Gunnar Smári Egilsson
Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Author
Gunnar Smári Egilsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 30, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 51 20.12.2024 48:58
Föstudagur 20. desember Vikuskammtur: Vika 51 Gestir borðins að þessu sinni eru úr öllum áttum og hyggjast fara um víðan völl um liðna viðburðaríka fréttaviku. Á boðstólnum eru skipulag í Breiðholti, vinnumansal, ný ríkisstjórn, hvalveiðar, rafbyssur, fyrirtækjaleiksskólar, stúdentar og Iceguys. Þetta eru þau Saga Kjartansdóttir así, Lísa Margrét Gunnarsdóttir, formaður lís Jón D Ásgeirsson, arkit...
Rauða borðið 19. des - Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð 19.12.2024 4:29:26
Fimmtudagur 19. des Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð til stjórnvalda Við Rauða borðið í kvöld er umræðan lífleg og nær yfir mörg svið. Fyrstur mætir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara og ræðir um fyrirtækjavæðingu leikskólans. Valur Ingimundarson prófessor fjallar um minni áhuga stjórnvalda á norðurslóðum og breytt mat á öryggismálum og því n...
Rauða borðið 18. desember: Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun 18.12.2024 5:14:31
Miðvikudagur 18. desember Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun Myndlistamaðurinn og Öryrkinn Georg Jónasson ræðir við Maríu Lilju um fátækt frá fyrstu hendi, myndlistina og allt þar á milli. Þá mæta til leiks Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, forstýra Kvennaathvarfsins og ræða um ofbeldi í nánum sambönd...
Rauða borðið 17. des - Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókaspjall 17.12.2024 4:29:26
Þriðjudagur 17. desember Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókarspjall Ragnar Hjálmarsson, doktor í stjórnarháttum, ræðir um fall stjórnarinnar og nýtt pólitískt landslag í Þýskalandi. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna bíður spenntur eftir því hvort ný ríkisstjórn bæti hag neytenda. Þórdís Ingadóttir prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík ræðir hvernig...
Rauða borðið 16. des - Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga 16.12.2024 3:57:10
Mánudagur 16. desember Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga Við hefjum leik á viðtali við Katrínu Oddsdóttur mannréttindalögmann sem berst gegn laxeldi á Seyðisfirði – að því er virðist í andstöðu við íslenskar ríkisstofnanir. Hjónin Ólöf Þorvaldsdóttir og Logi Kristjánsson hafa skrifað bókina Fjall í fangið, sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað en líka um samf...
Synir Egils 15. des - Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar 15.12.2024 2:12:42
Sunnudagurinn 15. desember: Synir Egils: Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi, Oddný Harðardóttir fyrrverandi þingkona og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða stjórnarmyndun, verkefni nýrrar ríkisstjórnar...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Linda Vilhjálms 14.12.2024 2:26:47
Laugardagur 14. desember Helgi-spjall: Linda Vilhjálms Linda Vilhjálmsdóttir skáldkona segir okkur frá áfalli sínu, sjálfsmynd, skáldskap og öllu því sem hefur gert hana að því sem hún er.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 50 13.12.2024 1:32:44
Föstudagurinn 13. desember Vikuskammtur: Vika 49 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Björn Halldórsson rithöfundur, Hólmar Hólm verkefnastjóri og ritstjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Ingimar Karl Helgason grunnskólakennari og fyrrverandi fréttamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stjórnarmyndun, átökum, hernaði og von um betri tíð.
Rauða borðið 12. des - Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur 12.12.2024 3:20:47
Fimmtudagur 12. desember Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands ræðir við okkur um eftirleikinn eftir fall Assads í sýrlandi. Mögulegar hættur vegna uppgangs öfgahópa á svæðinu, innrásir Ísraela á nágranna sína og skýrir áhrif þessa alls á fólkið sem enn situr...
Rauða borðið 11. des: Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja 11.12.2024 4:28:02
Rauða borðið miðvikudagur 11. desember Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja Við bjóðum uppá hlaðborð ólíkra mála hér við rauða borðið miðvikudagskvöldið ellefta desember, nú þegar stekkjastaur ætti að vera að skrölta til byggða. Það eru þó engir jólasveinar á meðal gesta okkar í kvöld. Björn Þorláksson ríður á vaðið ásamt umboðsmanni framboðs Samfylkingari...
Rauða borðið 10. desember: Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k. 10.12.2024 4:09:24
Þriðjudagur 10. desember Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k. Guttormur Þorsteinsson formaður og Soffía Sigurðardóttir ritari miðnefndar Samtaka hernaðarandstæðinga andmæla hernaðaruppbyggingu í Keflavík og breyttum áherslum fráfarandi ríkisstjórnar í öryggis- og varnarmálum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Árni Kristjánsson...
Rauða borðið 9. des: Brottvísanir, gul verkalýðsfélög, Sýrland, kosningar, goðsagnir og ópera 09.12.2024 4:14:27
Mánudagur 9. desember Brottvísanir, gul verkalýðsfélög, Sýrland, kosningar, goðsagnir og ópera Sigurður Pétursson sagnfræðingur segir okkur frá gulum verkalýðsfélögum og Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari um áhrif brottvísana flóttafólks á þau sem hafa kynnst þessum einstaklingum. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði segir okkur frá valdaskiptum í Sýrland og Tómas Ellert Tómasson fyrrum bæjarf...
