HeilsuErla
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
78. Með heilsuna í vasanum. (Næringarlæsi, næringarþéttni og kostir og gallar þess að telja macros). Ingi Torfi og Linda Rakel. 18.01.2025 1:20:59
Í þættinum ræðir Erla við hjónin Inga Torfa Sverrisson og Lindu Rakel Jónsdóttur. Þau hjónin hafa á síðust árum hjálpað ótal einstaklingum að bæta heilsu sína og hafa hannað og komið á laggirnar smáforritinu Life Track sem getur stutt við heilsuferðalag fólks á margvíslegan hátt. VIð ræddum um hugmyndafræðina á bakvið appið, hvernig það kom til að fasteignasali og bankastarfsmaður hættu í vinnun...
77. „Standið í lappirnar!" Heilsa og velferð barna og ungmenna. Þorgrímur Þráinsson 11.01.2025 1:05:41
Í þættinum ræðir Erla við Þorgrím Þráinsson rithöfund, fyrirlesara og talsmann heilsu, mannúðar og réttlætis um heilsu, kvíðakynslóðina, skólakerfið, skjánotkun, samfélagsmiðla, tengslamyndun og fleira. Þorgrímur þorir að segja það sem margir hugsa. Hann brennur fyrir það að bæta líðan ungmenna i landinu og hefur um áraraðir haldið fyrirlestra í grunnskólum landsins til þess að aðstoða ungmenni vi...
76. Styrkur er valdeflandi. (Móðurhlutverkið, atvinnumennska, æfingar tengdar tíðahring, meðgöngu og breytingarskeiði kvenna). Anníe Mist Þórisdóttir 04.01.2025 1:45:31
Í fyrsta þætti ársins ræðir Erla við Anníe Mist Þórisdóttur sem er flestum Íslendingum kunnug og reyndar víðs vegar um heiminn líka og er með 1,4 milljón fylgendur á Instagram. Hún er alveg mögnuð íþróttakona sem hefur verið á hæsta leveli í Crossfit síðan árið 2009. Við ræddum um móðurhlutverkið, atvinnumennsku, CrossFit íþróttina og muninn á því að keppa sem einstaklingur eða með liði og hvað þ...
75. Liðleiki, hreyfigeta og lífsgæði. (Styrkur, andleg og líkamleg heilsa, ADHD og að setja sér mörk). Lilja Sigurgeirsdóttir. 19.12.2024 1:29:27
Í þættinum ræðir Erla við Lilju Sigurgeirsdóttur um liðleika, hreyfigetu, lífsgæði, styrk, andlega og líkamlega heilsu, ADHD, að setja sér mörk og margt fleira. Lilja sem er oft kölluð Liðleika Lilja er með alls konar námskeið. Hún þjálfar bæði börn og fullorðna, almenning og íþróttafólk og hjálpar einstaklingum að ná árangri og bæta heilsu sína með aukinni hreyfigetu og styrk. Í lok þáttarins kem...
74. Ungur nemur gamall temur. (Hreyfing heilsunnar vegna, breytingar á íþróttakennslu á 40 árum, knattspyrnuþjálfun og starfslok). Logi Ólafsson 12.12.2024 1:01:46
Í þættinum ræðir Erla við Loga Ólafsson, íþróttakennara, húmorista og knattspyrnuþjálfara um starfsferil Loga sem er langur og viðburðaríkur. Þau ræða um hvað heilsa er mikilvæg, breytingar á 40 árum í íþróttakennslu, knattspyrnuþjálfun, áhugamál, starfslok og fleira. Logi er mörgum kunnugur sem knattspyrnuþjálfari og lýsandi í sjónvarpi. Hann hefur þjálfað mörg knattspyrnulið í gegnum tíðina og...
73. Að finna taktinn. (Húmor, burnout, meðferð, breytingaskeið kvenna og sjálfsmildi). Sóley Kristjánsdóttir 05.12.2024 1:28:27
Í þættinum ræðir Erla við Sóleyju Kristjánsdóttur uppistandara, markþjálfa og stjórnendaþjálfa um mannlega hegðun, húmor, venjur, burnout, meðferð, breytingaskeið kvenna, gæfuspor, sjálfsmildi, mikilvægi þess að taka ábyrgð á sjálfum sér og hvað það getur verið erfitt að vera öðruvísi eða sigla á móti straumnum. Sóley segist stundum fá þráhyggjur fyrir hlutum og fara þá all-in í að grúska um það m...
72. Að vera betri í dag en í gær. (Áhrif meiðsla á andlega líðan og heilsu íþróttafólks). Haraldur Holgersson 28.11.2024 1:06:16
Í þættinum ræðir Erla við Harald Holgersson eða Halla eins og hann er alltaf kallaður. Halli er ekki bara frábær þjálfari heldur einnig magnaður íþróttamaður sem hugsar vel um heilsuna. Halli stefnir á að verða hraustasti maður heims einn daginn. Hann keppti árið 2016 í unglingaflokki á heimsleikunum í Crossfit og svo ári síðar með liði CrossFit XY en svo settu meiðsli smá strik í reikninginn næst...
