Snorri Björns
LANGA - hlaðvarp
Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.
Author
Snorri Björns
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
94. Tove Alexandersson 10.07.2026 37:56
Sú albesta, stigahæsta og æfingaglaðasta er mætt í LANGA hlaðvarp. 30 klukkutíma hlaupavikur, sænska leiðin, rjómaþamb á æfingum, hákolvetnainntaka, magn fram yfir gæði - en stundum gæði framyfir magn, UTMB > götumaraþon, sænska leiðin > norska leiðin og af hverju eru rathlauparar svona góðir í utanvegahlaupum?
93. Arnar Péturs spáir Laugaveginum - hvað gerist, hvað gerist ekki, sub4, sub5, sigurvegarar og pallsætin. 09.07.2026 1:26:23
Arnar Pétursson kann að hlaupa hraðan Laugaveg og Arnar Pétursson hikar ekki við að spá í spilin um frammistöðu bestu hlaupara Íslands í Laugaveginum um næstu helgi. Ekkert bendir til sub 4 Laugavegs, Tove mun hrista upp í karlaflokknum og keppnin um pallsætin verður gríðarsterk í ár.
92. Offramboð af úthaldi - Synir LANGA létta af sér 28.06.2026 1:40:28
Western States vannst á sögulega hröðum tíma af mesta myrkrahesti hlaupasenunnar - en það er Elísa Kristinsdóttir sem á afrek helgarinnar og lokar þriðja UTMB sigrinum á 8 mánuðum. Helgin var smekkfull af úthaldsafrekum: Tove vinnur Mont Blanc Marathon á tíma sem fær menn til að spá henni sigri gegn íslensku körlunum í Dyrfjallahlaupinu í næstu viku, Norðmenn sýna enn og aftur að þeir eru bestir í...
91. Tilhneigingin til að ofgera sér, beinbjúgur, hjól fyrir hlaupara, WSER og The Swedish Method 25.06.2026 1:51:59
Handbolta- hjóla- og hlaupadrottningin Ágústa Edda og bakgarðs- og brokkolíspírukóngurinn Andri Guðmundsson mæta í stúdíóið til þess að ræða tilhneiginguna til þess að gera eins mikið og mögulegt er (👀🫵), hjólaæfingar fyrir hlaupara (hvað er hægt að læra af Tour de France hjólara sem hleypur hálft maraþon á 61 mínútu?), REDs og beinmeiðsli sem koma aftan að manni, sterkustu ráslínu í Western Sta...
90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona! 16.06.2026 1:47:05
Latsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar. Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir beltinu til þess að gefa okkur ferðasöguna og fara yfir helstu vendingar í heimi úthaldsíþrótta.
89. Þorbergur Ingi eftir EM 08.06.2026 1:10:34
Crazy carb numbers, einkapepparinn Þorsteinn Roy, hærri ITRA stig á Íslandi en í útlöndum, Tobbi vs. Tove (í beinni frá Dyrfjallahlaupinu) og yfirferð á frammistöðu íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í utanvegahlaupum.
88. Enhanced Games, peptides, sál til sölu og hvað fara margir undir 4 í Laugaveginum? - Synir LANGA 31.05.2026 2:08:49
Engir gíslar teknir: Foreldrafélag LANGA hlaðvarps fordæmir Enhanced Games, hvað munu margir hlauparar fara undir 4 tíma í Laugaveginum? Gera þeir það í síðbuxum? Sage Canaday tilkynnir Cameron Hanes (58 ára… 2:39 maraþon… ???) til lyfjaeftirlitsins útaf peptíðum, Francesco Puppi efast um að 400km hlaup flokkist sem utanvegahlaup og Íslendingar munu valda skaða á Evrópumeistaramótinu næstu helgi.
DOPING, gráa svæðið, HGH, EPO og löglegar leiðir að heimsmetum - Ingimar Jónsson, Msc. molecular medicine 22.05.2026 1:36:27
Á ég rétt á því að vera skeptískur þegar ég horfi á besta árangur mannkynssögunnar nást, þvert á íþróttagreinar? Ingimar Jónsson, Msc. í molecular medicine (Sameindalífvísindi. Takk.), er í beinni frá Afrekslandinu til þess að ræða um árangur íþróttafólks með tilliti til frammistöðuaukandi efna: Testesterón, HGH, EPO, örvandi efni (hvað ertu búin með marga kaffibolla í dag?) og insúlín - hefur þet...
86. Hlynur Andrésson - tilraun við Íslandsmet, maraþonæfingar, sub 1:59, kolvetni og koltrefjar 10.05.2026 1:11:24
Hlyni Andréssyni rænt í viðtal beint eftir Kaupmannahafnarmaraþonið þar sem hann hljóp á öðrum hraðasta tíma Íslandssögunnar, 2:15:30, en tókst ekki að slá eigið Íslandsmet. Hlynur veltir hér öllum steinum er viðkoma maraþonundirbúningi og þeirri staðreynd um hversu erfitt það er að framkvæma gott maraþon: Kolvetnainntaka, magaóþægindi, carbon skór, maraþon undir 1:59 á árinu, vafasöm hematókrítgi...
