Unnur Borgþórsdóttir
Morðcastið
Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband:mordcastid@gmail.cominstagram.com/mordcastidtwitter.com/mordcastid
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: mordcastid.libsyn.com
Author
Unnur Borgþórsdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Orð dagsins er: Nestisbox 08.10.2026 1:08:58
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Hong Kong og segir frá hinni huggulegustu fjölskyldu, foreldrum og tveimur sonum, sem hafa átt hið huggulegasta líf. Það höldum við allavega en framvinda málsins lætur okkur sannarlega efast um það. Gríðarlega margar undarlegar u-beygjur eiga sér allavega stað, og enn fleiri undarleg innkaup og ákvarðanir. Þátturinn er...
Orð dagsins er: Grandeur 01.10.2026 1:15:30
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur alla leiðina til Suður-Kóreu og segir okkur frá hópi vondra manna (og í smá einnar konu) sem hefði alveg getað tekið mjög margar frábærar ákvarðanir en tók í staðinn alltof margar hræðilegar ákvarðanir. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Gjafabref.is, Nettó, Sassy, BL, Fulltingi og Securitas. Gerendur: Kim Gi-hwan, Kim Hyun-yang...
Bókacastið X Morðcastið - Áður en ég brjálast 25.09.2026 26:08
Í þessum þætti ræðum við systur bókina Áður en ég brjálast eftir Soffíu Bjarnadóttur.
Orð dagsins er: Brunnur 24.09.2026 52:01
Góðan daginn fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá hrottalegu máli sem tekur alltof langan tíma að upplýsa. Ungur maður vildi bara dansa við unga konu en það var að venju reiður maður sem fann sig knúinn til að eyðileggja það. Þátturinn er í boði: Nettó, Happy Hydrate, Óskaskrín, BL, Giggó, Fulltingi og Sassy Þolandi: Timothy Coggins Gerendur: Frankie Gebhardht og Bill Moore
Orð dagsins er: Gistipartý 17.09.2026 1:13:12
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og þar kynnumst við nokkrum einstaklingum í fjölkæru sambandi. Sem er vel, sérstaklega ef öll vita af því. Mikið kaos, margar spurningar og mikil undrun. Þáttur dagsins er í boði Sassy, Happy Hydrate, BL, Giggó, Fulltingi, Óskaskrín og Nettó. Þolandi: Desiree Sunford Gerandi: Marty Grismer. Allavega h...
Orð dagsins er: Náttföt 10.09.2026 1:07:52
Góðan daginn, þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Ástralíu og segir okkur frá konu sem fannst myrt og brunnin í röri. Í kjölfarið fer af stað röð atburða sem gefur okkur þó alveg merkilega fá svör. Eiginlega alveg óþolandi, og líka stórmerkilegt. Þolandi: Linda Agostini, amk í einhverju máli. Þátturinn var í boði: Sassy, Happy Hydrate, BL, Óskaskrín, Fu...
Orð dagsins er: Bartar 03.09.2026 1:01:50
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá alveg svakalega undarlegu máli. Blautum þvotti í poka, andliti á glugga, konu á tánumog manni með alveg svakalega stóra barta. Allt hið undarlegasta og enginn veit neitt. Þáttur dagsins er í boði Sassy, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín og Giggó. Fyrir óklipptan þátt, áskriftarþætti og sjónvarpsþætti mæl...
Bókacastið X Morðcastið - Irpa 01.09.2026 32:46
Góðan daginn, þennan fallega lestrardaginn. Í dag förum við yfir bókina Irpu eftir Hildi Knútsdóttur. Fyrir sjónvarpsþáttinn getiði kíkt inná www.pardus.is/mordcastid
Orð dagsins er: Tanleysi 27.08.2026 1:09:54
Góðan og glæsilegan fimmtudaginn. Þáttur dagsins er aðeins kaotískur en það er einungis (ekki alveg kannski) vegna þess að málið er mjög kaotískt. Unnur fer með okkur í einskonar Evrópureisu hvar gamall kall tekur margar hræðilegar afleiðingar og margar konur eru fórnarlömb. Alltof týpískt. Þáttur dagsins er í boði Nettó, gjafabréf.is, Happy Hydrate, BL, Fulltingi, Giggó og Sassy. Fyrir áskrifta...
Orð dagsins er: Nettókassi 20.08.2026 52:31
Góðan daginn, fimmtudaginn. Maður á leið í vinnu mjög snemma morguns rekst á kassa sem hann óskar mjög heitt að innihaldi matvöru úr Nettó. Hann gerði það ekki. Við sögu koma börn, fátækt, ömurð og buffalóar. Í boði Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, BL, Óskaskrín, Giggó og Sassy.
Orð dagsins er: Blómabeð 13.08.2026 47:31
Góðan daginn, almyrkvadaginn. Í dag er Unnur með okkur í Nýju Mexíkó, hvar fullorðinn maður flýr til Mexíkó með nýrri kærustu sinni. Eða hvað? Líklega alls ekki. Þolandi: Craig Thetford Gerandi: Deana Thetford Í boði BL og MG, Nettó, Happy Hydrate, Sassy, Giggó, Fulltingi og Óskaskrín
Orð dagsins er: Særing 06.08.2026 54:28
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Maður fær í bakið, missir vinnuna og endar á einhvern ótrúlegan hátt á því að láta særa úr sér illu andana. Suma. Ekki alla. Þolandi: Christine Taylor Þátturinn er í boði: Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín, Sassy, Giggó, Fulltingi og BL.
