Gunnar Smári Egilsson
Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Author
Gunnar Smári Egilsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 30, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rauða borðið 29. jan - Reynsluboltar, heimsmálin, handbolti og Pétur Gunn 29.01.2026 3:35:27
Fimmtudagur 29. janúar Reynsluboltar, heimsmálin, handbolti og Pétur Gunn Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Valgerður Rúnarsdóttir læknir og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða fréttir og þjóðmál líðandi stundar. Verk ríkisstjórnar, verðbólgu, handbolta og stöðu íslenskunnar ber á góma. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir heimsmálin, friðarviðræð...
Rauða borðið 28. jan - Trump, lögfræði, Ormstunga og Myrkir músíkdagar 28.01.2026 3:21:51
Miðvikudagur 28. janúar Trump, lögfræði, Ormstunga og Myrkir músíkdagar Nichole Leigh Mosty doktorsnemi, Magnús Helgason sagnfræðingur, Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir vikuna hjá Donald Trump með Gunnari Smára og um hvernig verk hans og orð hafa áhrif á samfélagið, heiminn og hugmyndir okkar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir meint svindl í handbolta, hark...
Rauða borðið 27. jan - Jarðhræringar, menning, gervigreind, flóttafólk og blankt listafólk 27.01.2026 4:37:30
Þriðjudagur 27. janúar Jarðhræringar, menning, gervigreind, flóttafólk og blankt listafólk Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur gagnrýnir harðlega hvernig ráðandi hafi ýtt gagnrýnum röddum frá umræðuborðinu vegna Reykjaneselda. Hann ræðir Grindavík og örlög bæjarins sérstaklega. Þetta kemur fram í snörpu viðtali Björn Þorláks. Björn Þorsteinsson heimspekingur, Viktoría Blöndal höfundur og leikst...
Rauða borðið 26. jan - ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland 26.01.2026 4:30:14
Mánudagur 26. janúar ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Thomas Möller ráðgjafi eru ósammála um hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið. Þau brýna rök sín í spjalli við Gunnar Smára. Ásdís Bergþórsdóttir sálfræðingur efast um að bann á snjallsíma- og samfélagsmiðlanotkun barna muni bæta líða barna, heldur jafnvel auka vanlíðan hjá hópi barna...
Synir Egils 25. jan - Pólitísk átök, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd 25.01.2026 2:30:14
Sunnudagurinn 25. janúar Synir Egils: Pólitísk átök, innan flokka og utan, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Kjartan Sveinsson formaður Landssambands smábátaeigenda og María Sigrún Hilmarsdóttir...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Davíð Þór 24.01.2026 2:34:48
Laugardagur 24. janúar Helgi-spjall: Davíð Þór Davíð Þór Jónsson prestur segir okkur frá sjálfum sér, sigrum, baráttu og lægðum, æsku, uppruna og mótunarárum.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 4 23.01.2026 1:39:31
Föstudagur 23. janúar Vikuskammtur: Vika 4 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur, Elín Írís Fanndal varaþingmaður Flokks fólksins, Halldór Tinni Sveinsson framkvæmdastjóri og Sólveig Ásta Sigurðardóttir nýdoktor og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af óreiðu, mismælum, stífum fundarhöldum, framboðum og flokkaflakki.
Rauða borðið 22. jan - Breiðavík, skólamál, reynsluboltar, Miðflokkurinn, ástarkraftur og Stuðlar 22.01.2026 5:17:10
Fimmtudagur 22. janúar Breiðavík, skólamál, reynsluboltar, Miðflokkurinn, ástarkraftur og Stuðlar Ari Alexander Ergis Magnússon, Bárður Jónsson og Bergsteinn Björgúlfsson mættu í viðtal til Sigurjóns Magnúsar til að ræða um Breiðuvík, þar sem Bárður var geymdur sem barn. Sögur úr Breiðuvík voru rifjaðar upp. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir Sjálfstæðisflokki og Skúli Helgason Samfylkingunni ræða sk...
Rauða borðið 21. jan - Vinstrið, velsæld, Trump, svefnlyf og gremjulegur karl 21.01.2026 4:16:55
Miðvikudagur 21. janúar Vinstrið, velsæld, Trump, svefnlyf og gremjulegur karl Vg og Vor til vinstri, hópur í kringum Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, ætla að bjóða saman lista í borgarstjórnarkosningunum í vor. Sanna kemur að Rauða borðinu ásamt Rakel Hildardóttur, Rósu Björk Brynjólfsdóttur og Steinari Harðarsyni og ræðir við Gunnar Smára um borgarpólitíkina. Þau Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræði...
Rauða borðið 19. jan - Reykjavík, okur, borgarpólitík og gagnrýni 19.01.2026 4:02:28
Mánudagur 19. janúar Reykjavík, okur, borgarpólitík og gagnrýni Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Guðmundur Ingi Þóroddsson, Magnea Marinósdóttir og Sara Björg Sigurðardóttir bjóða sig öll fram í prófkjöri Samfylkingarinnar, vilja komast þar á lista, í 2. eða 3. sæti. Gunnar Smári ræðir við þau um borgina, pólitíkina og flokkinn. Runólfur Ólafsson hjá FÍB ræðir bílastæ...
Synir Egils 18. jan - Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði 18.01.2026 2:33:20
Sunnudagurinn 18. janúar Synir Egils: Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða frét...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 3 16.01.2026 1:29:30
Föstudagur 16. janúar Vikuskammtur: Vika 3 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Gunnar Hersvein heimspekingur, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Jovana Pavlović mannfræðingur og Sara Riel myndlistarkona og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af hótunum, deilum, mislukkuðu spaugi, mótmælum, von og voðaverkum.
Rauða borðið - Helgi-spjall: KK 16.01.2026 3:09:22
Laugardagur 17. janúar Helgi-spjall: KK Kristján Kristjánsson, KK, kemur að Rauða borðinu með gítarinn sinn og munnhörpu og segir og syngur sögu sína, heimspeki sína og skoðanir í helgi-spjalli við Gunnar Smára
Rauða borðið 15. jan - Jákvæðni, Grænland, handbolti, harmleiki, brennivín 15.01.2026 4:37:07
Fimmtudagur 15. janúar Jákvæðni, Grænland, handbolti, harmleiki, brennivín Hjálmar Gíslason frumkvöðull bregst við gagnrýni á áherslur hans sem hann hefur lýst opinberlega um að heimurinn sé betri en við fáum veður af í gegnum fjölmiðla. Björn Þorláks ræðir við Hjálmar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um sjáfstæði Grænlands og Úkraínu, nábúa stórvelda, fallandi Nató og hvert...
Rauða borðið 14. jan - Oddvitaslagur, geðraskanir, Trump, lögfræði og pottormar 14.01.2026 4:45:00
Miðvikudagur 14. janúar Oddvitaslagur, geðraskanir, Trump, lögfræði og pottormar Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur H. Marteinsson vilja bæði leiða Samfylkinguna í komandi borgarstjórnarkosningum. Þau segja Gunnari Smára og Birni Þorláks hvers vegna, fyrir hvað þau standa og hvers vegna fólk ætti að kjósa annað frekar en hitt. Ólafur Ævarsson geðlæknir og Björn Þorláksson fjölmiðlamaður leggja spil...
Rauða borðið 13. jan - Múslimar, leikskólar, Andalúsía, tónlistarnám 13.01.2026 2:48:54
Þriðjudagur 13. janúar Múslimar, leikskólar, Andalúsía, tónlistarnám Árni Þór Þórsson prestur innflytjenda ræðir við Gunnar Smára um andúð gegn innflytjendum, kristin gildi og reynslu hans sem prest innflytjenda og áður prest í Vík í Mýrdal, sem er sú sókn í landinu sem hefur hlutfallslega flesta innflytjendur. Svava Björg Mörk, dósent á Menntavísindasviði HÍ, ræðir við Sigurjón Magnús um mikinn s...
Rauða borðið 12. jan - Fjölmiðlar, Svíþjóð, drykkja, klassík og skólamál 12.01.2026 4:21:35
Mánudagur 12. janúar Fjölmiðlar, Svíþjóð, drykkja, klassík og skólamál Logi Einarsson ráðherra ræðir fjölmiðla og fjölmiðlastyrki. Hvernig bregst hann við ásökunum um að styrkjafyrirkomulagið þjóni einkum auðugum eigendum fjölmiðla en litlir miðlar í almannaeigu eins og Samstöðin séu skildir eftir. Gunnar Smári Egilsson og Björn Þorláksson ræða við ráðherrann. Steingrímur Jónsson sveitarstjórnarma...
