Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

Health IS ↓ 104 episodes

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

Author

Snorri Björns

Category

Health

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

69. Hlaup: aldrei stærri, aldrei hraðari. Vorri og Snorri með augun á 2026. 06.01.2026

Yfirferð á árinu sem leið og hvaða bombur eru væntanlegar 2026. Greiningar á nýliðum, framförum, frammistöðum, óvæntum atburðum og vinsældum hlaupa á Íslandi - allt rökstutt með gögnum og góðum sögum. Viktor Orri mætti í stúdíóið í miklum gír, vægt til orða tekið.

„Reynum eitthvað sem að enginn trúir“ - Kristinn og Davíð Jónssynir 23.12.2025

Kiddi Aero og Davíð Jónssynir eru með bestu hjólreiðamönnum landsins. Kristinn var hjólreiðamaður ársins 2023 og 2024 og Davíð 2025. Davíð hefur keppt í elítuflokki síðan hann var 16 ára og það mætti segja að getustig bræðranna sé orðið það hátt að Ísland er orðið of lítið fyrir þá.

67. Hafdís Sigurðardóttir - Hjólreiðakona ársins fjögur ár í röð 12.12.2025

Hafdísi finnst lengra betra, LANGA hlaðvarp er sammála. 17.000 hitaeiningar fyrir tvo sólarhringa af hjóla-bakgarðinum, áherslur á þyngdarstjórnun í hjólreiðum, úr sundi í þríþraut og svo hjólreiðar, hausinn sem þarf til að verða góður úthaldsíþróttamaður og mörg önnur góð umræðuefni í þessum þætti.

Íþróttamannalaun, yfirburðir Karenar Axels, Kilian snýr aftur og bestu járnkarlarnir 05.12.2025

Ætla Tobbi og Þorsteinn loksins í götumaraþon? Munu þeir hafa Arnar Péturs? Hversu hratt þarftu að hlaupa keppnishlaup til að mega húðflúra tímann á þig? Tilnefningar til besta járnkarlsins, yfirferð á íþróttamannalaunum, hröð maraþon frá fjallahlaupurum og vinsælasti skór ársins 2025. Það var af nægu að taka.

65. Arnar Péturs tæklar Valencia, Ármannsdóminn og Víðavangsvígið en ekki Ironman 02.12.2025

Arnar Péturs hefur svo sannarlega fengið augu á langhlaupin síðasta áratugin og tekur hér væna yfirferð á Valencia maraþoninu næstu helgi, málaferlinu eftir Ármannshlaupið, hvort hann sé bestur í 100km vegalengdinni, ÍBR, ábyrgð hlaupahaldara gagnvart bestu hlaupurum landsins, hvort almenningi langi að skokka eða keppa, Víðvangs-víginu, Why Always Arnar og Laugaveginn 2026.

64. Tobbi í Ironman? 5 ástæður árangurs og hvað viltu heyra þegar þér líður sem verst? 28.11.2025

Sigurður Örn og Latsi gæddu sér á hlaðborði umræðuefna á einlægan, hvetjandi og fræðandi máta! Bjargaði happaeistað mannslífi síðustu helgi? Ætti Tobbi séns í Íslandsmetið í Ironman? Hvaða hvatning virkar best í erfiðri keppni? Hvað viltu heyra og hvað viltu alls ekki heyra yfir erfiðasta kaflann? Síðast en ekki síst fengum við Top 5 ástæður fyrir árangri Norðmanna (hefur þetta viðfangsefni verið...

Einvígi aldarinnar™ 21.11.2025

Latsi í þráðbeinni frá Cozumel, Mexíkó, þar sem Geir Ómars og Siggi Tri mætast á sunnudaginn næsta í Einvígi aldarinnar™. Íslandsmethafinn á móti besta þríþrautarmanni Íslands í heilum Ironman: 3,9km sund, 180km hjól og heilt maraþon! Hver ber sigur úr býtum? Er verið að horfa framhjá myrkrahestinum? Hvernig eru aðstæður og hvað koma þeir mörgum grömmum af kolvetnum ofan í sig?

Why always Arnar? Handalögmál, lyfjapróf, íslensk atvinnumennska og Harry Styles 19.10.2025

Synir LANGA fengu aldeilis umræðuefnin í hendurnar þessa helgina. Hér er farið yfir dramatíkina í víðavangshlaupunum, kærumenningu í hlaupasenunni, stór nöfn möguleg í Laugaveginn, íslenska atvinnumennsku, niðurstöður úr lyfjaprófum, Courtney Dauwalter og Harry Styles í götumaraþoni, enn annar norskur sigur og nýtt "heimsmet" hringinn í kringum Ísland.

