HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

Health IS ↓ 167 episodes

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Author

HeilsuErla

Category

Health

Podcast website

www.heilsuerla.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

34. Hvað er heilaheilsa? Höfuðhögg, heilahristingur og hugrænt þrot. Ólína G. Viðarsdóttir 23.02.2024

Þátturinn er gerður í samstarfi við Bandvefslosun. Bandvefslosun býður upp á lokuð námskeið, kennaranámskeið, einkatíma og dásamlega nuddbolta í mörgum stærðum og gerðum. Fylgið Bandvefslosun á Instagram fyrir hvatningu og frekari upplýsingar. Í þættinum ræðir Erla við Ólínu G. Viðarsdóttur, sálfærðing, doktor í líf- og læknavísindum og fyrrverandi atvinnukonu í knattspyrnu um heilaheilsu, höfuðhö...

33. Ofurkona í orlofi. (Sjúkdómurinn offita, efnaskiptaaðgerðir og valdefling kvenna). Bjargey Ingólfsdóttir 16.02.2024

Í þættinum ræðir Erla við Bjargeyju Ingólfsdóttur um ofurkonuhlutverkið, sjúkdóminn offitu, efnaskiptaaðgerðir, valdeflingu kvenna, cranio, heilsumissi, lífsorku og fleira.  Bjargey heldur úti hlaðvarpinu Ofurkona í orlofi og hefur óbilandi áhuga á heilsu. Hún missti sjálf heilsuna fyrir mörgum árum og þurfti að finna leiðir til þess að fá hana til baka. Hún byrjaði að hugleiða og hefur það hjálpa...

Langar þig að bæta heilsuna en veist ekki hvar þú átt að byrja? Þjónusta í boði. (Heilsumoli 8) 14.02.2024

Langar þig að bæta heilsuna en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja eða vantar þig bara smá spark í rassinn til þess að komast af stað í átt að betri heilsu? Þá er heilsumarkþjálfun eitthvað fyrir þig. HeilsuErla býður upp á einkatíma, fyrirlestra&ráðgjöf á vinnustöðum og skemmtilega vinnustofu. Heilsumarkþjálfun- einkatími Markmiðasetning- heilsan í fyrsta sæti.  60 mínútna tími þar sem við...

32. Að umturna vinnubrjálæði í innri ró. (Orkustjórnun, áföll, innri vinna, hjónabandsráðgjöf, hugvíkkandi efni og að finna jafnvægi). Björgvin Franz Gíslason og Berglind Ólafsdóttir 02.02.2024

Í þessum skemmtilega þætti ræðir Erla við hjónin Björgvin Franz og Berglindi um vinnubrjálæði, orkustjórnun, áföll, innri vinnu, hjónabandsráðgjöf, þriðju vaktina, hugvíkkandi efni og hvernig ,,tól" eins og núvitund, hugleiðsla, húmor, tónheilun og jóga ,,groundar” okkur og hjálpar okkur að finna jafnvægi. VARÚÐ! Mikil hlátrasköll inn á milli. ;) Viðtalið er blanda að gleði og alvarleika eins...

31. Gríptu þig núna. (Krabbamein, þakklæti, streita, þreyta, kvíði og áhrif áfalla og veikinda á ónæmiskerfið og andlegu hliðina). Kristín Berta Sigurðardóttir 26.01.2024

Í þættinum ræðir Erla við Kristínu Bertu Sigurðardóttur heilsunuddara um þakklæti, félagslega heilsu, streitu, þreytu, kvíða, krabbamein, áhrif áfalla á ónæmiskerfið og áhrif veikinda á andlegu hliðina.  Í miðjum covid faraldri greindist Kristín Berta með brjóstakrabbamein og þurfti að hægja verulega á eftir að hafa verið á hamstrahjólinu í áratugi, eins og hún orðar það. Hún tók þó fljótlega ákvö...

30. Baráttan milli góðs og ills. (Þarmaflóran, hormónaraskandi efni, gervimatur, sætuefni og sjálfsást). Kristín Linda Kaldal 19.01.2024

Í þættinum ræðir Erla við Kristínu Lindu Kaldal, heilsumarkþjálfa og viðskiptafræðing um þarmaflóruna, hormónaraskandi efni, gervimat, sætuefni, heilbrigða lifnaðarhætti, sjálfsást og fleira.  Fyrir 16 árum stóð Kristín uppi atvinnulaus, allt of þung og heilsulítil. Hún segist hafa verið manneskjan sem reykti, drakk pepsí max, borðaði Gordon Bleu og var bara ekkert að spá í þetta en klessti svo á...

