Stefán Hrafn Hagalín
Landspítali hlaðvarp
Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala
Author
Stefán Hrafn Hagalín
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Æðavirk lyf (e. pressorr) með Martin Inga og Magnúsi Karli 29.09.2022 50:41
Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum fer yfir æðavirk lyf. Hvað eru æðavirk lyf, hvernig virka þau og hvernig beitum við þeim? Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári og svæfinga- og gjörgæslulækningum á 6. ári. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingu...
GEÐVARPIÐ // Nína Eck - jafningi á geðsviði 23.09.2022 59:00
Nína Eck er Jafningi á Geðsviði. Hún hóf störf á Laugarásnum í desember 2021 en hefur unnið á Kleppi og Hringbraut í sumar. Nína hefur reynslu af geðrænum áskorunum og mörgu sem þeim fylgdi en var útskrifuð úr DAM-teyminu árið 2020. Nú er hún í starfsréttindanámi í félagsráðgjöf og vinnur hart að því að þróa jafningjastarfið og kynna það fyrir öllum sem vilja hlusta.
GEÐVARPIÐ // Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur 23.06.2022 50:26
Arndís Vilhjálmsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur og lauk B.Sc prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 2009 og meistaragráðu frá Háskólanum á Akureyri 2020. Arndís starfaði lengi á geðþjónustu Landspítala, fyrst á fíknigeðdeild og síðan í samfélagsteymi. Núna starfar Arndís í geðheilsuteymi fangelsa og situr í stjórn Fagdeilda geðhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún hefur fyrst og f...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Steinunn Þórðardóttir: Heilabilun 27.05.2022 1:06:50
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Að þessu sinni er gestur þáttarins Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunarlækningum og formaður Læknafélags Íslands. Steinunn ræðir heilabilun með áherslu á Alzheimer sjúkdóm. Hvermig metum við vitræna getu o...
LEGVARPIÐ - Hulda Þórey Garðarsdóttir ljósmóðir 28.04.2022 1:25:23
Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirdóttir ræða við Huldu Þórey Garðarsdóttur um ljósmæðrastörf hennar í Hong Kong en þar búa yfir 7 milljónir á svæði sem er á stærð við höfuðborgarsvæðið.
GEÐVARPIÐ - Margrét Eiríksdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun 27.04.2022 1:19:23
„Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum áttunda þætti fá gestaspyrlar þær Sandra Sif Gunnarsdóttir, starfandi deildarstjóri á Laugarás og Rannveig Þöll Þórsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun til sín Margréti Eiríksdóttur sérfræðing í geðhjúkrun. Margrét hefur yfir fjörutíu ára starfsreyn...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Klínísk rökleiðsla: Dularfulla bráðamóttökutilfellið 07.04.2022 1:02:12
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þetta er annar þátturinn í undirsyrpu Dagáls læknanemans um klíníska rökleiðslu. Hildur kynnir í nokkrum bútum tilfelli sem hún kynntist í sínu sérnámi í Bandaríkjunum og eftir hvern bút eru umræður. Sólveig, Teitur...
GEÐVARPIÐ // Rætt um geðhjúkrun við þrjá unga hjúkrunarfræðinga 16.02.2022 1:03:46
"Geðvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir . Að þessu sinni er Guðfinna Betty Hilmarsdóttir þáttarstjórnandi með Helgu Sif. Viðmælendur þeirra eru þær Rósa Björg Ómarsdóttir í transteymi BUGL, Magnea Herborg Magnúsardóttir á Laugarási meðferðargeðdeild og Ólöf Jóna Ævarsdóttir á móttökugeðdeild fíknime...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Klínísk rökleiðsla: Hinn mikli medisínski slappleiki 15.02.2022 1:05:29
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson . Í þessum þætti leiða þær Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum hlustendur gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Bergli...
LEGVARPIÐ // KRISTÍN RUT HARALDSDÓTTIR SÉRFRÆÐILJÓSMÓÐIR SEGIR FRÁ FÓSTURGREININGUM 07.01.2022 1:11:04
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir . Gestur þessa þáttar er Kristín Rut Haraldsdóttir , sérfræðiljósmóðir á fósturgreiningardeild Landspítala. Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningarþjónustu á norðurhjara veraldar á...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Ragnar Freyr Ingvarsson og Ólafur Orri Sturluson: Þvagsýrugigt 29.12.2021 1:06:49
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson . Í þessum ræða þeir Ragnar Freyr Ingvarsson gigtarlæknir og Ólafur Orri Sturluson sérnámslæknir í almennum lyflækningum um þvagsýrugigt. Af hverju fáum við þvagsýrugigt? Hvernig er hún greind? Hvaða meðferðarmögulei...
GEÐVARPIÐ // Rósa María Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun 28.12.2021 1:03:22
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Viðmælandi Helgu Sifjar að þessu sinni er Rósa María Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun og hjúkrunar- og teymisstjóri geðheilsusviðs Reykjalundar. Að loknu stúdentsprófi fór Rósa María í Hjúkrunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan í janúar 1982. Þa...
