Stefán Hrafn Hagalín
Landspítali hlaðvarp
Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala
Author
Stefán Hrafn Hagalín
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander 09.02.2026 41:47
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigð...
LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir 06.05.2025 1:26:24
“Ljósmæður líta um öxl” er syrpa sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta eftir starfslok. Gestur þáttarins er Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar brennandi áhuga á faginu en Anna hefur alltaf tekið nýjungum í starfi fagnandi, enda heyrum við sögur af bókaútgáfu og ráðgjafa-símalínu (sem stundu...
LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu 02.04.2025 1:21:50
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í ge...
Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur 01.11.2024 59:54
Í þessum þætti fræða lungnalæknarnir Sif Hansdóttir og Gunnar Guðmundsson hlustendur um lungnaháþrýsting. Þau Sif og Gunnar leiða okkur í sannleikann um mismunandi orsakir lungnaháþrýstings og lífeðlisfræðina þar að baki. Hvernig er best að greina sjúkdóminn og hvaða meðferð er í boði? Allt þetta og margt fleira í þætti dagsins. Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fól...
Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein 11.10.2024 1:05:18
Í þessum þætti munu Hrönn Harðardóttir lungnalæknir og Örvar Gunnarsson krabbameinslæknir fræða okkur um lungnakrabbamein. Lungnakrabbamein er með algengustu krabbameinum á Íslandi og það krabbamein sem veldur flestum dauðsföllum. Hrönn og Örvar fara yfir mismunandi gerðir lungnakrabbameins, helstu áhættuþætti, greiningaraðferðir, meðferðarmöguleika og þær hröðu framfarir sem hafa orðið á síðustu...
Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap. 04.10.2024 56:22
Það er komið að öðrum þætti af klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Í þessum þætti mun Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir, en nú sérfræðingur, kynna tilfelli sem við reynum að leysa í rauntíma. Leggið við hlustir! Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ar...
Dagáll læknanemans // Ofvirkur skjaldkirtiill með Örnu Guðmundsdóttur og Báru Dís Benediktsdóttur 28.08.2024 1:01:43
Í þessum þætti er ofvirkum skjaldkirtli (e. hyperhyrosis) gerð einkar góð skil. Hvenær á að gruna sjúkdóminn? Hvað er að finna við skoðun og hvernig er uppvinnslu háttað? Þá er farið bæði yfir fyrstu meðferð sem og langtímameðferð sjúkdómsins. Arna Guðmundsdóttir innkirtlalæknir og Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir en nú sérfræðingur í almennum lyflækningum, leiða hlustendur leikandi í ge...
Dagáll læknanemans // Lungnatrefjun (e. Pulmonary fibrosis) 16.08.2024 54:23
Hvað er lungnatrefjun og af hverju verður hún? Í þessum þætti svarar Gunnar Guðmundsson sérfræðilæknir í lungnalækningum þessum spurningum leikandi ásamt fjölmörgum öðrum. Ef millivefslungnasjúkdómar hafa vafist fyrir þér hingað til ættir þú klárlega að leggja við hlustir. Umsjón þáttar: Teitur Ari Theodórsson og Sólveig Bjarnadóttir.
LEGVARPIÐ // Áslaug Hauksdóttir 18.04.2024 59:26
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Áslaug Hauksdóttir, ljósmóðir, baráttukona og kvenskörungur með meiru. Áslaug segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endursp...
LEGVARPIÐ // Ljósmæður líta um öxl - Guðrún Bö og Magga Bjarna ljósmæður 25.03.2024 1:19:34
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáh...
Legvarp // Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir 17.01.2024 56:23
Legvörpur hefja árið á nýrri syrpu í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem talað verður við reynslubolta landsins Fyrst á svið er brosmilda hestakonan og Suðurnesjadrottningin Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á Ljósmæðravakt HSS spannar 47 ár og fer hún yfir hápunkta og skemmtilegar sögur í viðtali dag...
Tilfellaráðgáta á Læknadögum 2023 10.01.2024 51:59
Sem upphitun fyrir Læknadaga 2024 sem fara fram dagana 15. - 19. janúar, deilum við með ykkur upptöku af tilfellaráðgátu sem fram fór á Læknadögum í fyrra. Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, kynnir tilfellið í bútum og pallborð sérfræðinga greinir tilfellið. Pallborðið skipa þau; Hildur Jónsdóttir, sérfræðingur í almennum lyflækningum, Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir í alm...
