HeilsuErla
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.heilsuerla.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Núvitund - 7 mínútna sitjandi hugleiðsla. (Heilsumoli 14) 01.10.2024 7:16
7 mínútna sitjandi hugleiðsla og núvitundaræfing þar sem við færum athygli okkar á milli skynfæra. Hægt að gera hvar og hvenær sem er. Njótið! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
63. Rekjum upp þræði skammarinnar. (Kynfræðsla, samskipti, kynheilbrigði, skömm, opin sambönd og væntingar). Sigga Dögg 26.09.2024 1:30:02
Í þættinum ræðir Erla við Siggu Dögg kynfræðing um kynfræðslu, kærleika, mikilvægi samskipta í kynlífi og lífinu almennt, kynheilbrigði, skömm, opin sambönd, væntingar og hvernig breytingarskeið kvenna er tækifæri til að losa sig við það sem þjónar manni ekki lengur. Sigga Dögg hefur lagt mikinn metnað í að fræða unga sem aldna um kynlíf síðustu ár og áratugi. Undanfarin ár hefur hennar helsta s...
62. Hvernig er hægt að ná árangri án þess að missa vitið og heilsuna? (Hæfni, færni, sjálfstæði, hamingja og hugrekki). Krumma Jónsdóttir 19.09.2024 1:07:13
Í þættinum ræðir Erla við Krummu Jónsdóttur sem starfar sem árangursráðgjafi um hæfni, færni, sjálfstæði, hamingju og hugrekki, hvað við þurfum til að dafna og hvernig við náum árangri án þess að missa vitið og heilsuna. Til að ná árangri þurfum við fjölþætta vellíðan, líkamlega, andlega og félagslega. Þegar við erum í jafnvægi og upplifum vellíðan í þessum þáttum, erum við betur í stakk búin til...
61. Það felst svo mikið frelsi í því að vera vel nærður. (Breytingaskeið, þyngdarstjórnun, efnaskiptaheilsa, hormónaójafnvægi og hreyfingaleysi). Lukka Pálsdóttir 12.09.2024 1:12:55
Í þættinum ræða Lukka og Erla um breytingaskeiðið, þyngdarstjórnun, efnaskiptaheilsu, hormónaójafnvægi, alvarleika hreyfingaleysis, hvatberavirkni, hvað það skiptir miklu máli að fólk viti að það er með lífi í lúkunum og margt fleira. Lukka er einn af stofendum og eigindum GreenFit og hefur áratuga reynslu af að hjálpa fólki að bæta heilsu með mataræði og hreyfingu. Hún hefur starfað í 30 ár við...
60. Heilbrigt samband við mat. (Matarvenjur, ADHD, næringarþéttni, næringarlæsi og þarmaflóran). Heiðdís Snorradóttir 05.09.2024 1:22:53
í þættinum ræðir Erla við Heiðdísi Snorradóttur næringarfræðing um hvað það er að eiga í heilbrigðu sambandi við mat, matarvenjur, ADHD og mataræði, næringarþéttni matvæla, næringarlæsi, áhrif þarmaflórunnar á almenna heilsu og margt fleira. Heiðdís er stofnandi og meðeigandi Endurnæringar og næringarfræðingur MSc með áherslu á lýðheilsu. Hún sérhæfir sig í að hjálpa einstaklingum að byggja upp h...
59. Hvers vegna er tengslamyndun mikilvæg fyrir heilsu okkar? (Ungbarnasund, örugg tengsl, fæðingarþunglyndi, vanræksla og tenglsaröskun). Katrín Kristjánsdóttir 29.08.2024 1:09:09
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Kristjánsdóttur, sálfræðing um tengslamyndun og afhverju hún er mikilvæg, áhrif tengslamyndunar í æsku á heilsu okkar í framtíðinni, rannsóknir á tengslamyndun í ungbarnasundi, örugg tengsl, fæðingarþunglyndi, vanrækslu, tenglsaröskun, ,,good enough” foreldra...
