Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

Comedy IS ↓ 185 Folgen

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.buzzsprout.com

Autor

Útvarp 101

Kategorie

Comedy

Podcast-Website

www.buzzsprout.com

Neueste Folge

25. Okt 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Við erum öll á leiðinni á bætur 25.10.2026

Já kæru Undralendingar nær og fjær. Spotify bannaði okkur að nota Kiss From a Rose, en tæplega 400 ykkar svöruðu könnuninni sem bætir það upp. Umræðuefni dagsins eru borgaralaun (UBI) og eins og venjulega fóru Ólafssynir um víðan völl, allt frá samsæriskenningum um Covid yfir í mennska heila í sullkeri og tvo bræður á Ísafirði sem urðu milljónamæringar á því að lána skúrana sína. Spá þáttarins: bo...

Ungur að eilífu 18.10.2026

Já kæru Undralendingar, þá er komið að þriðja þætti seinni hálfleiks hjá okkur Ólafssonum. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá eilífu lífi og Teslu sem keyrir á hvolfi yfir í þunglynd dýr og dauða internetsins. 56 mínútur af heilavíkkun kæru vinir. Verið góð hvort við annað! Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https...

Margt leynist í regnskóginum 11.10.2026

Já kæru Undralendingar. Í þætti dagsins fylgjast Ólafssynir með svaðilför Ash Dykes, sem lagður er af stað niður Kongó á uppblásnum kajak, og fara yfir allt sem gæti mögulega drepið hann sem er mjög margt. Svo eru pælingar um frumbyggja og glataða þekkingu og hvort Aron sé í alvörunni handlaginn. Einnig kemur í ljós að einhver braust inn í bíl og stal engu nema Undralandspeysunni. Verið góð hvort...

WE ARE SO BACK 04.10.2026

Kæru vinir. Ólafssynir eru mættir til leiks á ný eftir rúmlega eins árs pásu, nú með látum, í hljóði og mynd!  Samstarfsaðilar þáttarins eru: Teya: https://www.teya.com/is/ Serrano: https://serrano.is/ Happatreyjur: https://happatreyjur.is/

Jólaspecial (ft. Steindi Jr., Stjörnu-Sævar & Teboðið) 14.12.2025

Kæru Undralendingar! Við Ólafssynir ákváðum að snúa aftur í tilefni jólanna þó svo að innihaldið sé nú ekkert sérstaklega jólalegt! Við fengum frábæra gesti með okkur í lið og úr varð 2 og hálfur tími af Undralandi. Góða hlustun og gleðileg jól!

Ólafssynir kveðja (í bili) 31.08.2025

Þá er komið að kveðjustund í bili kæru vinir. Ólafssynir þakka fyrir sig. Verið góð við hvort annað og munið að við elskum ykkur öll.

Ólafssynir í næstsíðasta sinn (í bili) 24.08.2025

Já kæru vinir. Þið lásuð rétt. Ólafssynir eru á leið í smá frí. Í þessum þætti hleypum við ykkur inn á filterslausan fund um framhaldið þar sem Ólafsdóttir úr Teboðinu kemur einnig við sögu. Segið ykkar skoðun í textaboxi á Instagram því við gætum þurft á ykkar hjálp að halda. Við elskum ykkur öll með tölu.

Margt leynist í loftinu 17.08.2025

Hér fáiði sunnudagsþáttinn sem þið hafið svo lengi beðið eftir. Þemað liggur í loftinu, hvort sem það er tengt hræðslu eða geimskipi. Verið góð hvort við annað og munið; Við elskum ykkur öll.

Augnablik í svartholi 11.08.2025

Kæru vinir. Enn einn mánudagsþáttuinn. Við afsökum þetta auðvitað og færum ykkur rosalegan þátt að launum. Ekki fara í fýlu út í okkur <3.

Þjóðhátíðarfarsi 01.08.2025

Það er komið að verslunarmannahelgi kæru vinir! Að sjálfsögðu verða Ólafssynir á sínum stað í Vestmannaeyjum og við vonumst til að hitta þig!

Djúpríki 28.07.2025

Ólafssynir mæta í stúdíó þriðja mánudaginn í röð. Við lofum að gefa út næsta þátt fyrr. Elskum ykkur öll.

