefur hann verið með annan fótinn á svæðinu fyrir neðan Alicante og nú síðustu 3 ár hefur hann starfað þar sem fasteignasali við góðan orðstír.
119 Patrekur Jaime „Það er alvöru raunveruleiki í óraunveruleikanum" 11.04.2026 49:33
Gestur minn í þessum þætti er Patrekur Jaime, fjölmiðlamaður, raunveruleikastjarna og gleðisprengja. Hann er 26 ára, nýhættur að drekka og á erfitt með að kveðja gamla starfið sitt við hjúkrun og líknandi meðferðir, sem hann segir að sé alvöru raunveruleiki í hringiðu raunveruleikastjörnunnar. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is Bpro.is Sterero.is Samstarf...
118. Jóna Hrönn „Konan frá Betaníu" 04.04.2026 1:26:52
Jóna Hrönn Bolladóttir er gestur minni í Páskaþættinum í ár. Hún er nýkomin út úr erfiðri krabbameinsmeðferð þar sem hún gekkst undir beinmergskipti. Hún talar um meðferðina, tímann og lífsreynsluna af miklu hispursleysi, og fyrirbænirnar frá vinum og ókunnugum sem hún heyrði í gegnum ferlið og leiddu hana í gegnum dimmustu dalina. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavo...
117. Ívar Guðmunds "Ég gef mig allan í þetta" 24.03.2026 59:48
Ívar Guðmundson hefur starfað í útvarpi í hátt í fjóra áratugi, eða frá því um 1988, og á þeim tíma hefur íslenskt útvarpsumhverfi breyst gríðarlega. Hann hefur hins vegar staðið vaktina í gegnum allar þessar breytingar, hjá mismunandi eigendum, á mismunandi tímum í rekstri og fjölmiðlaumhverfi sem hefur oft verið bæði stormasamt og krefjandi. Ívar er ekki aðeins þekktur útvarpsmaður heldur einnig...
Einmitt special #10 – Menn eins og við "Átta vikur í gifsi" 23.03.2026 55:29
Í glænýjum þætti af Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir það af hverju í ósköpunum miðaldra menn geta ekki gert neitt eðlilega. Baldur var plataður í padel í vikunni af félögunum og endaði uppi á Bráðamóttöku. Niðurstaðan: 8 vikur í gifsi og sjálfsvirðingin aðeins líka í gifsi. Á meðan var Einar hins vegar eins og fínn maður í nýjum smóking frá Kölska, hangandi með tónlistarelítunni í Hörpu...
Einmitt special #9 Menn eins og við "Að rækta vinahópinn" 16.03.2026 1:04:26
Í nýjasta þættinum af Menn eins og við ræða strákarnir um mikilvægi þess að rækta vinahópinn – hópinn sem þú hringir í þegar allt fer í apaskít, hópinn sem hlær með manni, stappar í mann stálinu og gefur ráð þegar þeirra er þörf. Baldur kemur svo með óvænta uppgötvun og segir okkur hver klippir Kylie Jenner – og hvernig það virkar. En stærri spurning vaknar líka: má nota sömu rakvél á andlitið og...
Einmitt Special #8 Menn Eins & við eru ennþá að vakna daginn eftir með tatto! 03.03.2026 1:13:11
Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við ætluðu Baldur og Einar að vera ábyrgir og málefnalegir – ræða vetrafrí og páskafrí út frá skyldum venjulegra pabba. En það plan entist stutt því helgin hafði verið of ævintýraleg til að fara ekki yfir það fyrst en Baldur endaði á 101 Hótel, pantaði sér kampavínsflöskur á 9.800 krónur og flæktist þaðan inn í kvöld sem innihélt lækni með VIP-kort á leyniklúbb...
Einmitt Special #7 Menn eins og við með Sir Arnari Gauta 23.02.2026 1:54:54
Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við fá þeir Baldur og Einar til sín hönnuðinn og lífskúnstnerinn Sir Arnar Gauta í einlægt og skemmtilegt spjall. Arnar hefur verið nátengdur tísku- og hönnunarheiminum frá því seint á síðustu öld og hefur sett mark sitt á fjölda glæsilegra veitingastaða og hótela með innanhússhönnun sinni. Hann er jafnframt þekktur fyrir ástríðu sína fyrir stíl og má með sanni ka...