29. Getum við lært að þekkja og skilja okkur sjálf betur með aðstoð stjörnuspeki? Gísli Gunnarsson 12.01.2024

Í þættinum ræðir Erla við Gísla Gunnarsson, stjörnuspeking um það hvernig stjörnuspeki getur verið tækifæri og verkfæri til þess að kynnast sjálfum sér til vaxtar.  Gísli segir stjörnuspeki snúast um sjálfsþekkingu og vera frábært verkfæri til þess að gera okkur ljóst hvernig við erum frábrugðin öðrum og hvernig við erum sérstök. Stjörnuspeki getur aukið meðvitund á tilfinningalífinu, hvernig þú e...

Hvers vegna getur verið gott að setja sér markmið? (Heilsumoli 7) 07.01.2024

Í heilsumola dagsins fer Erla yfir hvernig við setjum okkur góð markmið og spjallar við Stein Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð um markmiðasetningu og hvernig markmiðasetning getur nýst bæði í íþróttum og í lífinu almennt.  Af hverju getur verið gott að setja sér markmið? Til þess að vita hvert þú vilt stefna, þ.e. hvaða þætti heilsunnar þú vilt bæta er nauðsynlegt að setja sér markmið...

28. Með röddina að veði. (Raddvenjur, umhverfisáhrif, þekkingarleysi, talkerfið, hávaði í námsumhverfi barna og áhrif raddheilsu á lífsgæði). Valdís Ingibjörg Jónsdóttir 05.01.2024

Í þættinum ræðir Erla við Valdísi Ingibjörgu Jónsdóttur, 80 ára magnaða konu sem er doktor í talmeinafræðum um vini og óvini raddarinnar, raddvenjur, umhverfisáhrif, þekkingarleysi, talkerfið, hávaða í námsumhverfi barna, áhrif raddheilsu á lífsgæði og fleira.  Valdís Ingibjörg hefur unnið sem talmeinafræðingur í 50 ár. Hún er með mastersgráðu (M.Phil frá Strathclyde University; Glasgow 1996) og d...

27. Hvernig lifum við innihaldsríku og góðu lífi? (Tilfinningar, tilgangur, hamingja og gervigreind). Bergsveinn Ólafsson 29.12.2023

Þátturinn vikunnar er gerður í samstarfi við Spíruna . Spíran er fjölskylduvænn Bistro staður í Garðheimum þar sem þú færð heiðarlegan, hollan og góðan mat lagaðann af ást og alúð.  Fylgið Spírunni á Instagram. Í þættinum ræðir Erla við Bergsvein ÓIafsson , sem flestir þekkja sem Begga Ólafs um heilsu, innihaldsríkt líf, tilfinningar, tilgang, hamingju, gervigreind, hvernig við getum haft jákvæð á...

26. Hamingja, velsældarhagkerfi, lýðheilsa, eitruð jákvæðni og jákvæð sálfræði. Dr. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir. 22.12.2023

Þátturinn vikunnar er gerður í samstarfi við Spíruna . Spíran er fjölskylduvænn Bistro staður í Garðheimum þar sem þú færð heiðarlegan, hollan og góðan mat lagaðann af ást og alúð.  Fylgið Spírunni á Instagram. Í þættinum ræðir Erla við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur um hamingju, eitraða jákvæðni, velsældarhagkerfi, lýðheilsu og jákvæða sálfræði. Þær ræða hvað það er mikilvægt að hafa hugrekki til þe...

Jólaheilsa - Njóttu hátíðanna án matviskubits. (Heilsumoli 6) 19.12.2023

Á þessum árstíma er oft mun meira af freistingum í kringum okkur, konfekt, smákökur og alls kyns gotterí og þá er einfaldlega líklegra að við borðum meira af því en áður. Þá er bara að vera meðvitaður um það en ekki að banna sér allt! Njóttu hátíðanna! Þetta snýst ekki um hvað þú borðar milli jóla og nýárs heldur hvað þú borðar milli nýárs og næstu jóla. Þetta snýst um stöðugleika og að borða yfir...

25. Að vera nóg. (Foreldrakulnun, meðvirkni og að setja mörk). Anna Claessen 15.12.2023

Í þættinum ræðir Erla við Önnu Claessen um foreldrakulnun, taugakerfið, meðvirkni, að setja mörk, hvað það er að vera nóg eða gera nóg og hvernig við getum minnkað áreiti og streitu. Anna Claessen er alþjóðlega vottaður markþjálfi og einkaþjálfari á daginn og kennir dans og skemmtir með Happy Studio á kvöldin. Hún er með heimasíðuna www.annaclaessen.com þar sem hún býður upp á kulnunarnámskeið og...

24. Lífið er fallegt. (Barátta við fíkn, samskipti, sjálfstal, þrautsegja og sjálfsvinna). Davíð Tómas Tómasson 08.12.2023

Í þættinum ræðir Erla við Davíð Tómas Tómasson, aka Dabba T, einn fremsta körfuknattleiksdómara landsins, fyrrum bootcamp þjálfara, tónlistarmann og fyrirlesara um samskipti, sjálfstal, þrautsegju, erfiða æsku, sjálfsvinnu og hvernig hann hefur alla ævi verið að vinna að því að fylla ,,tóm" innra með sér. Davíð er þekktur fyrir það að fara ,,all-in" í það sem hann tekur sér fyrir hendur...

Hugleiðsla- ferðalag um líkamann. (Heilsumoli 5) 03.12.2023

Notaleg 15 mínútna leidd hugleiðsla.  Þessi hugleiðsla gengur meðal annars út á það að beina athygli að líkamshlutum í ákveðinni röð og meðvitað slaka á þeim. Við slíka tilfærslu á athygli innan líkamans eykst skynjun iðkandans og hann nær djúpri slökun en markmið er að halda meðvitundinn vakandi.  Komdu þér þægilega fyrir í liggjandi stöðu og njóttu þess að slaka á og fara í ferðalag um líkamann....

23. Glaðari þú. (Sjóböð, kuldaþjálfun, föstur, blóðsykur, homopatía, sjáfsmildi og tarot). Guðrún Tinna Thorlacius og Margrét Leifsdóttir 01.12.2023

Gestir þáttarins eru þær stöllur og vinkonur Margrét Leifsdóttir arkítekt og heilsumarkþjálfi og Guðrún Tinna Thorlacius þroskaþjálfi, markþjálfi, homopati og fleira. Þær fara um víðan völl í þessu áhugaverða spjalli og ræða meðal annars um ávinning sjóbaða, kuldaþjálfun, föstur, blóðsykur, homopatíu, sjáfsmildi, tarot og mikilvægi góðrar heilsu.  Sjóðbaðsleikjanámskeiðin þeirra Glaðari þú eru gíf...

Hvað er prófkvíði og hvað er til ráða? Sólrún Ósk Lárusdóttir. (Heilsumoli 4) 26.11.2023

Í þessum heilsumola ræðir Erla við Sólrúnu Ósk Lárusdóttur, sálfræðing um prófkvíða, afhverju hann stafar og hvað er hægt að gera til þess að minnka áhrif hans á okkur.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

22. Gleym þér ei. (Alzheimer frá sjónarhorni aðstandenda og hvernig sjúkdómurinn tekur oft toll af heilsu umönnunaraðlila, líkamlega, andlega og félagslega.) Ragna Þóra Ragnarsdóttir 24.11.2023

Í þættinum ræðir Erla við Rögnu Þóru Ragnarsdóttur, eiginkonu Guðlaugs Níelssonar eða Gulla eins og hann er ávallt kallaður. Gulli sem er 67 ára gamall greindist með Alzheimer fyrir tæpum 6 árum síðan og sjúkdómurinn er nú kominn á það stig að suma daga nær Ragna ekki augnsambandi við hann, aðra daga í sekúndu og sekúndu og einstaka sinnum fær hún bros. Brosin hans eru samt orðin mjög takmörkuð au...

21. Að lifa tilgangsríku lífi. (Prestsstarfið, samkennd, hjónabandið og lýðheilsa.) Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir 17.11.2023

Í þættinum ræðir Erla við hjónin Bjarna Karlsson og Jónu Hrönn Bolladóttur um lífið, preststarfið, hegðun, mótbyr og meðbyr í trú á Íslandi, samkennd, hörmungarnar í Grindavík, hjónabandið, lýðheilsu og margt fleira. Bjarni og Jóna Hrönn eru bæði prestar og leiðir þeirra lágu saman í guðfræðideildinni í Háskóla Íslands fyrir nokkrum áratugum. Jóna Hrönn hefur starfað sem prestur í 40 ár og er nú s...