Móðuharðindi & Butterfly effect 21.07.2025

Gleðilegan mánudag kæru Undralendingar. Hér fáiði einn af gamla skólanum. Takk fyrir að hlusta á okkur.

Bakveikir Ólafssynir 14.07.2025

Kæru vinir, sorry hvað við erum seinir á ferðinni þessa vikuna. Við erum bakveikir.

Er erfitt að vera Aronmola? (ft. Ploder, Joey Christ & Teboðið) 04.07.2025

Þessi þáttur er eiginlega eintóm sýra frá a-ö. Meiri föstudagsþáttur en sunnudags, svo afhverju þá ekki að gefa hann út á föstudegi? Vonum að þið hlustið til enda. Elskum ykkur öll.

Er þriðja heimsstyrjöld handan við hornið? 29.06.2025

Án þess að hljóma eitthvað sérstaklega svartsýnir þá er óneitanlega uppi sú staða að heimurinn er að sturlast. Ólafssynir velta vöngum yfir þessu og stöðu Íslands í allri þessari ringulreið eins og þeim einum er lagið. Athugið að þátturinn er tekinn upp fyrir viku síðan svo margt gæti hafa breyst. Elskum ykkur öll.

Er hægt að vera þynnri? 22.06.2025

Þynnka er eitthvað sem mannkynið hefur glímt við frá örófi alda. Ólafssynir líka. Eigið yndislegan sunnudag.

Við erum ekkert nema hormón 15.06.2025

Hormón er eitthvað merkilegasta fyrirbærið þarna úti og býður upp á fjöldan allan af kanínuholum. Ólafssynir féllu ofan í eina þeirra en eftir hlustun á þáttinn ættuð þið að vera sannfærð um að við lifum í sýndarveruleika.

Takið vítamínin ykkar 08.06.2025

Gleðilegan sunnudag kæru Undralendingar. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá vítamínum yfir í kynlíf. Ekki missa af Undralestinni þennan sunnudaginn kæru vinir.

Fan theories 01.06.2025

Hér fáiði nokkrar kanínuholur kæru hlustendur. Gleðilegan sunnudag!

Ye, gyðingar & einangrun mannskepnunnar 25.05.2025

Það var nóg á prjónunum hjá þeim Ólafssonum í þætti dagsins eins og venjulega. Verið góð hvort við annað.

San Fran Eurovision 17.05.2025

Hér fáiði þátt á laugardegi í tilefni af Eurovision kæru vinir. Njótið kvöldsins og munið að vera góð við hvort annað.

Kvíðacastið 11.05.2025

Já kæru vinir. Kvíðinn kemur og kvíðinn fer. Kvíðinn kemur aftan að manni þegar síst skyldi og hlífir engum. Þessi þáttur fjallar þó um alls konar og er mjög skemmtilegur. Fleira var það ekki. 

Hugsanalestur 04.05.2025

Nýverið kom upp sú hugmynd hvort einhverfir byggju yfir þeim hæfileikum að geta lesið hugsanir. Að sjálfsögðu er þetta kenning á þessu stigi en hvað vitum við? Getur verið að því einhverfari sem manneskja er því líklegri sé hún til að geta lesið hugsanir? Sjáum hvað setur.

Djúpar spurningar 27.04.2025

Í þætti dagsins förum við á dýpið og spyrjum okkur spurninga sem fæstir spyrja sig. Munið það þó, gott fólk, að við eigum öll okkar sannleik. Eigiði yndislega viku.

Krýsuvík vaknar (Fall íslenskrar siðmenningar) 20.04.2025

Hélduði að við værum hættir með dómsdagsspár? Aldeilis ekki. Það vill svo til að Krýsuvíkureldstöðin hefur legið í dvala í um 900 ár og gárungar tala nú um að hún sé komin á tíma. Hvað það mun þýða fyrir borgarbúa er erfitt að segja en í þættinum gera Ólafssynir sitt besta í sviðsmyndagreiningu á þessum ógnvænlega atburði.

Höre den Podcast Ólafssynir í Undralandi in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet