Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

Comedy IS ↓ 181 episodes

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

Author

Útvarp 101

Category

Comedy

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Dec 14, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Tímaflakk 08.10.2023

Já kæru hlustendur - í þætti dagsins ræða þeir Ólafssynir um allt og ekkert en þó aðallega um tímaflakk. Leggið vel við hlustir.

Kynfræðsla barna, transmálefni, kynjaumræður & BDSM hneigð ásamt Indíönu Rós kynfræðing - Seinni hluti 30.09.2023

Þá er loksins komið að því! Seinni hlutinn af þættinum með Indíönu kynfræðing. Það er óhætt að segja að hér séu hitamálin rædd. Góðar stundir.

Afmælisþátturinn hans Arnars 24.09.2023

Í dag er Arnar þrítugur og í tilefni af því fékk hann sinn eigin þátt. Tékkiði svo á @auratal.is á instagram og Tiktok og gefið Arnari follow í afmælisgjöf.

Kynfræðsla barna, transmálefni, kynjaumræður & BDSM hneigð ásamt Indíönu Rós kynfræðing - Fyrri hluti 17.09.2023

ATH. Að þetta er fyrri hluti af viðtalinu. Seinni hlutinn (lengri) er væntanlegur 1.október. Í ljósi hitamáls í samfélaginu hvað varðar kynfræðslu barna ákváðum við að fá til okkar kynfræðinginn Indíönu Rós til að skóla okkur til í þessum málum. Viðtalið fór út í talsvert fleiri málefni þó sem öll eiga það sameiginlegt að vera hitamál. Einhver málefni í titli þáttarins eiga ekki við í þessum þætti...

Er lífið raunverulegt? 10.09.2023

Þetta er ein af þessum stóru spurningum sem við munum líklega aldrei ná að komast að. Það er þó gaman að velta henni fyrir sér og það gera þeir svo sannarlega Aron og Arnar í þætti dagsins. Missið ekki af þessum. Gleðilegan sunnudag!

Pýramídar 03.09.2023

Já kæru hlustendur. Við komum léttir inn á sunnudegi og ræðum pýramída og fleira til.

Rútína er lykill að hamingju 27.08.2023

Þessi þáttur er helgaður öllum rútínulausu Undralendingunum þarna úti. Komið ykkur í rútínu. Fleira var það ekki. Eigiði yndislega viku.

Uppeldi og Dópamín 20.08.2023

Já kæru hlustendur, í þætti dagsins fara þeir Ólafssynir um víðan völl, allt frá uppeldi yfir í dópamín og hvað lífið er mikið helvíti. Raunsæið er raunverulegt. 

Mataræði og Clownself 13.08.2023

Kjafturinn á þeim Ólafssonum stoppaði ekki í þætti dagsins þar sem aðal umræðuefnið var mataræði. Svo í lokin kom svo umræða um Clownself og hvort miðaldra hvítir karlmenn eins og þeir myndu einhvern tíman skilja öll þessi kyn sem eru orðin til.

Þátturinn hans Arons 06.08.2023

Aron var á tökkunum í þætti dagsins og umræðuefni dagsins átti að vera líkur, en snérist út í djamm o.fl. Góðar stundir og gleðilega Verslunarmannahelgi!

Geimverur í dalnum 30.07.2023

Það var létt yfir þeim Ólafssonum í þætti dagsins en það er orðið ljóst að þeir eru því miður ekki á leið til eyja. Það stoppaði þá þó ekki að ræða eyjuna fögru sem þeir sakna svo sárt. Einnig koma allskonar pælingar fyrir um geimverumálið sem herjar á heiminn nú um þessar mundir og alls konar útúrdúrar eins og venjulega. Verið góð við hvort annað og munið bara að ekkert skiptir máli.

Raðmorðingjar 23.07.2023

Í þætti dagsins ræða Ólafssynir raðmorðingja. Þeir komust að þeirri niðurstöðu skv. tölfræði í Bandaríkjunum ættu a.m.k tveir raðmorðingjar að vera búsettir á Íslandi. Verið vakandi fyrir því gott fólk.

Eigum við ekki að bulla bara eitthvað? 16.07.2023

Kæru Undralendingar, þáttur dagsins er allskonar eins og við. Gleðilegan sunnudag.