20. Riddari hringavitleysunnar. (Barátta við geðhvörf, geðrof, sáraristilbólgur og krabbamein.) Ágúst Kristján Steinarsson 10.11.2023

Í þættinum ræðir Erla við Ágúst Kristján Steinarsson stjórnendaráðgjafa, rithöfund, tónlistarmann og fyrirlesara um magnaða lífsreynslu hans og baráttu við geðhvörf, geðrof, sáraristilbólgur og krabbamein. Fyrir um tíu árum síðan gekk Ágúst Kristján í gegnum sína alvarlegustu maníu þar sem hann endaði nakinn á torgi í  Kaupmannahöfn. Eftir 14 ára rússíbanareið með síendurteknum spítalavistum og fl...

19. Hvernig hámörkum við líkamlega heilsu? (Foreldrahlutverkið, áhrif svefns, hreyfingar, mataræðis, öndunar ofl.) Evert Vígundsson og Þuríður Guðmundsdóttir (Rúrý kíró) 03.11.2023

Þessi þáttur er í boði UNBROKEN  Í þessu einlæga spjalli ræðir Erla við hjónin Evert Víglundsson og Þuríði Guðmundsdóttur um foreldrahlutverkið, áhrif svefns, hreyfingar, mataræðis, öndunar og fleira á líkamlega heilsu okkar og hvernig heilsan er það síðasta sem við viljum missa og það fyrsta sem við viljum ná í aftur ef við ,,missum" hana.   Hlustendur fá að heyra um heilsuvenjur þeirra, hva...

18. Að hlusta á líkamann. (Heilbrigði, hreyfigeta, verkjalosun, hamingja og lífsgæði.) Margrét Arna Arnardóttir 27.10.2023

Í þessum áhugaverða þætti ræðir Erla við Margréti Örnu Arnardóttur, íþróttafræðing, jógakennara, heilara og meðferðaraðila um um jóga, heilun og bandvefslosun og hvað það er miklvægt að tengjast sjálfum sér og hlusta á innsæið og líkamann. Ástríða Margrétar Örnu er að hjálpa öðrum að finna sína eigin verðleika og gleði í lífinu þannig að hver einstaklingur geti orðið besta útgáfan af sjálfum sér....

17. Mikilvægasta ,,like-ið" er þitt eigið. (Seigla, þrautseigja, munur á milli kynslóða, kvíði og streita.) Anna Steinsen 20.10.2023

Í þessum bráðskemmtilega þætti ræðir Erla við Önnu Steinsen, fyrirlesara, stjórnendamarkþjálfa, heilsumarkþjálfa og jógakennara um heilsu, seiglu, þrautseigju, mun milli kynslóða, kvíða, streitu og margt fleira. Anna er mikill húmoristi og þeir sem þekkja Önnu vita að þar sem hún er, er aldrei leiðinlegt. Þið verðið ekki svikin af þessari hlustun. Anna er einn af stofnendum og eigendum Kvan og hef...

16. Svefn og heilsa. Hvers vegna er svefn mikilvægur fyrir góða heilsu? Dr. Erla Björnsdóttir 13.10.2023

Í þættinum ræðir Erla við Dr. Erlu Björnsdóttur sálfræðing og stofnanda Betri svefns um hvernig heilsa okkar hefur áhrif á svefn og hvað góður svefn getur haft gífurlega jákvæð áhrif á heilsu okkar. Þær nöfnur ræða um kæfisvefn, svefnlyfjanotkun, svefnvenjur ungmenna, neföndun á nóttunni, svefnstigin fjögur og hvernig þau skipta öll máli í heildarmyndinni og ýmislegt fleira er tengist svefni og he...

15. Afreksíþróttir, andlegur styrkur, árangur og heilsa. Ásdís Hjálmsdóttir 07.10.2023

Hlustendur hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum fá 20% afslátt af Under Armour og Mizuno vörum í Altis Bæjarhrauni, Altis.is og Under Armour verslun í Kringlunni út október 2023 með því að nota kóðann "heilsuerla" . Í þættinum ræðir Erla við Ásdísi Hjálmsdóttur, hugarfarsþjálfara, íþróttakonu og fyrrum afrekskonu í frjálsum íþróttum um afreksíþróttir og heilsu, hugarþjálfun og hvað getur haf...

Listen to the Með lífið í lúkunum podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.