Orð dagsins er: Skyndibitastaður 30.07.2026 56:23
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna, beinustu leið inná skyndbitastað til að fá okkur hamborgara og franskar. Það er þó ekki það eina sem við gerum í dag, því miður, því fjórir unglingar týnast og spurningarnar sem kvikna í kjölfarið eru óteljandi. Betra væri ef franskarnar væru óteljandi. Í boði Giggó, Nettó, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi og Sassy....
Orð dagsins er: Líkamsrækt 22.07.2026 43:20
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins er sögð saga af manni sem lét réttlætiskenndina þvælast heldur mikið fyrir sér. Eða hvað? Í boði Nettó, Sassy, Giggó, Happy Hydrate, Fulltingi og Nettó. Þolandi: Jeffrey Dahmer og Jesse Anderson, og því miður fleiri auðvitað. Gerandi: Christopher Scarver
Bókacastið X Morðcastið - Ótrúlega skynugar skepnur 20.07.2026 29:58
Í 9 þætti Bókacastsins ræðum við bókina Ótrúlega skynugar skepnur eftir höfundinn Shelby Van Pelt.
Orð dagsins er: Fjölskylduást 16.07.2026 54:02
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og segir frá máli þar sem fjölskyldufaðir fer í vinnuna og allt hið venjulegasta. Þegar hann aftur á móti kemur heim eftir langan vinnudag er allt í skralli. Í verstu merkingu orðsins. Þolandi: Stacey Holston, Devin Holston, Donald McGuire, og Tammie McGuire. Gerandi: Arron Lawson Þátturinn er í boði...
Orð dagsins er: Ljósmyndari 09.07.2026 1:22:54
Góðan daginn, fimmtudaginn! Ógurlega fríð og vongóð ung kona leggur af stað í módelferðalag í Frakklandi. Megið giska á það hvort útúr því komu góðar ljósmyndir eða ekki... Í boði Sassy, Giggó, Happy Hydrate, Nettó og Fulltingi. Gerandi: Guillaume Mingaud ofl. Þolandi: Élodie Morel
Orð dagsins er: 4runner 02.07.2026 47:47
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna, nánar til tekið til Knoxville. Nánar tiltekið reyndar í eitthvað ógeðslegt greni þar sem farið er hryllilega illa og ógeðslega með ungt kærustupar. Í boði Sassy, Nettó, Giggó, Happy Hydrate og Fulltingi. Gerendur: Eric DeWayne Boyd: Letalvis Darnell Cobbins, Lemaricus Devall Davidson, George Geovonni Thomas og Vane...
Orð dagsins er: Líkvökvi 25.06.2026 52:18
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins kynnumst við dáðadreng og dugnaðarforki í ríkjunum banda sem því miður átti alls ekki nægilega góða vini og kærustu. Innilega því miður. Þátturinn var í boði: Fulltingi, Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Giggó og Sassy. Þolandi: Jason Sweeney Gerendur: Edward Batzig Nicholas og Domenic Coia
Orð dagsins er: Mercedes 18.06.2026 47:55
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með ykkur til Bandaríkjanna, í fallegt úthverfi til fólks á framabraut. Lífið leikur við þau, alveg þar til að allt verður mjög skrítið. Sko mjög skrítið. Ps. Vert er að taka fram að þessi texti er skrifaður með mjög barnalegum höndum. Þátturinn var í boði Nettó, Fulltingi, Giggó, Sassy, Happy Hydrate og Ristorante. Þolandi: David Harris Gerandi: Clara...
Orð dagsins er: GPS 11.06.2026 54:23
Sigríður Fanney mætir í stúdíóið og hlustar á aðra hörmung úr Valdresrútunni, nú 10 árum seinna. Þátturinn er í boði Sassý, Ristorante, Nettó, Giggó, Fulltingi og Happy Hydrate.
Orð dagsins er: Réttarsalur 04.06.2026 51:23
Góðan daginn, þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Þýskalands og segir okkur frá ungri stelpu sem fer í fýlu við mömmu sína, nennir ekki í skólann og vill bara klappa hvolpum. Sagan endar því miður ekki með hvolpaklappi, heldur hreinni hörmung. Þáttur dagsins er í boði: Happy Hydrate, Nettó, Ristorante, Fulltingi og Sassy. Þolandi: Anna Bachmeier Gerendur: Klaus Gr...
Orð dagsins er: Bílstjóri 28.05.2026 42:08
Góðan daginn, miðvikudaginn. Í dag fer Bylgja með okkur til Noregs hvar rútuferð fer úrskeiðis. Ekkert bílslys, en margar aðrar uppákomur. Góðan daginn, miðvikudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til draumalandsins Noregs, hendir okkur upp í rútu sem endar síðan í bústað hjá gamalli konu. Reyndar ekki hjá öllum - því miður. Þolandi: Audun Bøland Gerandi: Ónefndur aðili Þáttur dagsins...
Orð dagsins er: Varalitur 21.05.2026 1:08:50
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Chicago og segir okkur frá morðingja sem vill ekkert heitar en að láta stoppa sig. Þó varla, af því hann heldur áfram að drepa. Algjörlega ruglað mál, algjörlega vanhæf lögregla. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Fulltingi, Nettó og Giggó. Gerandi: William Heirens Þolendur: Josephine Ross, Francis Brown o...
Orð dagsins er: Doktor 13.05.2026 49:36
Í dag segir Bylgja frá mikið lærðri konu, geðstirðri og óþægilegri í samskiptum. Framtíðin fer ekki alveg eins og hún sá fyrir sér svo einn daginn ákveður hún að þetta sé komið gott. Margt skrítið gerist, ýmislegt hræðilegt, allt merkilegt. Gerandi: Amy Bishop Þolendur: Gopi Podila, Maria Ragland Davis, Adriel D. Johnson Sr. og kannski bróðir hennar Seth. Þátturinn var í boði Ristorante, Nettó,...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.