58. ADHD og heilsa. (Sjálfsvitund, vinnsluminni, tilfinningastjórnun, frestunarárátta, kynjamunur, gagnsemi lyfja og fordómar). Anna Tara Andrésdóttir 22.08.2024 1:34:12
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þætti vikunnar ræðir Erla við Önnu Töru Andrésdóttur um ADHD, sjálfsvitund, vinnsluminni, tilfinningastjórnun, frestunaráráttu, kynjamun, gagnsemi lyfja, fordóma og áhrif ADHD á heilsu og öfugt. Þær stöllur ræða einnig um áhrif hreyfingar, mataræðis og svefns á ADHD og áhrif kynþroskaskeið...
57. Vertu listamaður í að lifa. (Venjur, hegðun, þarfir, neðansjávardjúpmarkþjálfun og morgunsíður). Guðbjörn Gunnarsson 15.08.2024 1:11:06
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þætti vikunnar ræðir Erla við Guðbjörn Gunnarsson sérlegan áhugamann um fólk, einkaþjálfara og markþjálfa um venjur, hegðun, þarfir, hvað það er að vera listamaður í að lifa, neðansjávardjúpmarkþjálfun, morgunsíður og hvernig við berum ábyrgð á eigin heilsu. Guðbjörn hefur unnið með fólki...
56. Að forðast kvíða er eins og að forðast skuggann af sér. (Heilsu- og næringarlæsi, skólaforðun, tilfinningalæsi, samkennd og meðvirkni). Davíð Aron Routley 08.08.2024 2:00:45
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þætti vikunnar ræðir Erla við Davíð Aron Routley, heilsumarkþjálfa, jógakennara og einkaþjálfara um heilsu- og næringarlæsi, skólakerfið, hegðunarvanda, skólaforðun, kvíða, tilfinningalæsi, samkennd og meðvirkni. Þau ræða einnig um áhrif umhverfis, markaðssetningar og efnahagskerfisins á h...
55. Félagslegir töfrar. (Tilfinningaleg smitun, félagslegt heilbrigði, stemmning og hlutverk íþrótta). Viðar Halldórsson 31.07.2024 1:24:18
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þætti vikunnar ræðir Erla við Viðar Halldórsson, félagsfræðing og prófessor við Háskóla Íslands um samfélagið, félagslega töfra, tilfinningalega smitun, félagslegt heilbrigði, stemmningu, tæknilega skynsemisvæðingu, hlutverk íþrótta og fleira. Viðar bendir á að félagsleg samskipti eru grunnb...
54. Hvað geymir líkaminn þinn? (Þungamálmar, heildræn tannlæknastofa og munurinn á lífinu í USA og á Íslandi). Sigríður Friðriksdóttir 25.07.2024 1:13:18
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Friðriksdóttur eða Siggu eins og hún er alltaf kölluð. Sigga er hjúkrunarfræðingur, búsett í Bandaríkjunum og starfar á heildrænni tannlæknastofu. Þar er hún með heilsu- og næringarþjálfun auk þess að gera alls konar mælingar á skjólstæðingum sínum, t.d. að taka og greina blóðprufur, skanna fyrir þungamálmum í líkamanum og fleira. Sigga bendir á að góð munnheilsa...
53. Þú vaknar ekki bara einn daginn með sykursýki 2. (Heilsulæsi, forvarnir, efnaskipti, insúlínviðnám og tískubylgjur í mataræði.) Lukka Pálsdóttir og Sigurður Örn Ragnarsson 18.07.2024 1:37:44
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þættinum ræðir Erla við Lukku Pálsdóttur og Sigurð Örn Ragnarsson hjá Greenfit um heilsulæsi, forvarnir, ákjósanlegt matar- og hreyfiumhverfi, efnaskipti, insúlínviðnám, tískubylgjur í vinsældum orkuefna, þ.e. fitu, kolvetna og próteina og hvernig við hámörkum heilsu okkar. Þau ræða einnig...
52. Kvenlíkaminn er algjör töffari. (Ofspenna í grindarbotni, kynlíf, breytingarskeið kvenna, þvagleki, legsig og endómetríósa.) Þorgerður Sigurðardóttir 27.06.2024 1:04:05
Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken Í þættinum ræðir Erla við Þorgerði Sigurðardóttur, kvenheilsusjúkraþjálfara um ýmis málefni sem tengjast heilsu kvenna og hafa áhrif á lífsgæði þeirra, t.d. þvagleka, legsig, endaþarmssig, blöðrusig, ofspennu í grindarbotni og endómetríósu. Þær ræða einnig um áhrif meðgöngu og fæðingar á kvenlíkamann, mæðravernd eftir fæðingu, íþróttakonur, mikilvægi grindarbo...