71. Þyngdarstjórnunarkerfi líkamans og heilsa. (Sjúkdómurinn offita, efnaskiptaaðgerðir, þyngdarstjórnunarlyf, fordómar, lífsstíll og umhverfisþættir). Erla Gerður Sveinsdóttir 21.11.2024 1:16:14
Í þættinum ræðir Erla við nöfnu sína Erlu Gerði Sveinsdóttur lækni og sérfræðing í offitusjúkdómum um sjúkdóminn offitu, efnaskiptaaðgerðir, þyngdarstjórnunarlyf, virkni og aukaverkanir þeirra, nauðsynlegar breytingar á lífstíl í kjölfar inngripa, fordóma gagnvart offitu, áhrif umhverfisþátta á heilsufar og fleira. Erla Gerður hefur unnið við offitumeðferð með einum eða öðrum hætti síðustu 15 árin...
70. Sjálfsvíg, sálgæsla og sorg. (Áhrif á aðstandendur og mikilvægi hreyfingar fyrir andlega heilsu). Auður Hallgrímsdóttir 14.11.2024 1:25:21
Í þætti vikunnar ræðir Erla við dásamlega vinkonu sína og gleðisprengju Auði Hallgrímsdóttur. Auður er mikil félagsvera sem elskar að hreyfa sig úti í náttúrunni. Auður missti föður sinn úr sjálfsvígi fyrir rúmum 5 árum og ákvað strax að hún myndi nýta sér þessa erfiðu lífsreynslu til þess að hjálpa öðrum. Í þessu einlæga og fallega viðtali ræðum við meðal annars um sjálfsvíg, áhrif á aðstandendur...
69. Vertu með þér í liði. (Sjálfsvinna, narsissismi, flókin áfallastreituröskun, að setja mörk, þakklæti og jólahefðir). Helgi Ómarsson 07.11.2024 1:12:02
Í þættinum ræðir Erla við Helga Ómarsson ljósmyndara og jáhrifavald um sjálfsvinnu, narsissisma, flókna áfallastreituröskun, að setja mörk, litla Helga, þakklæti, stolt, jólahefðir og hvernig hann vill nýta rödd sína og þekkingu ti þess að hjálpa öðrum. Helgi er með hlaðvarpið Helgaspjallið og Helgi og Erla áttu afar skemmtilegan dag saman og tóku ,,two for one" þar sem að Erla fór einnig í s...
68. Ástin er ekki takmörkuð. (Áföll, triggerar, traust, tilfinningar, kynlíf, nekt og opin sambönd). Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir 31.10.2024 1:15:07
Í þættinum ræðir Erla við hjónin Árna Björn og Guðrúnu Ósk um lífið og tilveruna, um áföll eins og að eignast langveikt barn, höfuðhögg og heilsuleysi, áfallastreitu, triggera og traust. Einnig ræðum við um mikilvægi þess að leyfa sér að upplifa allar tilfinningar, hvernig samskipti eru lykillinn að góðu sambandi, hvers vegna þau eru vegan, hvernig kynlíf getur orðið betra með árunum, nekt, opin s...
67. Árangur v.s heilsa. (Hámarkssúrefnisupptaka, grunnbrennsla, HRV, mjólkursýra, þjálfunarpúls, zone 1-5, hitaaðlögun, mikilvægi svefns og ofþjálfun). Sigurður Örn Ragnarsson 24.10.2024 1:50:51
Í þætti vikunnar ræðir Erla við Sigurð Örn Ragnarsson, verkfræðing og þríþrautakappa um það hvernig hægt sé að ná sem bestum árangri sem afreksíþróttamaður, ,,kostnað" afreka á heilsuna, hámarkssúrefnisupptöku, HRV, mjólkursýru, þjálfunarpúls, zone 1-5, hitaaðlögun, mikilvægi svefns, ofþjálfun, grunnbrennslu og margt fleira. Sigurður Örn er magnaður íþróttamaður sem nýtir þekkingu sína og rey...
66. Hvað eru grasalækningar? (Lýðheilsa, melting, þarmaflóran, streita, hormónaójafnvægi, tíðarhringur kvenna og rushing womans syndrome). Ásdís Ragna Einarsdóttir 17.10.2024 1:16:37
Í þættinum ræðir Erla við Ásdísi grasa um náttúrulækningar, lýðheilsu, meltingu, þarmaflóruna, streitu, hormónaójafnvægi, tíðarhring kvenna, rushing womans syndrome ofl. Ásdís Ragna er Lýðheilsufræðingur og grasalæknir. Áhugi hennar á virkni lækningajurta og hæfni þeirra til að bæta heilsu fólks kviknaði snemma á lífsleiðinni. Hún hefur lengi haft brennandi áhuga á því hvernig við getum haft áhr...