LEGVARPIÐ // Þegar ljósmóðir eignast barn 30.10.2023 1:31:02
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni. Hún segir sína reynslusögu af því að ganga með og fæða barn sem ljósmóðir. Hvernig er það að upplifa þetta sjálf á eigin skinni eftir að hafa fylgt ótal konum í gegnum ferlið? Hvað kom á óv...
LEGVARPIÐ // Sitjandi fæðingar 06.06.2023 50:34
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og einstöku yfirvegun um sitjandi fæðingar og allskyns fróðleik sem tengist hinni sjaldgæfu sitjandi stöðu. Kamilla fræðir okkur um sérþekkingu sína og reynslu af “Upright breech” eða sitjandi fæði...
LEGVARPIÐ // Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir 06.06.2023 1:13:34
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af ljósmæðrastörfum með Amish fólki í Lancaster sýslu í Pennsylvania fylki Bandaríkjanna. Kristbjörg dregur upp mynd af lífi Amish fólksins sem einkennist af einfaldleika, sjálfbærni og nægjusemi, allt frá klæðarbur...
GEÐVARP // Steinunn Ingvadóttir og Hrönn Stefánsdóttir 22.03.2023 1:01:01
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína sem eru þær Steinunn Ingvarsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir. Steinunn Ingvarsdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2009. Árin eftir útskrift starfaði Steinunn m.a. á bráðamóttöku, hjartagátt og á krabbameinslækningadeild Landspítala. Steinunn fékk í starfi sínu sem aðstoðardeildarstjóri á Krabba...
Þunglyndi með Engilbert Sigurðssyni og Magnúsi Karli Magnússyni 23.11.2022 1:13:02
Engilbert Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í geðlækningum, fer yfir þunglyndi í víðum skilningi. Hvað er þunglyndi, hvaða boðefni í heilanum koma við sögu og hverjir eru megin þættir í meðferð. Við ræðum helstu flokka þunglyndislyfja sem eru notuð í dag og einnig nýjungar á borð við segulörvun og psilocybin. Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennns...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Öndunarbilun með Eric Contant, sérfræðingi í bráðalækningum 17.11.2022 46:04
Eric Contant, sérfræðingur í bráðalækningum, ræðir við okkur um bráða öndunarbilun (e. Respiratory failure). Hvernig er bráðveikur sjúklingur metinn? Hvaða súrefnisgjafaleiðir standa til boða og hvenær skal grípa til ytri öndunarvélar (e. Bipap, cpap)? Þá ræðir Eric við okkur um grunnstillingar ytri öndunarvéla og hvernig hægt sé að breyta þeim svari sjúklingur vélinni illa. "Dagáll læknanemans"...
GEÐVARPIÐ // Eydís og Manda ræða um geðhjúkrun 16.11.2022 49:46
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína um sögu og þróun geðhjúkrunar ásamt geðhjúkrun á Landspítala. Gestir þáttarins eru þær dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir og Manda Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri. Eydís er dósent við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Hún var lektor við deildina 1991-1994 og klínískur lektor 2011-2016. Hú...
Innöndunarlyf með Gunnari Guðmundssyni, lungnalækni 09.11.2022 53:44
Gunnar Guðmundsson sérfræðingur í lungnalækningum ræðir innúðalyf við astma og langvinnri lungnateppu. Grípið andann á lofti því mörgu er svarað - Hvaða eru berkjuvíkkandi lyf? Hvernig gagnast innúðasterar? Hvernig á að innleiða meðferð og hver er tröppugangurinn þegar kemur að því að auka meðferð? Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í...
Klínísk rökleiðsla - 68 ára ferðamaður með skyndilegt rugl og máttleysi 02.11.2022 1:00:02
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er 4. og síðasti þátturinn í sérstakri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. H...
Klínísk rökleiðsla - 62 ára með kviðverk 27.10.2022 59:53
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer 3 í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Munum gefa miða á þingið! Meiri upplýsingar með því að hlusta á þáttinn. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og ef...
Klínísk rökleiðsla - 55 ára með gikkfingur, krónískan niðurgang og brjóstverk 19.10.2022 50:27
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer 2 í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Munum gefa miða á þingið! Meiri upplýsingar með því að hlusta á þáttinn. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og ef...
LEGVARPIÐ // Edythe Mangindin ljósmóðir 13.10.2022 1:00:32
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þætti ræða þær við Edythe Mangindin ljósmóður um upplifun erlendra kvenna sem fæða börn hér á landi. Edythe er fædd og uppalin í San Francisco í Kaliforníu en foreldrar hennar komu upphaflega frá...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Klínísk rökleiðsla - 49 ára með svima, slappleika og mæði 12.10.2022 1:10:33
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er sá fyrsti í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022 Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þanni...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.