RÚV
Rokkland
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Lestarsöngvar, vögguvísur og harmakvein 09.10.2016 1:55:00
Iron Maiden kemur aðeins við sögu í Rokklandi dagsins, en sjötta platan þeirra, Somewhere in time er 30 ára um þessar mundir og sveitin ætlar að túra aðeins um Bretland og nokkur Evrópulönd næsta sumar. Hljómsveitin Leaves fagnar 15 ára afmæli sínu í ár og af því tilefni hljóðritaði sveitin aftur fyrsta lagið sem varð til, titillag fyrstu plötunnar sem kom út árið 2002 og heitir Breathe. Við heyru...
Stooges, Bítlar og nýtt og eldra frá Sviss 02.10.2016 1:55:00
Rokkland fer í víða í dag - ég segi það satt. Iggy Pop og Stooges koma við sögu en leikstjórinn Jim Jarmusch er búinn að gera heimildarmynd sem heitir Gimme Danger og Bíó Paradís ætlar að sýna hana innan skamms. Pixies koma við sögu, Muse, Paul Simon, Peter Gabriel, Van Morrison, Bob Weir úr Grateful Dead og Hope Sandoval úr Mazzy Star. Svi förum við til Sviss og heyrum í náunga sem heitir Julian...
Er eitthvað að gerast í Sviss? og Trump og U2 25.09.2016 1:55:00
Um síðustu helgi fór fram tónlistarhátið í Lausanne í Sviss sem heitir Label Suisse og Rokkland var á staðnum. Já í seinni hluta þáttarins á eftir skreppum við til Sviss og heyrum soldið af nýrri poppmúsík frá Sviss sem hann velur ofan í okkur náungi sem heitir Francois Kuffer og tónlistarstjóri hjá "Rás 3 ? útvarpi unga fólksins hjá Frönskumælandi Sviss (RTS ? Radio and Telvision Suisse). Label S...
Stuðmannasögur af flóttamönnum og öðru fólki 28.08.2016 1:55:00
Sögumennirnir Egill og Jakob frímann segja frá í dag, Við heyrum í þættium í dag dálítið af nýrri músík með sveitum og listamönnum eins og Coldplay, Travis, Biffy Clyro, Placebo , Red Hot Chili Peppers og Gary Clarke jr, en svo heyrum við líka tvær magnaðar sögur frá tveimur Stuðmönnum. Jakob Frímann segir okkur fyrst sögu þar sem koma við sögu Joni Mitchell, Leonard Cohen, Ámundi Ámundason, Anna...
Glimrandi Tónaflóð á Menningarnótt 21.08.2016 1:55:00
Í Rokklandi vikunnar er boðið upp á brot af því besta sem var spilað og sungið á Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli á Menningarnótt. Fyrst á svið var Glowie ? Sara Pétursdóttir sem sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2014 þegar hún var 17 ára gömul, en nýjasta lagið hennar fór akkúrat á toppinn á vinsældalista Rásar 2 á laugardaginn, lagið heitir No lie. Á eftir henni komu fánaberar íslenska ra...
Nick Cave í Reykjavík og Iron Maiden á Wacken 14.08.2016 1:55:00
Í fyrri hluta þáttarins heyrum við 30 ára gamalt viðtal sem Vilborg Halldórsdóttir fjölmiðja og leikkona með meiru og eiginkona Helga Björns tók við sjálfan myrkrahöfðingjann Nick Cave þegar hann heimsótti Ísland í fyrsta sinn árið 1986. Cave sem þá var 29 ára gamall og búsettur í Berlín fór með Vilborgu í bíltúr um borgina og þau stoppuðu í Öskjuhlíðinni og spjölluðu þar saman um plötuna sem þá v...
Lengi lifir... 07.08.2016 1:55:00
...í gömlum glæðum segir máltækið. Hljómsveitin Quarashi kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf fyrir 20 árum síðan. Þetta er mikið notaður frasi og hann er sannur í þessu samhengi, ?Quarashi kom, sá og sigraði. En Quarashi hætti síðan og til minningar um hljómsveitina og feril hennar kom út safnplata árið 2011 sem heitir Quarashi Anthology. En þrátt fyrir að Quarashi hafi þakkað fyr...
Bræðslan er best 24.07.2016 1:55:00
...daginn eftir og upphituð - Í Rokklandi dagsins heyrum við brot frá Bræðslunni 2016 sem fór fram í gær á Borgarfirði eystri í 12. sinn í gær. Rás 2 hefur sent út beint frá Bræðslunni allar götur síðan 2006 þegar Emiliana Torrini kom fram á Bræðslunni í annað sinn og dró þá vini sína frá Skotlandi - Belle & Sebastian með sér. Þessi skemmtilega tónlistarhátíð fæddist eiginlega að sjálfu sér þegar...
Geislar, skin og skúrir á Sólstöðuhátíð 19.06.2016 1:55:00
Tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram núna um helgina í þriðja sinn og Rokkland er á staðnum. Hátíðin hefur stækkað gríðarlega síðan hún var sett á laggirnar árið 2014 og líklega eru gestir Secret Solstice í ár um 15.000. Mestur spenningur var fyrir tónleikum bresku hljómsveitarinnar Radiohead á föstudaginn, en sveitin sem er búin að vera starfandi í rúm 30 ár hefur aldrei áður komið til íslan...
