Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

Comedy IS ↓ 333 episodes

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband:mordcastid@gmail.cominstagram.com/mordcastidtwitter.com/mordcastid

Author

Unnur Borgþórsdóttir

Category

Comedy

Podcast website

mordcastid.libsyn.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Orð dagsins er: Peggarar 15.01.2026

Í Winnipeg logar heldur glatt í heilu húsi og það virðist eiga rætur að rekja til konu sem hatar tengdamóður sína.  Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Anamma og Happy Hydrate.

Orð dagsins er: Joggarar 08.01.2026

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Bandaríkjanna eins og eiginlega alltaf, nema í þetta skiptið skoðum við eitt allra undarlegasta málið til þessa.  Gríðarlega margar spurningar, margar samsæriskenningar, margar misgóðar upplýsingar og endalausar spurningar. Þáttur dagsins var í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Anamma.

Orð dagsins er: Svíþjóð 01.01.2026

GLEÐILEGT NÝTT ÁR! Á þessum fyrsta degi ársins ferðumst við bæði til Svíþjóðar og Bandaríkjanna og hittum alls konar fólk. Ákaflega misgott og misgáfulegt, eins og gengur og gerist. Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante og Happy Hydrate.

Orð dagsins er: Jólasveinn 25.12.2025

Góðan daginn, jólafimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Kanada, kíkir þar í hýrt og hamingjusamt hverfi þaðan sem síðan hverfa alltof margir menn. Málið er hið sorglegasta, sérstaklega þegar að í ljós kemur að jólasveinninn (nema augljóslega ekki hann skiljiði) sjálfur gæti verið viðriðinn málið. Hrikalegt. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Göteborgs og 11...

Orð dagsins er: Mannfórn 18.12.2025

Í Bandaríkjunum (sjokker) er gríðarlega löng hefð fyrir því að ungmenni stundi mikið partýstand í vorfríi. Fara gjarnan til sólríkari staða og hafa það náðugt, í sæmilegri prósentu. Það var vissulega planið í þætti dagsins en það plan gekk auðvitað alls ekki eftir, eiginlega bara þvert á móti. Þáttur dagsins er í boði Göteborgs, Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, Forlagsins og 1104 by Mar.

Orð dagsins er: Eltihrellir 11.12.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur frá algjörlega hörmulegum eltihrelli sem tekur margar hræðilegar ákvarðanir áður en hann tekur síðan hræðilegustu ákvörðunina sem þú getur tekið. Lögreglan er léleg, stelpan er dásamleg og tie dye er æði.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Göteborgs, Dineout, 1104byMar og Mfitness.  

Orð dagsins er: Crocs 04.12.2025

Ætli það sé nú ekki enn og aftur fimmtudagur. Í þætti dagsins segir Bylgja frá unglingsstelpu sem skrifar í dagbók, elskar dýr, rífst við mömmu sína og fer út úr húsi í bleikum Crocs í góðri trú. Þátturinn er í boði Ristorante, 1104 by Mar, Dineout, Forlagsins, Göteborgs, Happy Hydrate og Nettó

Orð dagsins er: Snapchat 27.11.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagsins er af ömurlegri endanum. Unglingar taka hræðilegar ákvarðanir, hanga talsvert á netinu, en brjóta líka of mikið á öðrum. Algjör hörmungar samloka. Þáttur dagsins var í boði Dineout, Mfitness, Forlagsins, 1104bymar, Fulltingi, Göteborgs, Nettó, Ristorante og Happy Hydrate.

Orð dagsins er: Súkkulaði 20.11.2025

Eftir fjármálahrunið mikla 1929 dundi yfir heimsbyggðina mikið volæði. Leiðindamál fannst fólki, líka fólki í Austurríki. Ein austurrísk kona reyndi að taka málin í sínar hendur en færðist heldur mikið í fang og úr varð einhvers konar spírall af dauðsföllum.   Þáttur dagsins er í boði 1104 by Mar, Dineout, Forlagsins, Fulltingi, Göteborgs, Happy Hydrate, Nettó og Ristorante.        

Orð dagsins er: Glugganet 13.11.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur í agnarsmáa þyrpingu húsa hvar ung kona finnst látin. Margar spurningar vakna, enn fleiri harmleikir eiga sér stað og síðan þessu lauk eru bæjarbúar búnir að vera eitt stórt spurningamerki. Svoleiðis. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Ristorante, Göteborgs kexins, Nettó, 1004bymar, Fulltingi og Forlagsins

Orð dagsins er: Typpahálsmen 06.11.2025

Í þætti dagsins erum við í Uttar Pradesh héraði í Indlandi. Þar hittum við fyrir svakalega marga ógeðslega menn, marga feiga menn og eina óþægilega stelpu (finnst sumum). Og typpahálsmen. Við heyrum um typpahálsmen.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.

