Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

Comedy IS ↓ 333 episodes

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband:mordcastid@gmail.cominstagram.com/mordcastidtwitter.com/mordcastid

Author

Unnur Borgþórsdóttir

Category

Comedy

Podcast website

mordcastid.libsyn.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Orð dagsins er: Smoothie 24.07.2025

Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Bandaríkjanna (þá ótrúlega sjaldan) og hittir fyrir stóra, samsetta fjölskyldu sem virðist hafa það gríðarlega gott. Hús og bátar og kirkjan og góðgerðarsamtök.  En sjaldan eru hlutirnir jafn frábærir og þeir líta út fyrir að vera og þannig er það í dag líka. Einhvers staðar leiddist fólk út af beinu brautinni og tók hræðilegar ákvarðanir. Margar. Þátturinn...

Orð dagsins er: Messa 17.07.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna þar sem hún segir frá fallega samsettri prestsfjölskyldu sem allt í einu mætir svo ekki á réttum tíma í messu. Allt við málið er algjörlega hræðilegt og það hjálpar alls ekki að hafa allar þessar ósvöruðu spurningar.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Better you, Smárabíó og Ajax. Mál hefst:...

Orð dagins er: Pabbi 10.07.2025

Í þætti dagsins fáum við Sigríði Fanneyju loksins í heimsókn eftir langa bið. Bylgja segir sögu ungrar konu sem átti gríðarlega bjarta framtíð en fékk ekki að njóta hennar, þökk sé enn einum aumingjanum. Svo koma feður við sögu einnig. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, Smárabíós og Forlagsins. Þáttur hefst: 17:00.

Orð dagsins eru: Fjórði heimurinn 03.07.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins ferðast Unnur með okkur til Nýja Sjálands, segir margar misáhugaverðar staðreyndir um Christchurch áður en hún segir frá tveimur unglingsstúlkum sem tengdust á hreint út sagt ótrúlegan hátt. Of vel segja sumir, mjög illa segja sennilega fleiri. Sama hvað, þá er þetta stórmerkilegt allt og auðvitað hrikalega sorglegt.  Þáttur dagsins er í boði Nettó, Bett...

Orð dagsins er: Niðursetningur 26.06.2025

Í þætti dagsins kynnumst við bandarískri fjölskyldu, einu sinni sem oftar. Húsfaðirinn ekki kannski eins almennilegur og við helst vildum og börnin áttu eins og vanalega miklu betra skilið. Öll börnin. Líka þau sem hann giftist. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Findus og Happy Hydrate.   

Orð dagsins er: Flipparar 19.06.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn.  Í þætti dagsins fer Unnur með okkur um víðan völl, það eru mormónar, nærbuxur, þvæla og vitleysa. Ásamt auðvitað allskonar hörmungum og ógeði eins og alltaf, því miður!  Alltaf áhugavert samt.  Þáttur dagsins er í boði Better you, Ajax, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante.  Mál hefst: 1:30  

Orð dagsins er: Skyrglíma 12.06.2025

Í þætti dagsins er bæði agalega vont veður og tveir aular að slást. Kemur málinu þannig séð ekkert við auðvitað. Við lendum í nágrenni Houston í Texas í vatnsveðri og fylgjumst með því hvernig leit að týndri konu gengur alls ekki nógu hratt.  Þátturinn er í boði: Findus, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better You.

Orð dagsins er: Bikiní 05.06.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn.  Þá er komið að hörmungar sögu þessarar viku. Í dag segir Unnur okkur frá konu á besta aldri (og hundinum hennar) sem ætlaði bara að flytja til Panama með manninum sínum til að breyta til og lifa lífinu en því miður fór það alls ekki svo. Sko alls ekki, og mjög svo mikið því miður.  Þátturinn er í boði: Ajax, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Mfitness. Mál hefst: 10:1...

Orð dagsins er: Jógabuxur 29.05.2025

Góðan daginn þennan rigningardaginn! Öll vitum við nú að góðar buxur eru gulli betri. En eru góðar buxur virði heillar manneskju? Í Bandaríkjunum er ung og glæsileg kona sannfærð um það og því lendum við eins og alltaf í undarlegu en um leið áhugaverðu máli. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate og MFitness. Mál hefst: 10:44

Orð dagsins er: Lesblinda 22.05.2025

Góðan daginn þennan sólríka fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Frakklands, fræðir okkur um staðhætti og kynnir okkur fyrir nokkrum misgáfulegum unglingum þar sem einn tekur alveg hræðilega ákvörðun. Í raun tekur þessi umræddi unglingur alveg hræðilega margar slæmar ákvarðanir. Réttarkerfið kannski líka reyndar, og jafnvel yfirvöld í heild. Jæja, þetta er allt alveg hræðilega sor...

Orð dagsins er: Dáleiðsla 15.05.2025

Í dag er það Florida man sem hefur aðeins of mikla trú á sér og sinni getur sem hefur kannski, veit það ekki, mögulega, áhrif á líf og störf fólksins í kringum sig.  Er dáleiðsla faggrein?  Þátturinn er í boði Happy Hydrate, Nettó, Ristorante og Ajax.