85. KRISTIAN BLUMMENFELT 07.05.2026 1:16:38
Coming off an epic win streak in early 2026, live from Bergen, the one and only: Kristian Blummenfelt. What could he run for the marathon with a year of marathon-specific preparation? How does he knock off multiple half Ironmans and Ironmans in the span of a couple of weeks? What happened to only running 2 marathons a year? When did the high-carb revolution hit the Norwegians? Can recent endurance...
84. Baldvin Þór Magnússon 30.04.2026 1:05:34
Viðbrögð við sub2 maraþoni, kolvetni og carbon skór, uppgjör á fyrstu götumílunni, hvernig hleypur einhver 25 ára gaur maraþon á 2:05 (fjórði hraðasti tími Bandaríkjamanns), meiðslin, Nike samningurinn og vegferðin í átt að Birmingham 2026.
BREAKING2, skórnir, lyfjaprófin, kolvetnin og bicarb? 27.04.2026 1:36:16
Latsi var sem betur fer á bakvakt þegar Sebastian Sawe og Yomif Kejelcha brutu tveggja tíma múrinn í London maraþoninu. Vænleg yfirferð á Breaking 2 verkefni Nike sem byrjaði þetta allt saman, hvernig Adidas stal þrumunni og setti báða sub2 hlauparana í Adidas skó, lyfjaprófin 25 sem Sawe bað um aukalega til að sanna sakleysi sitt, ný tegund ofurskóa ryður sér rúms, eru fleiri sem geta hlaupið und...
82. PENINGAR, frægð, athygli og samstörf - Snorri Barón 23.04.2026 1:38:56
Eru íþróttamenn bara fáklæddir áhrifavaldar með hátt VO2max?? Snorri Barón, hlaupari, hefur áratuga reynslu úr auglýsingabransanum sem hann heimfærði á umboðsmennsku og listina við að leiða saman íþróttamenn og fyrirtæki. Snorri veitir hér sína skoðun á því hvort leikurinn snúist um að verða sá besti eða sá vinsælasti: hver ber ábyrgð á vinsældum íþróttamanns, fjölmiðlar eða íþróttamaðurinn sjálfu...
Hæsta VO2max Íslendings, KRISTIAN BLU óstöðvandi, leiðir til að bæta sig/meiðast og lygilegar mælingar 17.04.2026 2:01:45
Hans fræðsla, þinn árangur. Latsi heldur uppi ábyrgri umræðu um hæstu VO2max mælingar Íslandssgöunnar (official), ástæðu (eintala) þess að Arnar hægði á sér undir lok 100km hlaupsins, konur sem hlaupa Boston maraþonið 🤨, tilraun Hlyns við hraðasta maraþon Íslendings, YFIRBURÐIR Kristians Blummenfelt og hrottalegar (leynilegar) hlaupaæfingar, lygilegar mjólkursýrumælingar og nokkrar leiðir til að...
Fraser mútar BKG, VO2max genafrík, KLÆBO, komdu þér á framfæri og Northaug í neyslu 09.04.2026 1:57:59
Þurfa þessir íþróttamenn stanslausa styrki til þess að iðka íþróttina sína eða er hægt að taka málin í eigin hendur? Gunni Birgis og Björgvin Karl mæta nýklipptir í stúdíóið til að ræða ótrúlegan uppgang og vinsældir CrossFit, hvernig íslensku CrossFittararnir byggðu feril sinn á gríðarlegum vinsældum (og hvaða tækifæri opnuðu dyrnar að stóru samningunum), LYGILEGAR mútugreiðslur frá Matt Fraser t...
79. Hlaupari með Íslandsmet í kraftlyftingum - Björn Margeirsson 02.04.2026 1:38:24
Björn Margeirsson er einn af 5 systkinum sem öll eru doktorar. Hann er einn besti millivegalengdahlaupari Íslandssögunnar, lengdi upp í maraþonið og Laugaveginn, tók brautarmetið hans Þorbergs Inga og sneri sér svo að kraftlyftingum - þar sem Íslandsmetin fengu heldur engan frið. Bjössi er úr sveit og segir hlutina þess vegna eins og þeir eru. Eiga allir að flytja út 15 ára? Eru frjálsar að deyja...
78. BONK æfingar, árangur út frá bakgarðinum, UTMB deilur, ketó og lexíur brautryðjandans - Elísabet Margeirs fer yfir áratug af ULTRA 27.03.2026 1:53:25
Elísabet Margeirs með væææna yfirferð á hlaupasenunni allt frá því að hér varð hrun. Ekki nóg með að ryðja brautina fyrir ultrahlaupum á Íslandi þá er hún að auki með frábæra innsýn í hlaupasenuna úti um allan heim ásamt því að vera næringarfræðingur, hlaupahaldari og þjálfari. Við ræðum hvernig bakgarðurinn spilar inn í ótrúlegan árangur Elísu, BONK æfingarnar sem hefði mátt sleppa, hvað Elísabet...