1000 sinnum segðu Rokkland 03.04.2016 1:55:00
Í dag fer þúsundasti þáttur Rokklands í loftið og gestir þáttarins eru þau Nanna og Raggi úr hljómsveitinni Of Monsters And Men. Músíktilraunir 2016 eru hafnar - hófust í gærkvöldi í Norðurljósum í Hörpu og þess vegna fannst mér passa að 1000asti þátturinn fjallaði um þá sigursveit Músíktilrauna sem hefur náð lengst - Of Monsters And Men sem spilaði einmitt á tónleikum í Jóhannesarborg í S-Afríku...
Eru einhver góð lög á þessari plötu? 20.03.2016 1:55:00
Lifun í 45 ár - Árið 2009 gaf SENA út bók sem heitir 100 bestu plötur Íslandssögunnar. Þeir sem skrifuðu voru Jónatan Garðarsson og Arnar Eggert Thoroddsen og bókin fjallar um 100 bestu hljómplötur Íslandssögunnar. Listinn sem þeir unnu eftir var settur saman af stórum hópi fólks úr íslenska músík-bransanum og með kosningu almennings. Ágætis byrjun með Sigur Rós frá árinu 1999 lenti í fyrsta sæti...
Skrýmsli og frumkvöðlar dansa líka 31.01.2016 1:49:13
Tónlistarheimurinn hefur hreinlega farið á hliðina síðustu vikurnar eftir að David Bowie féll frá, 69 ára aða aldri. Fólk hefur keppst við að mæra hann, allskyns fólk, tjónrmálamenn og aðrir tónlistarmenn. Marilyn Manson lét t.d. hafa það eftir sér að líf hans hafi hreinlega breyst þegar hann heyrði plötuna Scary Monsters á sínum tíma. Plöturnar hans seljast sem aldrei fyrr og þessa vikuna á hann...
Hann dó eins og hann lifði... 24.01.2016 54:17
....eins og listaverk í sjálfu sér. Við erum auðvitað að tala um David Bowie sem lést tveimur dögum eftir að varð 69 ára og sendi frá sér nýjustu plötuna sína - Black Star. Tónlist hefur svo mikil áhrif á okkur á allan mögulegan hátt, og þó svo David Bowie hafi ekki þekkt mig og þig ? þá þekktum við hann. Hann söng okkur í svefn og í stuð. Við höfum dansað með honum ? við sáum hann í bíó, sáum han...
Jólin á Mars og þegar María mín fór 27.12.2015 1:48:06
Allar götur síðan 1997 hefur Rokkland boðið upp á sérstakan jólaþátt og hann er einmitt í dag þetta árið. Í fyrsta þættinum fyrir öllum þessum árm var þetta eki mikið mál, það var eki svo erfitt að safna saman bunka af skemmtilegum og svolítð „öðruvísi“ jólalögum sem ekki högfðu verið spiluð mikið í útvarpið þann desemberinn, en með hverju árinu sem líður verður þetta meira og meira mál - fyrst og...
Hjálpum þeim - Jojo og Gummi P. 20.12.2015 1:55:00
Í Rokklandi dagsins skoðum við tenginguna milli Hjálpum þeim (desember 1985), Do the know it´s christmas (desember 1984) og We are the world (mars 1985). Í seinni hluta þáttarins er gítarleikarinn ? gítarhetjan og tónlistarmaðurinn Guðmundur Pétursson gestur Rokklands, en hann spilaði t.d. 16 Baggalútstónleika núna í desember, hann túraði um heiminn á árinu með hinum norska Erlend Oye og hann var...
Helgi Bjösss... sko... 13.12.2015 1:49:59
Helgi Björns er gestur Rokklands í dag. Hann sendi nýlega frá sér plötuna Veröldin er ný en hún er fyrsta platan hans með frumsömdu efni í heil 18 ár. Helgi segi okkur hvers vegna svona langur tími hafi liðið milli platna, en þessa nýju plötu gerði hann með ungum mönnum sem hann hafði ekki unnið svona náið með áður. Guðmundur Óskar Guðmundsson (Hjaltalín) samdi flest laganna með Helga og megmið af...
Bubbi talar og talar... 06.12.2015 1:48:57
Í Rokklandi á sunnudaginn. Hann talar fyrst og fremst um nýju plötuna - 18. konur sem fjallar meira og minna öll um konur. Það eru líka konur sem spila með honum á plötunni - eingöngu konur. Þær kalla sig Spaðadrottningarnar og eru Ingibjörg Elsa Turchi sem spilar á bassa, Brynhildur Oddsdóttir á gítar, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur og Margrét Arnardóttir á harmonikku. Við Bubbi ræðum í þæ...
E.L.O.R.G.Í.A. 22.11.2015 1:55:00
Jeff Lynne úr E.L.O er maður vikunnar í Rokklandi og þátturinn er næstum allur helgaður honum. Ein stærsta tónlistarfrétt vikunnar og kannski ársins er að það var að koma út ný plata með E.L.O. ? Electric Light Orchestra. Platan kemur út undir nafninu Jeff Lynne´s E.L.O. en Jeff Lynne hefur frá upphafi, frá árinu 1971 verið forsprkakki E.L.O. Hann er E.L.O. og E.L.O. er hann. Hann semur öll lögin,...
Don Henley og aðrir eldri menn... 15.11.2015 1:55:00
Rokkland vikunnar er helgað nokkrum náungum sem eiga það sameiginlegt að hafa slitið barnsskónum fyrir margt löngu. Einn í Winnipeg í Kanada, Einn í Cass County í Texas, einn í Vestmannaeyjum, einn í Sheffield og einn á Norður-Englandi nálægt Newcastle. Fyrsti gesturinn er Richard Hawley frá Sheffield, 48 ára gamall gítarleikari, söngvari, lagasmiður og upptökustjóri svo eitthvað sé nefnt. Hann á...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.