Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

Comedy IS ↓ 181 episodes

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

Author

Útvarp 101

Category

Comedy

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Dec 14, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hvað er greind? 30.10.2022

Algengt er að tala um greind sem fyrirbæri sem aðeins lært fólk búi yfir. Það vill þó svo til að greind er alls konar og því er ekkert algilt þegar kemur að henni. Margar tegundir greinda hafa verið skilgreindar og því fannst okkur réttast að snerta á þeim og ræða nánar.

Trúarbrögð (ó) 23.10.2022

Það var líf og fjör í þessum 30.þætti Ólafssona en þátturinn hefst á 20 mínútna samræðum um ælu sem við aföskum innilega. Þátturinn er af óundirbúnu tagi en orð dagsins er eldfimt að þessu sinni og umræðurnar í takti við það. Eigiði yndislegan sunnudag kæri söfnuður.

Sigga Kling í Undralandi 16.10.2022

Það tók ekki nema 29 þætti fyrir okkur Ólafssyni að fá gest til okkar í Undralandið! Gestur þáttarins er engin önnur en Sigga Kling en eftir heitar umræður í síðasta þætti kom ekkert annað til greina en að fá Siggu til okkar til að ræða ástir, örlög og stjörnuspeki.

Stjörnuspeki og meðví 09.10.2022

Það er óhætt að segja að þeir Arnar og Aron bindi ekki bagga sína sömu hnútum þegar kemur að stjörnuspeki. Þessi þáttur er eitt stórt rifrildi út í gegn. Góða hlustun.

Fíkn (ó) 02.10.2022

Já kæru Undralendingar, fíknin getur verið tík. En erum við ekki öll einhverskonar fíklar? Mannskepnan er fíkill. Takið kvittun. Þátturinn er í boði: Birta CBD - https://birtacbd.is/ Bónus - https://bonus.is/ Dominos - https://www.dominos.is/ Gallerí 17 - https://www.ntc.is/verslanir-ntc/galleri-17/ Víking Lite lime léttöl

Hvað myndirðu gera ef...? 25.09.2022

Í þætti dagsins breytum við aðeins út af vananum og förum í leik. Það var ákall ykkar, kæru hlustendur, að þið vilduð fá að kynnast okkur betur og hér verðiði vonandi einhverju nær. Allavega verðiði nær okkar þankagangi við gjörsamlega fáránlegar aðstæður! Þátturinn er í boði:Birta CBD - https://birtacbd.is/ Bónus - https://bonus.is/Dominos - https://www.dominos.is/ Gallerí 17 - https://www.ntc.is...

Morð (ó) 18.09.2022

Óundirbúnir en hýrir á brá, örkum við Ólafssynir inn í þátt dagsins sem tekur á ljótum gjörning, morði. Af einhverjum ástæðum ræddum við þó svefn og öllu sem honum fylgir í um 20 mínútur áður en leikar hófust en við vitum að sú umræða er ykkur einungis til gagns, kæru hlustendur. Grípið daginn!

Rétthafi bresku krúnunnar vinnur byggingarvinnu í úthverfi Sussex 11.09.2022

RIP Lizzie. Drottningin er fallin frá og því fóru Ólafssynir að velta fyrir sér breskur krúnunni og því hvernig heimsfrægt fólk afber að hafa kastljósið á sér allan daginn, alla daga. Einnig eru rifjaðar upp sögur frá því að þeir hittu heimsfrægt fólk og þeirra eigin reynslu af ævisögum á djamminu. Þetta og meira til í þætti dagsins. Gleðilegan sunnudag! Þátturinn er í boði:Eiríksson Brasserie - h...

Hjónaband (ó) 06.09.2022

Þáttur dagsins er óundirbúinn og sennilega einhver sá dýpsti sem við höfum fest á hljóðform. Við komumst að niðurstöðu í lok þáttar hvers vegna hjónabönd eða sambönd yfir höfuð eru til komin, svo í guðanna bænum gott fólk, hlustið til enda! Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/ Dominos - https://www.dominos.is/Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/ Birta CBD - https://birtacbd.is/Gallerí...

Skógardýrið Hugo og sveppirnir Zig og Zag 28.08.2022

Í þessum þætti er stór tilkynning. Hlustiði.þáttur er í boði:Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/Dominos - https://www.dominos.is/Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/Birta CBD - https://birtacbd.is/Víking Lite lime léttöl

Iðnaður (ó) 21.08.2022

Þáttur dagsins er óundirbúinn og fjallar um iðnaðinn. Það er óhætt að segja að hafsjór sé á milli þeirra Arons og Arnars þegar kemur að iðnaðinum enda hefur Aron starfað í geiranum en Arnar varla haldið á hamri en er þó nokkuð lunkinn við að smíða vopn! Þátturinn er í boði:Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/ Dominos - https://www.dominos.is/ Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/ Víking...

Yellowstone vaknar 14.08.2022

Þáttur dagsins er helgaður jarðskjálftum, eldgosum og öðrum náttúruhamförum sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir og mun koma til með að gera. Þátturinn er stórmerkilegur fyrir þær sakir að við fáum til okkar gest í fyrsta skiptið og það er enginn annar en sjálfur Auðun með einu N-i sem margoft hefur verið nefndur á nafn í Undralandinu. Góða hlustun! Þessi þáttur er í boði:Eiríksson Brasserie -...

Brekkan var óvenju brött í ár (Reisusaga Ólafssona) 07.08.2022

Þessi þáttur verður sennilega með sjálfhverfara móti en í honum erum við agnarsmáir að fara yfir upplifun okkar af Þjóðhátíð 2022. Við gengum á bak orða okkar úr síðasta þætti og prjónuðum yfir okkur strax á föstudegi sem við mælum ekki með. En hey, djöfull var gaman! Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/Dominos - https://www.dominos.is/ Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/Víking Lite l...

Þjóðhátíð (ó) 29.07.2022

Gleðilega Þjóðhátíð kæru Undralendingar! Það var svo sannarlega ekki planið að gefa út þatt vikunnar á föstudegi en í ljósi umræðna tókum við þá ákvörðun í miðjum þætti að flýta útgáfu. Við óskum ykkur góðrar hlustunar og yndislegrar þjóðhátíðar! Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/Dominos - https://www.dominos.is/ Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/Víking Lite lime léttöl

Út fyrir endimörk alheimsins 24.07.2022

Pælingar um jörðina, geiminn, vitsmunalíf í alheiminum, hvernig við gætum tortímt sjálfum okkur og margt fleira. Fyrir ykkur sem eruð haldin loftslagskvíða þá viljum við vara við hlustun á þáttinn. Góða hlustun! Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/ Dominos - https://www.dominos.is/ Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/

Skelfing (ó) 17.07.2022

Þáttur dagsins er óundirbúinn og það er óhætt að segja að Aron hafi fengið að njóta sín í dag enda lent í mörgum skelfilegum atvikum á sinni stuttu ævi. Arnar hefur verið heldur varkárari og hallaði sér að mestu aftur og hlustaði en við mælum með að þið gerið slíkt hið sama. Þátturinn er í boði:Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/ Dominos - https://www.dominos.is/ Coolbet merch - https://co...

Fall siðmenningar nálgast 10.07.2022

Umræður um fall siðmenningar hafa skotið upp kollinum margoft áður í Undralandinu og því var ekkert annað í stöðunni en að helga heilum þætti þessari drungalegu kenningu. Þó er á nægu að taka í þessum efnum og því ekki ólíklegt að þessi þáttur sé einn af mörgum þar sem fall siðmenningar verður krufin enda ómögulegt fyrir tvo ADHD sjúklinga að ræða svo viðamikla tilgátu á rúmum klukkutíma. Undir lo...

Nostalgía (ó) 03.07.2022

Fullkomlega óundirbúinn þáttur. Það var aðeins eitt orð komst að í dag því við fengum hreinlega ekki nóg af því að ræða nostalgíurnar okkar. Gleðilegan sunnudag! Þátturinn er í boði:Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/Dominos - https://www.dominos.is/Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/

TESL.ai 26.06.2022

Gervigreind er að koma yfir heimsbyggðina eins og stormsveipur um þessar mundir og í þessum þætti veltum við því fyrir okkur hvurslags áhrif þetta kemur til með að hafa á líf okkar. Auk þess ræðum við einn merkilegasta vísindamann allra tíma Nikola Tesla sem er í raun ástæða þess að þú getir yfir höfuð að hlustað á þetta hlaðvarp. Svo er síðasti dagur megaviku Dominos í dag svo í guðanna bænum try...

Stefnumótaheimur Ólafssona (fullkomlega óundirbúinn þáttur) 19.06.2022

Þáttur dagsins er ólíkur öðrum að því leitinu til að hann er fullkomlega óundirbúinn en þó er hann líklega einn okkar besti. Meðal umræðuefna er hvernig hröðunin drepur, siðlausar kvikmyndir, stefnumót og að sjálfsögðu bregður kúkasögu frá Aroni fyrir.

Hæsta bygging allra tíma var 2,5 km. 12.06.2022

Þáttur dagsins hefst á barnalegu tali um kúk eins og svo oft áður þegar Aron kemst á skrið en leiðir á skringilegan hátt út í pælingar um Turninn af Babel sem er sagður hafa verið tveggja og hálfs kílómetra hár, takk fyrir! Þaðan leiðir umræðan svo yfir í ferðalag Arons til Machu Picchu og Sveppaævintýri hans í sömu ferð. Undir lokin opnar Arnar sig svo um innhverfa íhugun sem hann lærði þegar han...

Tyrkir rændu meyjum og peyjum úr eyjum á 17.öld 05.06.2022

Þáttur dagsins er stútfullur af glensi og fróðleik. Arnar fékk slæma útreið af internetriddurum eftir umdeilda skoðun sína á Marvel úr síðasta þætti. Hvernig var að vakna þunnur á Íslandi á landnámsárum? Tyrkir drápu og rændu fólki úr Vestmannaeyjum árið 1627 í svokölluðu Tyrkjaráni - Er hægt að líkja því geimveru innrás í dag? Svo að lokum fær Aron milljarð dollara viðskiptahugmynd sem hann sér e...

Doctor Arnar in the Molaverse of madness 29.05.2022

Í þætti dagsins eru heitar umræður um nýjustu kvikmynd úr smiðju Marvel en Arnar lýsir henni m.a. sem sinni verstu upplifun í seinni tíð. Annars er þátturinn að mestu leiti litaður af pælingum um alheiminn og öllum þeim leyndardómum sem hann hefur að geyma.

Er líf eftir dauðann? 22.05.2022

Já, öll höfum við spurt okkur þessarar spurningar. Lausnin við þessari spurningu finnst ekki hér í þessum þætti en þó eru til alls konar dularfullar sögur af fólki sem segist hafa upplifað ýmislegt tengt dauðanum.

Mannfólkið er komið af rottum 15.05.2022

Þáttur dagsins er stútfullur af óstaðfestum fróðleik um uppruna mannskeppnunnar. Það vill svo til að við mannfólkið (Homo Sapiens) vorum ekki eina manntegundin sem ráfaði um jörðina en á einhvern hátt náðum við að sitja uppi sem sigurvegarar í tilvistarkeppninni.

Listen to the Ólafssynir í Undralandi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.