77. Elísa Kristinsdóttir – Gott form, harður haus. 25.03.2026 1:27:56
Elísa keppti í Chianti 75km síðustu helgi og sigldi sigrinum heim á móti Judith Wyder. Þetta er ekki eini UTMB sigurinn hennar síðan hún kom síðast í viðtal hjá LANGA og í millitíðinni var hún tekin inn í landsliðið, lenti í 11. sæti á HM og hljóp 10km undir 35 mín. Á sama tímabili fór hún í gegnum meiðsli og þjálfaraskipti sem við ræðum í þættinum ásamt ótrúlegri (og nákvæmri) kolvetnainntöku í C...
76. Hlauparar með myndavélar, KILIAN, Elísa & Andrea á móti heiminum, landsliðsvalið og Arnar Péturs stigahæstur 07.03.2026 1:57:31
Synir LANGA, Egill Örn og Guðlaugur Ari, fara yfir liðna atburði og veisluna sem er í vændum: Þarf að vera besti hlaupari landsins OG áhrifavaldur til þess að leggja íþróttina fyrir sig? Óánægja með landsliðsvalið Pendúllinn sveiflast: er FH að skemma partýið? Er brautin snúin aftur? Annað hvort er Arnar Péturs í formi lífs síns eða að hlaupa á biluðu hlaupabretti. Hvort myndirðu frekar: 27:4...
75. KLÆBO djúpköfun: yfirburðirnir, æfingarnar, spretturinn og afinn. 27.02.2026 2:01:54
Það dugði ekki minna til en að fá ólympíufarann, og fyrrum keppniaut Klæbo, Sævar Birgisson til þess að kafa djúpt í árangur og yfirburði Johannes Høsflot Klæbo sem við erum að horfa upp á þessa dagana. Hvernig varð hann svona góður? Er eðlilegt að geta unnið bestu sprettarana og líka mestu úthaldsvélarnar? Er þetta grunsamlegt? Hvernig æfir hann? Af hverju gera hinir ekki bara eins og hann? Hver...
Á ég að létta mig til að verða betri? Hormónar, fituprósenta, Vo2max og þreyttir íþróttamenn. 20.02.2026 1:31:17
Sigurður Örn Ragnarsson, Siggi í Greenfit, ræðir hér kaloríur, íþróttir og hvar við förum út af sporinu: Testesterón, lægri fituprósenta, bætingar, endurheimt, hormónajafnvægi, beinheilsa, þreyta og orkuleysi, orkuþörf á hvíldardögum, æfingamagn og ótrúleg tölfræði þeirra bestu í heiminum.
KLÆBO ER FARINN, íþróttamenn eða áhrifavaldar, afrek eða athygli, hver er ábyrgð fréttamanna? - Gunnar Birgisson 16.02.2026 2:04:19
Djúpköfun á árangri Johannes Klæbo: besta skíðagöngu- og sýklahræddasta íþróttamanni sögunnar. Afrek hans eru öll samkvæmt plani en afi hans og þjálfari lagði upp með að gera Klæbo að þeim besta í heiminum fyrir mörgum árum - þegar engar tölur bentu til þess að þarna væri „talent“ á ferðinni. Gunnar Birgisson mætir til þess að fræða okkur um afrek Klæbo og annarra Ólympíufara en við krefjum hann e...
72. Baldvin Þór – Tímamótaskref 25.01.2026 1:28:54
Baldvin tók 10km tímann sinn úr 29:30 niður í 27:40 á aðeins nokkrum vikum. Íslandsmetið er núna 2 sekúndum frá landsmeti Breta og 8 sekúndum frá landsmeti Bandaríkjamanna. Baldvin lýsir sjálfstraustinu sem byggðist upp vikurnar fyrir hlaup, ákvörðuninni um að breyta keppnisrútínunni (sleppa koffíni, sleppa rauðrófusafa) og treysta sjálfum sér, hvort að hann hefði getað hlaupið þetta hraðar (svari...
71. Baldvin, double threshold og hugarfar heimsmeistara - Siggi og Latsi 19.01.2026 1:45:53
Siggi og Latsi mættu með 13.000 efnaskiptapróf og glósubók undir beltinu til að athuga hvað sé hægt að læra af manninum sem þjálfaði upp fjóra heimsmeistara: Hugarfarið, magnið, ákefðin, kaloríurnar, hvíti djöfullinn og mjólkursýrumælingarnar, og hvernig þetta nýtist þér á þínum æfingum – ásamt greiningu á VO2max og mögulegum maraþontíma Baldvins Þórs eftir sögulegt 10km hlaup og vegferð Andreas A...
70. Svona verðuru heimsmeistari - í alvörunni. 16.01.2026 1:19:21
Arild Tveiten tók við Kristian Blummenfelt árið 2011, sem þá var "not good at anything," og gerði hann að besta þríþrautarmanni heims. Þjálfunaraðferðir Arilds hafa getið af sér þrjá Ironman heimsmeistara til viðbótar og orðið heimsfrægar undir formerkjum The Norwegian Method. Arild leyfði norsku krökkunum ekki að efast í eina sekúndu um að þau gætu orðið best í heimi og ræðir í þættinum lykilinn...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.