Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

News IS ↓ 600 episodes

Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Author

Gunnar Smári Egilsson

Category

News

Podcast website

rauda-bordid.simplecast.com

Latest episode

Jun 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rauða borðið 19. júní Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór 19.06.2025

Fimmtudagur 19. júní Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór Við hefjum leik með umfjöllun um konur og kúrda. Í dag, nítjánda júní á hátíðis- og baráttudegi kvenna á Íslandi setur Ögmundur Jónasson kvenréttindabaráttuna á Íslandi í samhengi við baráttu Kúrda fyrir tilverurétti sínum. Kúrdískar konur hafa verið í fararbroddi baráttunnar og Ögmundur segir einnig frá fyrirlest...

Rauða borðið 18. júní - Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf 18.06.2025

Miðvikudagur 18. júní Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, segir Birni Þorláks að spilling og valdsækni áhrifafólks innan VG, ekki síst Svandísar Svavarsdóttur, skýri bágt gengi flokksins undanfarið. Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði upplýsir Björn að traust til Alþingis sé að aukast frá því sem verið hefur. Hilmar...

Mánudagur 16. júní: Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir 16.06.2025

Mánudagur 16. júní: Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir Við hefjum Rauða borðið á spjalli við Kjartan Orra Þórsson, Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Írans. Hann ræðir við Gunnar Smára um stríðsátök milli Ísraels og Íran og íranska þjóðerniskennd sem á sér mörg þúsund ára rætur. Ari Logn og Renata Sara Arnórsdóttir, aktívistar í Rauðu regnhlífinn...

Synir Egils 15. júní - Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun 16.06.2025

Sunnudagurinn 15. júní Synir Egils: Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Benedikt Jóhannesson tölfræðingur og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða um málþóf á Íslandi, átö...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Gnarr 14.06.2025

Laugardagur 14. júní Helgi-spjall: Gnarr Jón Gnarr segir okkur frá föður sínum og móður, frá föðurnum á himnum, húmor og pólitík, hugrekki sínu og hugsunarleysi, tímanum þegar hann tapaði sér og gildi þess að tala ekki of mikið um hlutina.

Vikuskammtur 13. júní: Jovana Pavlović, Birgitta Jónsdóttir, Steinunn Rögnvaldsdóttir og Jón Gísli Harðarson 13.06.2025

Vikuskammtur 13. júní Jovana Pavlović mannfræðingur, Birgitta Jónsdóttir skáld, Steinunn Rögnvaldsdóttir kynjafræðingur og Jón Gísli Harðarson rafvirkjameistari.

Rauða borðið 12. júní - Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál 13.06.2025

Fimmtudagur 12. júní Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál Við hefjum leik á uppgjöri Valgarðs Más Jakobsssonar, skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, en hann berskjaldar sig og lýsir einkennum kulnunar í starfi og hvað þurfti að gerast til að hann rambaði á rétta hillu á ný. Björn Þorláksson ræðir við Valgarð. Það eru vendingar á fjölmiðlamarkaði og hefu...

Rauða borðið 11. júní: Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum 11.06.2025

Miðvikudagur 11. júní Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum Daði Rafnsson hjá samtökunum Hljóðmörk sem berjast gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli og Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur ræða við Björn Þorláks stöðu vallarins, vítaverða og vaxandi hljóðmengun og alvarlegt atvik í gærkvöld. Flugvallarvinir hafa hótað fólki sem vill minnk...

Rauða borðið 10. júní - Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind 10.06.2025

Þriðjudagur 10. júní Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind Dröfn Ösp Rozas ræðir við Maríu Lilju um mótmælin í LA sem hún segir að sé mikilvægt að kalla ekki óeirðir. María Lilja ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, lögmann og formann Siðmenntar um fleyið Madleen sem stöðvuð var með nauðsynlegar vistir fyrir utan Gaza stendur. Hilmar Þór Hilmarsson...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Drífa 07.06.2025

Laugardagur 7. júní Helgi-spjall: Drífa Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, VG og Kvennaathvarfsins segir okkur frá baráttunni, hinu persónulega í pólitíkinni og pólitíkinni í hinu persónulega, frá æsku og uppruna og hversu lengi hún var að finna sig og hvað hún vildi taka sér fyrir hendur. Og um sósíalismann sem hún drakk í sig me...

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 23 06.06.2025

Föstudagur 6. júní Vikuskammtur: Vika 23 Það verður líf og fjör í Vikuskammtinum að þessu sinni þegar þau Helga Þórey Jónsdóttir, menningarfræðingur og kennari, Steinunn Gunnlaugsdóttir, myndlistamaður og Atli Bollason, listamaður mætast við Rauða borðið hjá Maríu Lilju. Að þessu sinni verður farið ítarlega í menningarviðburði, störf þingsins, fordóma í samfélaginu, Gaza, Oscar og ríkisborgararétt...

Rauða borðið 5. júní: Lagatækni eða mannúð, Evrópumál, auðmagn, persónuvernd, útlendingar og víðerni 05.06.2025

Rauða borðið, fimmtudaginn 05. júní: Mannúð og stjórnsýsla, Evrópuáhugi vinstri manns, auðmagn, persónuvernd, útlendingahatur og víðerni eru á dagskrá í kvöld Við hefjum leik á samtali Björns Þorlákssonar við Henry Alexander Henrysson heimspeking og sérfræðing í siðferðislegum álitamálum rsem rökæðir mál Oscars hins kólumbíska ásamt Hauki Arnþórssyni stjórnsýslufræðingi. Þeir eru ekki alveg á einu...

Rauða borðið 4. júní: Aþena, líf og dauði, rasismi, mótmæli, kvóti, samfélagssöknuður, skák og bridge 04.06.2025

Miðvikudagur 4. júní Aþena, líf og dauði, rasismi, mótmæli, kvóti, samfélagssöknuður, skák og bridge Darina Andreys, Tanja Ósk Brynjarsdóttir og Anna Margrét Lucec Jónsdóttir spila körfubolta með Aþenu í Efra-Breiðholti og berjast fyrir framtíð félagsins gegn borgaryfirvöldum, sem vilja ekki gefa félaginu aðgang að íþróttahúsi. Þær útskýra stöðuna fyrir Gunnari Smára. Sigurjón Magnús ræðir við rey...

Rauða borðið - Útlendingavandamál, rasismi, áfengi og sport, landsbyggðir, lífeyrissjóðir og goth 03.06.2025

Þriðjudagur 3. júní Útlendingavandamál, rasismi, áfengi og sport, landsbyggðir, lífeyrissjóðir og goth Að Rauða borðinu mæta þeir Sigfús Aðalsteinsson, forsvarsmaður hópsins Ísland þvert á flokka og Baldur Borgþórsson, fyrrverandi varaborgarfulltrúi og ráðgjafi, og ræða um mótmælin á Austurvelli, ásakanir um rasisma og hatursorðræðuna á samfélagsmiðlum við Oddnýju Eir og Sigurjón. Snorri Sturluson...

Rauða borðið 2. júní: Pólland, lýðræði, fjölmiðlar, Palestína, woke, glimmer og blóð 02.06.2025

Mánudagur 2. júní Pólland, lýðræði, fjölmiðlar, Palestína, woke, glimmer og blóð Jacek Godek hefur þýtt fjölda íslenskra bóka yfir á pólsku en er líka glöggur samfélagsrýnir. Gunnar Smári slær á þráðinn til Jacek til Gdansk í tilefni af pólsku forsetakosningunum, þar sem frambjóðandi ytra hægrisins sigraði. Kristinn Már Ársælsson prófessor við Duke Kunshan-háskólann í Kína ræðir við Gunnar Smára u...

Synir Egils 1. júní: Sjómenn, veiðigjöld, stjórn og stjórnarandstaða, hægri og vinstri 01.06.2025

Sunnudagurinn 1. júní Synir Egils: Sjómenn, veiðigjöld, stjórn og stjórnarandstaða, hægri og vinstri Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og fyrrum þingkona, Kári Gautason búfjárerfðafræðingur og fyrrum aðstoðarmaður ráðherra og Benedikt Erling...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Jósep Blöndal 31.05.2025

Laugardagur 31. maí Helgi-spjall: Jósep Blöndal Jósep Blöndal, læknir segir frá lífi sínu og ákvörðunum teknum af rælni og ræðir um líf sitt, ástir og æsku, tónlistina, fíknina og fjölskyldulífið en líka um læknisfræðina, hlustunina, heilahvelin, næringafræðina, heilbrigðiskerfið, einkavæðinguna og uppbygginguna á einstakri verkja-meðferð í Hólminum, hvernig tókst að byggja hana upp með teymisvinn...

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22 30.05.2025

Föstudagur 30. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Jóna Benediktsdóttir kennari og formaður stjórnarskrárfélagsins, Kjartan Sveinsson formaður Félags strandveiðimanna, Lóa Hjálmtýsdóttir teiknari og Þrándur Þórarinsson listmálari og ræða fréttir vikunnar og ástandið á samfélaginu okkar í upphafi sumar.

Rauða borðið 28. maí: Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind 28.05.2025

Miðvikudagur 28. maí Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind Haraldur Þorleifsson frumkvöðull og tónlistarmaður, Arna Grét­ars­dótt­ir, sókn­ar­prest­ur í Reyni­valla­prestakalli, Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræða við Gunnar Smára um mál Oscars And­ers Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu. Og um hlutverk borgara...

Rauða borðið 27. maí - Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur 27.05.2025

Þriðjudagur 27. maí Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur Valur Ingimundarson sagnfræðingur og Jón Ólafsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára um lýðræðið í austustu Evrópu og lýðræðisþróun í okkar heimshluta. Trump ber á góma ásamt hinum ýmsu Evrópuleiðtogum í bland við stríð, pólitík og uppgang fasisma. Hlynur Helgason, myndlistarmaður, dósent i listfræði HÍ...

Rauða borðið 26. maí: Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót 26.05.2025

Rauða borðið, mánudaginn, 26. maí. Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót Við hefjum Rauða borðið á smá spjalli um stöðu Samstöðvarinnar og kynnum síðan dagskrá kvöldsins. Við byrjum á því að fara niðrí bæ á mótmæli. María Lilja og Oddný Eir ræddu við fólk sem kom til að mótmæla brottvísun Oscars Andres Flor­ez Boca­negra. Þær hittu fyrir þjóðþekkt andlit og önnur minna þek...

Synir Egils 25. maí - Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli 25.05.2025

Sunnudagurinn 25. maí Synir Egils: Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur og Björn Leví Gunnarsson tölvunarfræðingur og fyrrum þingmaður og ræða fréttir vik...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen 25.05.2025

Laugardagur 24. maí Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen Ásdís Thoroddsen, kvikmyndagerðarmaður segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list.

Vikuskammtur 23. maí: Vika 21 23.05.2025

Föstudagur 23. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammtinum að þessu sinni koma að Rauða borðinu ásamt Maríu Lillju þau Guðmundur Ingi Þóroddsson, Formaður Afstöðu félags fanga. Svala Jóhannesardóttir, formaður Matthildarsamtakanna um skaðaminnkun, Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalista og formaður velferðarráðs Reykjavíkur og Pétur Eggerz, tæknistjóri og aðgerðasinni. Það hefur margt geng...

Rauða borðið 22. maí: Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður 22.05.2025

Fimmtudagur 22. maí Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali við framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, Ólaf Stephensen. Hann er stóryrtur eftir dóm Hæstaréttar í búvörulagafrumvarpinu og segist hissa á ástandinu í hans gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum. Fréttir af Gaza verða sagðar við Rauða borðið. Magga Stína var áberandi í fjölmi...

Listen to the Rauða borðið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.