Latsi og Geir Ómars: Noregur snýr aftur, 183gr carbs á klst, lægra lactate í carbon skóm og Siggi Tri reynir við Íslandsmet 10.10.2025

Íslensku Kristian Blummenfelt og Gustav Iden, þríþrautarkóngarnir Latsi og Geir Ómarsson mæta í settið og fara yfir víðan völl: Norsku þríþrautarprinsarnir sem röðuðu sér í fyrstu þrjú sætin á heimsmeistarmótinu nýverið, vendingar í þjálfarteyminu þeirra og ný nálgun á æfingar, Siggi Örn reyndi við Íslandsmet í Ironman og ætlar að gera aðra tilraun eftir nokkrar vikur, Casper Stornes innbyrti 183g...

Fyrir og eftir – Dóri & Guðfinna gera upp HM 28.09.2025

Guðfinna Kristín og Halldór Hermann (your favorite runner's favorite runner) mæta fyrir og eftir sín hlaup á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum hér í Canfranc. Þau glímdu (og glíma enn) bæði við beinbrot á árinu og þurftu að hagræða æfingum til þess að komast á mótið – sem gekk líka svona vel hjá þeim báðum. Allt um það og aðrar frammistöður í þessum þætti.

Sigurjón Ernir: Bakslög, breyttar áherslur, bílslys og bætingar! 26.09.2025

Sigurjón Ernir hefur átt brösótt ár sökum bílslyss en náð gríðar góðum árangri þrátt fyrir það. Hann ræðir landsliðsverkefnin sín síðasta áratuginn, hvernig hann breytti æfingum og fór að geta hlaupið meira/hraðar og bætingarárið sem hann átti fyrir tveimur árum. Hann deilir einnig með okkur litlum miða sem hann tekur með í hlaupið sitt á laugardaginn til þess að minna hann á fyrir hvern og af hve...

Andrea Kolbeins – Búin að bíða eftir þessu í tvö ár! 25.09.2025

Andrea er kannski Strava og Instagram dark en það er engin ástæða til að óttast. Hún mætir á ráslínuna, hliðin á Katie Schide, í sínu besta formi til þessa.

Þorsteinn Roy er í besta formi lífs síns 25.09.2025

Virkilega skemmtileg innsýn inn í haus eins besta hlaupara Íslendinga: Næringarplanið, brautin, vegferðin frá HM í Tælandi til dagsins í dag, valið milli long og short, hröð ultra hlaup og segment hunting í miðju heimsmeistaramóti.

Íris Anna & Anna Berglind - báðar með sub5 Laugaveg og tilbúnar í Short Trail 25.09.2025

Íris og Anna eru báðar búnar að koma sér í toppform fyrir HM 2025. Anna Berglind hefur aldrei æft jafn mikið, vikur upp á 130km og 5000 hæðarmetra – fullt tilefni til enda brautin í ár með þeim erfiðari sem sést hafa.

Upphitun fyrir HM: Tobbi greinir keppnina og árangur Íslendinga 25.09.2025

Þorbergur Ingi, reynslumesti landsliðsmaður Íslands, sest niður hér í Canfranc og les í stöðuna fyrir Heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum sem fer fram næstu helgi.

60. Gleði vs. árangur, Kenía mætt í UTMB, sigurformúla í ruslið og eru hlaup að breytast í Formúlu 1? 05.09.2025

Vænleg yfirferð yfir stærstu utanvegahlaupaveislu ársins: UTMB. Kenía er farin að láta finna fyrir sér í trail-heiminum, með tilheyrandi efasemdum og spurningarmerkjum, er Courtney Dauwalter að taka keppninni of léttúðlega? Er Jim Walmsley ósnertanlegur? KK og KVK sigurvegarar UTMB þjálfaðir af sama aðilanum - sama aðila og Caleb Olson segir upp eftir stórsigur sinn í Western Sates! Hvað getur 100...

59. Sigrar RM 21,1km og bestur í skíðagöngu - Dagur Benediktsson 02.09.2025

Dagur mætti inná skrifstofu til framkvæmdastjóra sjávarútvegsfyrirtækis fyrir 8 árum, þá 20 ára gamall, og lagði fyrir hann áætlun um markmið fyrir glæstan skíðagönguferil sem hann þurfti hjálp við að framkvæma. Í dag er hann besti skíðagöngumaður landsins, hleypur 10km á 33:28 og sigraði hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst síðastliðnum. Dagur er hér krafinn um svör við þjálffræði, álags...

