Útvarp 101
Ólafssynir í Undralandi
Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Litlir Ólafssynir tala um gervigreind 23.04.2023 1:01:52
Ólafssynir voru nokkuð litlir í sér í þætti dagsins, þar sem umfjöllunarefnið var gervigreind. Hún mun taka yfir fyrr en ykkur grunar.
Testósterón (ó) 16.04.2023 1:05:24
Þessi þáttur þarf líklega að innihalda TRIGGER WARNING, því það má ekki tala um neitt lengur. Hér ræðum við um stera, hormón, lyfjadóp, aðgerðir, kyn og allan andskotann. Mikið af sögum og mikið hlegið. Við vonum að þið eigið yndislegan sunnudag.
Afmælisþáttur Undralandsins 09.04.2023 1:00:08
Við erum hræddir um það, kæru hlustendur. Ólafssynir eiga eins árs afmæli og það á páskadag. Í tilefni af því rifjuðum við upp gamlar klippur að ósk hlustenda og ræddum þá nú þegar ár er liðið. Við erum þakklátir fyrir hvert eitt og einasta ykkar þarna úti sem leggið við hlustir vikulega og við getum ekki beðið eftir því að vera áfram með ykkur. Takk fyrir okkur og eigið yndislegan páskadag!
Vopn (ó) 02.04.2023 45:47
Þáttur dagsins er í styttra lagi enda tekinn upp eftir miðnætti og Ólafssynir í galsa. Það stoppaði þá þó ekki í að ræða óundirbúið orð dagsins sem var "vopn". Vopn hafa fylgt mannskeppnunni frá örófi alda enda erum við ofbeldisfullasta dýr jarðar. Hvernig væri bara ef við myndum öll sameinast á þessum heimska steini sem við búum á í miðjum alheimi og elska hvort annað? Góða hlustun.
London special X Egill Ploder 25.03.2023 1:21:32
Strákarnir eru staddir í London ásamt Agli Ploder sem gestastýrir með okkur þættinum. Orðin þurfa ekki að verða fleiri. Góða hlustun.
Bardagaíþróttir (ó) 19.03.2023 1:08:21
Í þessum þætti fara Ólafssynir yfir bardagaíþróttir ásamt slagsmálasögum. Svo rífast þeir í lokin. Gleðilegan sunnudag.
Fegurðin felst í óendanleikanum 14.03.2023 59:53
Þið afsakið það kæru hlustendur hve seint þátturinn kemur en svona er stundum lífið. Í dag ræðum við óendanleikan sem er ekki auðveldasta viðfangsefnið enda er talað um að allt taki enda. Eða hvað?
Illuminati (ó) 05.03.2023 1:01:44
Eins og í mörgum öðrum óundirbúnum þáttum fara þeir Arnar og Aron um víðan völl í þætti dagsins. Orðið er Illuminati en mikil leynd hvílir yfir þessu fyrirbæri sem á rætur að rekja margar aldir aftur í tímann. Hlustið og þið munuð eflaust vera einhverju fróðari.
Tóngreindir Ólafssynir 26.02.2023 50:28
Já það vill svo til að Ólafssynir eiga sér feril í tónlist sem ekki hefur öll komist í kastljósið en í þessum þætti fara þeir yfir tónlistaferlinn, syngja, radda og tralla. Þátturinn átti að vera um eitthvað allt annað, en stundum er gott að stíga út úr kassanum og leyfa þessu að flæða. Góðar stundir.
Uppvakningar (ó) 19.02.2023 56:53
Í þessum þætti ræða þeir Arnar og Aron hvernig þeir myndu bregðast við zombie apocalypse. Þeir fara í hvern krók og kima í viðbragðsáætlunum sínum og velta því fyrir sér hvernig örlög heimsins yrðu ef mannkynið þyrfti að heyja baráttu við uppvakningarnar. Við höfum sagt það áður en höfum aldrei meinað það eins og nú; ÞIÐ MEGIÐ EKKI LÁTA ÞENNAN ÞÁTT FRAMHJÁ YKKUR FARA!
Stórar tölur 12.02.2023 59:47
Stórar tölur eru hluti af þessum heimi þó að llitli helvítis heilinn okkar nái ekki alltaf utan um þær. Við gerum okkar besta hér í dag við að reyna að fara yfir talnarófið en því fylgja kanínuholur sem ekki var hægt að líta framhjá.
Samsæri (ó) 05.02.2023 1:00:55
Þáttur dagsins einkennist af miklum hlátri og bjánalegum samsæriskenningum.
Q&A 29.01.2023 1:03:51
Í dag voru Ólafssynir spurðir spjörunum úr.
