Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva Bjarnadóttir
Rauður Raunveruleiki
Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: raudur-raunveruleiki.simplecast.com
Author
Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva Bjarnadóttir
Category
Podcast website
Latest episode
May 20, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hagkerfið, vaxtamunur og okur, gjaldeyrismál 06.06.2024 1:14:57
Jóhannes Hraunfjörð Karlsson er hagfræðingur og sagnfræðingur. Við tókum ítarlegt spjall, ásamt Ólafi Jónssyni og Kára Jónssyni, um ástandið í hagkerfinu í dag, um vaxtamun og okur og um gjaldeyrismál. Hvert er stefna yfirvalda búin að taka okkur og hvað þarf að gera til að koma okkur úr þessum agalega farvegi sem við virðumst lent í? Þetta og fleira í Rauðum raunveruleika kvöldsins kl. 17:00
Palestína, mótmæli, ofbeldi lögreglunnar og forsetakosningar 03.06.2024 40:17
Gestir þáttarins eru Sanna Magdalenda Mörtudóttir, Magga Stína, Ægir Máni Bjarnason og Stefán Örn Snæbjörnsson. Þátturinn er í umsjón Anitu Da Silva Bjarnadóttur og Karl Héðins Kristjánssonar
Red Reality - Gaza 2024: A Catastrophic Man Made Disaster - Dr. Mads Gilbert 28.05.2024 1:17:03
Rauður raunveruleiki - 28. maí Red Reality - Gaza 2024: A man made disaster - Dr. Mads Gilbert Dr. Mads Gilbert er norskur læknir sem hefur látið sig málefni Palestínu varða í langan tíma. Við ræddum við Mads um hryllinginn á Gasa, um styrk mannkynsins og nauðsyn þess að við berjumst fyrir því sem er rétt, fallegt og gott. Það er enginn frjáls heimur án frjálsrar Palestínu. Við viljum þakka Félagi...
Umhyggja, siðferði, samfélag og Marx - Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson 08.05.2024 1:06:02
Í Rauðum raunveruleika í kvöld tölum við við nýdoktor í heimspeki, hann Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson. Doktorsverkefnið hans snérist um frásagnir fórnarlamba af ofbeldi. Um tengsl frásagna og samkenndar og hvaða takmörkunum við erum háð þegar við reynum að koma orðum að reynslu okkar þvert á lífheima. Við ræddum við Gústav um hryllinginn á Gaza, um siðrof, samkennd, firringu og Marxisma. Um...
Kvennaverkföll, feminismi og stéttarbarátta 30.04.2024 1:01:07
Í dag ætlum við að ræða um kvennaverkföll, feminisma og stéttarbaráttu með Sonju Þorbergsdóttir, formanni BSRB, Söru Stef Hildardóttur, verkefnastjóra hjá Landsbókasafni Íslands, Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins og Valgerði Þ. Pálmadóttir, nýdoktor í hugmyndasögu. Við byrjum á því að horfa á stutt brot frá kvennaverkfallinu 1975 og ræðum um árangur baráttunnar, um st...
Hagfræði, pólitík og spilling / Þorvaldur Gylfason 22.04.2024 1:31:02
Þorvaldur Gylfason er hagfræðingur, prófessor emeritus og samfélagsrýnir. Við ætlum að ræða við Þorvald um hagkerfið, stjórnsýsluna á Íslandi og um spillingu. Af hverju virðist ekki vera tekið á spillingarmálum á Íslandi? Er hagkerfið að virka fyrir almenning í landinu? Hver eru áhrif ólígarka á íslenskt samfélag og samfélög almennt og hvað er til ráða, hvernig varðveitum við lýðræðið gagnvart áge...
MFÍK & SHA: Baráttan fyrir réttlæti og friði 21.04.2024 34:47
Guttormur Þorsteinsson er formaður Samtaka Hernaðarandstæðinga og Lea María Lemarquis er meðlimur MFÍK, Menningar og Friðarsamtaka Kvenna. Við komum beint af samstöðufundi fyrir Palestínu, laugardaginn 20. apríl, þar sem Lea og Guttormur voru með ræðu. Við ræddum um utanríkisstefnu Íslands, alþjóðalög, heimsvaldastefnu, mannréttindi og nauðsyn þess að beita sér fyrir friði. Á Samstöðinni kl. 20 í...