Bergþór Skoðanabróðir í Undralandi 09.07.2023

Hann kíkti til okkar hann Bergþór Másson sem heldur úti hlaðvarpinu Skoðanabræður ásamt bróður sínum Snorra Mássyni. Það var alveg kominn tími á að víkka aðeins sjóndeildarhring Ólafssona og það var nákvæmlega það sem Bergþór gerði í þessu stórkostlega spjalli. Ef þú hefur gaman af kanínuholum, þá er þetta eini þátturinn sem þú þarft að hlusta á þessa vikuna. Góðar stundir, kæru Undralendingar!

Hvor Ólafssonur er líklegri? pt.2 02.07.2023

Já kæru hlustendur, þið báðuð um það! Partur 2 af hvor er líklegri er lentur. Við duttum þó ofan í eina góða Titanic holu fyrrihluta þáttar sem spratt upp frá kafbátinum sem fórst nýverið. Líf og fjör!

Hvor Ólafssonur er líklegri? 25.06.2023

Í þessum þætti veltu strákarnir fyrir sér hvor er líklegri að gera allskonar hluti sem hlustendur sendu inn. En þar sem við förum aðeins inn á ábyrgð þáttarins í þættinum og Arnar segist vera með of mikið á sínum snærum um þessar mundir og bara allmennt í lífinu. Því er mikill heiður að tilkynna ykkur kæru hlustendur að þessi þáttur er klippur og hlaðaður upp af 2ja barna föðurnum Aronmola og í ti...

Ólafssynir íhuga OnlyFans 18.06.2023

Þáttur dagsins er algjört rugl. Þið munuð líklega ekki læra neitt nýtt við hlustun í dag. Góðar stundir.

Heimur í nýju ljósi 11.06.2023

Já við lifum á tímamótum þessa stundina þar sem gervigreind og sýndarveruleiki eru á barmi þess að gera okkur að þrælum. Hvernig mun þetta enda?

Leiddu mig í ljósið 04.06.2023

Aron fékk að stýra þættinum í dag. Hann fékk einnig að velja nafnið á þættinum sem tengist umræðum þáttarins ekki á nokkurn hátt. Góðar stundir.

Hvað er líf? 28.05.2023

Já þið afsakið kæru hlustendur hve stuttur þáttur vikunnar er að þessu sinni. Það er mikið að gera en við lofum svo sannarlega lengri þætti næst. Í dag tölum við um lífið.

Brandarar (ó) 21.05.2023

Brandarar eiga að vera fyndnir. Ekki allir samt. Við sjáum hvað setur í þætti dagsins. Elskum ykkur öll.

EUROVISION 2023 12.05.2023

Já kæru hlustendur, hér fáiði þátt á föstudegi sem er litaður Eurovision stemmingu. Eigið yndislega Eurohelgi!

Er 5.Iðnbyltingin hafin? 07.05.2023

Þáttur dagsins fjallar um iðnbyltingar. Við vitum þannig séð ekkert um iðnbyltingar, en það er gaman að velta því fyrir sér endrum og sinnum hvernig við komumst á þann stað sem við erum á í dag. Annars er nóg framundan hjá okkur Ólafssonum, eins og Eurovision PubQuiz og Bíósýning ásamt mini Live show á norrænu kvikmyndahátíðinni Hygge! Sjá linka fyrir neðan! Bíómynd og Live show: https://bio.smara...

Frumskógur (ó) 30.04.2023

Þáttur dagsins er óundirbúinn og það má eiginlega segja að hann sé beint framhald af aukaþættinum okkar sem kom út á miðvikudaginn en í þættinum fara þeir yfir það hvernig þeir myndu bera sig að ef þeir myndu týnast í Amazon frumskóginum. Hlustun er sögu ríkari en þið vonandi afsakið soratalið á Aroni í dag sem var einstaklega svæsið.

Ólafssynir á ferð og flugi I (Aukaþáttur) 26.04.2023

Hér er aukaþáttur, bara fyrir ykkur kæru hlustendur og enga aðra! Við vorum bókstaflega bæði á ferð og flugi við upptöku þessar þáttar, en um síðastliðna helgi fórum við til Akureyrar og gerðum okkur glaðan dag. 

Listen to the Ólafssynir í Undralandi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.