Synir Egils 11. jan - Oddvitar, hótanir, Evrópa, Grænland og Trump 11.01.2026 2:31:21
Sunnudagurinn 11. janúar Synir Egils: Oddvitar, hótanir, Evrópa, Grænland og Trump Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði, Vigdís Häsler lögfræðingur og Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og ræðir...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Arnar Gunnlaugsson 10.01.2026 59:44
Laugardagur 10. janúar Helgi-spjall: Arnar Gunnlaugsson Arnar Gunnlaugsson, landsþjálfari karla í knattspyrnu, er gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjalli að þessu sinni. Arnar átti glæstan feril sem atvinnumaður. Sem þjálfari hefur hann látið mikið til sín taka. Undir hans stjórn vann Víkingur glæsta sigra. Í þættinum er talað um knattspyrnumanninn Arnar sem og þjálfarann Arnar. Arnar hefur oft þ...
Rauða borðið: Vikuskammtur: Vika 2 09.01.2026 1:33:47
Föstudagur 9. janúar Vikuskammtur: Vika 2 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Arna Magnea Danks leikkona, Atli Bollason myndlistarmaður, Ingunn Fjóla Brynjólfsdóttir efnishönnuður og Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af landvinningum og mannránum, ráðherrakapal og oddvitaslag, fínum veislum, verðbólgu og okri.
Rauða borðið 8. jan - Reynsluboltar, vonda ESB, Tourette og sönglög 08.01.2026 4:09:19
Fimmtudagur 8. janúar Reynsluboltar, vonda ESB, Tourette og sönglög Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður og ráðherra, Halldór Guðmundsson menningarfrömuður og Steingerður Steinarsdóttir blaðamaður taka púlsinn á fréttum líðandi stundar og tíðaranda. Alþjóðamálin, ESB, staða íslenskunnar, bókajólin að baki og prófkjör verða til umræðu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ögmundur Jónasson fyrrverandi þi...
Rauða borðið 7. jan - Trump, fasteignir, innflytjendur og vandræðaskáld 07.01.2026 3:44:15
Miðvikudagur 7. janúar Trump, fasteignir, innflytjendur og vandræðaskáld Sveinn Máni Jóhannesson doktor í sagnfræði, Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði koma í Trumptímann og ræða við Gunnar Smára um Donald Trump og áhrif hans á heiminn og hugmyndir okkar. Hækkun fasteignaverðs hefur verið lygileg síðustu ár en árið í fyrra var þó undantekning. Árið...
Rauða borðið 6. jan - Ógnin af Trump, sveitarstjórnarpólitík, skuggar í nýjum húsum og vistarbönd 06.01.2026 3:51:31
Þriðjudagur 6. janúar Ógnin af Trump, sveitarstjórnarpólitík, skuggar í nýjum húsum og vistarbönd Baldur Þórhallsson prófessor ræðir stöðu Íslands eftir aðgerðir Trumstjórnarinnar í Venesúela við Gunnar Smára. Hvað merkir það fyrir Ísland að vera á skilgreindu áhrifasvæði Bandaríkjanna. Sara Björg Sigurðardóttir, Samfylkingunni og Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki, takast á um stjórnmál í uppt...
Rauða borðið 5. jan - Enginn fréttatími, Venesúela, maður ársins, Íran og Kína 05.01.2026 3:56:13
Mánudagur 5. janúar Enginn fréttatími, Venesúela, maður ársins, Íran og Kína Við byrjum á að ræða aðgerðir menntamálaráðherra sem hafa kippt fótunum undan fréttatíma Samstöðvarinnar. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur fer yfir aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela í samtali við Gunnar Smára, hverjar verða afleiðingarnar fyrir fólk í Venesúela. Eða á Grænlandi og okkur hér upp á Íslandi? Guðmundur...
Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning 04.01.2026 2:45:25
Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði og ræða stríð og friður í upphafi árs, lífskjör, efn...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.