Eimreiðarelítan: Auðvaldsklíkur og Spilling / Þorvaldur Logason 15.04.2024 51:38
Nýverið kom út bók eftir félagsfræðinginn og heimspekinginn Þorvald Logason sem ber nafnið Eimreiðarelítan - Spillingarsaga. Í þeirri bók er rakin saga þess hvernig fámennum hóp á Íslandi tókst að grípa óheyrileg völd og beita þeim til þess að hagnast sér og sínum, á kostnað almennings. Í þættinum í kvöld spjöllum við við Þorvald um sögu Eimreiðarinnar, spillingu, auðvaldsklíkur, um nýfrjálshyggju...
Leigjendasamtökin, húsnæðiskerfi braskara og baráttan fyrir réttlæti / Guðmundur Hrafn Arngrímsson 10.04.2024 1:40:47
Guðmundur Hrafn Arngrímsson er formaður Leigjendasamtakanna. Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson ætla að ræða við Guðmund um húsnæðiskerfið á Íslandi í dag, um þörfina á öflugum leigjendasamtökum, um brotin loforð stjórnmálastéttarinnar og ríkjandi hagsmuni braskara á markaðnum og stjórnkerfinu í dag. Hvernig berjumst við gegn einokun og ofríki fjármálaaflanna í húsnæðiskerfinu...
Rauður raunveruleiki - Pressenza: Nonviolent journalism, humanism and truth 07.04.2024 28:36
Gestir Rauðs raunveruleika eru Pía Figueroa og Antonio Cravollo. Pía er einn stofnenda alþjóðlega fréttamiðilisins Pressenza og húmanisti. Antonio Cravalo er skipuleggjandi húmanistahreyfingarinnar og er, meðal annars, virkur í heimsþingum húmanista í Asíu og Suður - Ameríku. Við töluðum við Píu og Antonio um Pressenza, tilgang þess, húmanistahreyfinguna og um þörfina fyrir frið, sannleik, tenging...
Kominn heim frá Rússlandi. Ungmennaráðstefnan og heimspólitíkin / Kristinn Hannesson 26.03.2024 55:20
Kristinn Hannesson er nýkominn heim frá ungmennaráðstefnu í Sochi, Rússlandi. Við fengum að heyra um upplifun hans af ráðstefnunni og fjölluðum um heimspólitíkina henni tengdri. Um nýja kalda stríðið og leiðina út úr því. Tekið upp 18. mars
Red reality - World Humanist Forum and the march for peace and non-violence 25.03.2024 41:16
The World Humanist Forum just took place in Reykjavík ahead of the world march for peace and non - violence. A recording of the meeting, which took place in the national library of Iceland, will be published on Solidarity Station in the coming week. We spoke to some of the main organizers of the forum and the march, Antonio Carvallo and Rafael de la Rubia. Antonio is a Chilean and one of the organ...
Seðlabankinn. Stéttastríð? Pólitískt hagkerfi samtímans 22.03.2024 28:16
Karl Héðinn fjallar um fréttir vikunnar, stýrivexti seðlabankans, ójöfnuð og auðræði. Einnig verður fjallað um Ísraelsku greiðsluþjónustuna Rapyd og háskólakerfið, um reiðufé, banka og vilja auðvaldsins til þess að takmara reiðufé.
Amazon Labor Union and international solidarity / Chris Smalls 18.03.2024 43:55
Chris Smalls is the president of the recently formed Amazon labor union. He participated in the yearly Socialist Congress of the Icelandic Socialist party alongside the president of the largest Icelandic union, Efling ,Sólveig Anna Jónsdóttir. The congress discussed the struggle of the working class in modern times. We had a talk with Chris about his experience fighting for Amazon workers, the str...
14 ár í Guantanamo án saka / Mohamedou Ould Slahi & Dr. Deepa Driver 11.03.2024 50:40
Mohamedou Ould Slahi var fangelsaður og pyntaður hryllilega í fangabúðum Bandaríkjanna við Guantanamo-flóa frá 2002 til 2016 án allra saka. Í fjórtán ár var hann sviptur frelsi sínu, smánaður og beittur grimmilegu ofbeldi af margvíslegum toga. Mohamedou var í heimsókn á Íslandi um helgina og sagði frá upplifun sinni og reynslu á fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn var liður í fundarserí...