Synir Egils 8. desember: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda 08.12.2024 2:10:14
Sunnudagurinn 8. desember: Synir Egils: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og ræða fréttir og pólitík dagsins. Þeir bræður fara líka yfir svið...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Jón Ársæll 07.12.2024 2:52:00
Laugardagur 7. desember Helgi-spjall: Jón Ársæll Jón Ársæll Þórðarson segir okkur frá æsku sinni og ævintýrum, söknuði eftir móðurbrjóstinu, barnaþrælkun, fjölskyldu, störfum, draumum og raunum.
Vikuskammtur: Föstudagurinn 6. desember 06.12.2024 1:39:33
Föstudagurinn 6. desember Vikuskammtur: Vika 49 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndaleikstjóri, Atli Bollason myndlistarmaður, Natalie G. Gunnarsdóttir plötusnúður og Hye Joung Park myndlistarkona og kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kosningum og mati hverju þær breyta, hvalveiðileyfi, þjóðarmorði og átökum í heimsmálum.
Rauða borðið: Sósíalismi, verkalýðsfélög, stjórnarmyndun, stjórnmál, listamannalaun, veðrið og konur 05.12.2024 5:05:44
Fimmtudagur 5. desember Sósíalismi, gul verkalýðsfélög, stjórnarmyndun, ung stjórnmál, listamannalaun, veðrið og konur í sögunni Við ræðum við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur leiðtoga Sósíalista um kosningarnar og stöðuna að þeim loknum. Viðar Þorsteinsson, fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar, segir okkur frá gulum verkalýðsfélögum. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur fjallar um starfsstjórnir og...
Rauða borðið 4. des - Strafsstjórn, brottnám, börn, róttækni og hamborgarhryggir 04.12.2024 3:33:01
Miðvikudagur 4. desember Strafsstjórn, brottnám, börn, róttækni og hamborgarhryggir Við ræðum starfsstjórnir og stjórnarmyndun við Gísla Tryggvason lögmann og Vilhjálm Egilsson gamalreyndar stjórnmálamann. Viktoría Þórunn, rússnesk kona sem hér hefur dvalið árum saman, var handtekin og flutt nauðug til síns heimalands. Alma Gunnlaugsdóttir segir okkur frá örlögum vinkonu sinnar. Davíð Kristinsson...
Rauða borðið 3. desember: Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge 03.12.2024 3:53:31
Þriðjudagur 3. desember Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge Var nógu mikið rætt um spillingu fyrir kosningarnar? Veltur á því hvaða flokkar skipa stjórn hve mikið aðhald verður gegn spillingu? Þau Marínó G. Njálsson kerfisfræðingur, Jasmina Vajzovic ráðgjafi og Atli Þór Fanndal ráðgjafi, ræða úrslit kosninganna og framtíðina. Það gera líka Þorvaldur Gylfason prófessor, e...
Rauða borðið 2. des - Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið 02.12.2024 3:13:24
Mánudagur 2. desember Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín nýja þingmenn og ræðir við þá um pólitíkina: Ólafur Adólfsson frá Sjálfstæðisflokki, Jón Gnarr frá Viðreisn, Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingu og Halla Hrund Logadóttir frá Framsókn. Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra VG fer yfir stöðu vinstrisins og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmað...
Synir Egils 1. des - Uppgjör kosninga 01.12.2024 2:16:05
Sunnudagurinn 1. desember: Synir Egils: Uppgjör kosninga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbe...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Júlíus K Valdimarsson 30.11.2024 1:46:37
Laugardagur 30. nóvember Helgi-spjall: Júlíus K Valdimarsson Júlíus K Valdimarsson segir okkur frá lífi sínu í tónlist og baráttu fyrir betra lífi. Hann lýsir samvinnuhugsjóninni og eins tímanum þegar samfélag okkar var mulið niður innan frá í nýfrjálshyggju og ræðir mikilvægi þess að fara að raunverulegri rót vandans til að byggja upp frjálst samfélag samkenndar og mennsku.
Rauða borðið: Vikuskammtur föstudagur 29. nóvember 29.11.2024 1:14:15
Það er líf og fjör á endaspretti kosningabaráttunnar og við upphaf aðventu. Við rennum yfir fréttir vikunnar með frambjóðendum sósíalista þeim Maríu Péturs og Guðmundi Auðuns. Þau njóta liðsinnis tveggja gjörningalistamanna, pólitísku mannréttinda-trúðanna Margots og Plongs. Þar sem Plong er hljóðlátur trúður verður Margrét Baldursdóttir, túlkur einnig með í för en hún ku túlka hugsanir.
Rauða borðið 28. nóvember: Kosningar, leigjendur, saga í austri og skynfinning 29.11.2024 3:16:55
Fimmtudagur 28. nóvember Kosningar, leigjendur, saga í austri og skynfinning Ritstjórn Samstöðvarinnar fer yfir kappræður dagsins og stöðuna í kosningabaráttunni: Oddný Eir Ævarsdóttir, Sigurjón Magnús Egilsson, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp, Björn Þorláksson og Gunnar Smári Egilsson. Við förum út á götu og ræðum við almenning sem virðist að mestu leyti búinn að gera upp hug sinn, þó ek...
Rauða borðið 27. nóv - Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza 27.11.2024 5:13:44
Miðvikudagur 27. Nóvember. Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza Í beinni bjóðum við til borðs þeim Margréti Pétursdóttur, verkakonu, Höllu Gunnarsdóttur, varaformanni VR, Sverri Björnssyni, hönnuði og eftirlaunamanni ásamt Páli Val Björnssyni fyrrverandi alþingismanni. Þau ræða pólitík dagsins við Sigurjón M. Egilsson: Kosningarnar, hverjir sigra og hverjur tapa. Gestir...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.