LEGVARPIÐ // SIGURVEIG ÓSK PÁLSDÓTTIR SEGIR FRÁ VATNSFÆÐINGUM 23.12.2021 1:16:07
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir . Gestur þessa þáttar er ljósmóðirin Sigurveig Ósk Pálsdóttir , betur þekkt sem Ósk. Ræðir hún við Legvörpur um vatnsfæðingar. Ósk tekur hlustendur með inn í draumkennt andrúmsloft vatnsfæðingarinnar þar se...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Bryndís Sigurðardóttir: Hjartaþelsbólga (endocarditis) 21.12.2021 1:20:40
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson . Í þessum þætti er fjallað um hjartaþelsbólgu eða endocarditis og viðmælandinn er Bryndís Sigurðardóttir , sérfræðingur í smitsjúkdómalækningum. Þarf alltaf að vélindaóma? Hversu oft á að blóðrækta? Þessum spurningu...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Sigurdís Haraldsdóttir: Nýjungar í krabbameinslyfjameðferð 26.11.2021 44:23
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson . Í þessum þætti er fjallað um nýjungar í krabbameinslyfjameðferð og viðmælandinn er Sigurdís Haraldsdóttir , dósent og sérfræðingur í krabbameinslækningum. Hver er munurinn á marksæknum lyfjum og frumudrepandi lyfju...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Davíð O. Arnar og Páll Torfi Önundarson: Blóðþynning 22.11.2021 53:43
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson . Í þessum þætti er fjallað um blóðþynningu og viðmælendur eru Davíð O. Arnar sérfræðingur í hjartalyflækningum og Páll Torfi Önundarson sérfræðingur í blóðlækningum. Ræddir eru kostir og gallar blóðþynningar með nýj...
GEÐVARPIÐ // Dr. Helga Sif ræðir við geðhjúkrunarfræðinginn Guðbjörgu Sveinsdóttur 28.10.2021 56:21
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir . Í þessum fimmta þætti fær Helga Sif til sín geðhjúkrunarfræðinginn Guðbjörgu Sveinsdóttur , sem hefur fjögurra áratuga reynslu af faginu með sérstaka áherslu á samfélagstengda geðhjúkrun af ýmsu tagi. Helga Sif ræðir við Guðbjörgu um bakgrunn hennar og ví...
LEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Anna Rut Sverrisdóttir spjallar við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk 05.10.2021 1:08:41
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fimmta þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala er komið að mjög áhugaverðu spjalli við hina léttu, ljúfu og kátu ljósmóður Önnu Rut Sverrisdóttur. Hún deilir reynslu sinni af ljósmæðrastörfum...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Arna Guðmundsdóttir og Magnús Karl Magnússon: Lyfjameðferð við sykursýki 2 04.10.2021 47:33
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um lyfjameðferð við sykursýki 2. Mörgum lyfjum er hægt að beita og sífellt bætast fleiri lyf við. Arna Guðmundsdóttir, sérfræðingur í innkirtlalækningum, segir frá hvernig lyfin verka og hv...
DAGÁLL LÆKNANEMANS // Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum: Klínískar lyfjaprófanir 23.06.2021 1:07:52
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Magnús Karl Magnússon prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum fjallar í þessum þætti um klínískar lyfjaprófanir. Í þættinum er ferill COVID bóluefna rakin frá tilraunastofunni að upphandleggjum landsm...
GEÐVARPIÐ // Dr. Helga Sif ræðir við Vilborgu G., geðhjúkrunarfræðing og handleiðara 21.06.2021 52:07
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum fjórða þætti fær Helga Sif til sín Vilborgu G., en hún er geðhjúkrunarfræðingur, fjölskyldufræðingur og handleiðari. Helga Sif og Vilborg ræða bakgrunn hennar og víðtæka reynslu og velta vöngum yfir því hvað gerir okkur að góðum meðferðaraðila, in...
Dagáll læknanemans: Agnar Bjarnason smitsjúkdómalæknir um lungnabólgu 18.06.2021 1:01:42
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Í þessum þætti fer Agnar Bjarnason, smitsjúkdómalæknir á Landspítala, gaumgæfilega yfir lungnabólgu. Hvernig er lungnabólga unnin upp? Hvað er gott hrákasýni? Hver eru næstu...
Brautryðjendur í hjúkrun // Dr. Valgerður Lísa Sigurðardóttir sérfræðiljósmóðir ræðir við Mörtu Jóns Hjördísardóttur 10.06.2021 52:41
Valgerður Lísa Sigurðardóttir sérfræðiljósmóðir er gestur Mörtu Jóns Hjördísardóttur í þáttasyrpunni "Brautryðjendur í hjúkrun" að þessu sinni, en þátturinn var tekinn upp í tilefni af Viku hjúkrunar 10.-12. maí 2021. Valgerður Lísa lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1982, BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1988, embættisprófi í ljósmóðurfræði frá Háskóla Í...
UMBÓTAVARPIÐ // Guðbjörg Pálsdóttir og þrýstingssár + Amelia Samuel og Lyf án skaða (Medication Without Harm) 29.05.2021 53:01
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí til að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Þessi fjórði þáttur Umbótavarpsins fjallar um tvö umbótaverkefni. Guðbjörg Pálsdóttir sérfræðingur í hjúkrun segir frá þrýstingssáraverkefninu HAMUR og Amelia Samuel greinir frá vitundarvakningu Alþjóða heilbr...
UMBÓTAVARPIÐ // María Barbara sjúkraþjálfari, Bryndís hjúkrunarfræðingur og Sólrún Björk lungnalæknir 28.05.2021 32:38
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí undir yfirskriftinni "Byggjum brýr". Markmiðið er að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Af þessu tilefni ýttum við úr vör sérstakri þáttasyrpu undir yfirskriftinni "Umbótavarpið". Þessi þriðji þáttur Umbótavarpsins fjallar um tvö umbótaverkefni. María...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.