Fjölskyldusameiningar og glæpir gegn mannkyninu 10.03.2024 40:44
Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson fjalla um fjölskyldusameiningar, neyð fólks í Palestínu og glæpsamlega framferði Ísraelsríkis. Við munum aðeins snerta á nýju kjarasamningunum og um nauðsyn baráttunnar fyrir betri heimi
Nordic Baltic Sustainability Conference 04.03.2024 49:50
The Nordic Baltic Sustainability Conference was held in Iceland this year and we have the pleasure to speak to the attendees just following the close of the conference. We will speak about the environment, the statement of the conference and what the future might hold for Nordic and Baltic cooperation as it relates to climate change and the ecology
Mótmælt fyrir Palestínu / umræða vikunnar 02.03.2024 47:57
Karl Héðinn og Oliver Axfjörð segja frá samstöðumótmælum fyrir Palestínu sem fóru fram í dag á öllum Norðurlöndunum. Við sýnum myndbönd þaðan og fjöllum um ástandið á Gaza og í heiminum. Einnig munum við velta fyrir okkur af hverju Sjálfstæðismenn telja sig þurfa sérsveitargæslu og hvers vegna ráðamenn Bandaríkjanna tala eins og við séum að fara rakleiðis í þriðju heimsstyrjöldina.
Rússland og heimsvaldastefnan: Ungmennaráðstefna í Sochi 26.02.2024 59:23
Kristinn Hannesson kom til okkar í Rauðan raunveruleika áður en hann flaug út til þess að sækja alþjóðlega ungmennaráðstefnu í Rússlandi. „World youth festival”. Hátíðina munu um 20.000 ungmenni sækja, víðsvegar að úr heiminum. Í þættinum fjöllum við um ástæður þess að hann, ásamt annarri frá Íslandi, ákvað að fara og um sýn okkar á stríðið í Úkraínu, uppruna fasismans, um BRICS-þjóðirnar, undirok...
Þjóðarmorð í beinni, siðrof og firring 23.02.2024 59:49
Grimmd Ísraels gagnvart Palestínu hefur bara aukist eftir úrskurð Alþjóðadómstólsins. Neyð fólks á Gaza hefur aldrei verið meiri. Í þættinum í kvöld munum við ræða um nýjustu fréttir af árásunum, alþjóðasamfélagið og ræða stöðuna í samfélaginu.
Díalektísk efnishyggja / Þorvaldur Þorvaldsson 09.02.2024 52:50
Þorvaldur Þorvaldsson er ötull baráttumaður fyrir sósíalisma og situr í stjórn lífskoðunarfélagsins DíaMat Við munum ræða við Þorvald um díalektíska efnishyggju, sögu hennar og áherslur, sósíalisma og um aðalfund félagsins sem er núna næsta sunnudaginn kl. 15:00 í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105
Skuldaþrælkun og frétt vikunnar 29.01.2024 15:58
Í kvöld mun Karl Héðinn greina frá versnandi skuldastöðu heimilanna í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hvernig skuldir heimilanna og ríkissjóða hafa stóraukist á undanförnum árum og fjalla um þá pólitísku hagstefnu sem liggur þar á bakvið. Einnig verður sagt frá frétt vikunnar, að okkar mati. Utanríkisráðherra hefur svipt Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fjárhagsaðstoð núna þegar h...
Árásir á Jemen, stigmagnandi stríð 22.01.2024 40:36
Bandaríkin og Bretland hafa varpað sprengjum á Jemen minnst sex sinnum á síðustu tíu dögum. Þetta gera þeir til þess að „vernda alþjóðlegar flutningaleiðir“ frá banni Jemens á umgangi ísraelskra skipa í gegnum Rauðahafið Í Rauðum raunveruleika kvöldsins ætlum við að fjalla um þessar árásir Bandaríkjamanna og Breta á Jemen, um tilkomu Húta eða Ansar Allah eins og þau kalla sig. Um grimmilegt stríð...
Rauður raunveruleiki - Gengisfelling þjóðarinnar 19.01.2024 51:36
Í kvöld munum við ræða við Ólaf Jónsson og Kára Jónsson um gengisfellingu krónunnar. Er verið að halda gengi krónunnar niðri viljandi og þá hvers vegna? Gengi krónunnar hefur lækkað töluvert undanfarið og það leitt til þess að kaupmáttur heimilanna hefur rýrnað. Mörg stærstu fyrirtæki landsins, þar á meðal stórútgerðirnar, nota aðra gjaldmiðla en krónuna og geta grætt gríðarlega á því að gengi kró...
The legacy of colonialism - Giti Chandra 15.01.2024 1:01:29
Dr. Giti Chandra er fræðimaður hjá GEST-verkefninu við Háskóla Íslands og hélt nýverið erindi í Stjórnmálaskóla Sósíalistaflokksins um nýlendustefnuna. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Guðröður Atli Jónsson, Karl Héðinn Kristjánsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir munu ræða við Giti um nýlendustefnuna og áhrif hennar á heiminn okkar í dag Fylgist með klukkan 18:00 á Samstöðinni!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.