Einmitt Special #6 Menn eins og við "Kalóríur og Karlhormón" 13.02.2026 1:32:02
Í þessum þætti af Einmitt Special – Menn ræða Baldur og Einar við heilsufrumkvöðulinn Inga Torfa Sverrisson. Hvað gerist með testósterón á miðjum aldri? Erum við að vanmeta kalóríur? Við ræðum einnig nýja íslenska heilsuappið LifeTrack, sem Ingi og Linda Rakel Jónsdóttir hafa þróað fyrir íslenskan markað – einfalt verkfæri með yfir 9.000 íslenskum matvörum. Þetta er þáttur fyrir karlmenn sem vilja...
Einmitt Special #5 Menn eins og við "Í hverju ertu maður?" 12.02.2026 1:09:52
Í þessum þætti fara Baldur og Einar yfir tíu heitar vangaveltur um klæðaburð fullorðinna karlmanna. Skinny jeans eftir fertugt, cargo buxur og hvort strikaskór gangi við jakkaföt allt út frá þeirra mati. En umræðan er miklu dýpri. Þeir ræða muninn á því að klæða sig yngri – og að klæða sig betur og hvers vegna fullorðinn stíll á að vera meðvitaður, ekki stressaður. Þetta er þáttur fyrir alla sem...
116. framkvæmdastjóri Krísuvík "Skýr merki um árangur" 05.02.2026 53:50
Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Krísuvíkursamtökin, hefur haft afgerandi áhrif á þróun og eflingu starfsseminnar frá því hann tók við starfinu. Undir hans stjórn hefur verið lögð rík áhersla á fagmennsku, skýra framtíðarsýn og mannúðlega nálgun sem hefur styrkt innra starf samtakanna og aukið traust út á við. Elías er gestur í nýjasta þætti af Einmitt Hlaðavarp, þar sem hann ræðir sitt hlutver...
Einmitt special #4 Menn eins og við / „Ég er kominn heim" 03.02.2026 1:08:51
Egill Ploder er nýkominn heim úr hárígræðslu frá Tyrklandi. Hann naut aðstoðar Baldurs og Einars í ferlinu og nú fara þeir yfir þetta allt saman eftir aðgerð og hvernig kollurinn á Agli er að koma undan verkefninu. Er þetta nú allt þess virði?
Einmitt special #3 Menn eins og við 01.02.2026 58:53
Í þessum þætti ræða Baldur og Einar um næturkrem fyrir karla, andlitsvax, saursýnatöku, tyrkenska klippingar og þegar Baldur sá Maradona ekki skora í Argentínu 2009. Hér er eitthvað fyrir alla sem hafa gaman tilvistarkreppu miðaldra karla í Garðabæ.
Einmitt Special #2 Menn eins og við. Egill Ploder á leið til Tyrklands 18.01.2026 1:16:56
Einar Bárðar og Baldur Rafn spjalla við Egill Ploder en Egill var á leiðinni til Istanbul þegar þátturinn var tekinn upp og var að gera sig kláran í hártilfærsluaðgerð með aðstoð þeirra félaga. Spurningarnar eru margar og svörin bæði gagnleg og sprenghlægileg í sumum tilfellum því ekki má tapa gleðinni þó menn hafi tapað hárinu. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini...
Einmitt Special #1 Menn eins og við: 18.01.2026 1:31:27
Einar Bárðar og Baldur Rafn ræða lífið eftir hárígræðslu og hvernig það er þegar ókunnir strjúka hárið á þeim í kjötborðinu í Krónunni. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - Morgunmatur meistarans egc.is - Hamraborg mammaveitbest.is fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Austurvegi Selfossi ...
115. Guðmundur Fylkisson „Doktor í því sem virkar ekki" 04.01.2026 1:30:54
Maður ársins 2025 á langflestum miðlum landsins er Guðmundur Fylkisson lögreglumaður. Maðurinn sem leitar að börnunum sem vilja ekki láta finna sig. Hann er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum ferilinn frá snjóflóðunum að vestan að leitarverkefnum dagsins í dag.
114. Kjartan Már Kjartansson „í lagi í vera ekki hress ef maður verður hress aftur" 27.12.2025 1:08:41
Gestur minn í þessum þætti er Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Þeir eru fáir í hans starfi sem hafa ennst jafn lengi í starfi og ekki hafa verkefnin verið auðveld, hvorki í vinnunni eða í hans persónulega lífi. Kjartan ræðir ferilinn af einlægni og veikindin sem hann glímir við af æðruleysi.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.