ÍBR svarar fyrir sig 26.08.2025

Óánægju gætir innan hlaupasamfélagsins með framkvæmd á Reykjavíkurmaraþoninu, en í fyrsta skipti í 40 ára sögu hlaupsins voru hlauparar ræstir í tveimur flokkum: keppnis- og almennum flokki. Ringulreiðin sem því fylgdi bitnaði á upplifun og frammistöðu keppenda. Hrefna Hlín, sviðsstjóri viðburðarsviðs ÍBR, gefur okkur innsýn inn í ákvörðunartöku og framkvæmd hlaupsins og segir sína hlið á málinu.

58. Hlynur & Baldvin: RM, maraþonæfingar, single threshold, lyfjapróf og 100km 24.08.2025

Hlynur og Baldvin mæta á DURA drykkjarstöðina degi eftir Reykjavíkurmaraþonið til að gera upp viðburðinn, brautarmet Baldvins, vonbrigði Hlyns og allt því sem viðkemur því að skara fram úr í hlaupum - þvert á vegalengdir!

57. Sprengjur í RM, léleg ITRA stig, maraþon vs. Laugavegur og Andrea vs. Elísa 20.08.2025

Við fylgjum eftir viðtölum við Baldvin Þór og Hlyn Andrésson með sjóðheitri umræðu um Reykjavíkurmaraþonið. Viktor Orri mætti á DURA drykkjarstöðina til að ræða möguleika Baldvins og Hlyns til að slá met, Elísu á móti Andreu í hálfu, hvað hlaupahaldarar þurfa að gera til að fá skráningu í hlaupin sín, hvað 100km afrekið hans Arnars fær mörg stig í samanburði við önnur met íslenskra hlaupara, "illa...

55. Baldvin Þór í vígahug fyrir RM 19.08.2025

Hann er ekki hér til þess að taka þátt. Hann er hér til að hlaupa hröðustu 10 kílómetra í Íslandssögunni og hann langar að gera það á Íslandi! Íslandsmetið, sem Baldvin sjálfur á, er 28:51 og hann mætir hingað í settið til að fara yfir leikplanið og hvernig æfingar hafa gengið síðustu mánuði.

56. Hlynur reynir við hraðasta maraþon á Íslandi 19.08.2025

Brautarmetið í Reykjavíkurmaraþoninu var sett um það leyti sem Hlynur Andrésson var að fæðast. Hann er búinn að strengja saman góðar æfingavikur og mánuði og er tilbúinn í atlögu að metinu. Hlynur fer hér yfir breytingar í æfingum fyrir maraþonið, „maraþon specific“ æfingar, hvernig sumum tekst ekki að höndla síðustu 12km af maraþonvegalengdinni, skóbúnaðinn sinn og zone æfingar.

54. Halli Gilli & Sigfinnur – 100km haus, magaflóran, líkamsklukkan og Laugavegurinn 04.08.2025

Haraldur Gísli og Sigfinnur kláruðu Gyðjuna um helgina og komu í stúdíóið til að ræða hlaupið, æfingarnar, motivationið, andlegu áskorunina, magaflóruna (Kilian er kominn á vagninn), líkamsklukku hlauparans og Laugavegshlaupið.

53. Elísa Kristinsdóttir – Viðstöðulausar bætingar, frá 10km upp í 400km 02.08.2025

Elísa vann í dag Súlur Vertical Gyðjuna 100km á tímanum 10:45. Hún tekur brautarmetið af Andreu Kolbeinsdóttur og slær það um rúmar 90 mínútur. Óstaðfestar tölur gefa henni hæsta ITRA stig sem íslensk kona hefur náð. Ever. Planið var þó allt annað komandi inn í þetta hlaup… Elísa ræðir hlaupið, hvað fór úrskeðis og hvað fór vel, lægðina eftir 400km bakgarðinn í október, að snúa baki við bakgarðshl...

52. Hugarfarsbreyting eftir heilaæxli: 50 ára sjómaður verður Íslandsmeistari í hjólreiðum - Þorsteinn Bárðarson 23.07.2025

Þorsteinn Bárðarson hefur varið lífi sínu á sjónum. Hann kepptist við að vera aflamestur, fór út í öllum veðrum og tók lengri róðra en hinir með þeim afleiðingum að hann klessti á vegg og þurfti að breyta um lífsstíl til að lágmarka streitu og hámarka heilsu. Á sama tíma koma hjólreiðar inn í líf Þorsteins en hann rekur söguna af því hvernig hann náði að para saman sjómennsku og erfiðar æfingar á...

Listen to the LANGA - hlaðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.