Útrýming (ó) 22.01.2023 55:11
Þáttur dagsins býður upp á allan pakkann. Rifrildi, rökræður, dómsdagsspá, djúpar pælingar, dónatal frá Aroni og margt fleira. Orðin "Þú mátt ekki láta þennan þátt fram hjá þér fara" hafa aldrei átt betur við heldur en nú.
Þátturinn um ekkert 15.01.2023 1:00:27
Þáttur dagsins er um ekkert. Ég er ekkert. Þú ert ekkert. Við erum öll ekkert. Alheimurinn er ekkert.
Fyrirmynd (ó) 08.01.2023 52:32
Þessi þáttur er af óundirbúnum toga en þökk sé heitum umræðum um Idolið þá kemur orð þáttarins óvenju seint inn í þættinum. Orðið er "Fyrirmynd", en eins og við flest þá eiga Arnar og Aron sér einhverjar fyrirmyndir. Við förum á persónulegu nóturnar í dag ásamt allskyns öðru rugli. Gleðilegan sunnudag.
Fyrsti hlaðvarpsþáttur á Íslandi 2023 01.01.2023 54:57
Já kæru Undralendingar, það eru allar líkur á því að þetta sé fyrsti útgefni hlaðvarpsþátturinn á Íslandi árið 2023. Í tilefni þess bjóðum við upp á alls kyns umræður, allt frá Gísla Pálma og ABBA, upp í það þegar Aron stóð frami fyrir dauðanum á gamlárskvöld. Við þökkum ykkur kærlega fyrir árið 2022 og lofum ykkur stórum hlutum á nýju ári.
Hátíðarþáttur Ólafssona 25.12.2022 1:02:48
Í þessum sérstaka hátíðarþætti förum við yfir fróðleiksmola um hvernig jól voru hér á árum áður en það vill svo til að jól hafa verið haldin hér á landi í fleiri hundruð ár. Einnig gerumst við persónulegir og segjum sögur af okkar hátíðarhöldum fyrri ár og svo að lokum gerum við upp fyrsta ár Undralandsins. Þáttur sem þú vilt ekki missa af kæri hlustandi.
Jóla-nostalgía 18.12.2022 1:02:38
Nú þegar að hátíð ljóss og friðar er við það að ganga í garð, fannst okkur Jólafssonum tilvalið að rifja upp gamlar minningar frá jólunum.
Sköpunargáfa deyr 11.12.2022 1:02:38
Gervigreind hefur verið á allra vörum um þessar mundir en varla hefur það farið framhjá nokkrum að nú þykir heitt að pósta gervigreindar teiknuðum myndum inn á samfélagsmiðla sína. Sá gjörningur er þó aðeins brotabrot af því sem gervigreindin er fær um. En hvað verður um sköpun og list þegar gervigreind er farin að sjá um það fyrir okkur? Á sköpunargáfan einhvern séns? Við komumst kannski ekki að...
Vinna (ó) 04.12.2022 1:06:37
Vinnan göfgar manninn sagði einver. Hvort hún hafi göfgað þá Aron og Arnar er alls óvíst en það hefur kennt ýmisa grasa þegar kemur að vinnumálum þeirra félaga. Þátturinn fjallar þó að mestu leiti um starfsferil Arons og vinnu hans fyrir McDonalds. Missið ekki af.
Alheimur 101 ásamt Stjörnu-Sævari 27.11.2022 1:46:54
Þá er það þátturinn sem við höfum beðið eftir alltof lengi. Sævar Helgi Bragason, oft kallaður Stjörnu-Sævar kíkir til okkar og skólar okkur til í alheimsfræðum.
Upphafið (ó) 20.11.2022 1:06:59
Í dag ræðum við upphafið. En hvað er upphafið? Upphafið að framtíð mannkyns? Upphaf alheims? Upphaf nýrra gilda? Við ræðum mismunandi upphöf í þætti sem er stútfullur af kanínuholum.
Týnda kynslóðin 13.11.2022 1:00:46
ATHUGIÐ að þessi þáttur á að vera klukktími en ekki 49 mínútur. Link á heilan þátt hér:https://podtail.com/podcast/olafssynir-i-undralandi/tynda-kynslo-in/Hér má heyra líklega eina dýpstu kanínuholu sem við höfum dottið ofan í. Líklega vorum við ekki að leysa neinar ráðgátur í þessum þætti... en hver veit?
Meðvirkni (ó) 06.11.2022 49:47
Meðvirkni er róf. Takið það með ykkur inn í vikuna. Takið líka kvittun.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.