Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

Comedy IS ↓ 181 episodes

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

Author

Útvarp 101

Category

Comedy

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Dec 14, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

EUROVISION 13.05.2022

Það þarf ekki að ræða þennan titil frekar. Við erum öll Eurovisionóð sama hvort við viðurkennum það eða ekki svo í guðanna bænum, látið þennan þátt ekki framhjá ykkur fara fyrir laugardaginn. 39 mínútur af eintómu Eurovision. Gjörið svo vel!

Aron sér drauga 08.05.2022

Þáttur dagsins er frekar spontant en eftir að Aron byrjaði að tala um drauga gat Arnar ekki orða bundist og upp spruttu heitar umræður. Í kjölfarið fylgdu sögur af Aroni um næmni sína fyrir draugum. Við leggjum ekki meira á ykkur í bili. Gleðilegan hvíldardag!

Social credit score kerfið í Kína 01.05.2022

Þáttur dagsins er undirlagður af umræðum um hið svokallaða Social Credit score kerfi sem hefur verið við lýði í Kína undanfarin ár. Ólafssynir velta fyrir sér öllu sem við kemur þessu óhugnanlega kerfi, allt frá því hvernig fólki er refsað fyrir "slæma" hegðun og yfir í hvaða afleiðingar slíkt kerfi getur haft á heimsbyggðina til frambúðar. Einnig bregður dagskrárliðnum „Með eða á móti“...

Skilur Færeyingurinn íslensku? 24.04.2022

Í þessum þriðja þætti taka þeir Ólafssynir á sviðsframkomu Metallica í Sovíetríkjunum árið 1991, reyna að svara spurningunni sem allir vilja vita; “Er hægt að tala við Færeying á Íslensku?”, ræða viðurnefni sveitafólks og þau myrku öfl tækninnar sem virðast ætla að skella á fyrr en síðar.

Eftirlýstir í Taílandi 17.04.2022

Í þessum öðrum þætti má segja að þráðurinn úr fyrsta þætti hafi verið tekinn upp að nýju og dagar þeirra Arons og Arnars í Verzlunarskólanum ræddir.

Pilot 09.04.2022

Í þessum fyrsta þætti Ólafssona í Undralandi er uppruni og saga þeirra Arons og Arnars rakin en þeir hafa marga fjöruna sopið saman. Arnar kemur Aroni að óvörum og uppljóstrar djúpu leyndarmáli sem hann hefur reynt að hylma yfir um nokkurt skeið. Að lokum kemur Aron með einhvern fánýtasta fróðleik sem festur hefur verið á bandvídd.

Listen to the Ólafssynir í Undralandi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.