51. Ungbarnasund, þjófstart inn í framtíðina? (Tengslamyndun, jafnvægi, samhæfing, þroski, söngur og gleði og heilsufarslegur ávinningur.) Snorri Magnússon 20.06.2024 1:01:01
Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken Í þættinum ræðir Erla við Snorra Magnússon, þroskaþjálfa, íþróttakennara og ungbarnasundkennara um gagnsemi ungbarnasunds, tengslamyndun, jafnvægi, samhæfingu, þroska, söng og gleði og heilsufarslegan ávinningar af ungbarnasundi. Undir lokin ræða þau einnig um almenna heilsu og mikilvægi þess að njóta lífsins og vinna sig ekki í kaf. Snorri er að eigin sögn ka...
50. Sá einhverfi og við hin. (Foreldrahlutverkið, að þiggja aðstoð, mikilvægi húmors og hið eilífa samviskubit.) Jóna Á. Gísladóttir 13.06.2024 1:17:28
Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken Í þættinum ræðir Erla við Jónu Á. Gísladóttur rithöfund, markþjálfa og móður um foreldrahlutverkið, einhverfu, mikilvægi þess að foreldrar barna með sérþarfir gleymi ekki að sinna sjálfum sér og sambandinu og muni eftir því að huga að líkamlegri og andlegri vellíðan og séu óhrædd við að þiggja aðstoð. Þá ræða þær einnig um andlega heilsu, mikilvægi húmors, hve...
49. Nærðu þig fallega. (Vinnusemi, mikilvægi hreyfingar, lesblinda, andvana fæðing, gallstasi og sorg.) Anna Marta Ásgeirsdóttir 06.06.2024 1:24:55
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Mörtu Ásgeirsdóttur frumkvöðul, eiginkonu, móður og stjúpmóður um mótbyr og meðbyr í lífinu, vinnusemi, lesblindu, mikilvægi hreyfingar, hvernig á að næra sig fallega, andvana fæðingar vegna gallstasa, sorgina sem fylgdi og mikilvægi þess að hugsa um heilsuna. Anna Marta segir okkur fallegu söguna af því hvernig hún og Ingólfur maður hennar komu af stað góðgerðarverk...
48. Streita og heilsa. Hvað er til ráða? (Kvíði, þunglyndi, kulnun, mikilvægi hvíldar, kyrring hugans, áhrif vímuefna, adhd, mildi og mikilvægi félagslegrar heilsu). Dr. Ólafur Þór Ævarsson 30.05.2024 1:11:58
Í þættinum ræðir Erla við Dr. Ólaf Þór Ævarsson geðlækni og heilsuáhrifavald um streitu, kvíða, þunglyndi, kulnun, mikilvægi hvíldar, kyrringu hugans, áhrif vímuefna, adhd, mildi, mikilvægi félagslegrar heilsu og hvernig við getum safnað streituráðum. Ólafur Þór hefur lengi starfað að lækningum og kennslu, veitt ráðgjöf um heilbrigðismál og beitt sér fyrir fræðslu og forvörnum. Hann hefur haft sér...
47. Histamín óþol og heilsa. (Birtingamyndir, áhrif myglu, streitu og lífsstíls og hlutverk þarmaflórunnar). Katrín Sigurðardóttir 23.05.2024 1:06:00
Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Sigurðardóttur hjúkrunarfræðing og heilsumarkþjálfa um Histamín óþol og hvernig við getum haft áhrif á það með mataræði okkar og lífsstíl. Farið er yfir helstu birtingamyndir óþolsins, hlutverk þarmaflórunnar, áhrif myglu, áhrif streitu og hvað er tl ráða. Katrín með Master í heilbrigðisvísindum og "Board certified Health and Wellness Coach" og aðstoðar...