Orð dagsins er: Halloween 30.10.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag ferðumst við til Bandaríkjanna á Hrekkjavökunni sjálfri en í staðinn fyrir mikið gerviblóð er alltof mikið alvörublóð. Margt ömurlegt gerist en sem betur fer líka eitthvað gott. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104bymar

Orð dagsins er: Facebook 23.10.2025

Gömul og góð hjón ganga unglingsstúlku í foreldra stað. Fallegt, ekki satt? Alls ekki satt og í Georgíufylki Bandaríkjanna gengur ýmislegt á.   Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104 by Mar.  

Orð dagsins er: Ostakaka 15.10.2025
Orð dagsins er: Súpupottur 09.10.2025

Í þætti dagsins hittum við fyrir fólk í galopnu sambandi, fólk í alls konar krísu, fólk sem ferðast um með súpupott. Not in a good way! Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.

Orð dagsins er: Klaufhamar 02.10.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn. Stundum er það morð, stundum er það björgun, stundum er það 19 blaðsíðna leiðbeiningabæklingur um hvernig skal myrða með árangri. Þátturinn er í öllu falli ógeðslegur en auðvitað á sama tíma svakalega sorglegur og áhugaverður. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi, Göteborgs og MFitness. Óklipptan þátt má finna inná pardus.is/mordcastid

Orð dagsins er: Pappírssnifsi 25.09.2025

Í dag eins og svo ótrúlega marga daga áður erum við staðsett í Bandaríkjum Norður Ameríku, nánar tiltekið í New York fylki. Í Syracuse býr hress týpa á besta aldri sem finnst gaman að dansa og fara á tónleika. Hefði svo bara í raun mátt fá að gera meira af því. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi og Göteborgs.

Orð dagsins er: Reiðhjól 18.09.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Frakklands hvar tveir ungir strákar fara út að hjóla, en hjóla því miður aldrei aftur heim. Rannsókn málsins er skrítin en allt er gott sem endar vel. Eða hvað? Skrítin endalok mögulega, kannski bara eins góð og hægt er. Við vitum auðvitað ekki neitt.  Í boði Göteborgs kexins, Fulltingi, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante.

Orð dagsins er: Skjelsvik 11.09.2025

Við erum enn og aftur komin til Bandaríkjanna þar sem skrítnir hlutir gerast, að því er virðast í sífellu. Hópur af dripplandi mönnum fer í road trip með nammi og mjólk. Það endar ekki eins og skemmtunin sem það hefði átt að vera. Þátturinn er í boði Fulltingi, Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og Göteborgs. Mál hefst: 

Orð dagsins er: Ökuskírteini 04.09.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn.  Í þætti dagsins fer Unnur með okkur á smá flakk en aðallega bara um Bandaríkin eins og svo merkilega oft áður. Þetta er saga sem við höfum heyrt og sagt alltof oft og því miður örugglega einhverntíman aftur.  Í boði Mfitness, Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Göteborgs kex. Mál hefst: 10:12

Orð dagsins er: Titlar 28.08.2025

Í þætti dagsins erum við enn og aftur og að eilífu stödd í Bandaríkjunum. Hittum þar Kris Jenner áttunnar og undurfagra dóttur hennar sem ákaflega ung var komin með túperað hár, íklædd skó með hæl. Það er alltaf eitthvað. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó og Happy Hydrate.

Orð dagsins er: Bootcamp 21.08.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag förum við mjög snemma á morgunæfingu. Augljóslega ekki við systur samt heldur fórnarlamb dagsins í dag. Enginn skilur neitt í neinu og ósvaraðar spurningar eru ótrúlega margar.  Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you. Mál hefst: 6:57

Orð dagsins er: Tvíburi 14.08.2025

Ástralskir tvíburar vekja mikla velgju í dag, eins og reyndar furðulega oft áður. Bylgja er komin úr sumarfríi og tafsar sig í gegnum ótrúlega sorglegt mál og segir sögu tveggja kvenna sem báðar áttu betra skilið en þær fengu. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og MFitness. Mál hefst: 22:55

Orð dagsins er: Bakari 07.08.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með ykkur í ferðalag til Frakklands og segir ykkur frá því þegar ógeð með grímu, inspireraður af Scream, heldur af stað í sína eigin vegferð. Ömurleg og ógeðsleg vegferð svo við segjum alveg eins og er. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you. Mál hefst: 5:30

Orð dagsins er: Göngugarpur 31.07.2025

Góðan daginn þennan fimmta fimmtudaginn. Í dag endurnýtum við áskriftarefni og njótum þess að hafa það gott í sólinni, en það gerði hann Aimo Koivunen alls ekki á sínum tíma. Hans ferðalag var ekki svo fullt af sól og gleði, meira svona stútfullt af stríði og amfetamíni. Frábær saga samt og stórmerkileg. Þáttur dagsins er í boði Ristorante og Happy Hydrate. Mál hefst: 13:23  

Listen to the Morðcastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.