Orð dagsins er: Sunnudagaskóli 08.05.2025

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í fullkomnum heimi þá værum við öll örugg á okkar heimili með okkar fjölskyldu og vinum en mál dagsins sýnir svart á hvítu hvað þetta getur allt verið ömurlegt. Alltaf mjög áhugavert því miður en samt alveg absalút hræðilegt. Þáttur dagsins er í boði Better you, Happy Hydrate, Nettó, Ristorante og Findus. Mál hefst: 7:52

Orð dagsins er: Handari 01.05.2025

Á þessum degi verkalýðsins er viðeigandi að segja frá blómasölumanni og húsgagnasmiði sem kynntust og úr varð ein stór og góð fjölskylda.  Nema auðvitað alls ekki og saga dagsins er skrítin, sorgleg og með geimveruívafi, þannig að það ætti að vera eitthvað fyrir öll. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Ajax. Mál hefst: 12:45

Orð dagsins er: Washington 27.03.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins kynnumst við mörgum mjög merkilegum hliðum að einu og sama málinu, máli sem hefur ótrúlega fínan endi samt. Allavega jákvæðari en stundum, en allt er þetta auðvitað algjör hörmung. Svoleiðis. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Better you Sjóvá, Happy Hydrate og Ristorante Mál hefst: 9:35

Bókaklúbburinn X Morðcastið - Sykur 25.03.2025

Í áttunda þætti Bókacastsins ræðum við um Sykur eftir Katrínu Júlíusdóttur. 

Orð dagsins er: Michigan 20.03.2025

Góðan daginn þennan ágæta fimmtudaginn. Það er enn einn partýsjúki unglingurinn í þætti dagsins. Hann vildi bara hafa gaman, en varð heldur betur ekki kápan úr því klæðinu.  Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Better you, Happy Hydrate og Mfitness. Mál hefst: 9:40

Orð dagsins er: Skólaball 13.03.2025

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins langaði segir Unnur frá ungum dreng sem langaði bara á skólaball að hafa gaman, dansa mikið með vel gelað hár og rakspíra en öðrum drulluspöðum tókst að eyðileggja það og líf gríðarlega margra í kjölfarið. Mál hefst: 09:00 Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Better You, Sjóvá, Nettó og Ristorante.  

Orð dagsins er: Partýgosi 06.03.2025

Í Missouri finnst ungur maður liggjandi á grúfu á háskólasvæði eftir góða partýnótt. Því miður ekki bara búinn að tjútta of mikið og í ljós kemur að flækjustig lífs hans er töluvert. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó , Better You, Happy Hydrate og Smartsocks .

Orð dagsins er: Pikkla 27.02.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagsins er kannski ekki mjög langur en listi fórnarlamba er það þó, því miður.  Við förum til Prússlands, pikklum og sútum, hneykslumst og tuðum.  Þáttur dagsins er í boði: Nettó, Ristorante, Better you, Happy Hydrate og Sjóvá. Mál hefst: 09:00 Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Bókacastið X Morðcastið - Grænmetisætan 25.02.2025

Í sjöunda þætti Bókacastsins ræðum við um Grænmetisætuna eftir Han Kang

Orð dagsins er: Boðskort 20.02.2025

Það er the land down under í dag. Unglingsstelpu er boðið í partý. Loksins! Spennt og glöð heldur hún af stað en auðvitað endar það ekki eins fallega og vel og það hefði átt að enda. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Swiss Miss, Better You og Smartsocks. Mál hefst: 10:22

Orð dagsins er: Hárlokkur 13.02.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur okkur frá ótrúlega undarlegu máli sem teygir sig frá Noregi til Ísrael. Um hvippinn og hvappinn en fyrst og fremst um margar undarlegar aðstæður og slæmar ákvarðanir. Þáttur dagsins er í boði Sjóvá, Happy Hydrate, Swiss Miss, Nettó, Ristorante og Better you. Mál hefst: 13:17

Orð dagsins er: Traktor 06.02.2025

Í þætti dagsins heimsækjum við England hennar hátignar drottningarinnar alveg frá byrjun síðustu aldar og fram til dagsins í dag. Kynnumst lítilli fjölskyldu í litlum bæ mjög náið og heyrum hvað dreif misfallegt á daga þeirra. Þátturinn er í boði Better You, Happy Hydrate, MFitness, Nettó og Ristorante. Mál hefst: 14:03

Orð dagsins er: Skipalakk 30.01.2025

Góðan daginn, fimmtudaginn! Það eina sem er verra en algjör sorgarsaga með ömurlegum endi er þegar umrædd sorgarsaga varðar börn. Í þætti dagsins kynnumst við manni sem hefði gjarnan mátt taka betri ákvarðanir og jafnvel hugsa sig tvisvar um. Þáttur dagsins er í boði Better you, Happy Hydrate, Isavia ANS, Nettó, Mfitness,Ristorante,  Sjóvá, Smart Socks og Swiss Miss Mál hefst: 12:15

Bókacastið X Morðcastið - Lungu 28.01.2025

Sjötti þáttur Bókacastsins, í dag ræðum við bókina Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia.

Listen to the Morðcastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.