46. Hættu aldrei að láta þig dreyma. (Heilsa, húmor, hreyfing, sjálfsmynd, andleg heilsa og heimsókn í SOS Barnaþorp). Eva Ruza Miljevic 16.05.2024 1:15:33
Í þættinum spjallar Erla við Evu Ruzu skemmtikraft, útvarpskonu, velgjörðasendiherra SOS með meiru um heilsu, húmor, hreyfingu, heimsókn í SOS-barnaþorp, áhugann á fræga fólkinu í Hollywood, draumastarfið, sjálfsmynd og mikilvægi þess að sinna andlegu heilsunni. Það er ekki að undra að Eva Ruza sé einn vinsælasti skemmtikraftur landsins því hún á afar auðvelt með að létta lund landans. Hún tekur s...
45. MS-sjúkdómurinn og heilsa. (Einkenni, greining, úrræði, lyf og áhrif lífsstíls á framgang sjúkdómsins). Hjördís Ýrr Skúladóttir 09.05.2024 1:15:45
Í þættinum ræðir Erla við Hjördísi Ýrr Skúladóttur, formann MS félags Íslands um MS-sjúkdóminn, fjölbreytt einkenni hans, greiningu, úrræði, tegundir lyfja og hvernig heilbrigður lífstíll getur haft áhrif á framgang sjúkdómsins og einkenni hans. MS-sjúkdómurinn er oft nefndur sjúkdómurinn með 1000 andlit þar sem að einkenni hans eru mjög fjölbreytt og óútreiknanleg. MS er langvinnur bólgusjúkdóm...
44. Hvað mun framtíðar þú þakka þér fyrir að gera í dag? (Styrktarþjálfun, mataræði, bætiefni, breytingaskeið kvenna, streita, meðvirkni og að setja mörk). Ragga nagli 02.05.2024 1:29:23
Þátturinn er unninn í samstarfi við Nettó en Naglinn segir Nettó vera útópíu heilsumelsins því þar fæst gríðarlegt úrval af heilsuvörum og bætiefnum. Í þættinum ræðir Erla við Ragnhildi Þórðardóttur sálfræðing um heilsuhegðun og ráðleggingar varðandi æfingar, mataræði og bætiefni, sérstaklega varðandi konur á breytingaskeiði eða forbreytingarskeiði. Þær stöllur ræða einnig um algengar mýtur, strei...
10 ráð til að nærast betur. (Heilsumoli 13) 27.04.2024 6:45
Til þess að finna jafnvægi í lífinu þarf að huga að næringu, bæði frumnæringu og því sem við setjum á diskinn. Frumnæring er allt það sem nærir okkur annað en matur og felst í okkar daglegu athöfnum. Það er okkur lífsnauðsynlegt að staldra við og endurskoða samskipti, atvinnu, hreyfingu, andlegt jafnvægi og fleira. Við vanmetum oft þessa þætti, teljum ekki til næringar og veitum því sjaldnast ath...
43. Nóbelsverðlaun eða Ólympíugull? (Sveitalífið, baráttan við krabbamein og mikilvægi þess að vera með húmorinn að vopni). Dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson 25.04.2024 1:20:36
Í þættinum ræðir Erla við Dr. Sigurbjörn Árna Arngrímsson um lífið og tilveruna, sveitalífið, hlutverk íþrótta, starfið sem kennari og skólameistari, baráttu hans við krabbamein og mikilvægi þess að vera með húmorinn að vopni. Sigurbjörn Árni eða Bjössi eins og hann er oftast nefndur er skólameistari við Framhaldsskólann á Laugum og er einnig einn ástsælasti íþróttalýsandi þjóðarinnar. Ég efast...
Hugleiðsla fyrir svefninn. (Heilsumoli 12) 21.04.2024 20:07
Í þessum heilsumola leiðir Erla þig inn í draumalandið með róandi hugleiðslu. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
42. Út fyrir kassann. (Styrkleikar, sjálfsmynd, núvitund, samskipti og sjálfsrækt). Bjarni Fritzson 19.04.2024 1:15:11
Í þættinum ræðir Erla við Bjarna Fritzson rithöfund, íþróttamann og eiganda sjálfstyrkingarfyrirtækisins Út fyrir kassann um jákvæða sjálfsmynd, núvitund, samskipti, sjálfsrækt, sjálfstraust, gildi og hvernig við hjálpum börnum okkar að byggja upp góða sjálfsmynd með því að aðstoða þau við að finna sína styrkleika. Sjálfur segist Bjarni fyrst og fremst vera fjölskyldufaðir úr Breiðholtinu og íþrót...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.