65. Æfinga- og hreyfifíkn. 2737 hreyfidagar í röð! Steinn Jóhannsson 10.10.2024 58:58
Í þættinum ræðir Erla við Stein Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð um mjög áhugavert tímabil í lífi hans þar sem hann tók ekkert hvíldartímabil í 7,5 ár! Sem sagt hreyfði sig 30 mínútur á dag í 2737 daga og taldi ekki göngutúra og lyfingar með. Þó að hann æfi ekki á hverjum degi lengur er hann þó eintaklega hreyfiglaður maður og er nammigrís sem elskar tölur og tölfræði, sérstaklega í...
64. Hvað þarftu ástin mín? (Jóga, hugleiðsla og heilun eftir áföll). Ágústa Kolbrún Roberts 03.10.2024 1:34:57
Í þætti vikunnar spjallar Erla við Ágústu Kolbrúnu Roberts jógakennara og heilara. Ágústa byrjaði sína andlegu vegferð snemma eftir að hafa verið á flótta frá erfiðri æsku. Þær stöllur ræða á einlæglega um það hvernig æskan hefur mótað hana, hvernig jóga tók yfir líf hennar, hugleiðslu, áföll, heilun og hvernig við þurfum að taka ábyrgð á okkur sjálfum. Hún hefur stundað jóga í 28 ára og kennt f...
Núvitund - 7 mínútna sitjandi hugleiðsla. (Heilsumoli 14) 01.10.2024 7:16
7 mínútna sitjandi hugleiðsla og núvitundaræfing þar sem við færum athygli okkar á milli skynfæra. Hægt að gera hvar og hvenær sem er. Njótið! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
63. Rekjum upp þræði skammarinnar. (Kynfræðsla, samskipti, kynheilbrigði, skömm, opin sambönd og væntingar). Sigga Dögg 26.09.2024 1:30:02
Í þættinum ræðir Erla við Siggu Dögg kynfræðing um kynfræðslu, kærleika, mikilvægi samskipta í kynlífi og lífinu almennt, kynheilbrigði, skömm, opin sambönd, væntingar og hvernig breytingarskeið kvenna er tækifæri til að losa sig við það sem þjónar manni ekki lengur. Sigga Dögg hefur lagt mikinn metnað í að fræða unga sem aldna um kynlíf síðustu ár og áratugi. Undanfarin ár hefur hennar helsta s...
62. Hvernig er hægt að ná árangri án þess að missa vitið og heilsuna? (Hæfni, færni, sjálfstæði, hamingja og hugrekki). Krumma Jónsdóttir 19.09.2024 1:07:13
Í þættinum ræðir Erla við Krummu Jónsdóttur sem starfar sem árangursráðgjafi um hæfni, færni, sjálfstæði, hamingju og hugrekki, hvað við þurfum til að dafna og hvernig við náum árangri án þess að missa vitið og heilsuna. Til að ná árangri þurfum við fjölþætta vellíðan, líkamlega, andlega og félagslega. Þegar við erum í jafnvægi og upplifum vellíðan í þessum þáttum, erum við betur í stakk búin til...
61. Það felst svo mikið frelsi í því að vera vel nærður. (Breytingaskeið, þyngdarstjórnun, efnaskiptaheilsa, hormónaójafnvægi og hreyfingaleysi). Lukka Pálsdóttir 12.09.2024 1:12:55
Í þættinum ræða Lukka og Erla um breytingaskeiðið, þyngdarstjórnun, efnaskiptaheilsu, hormónaójafnvægi, alvarleika hreyfingaleysis, hvatberavirkni, hvað það skiptir miklu máli að fólk viti að það er með lífi í lúkunum og margt fleira. Lukka er einn af stofendum og eigindum GreenFit og hefur áratuga reynslu af að hjálpa fólki að bæta heilsu með mataræði og hreyfingu. Hún hefur starfað í 30 ár við...
60. Heilbrigt samband við mat. (Matarvenjur, ADHD, næringarþéttni, næringarlæsi og þarmaflóran). Heiðdís Snorradóttir 05.09.2024 1:22:53
í þættinum ræðir Erla við Heiðdísi Snorradóttur næringarfræðing um hvað það er að eiga í heilbrigðu sambandi við mat, matarvenjur, ADHD og mataræði, næringarþéttni matvæla, næringarlæsi, áhrif þarmaflórunnar á almenna heilsu og margt fleira. Heiðdís er stofnandi og meðeigandi Endurnæringar og næringarfræðingur MSc með áherslu á lýðheilsu. Hún sérhæfir sig í að hjálpa einstaklingum að byggja upp h...
59. Hvers vegna er tengslamyndun mikilvæg fyrir heilsu okkar? (Ungbarnasund, örugg tengsl, fæðingarþunglyndi, vanræksla og tenglsaröskun). Katrín Kristjánsdóttir 29.08.2024 1:09:09
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Kristjánsdóttur, sálfræðing um tengslamyndun og afhverju hún er mikilvæg, áhrif tengslamyndunar í æsku á heilsu okkar í framtíðinni, rannsóknir á tengslamyndun í ungbarnasundi, örugg tengsl, fæðingarþunglyndi, vanrækslu, tenglsaröskun, ,,good enough” foreldra...
58. ADHD og heilsa. (Sjálfsvitund, vinnsluminni, tilfinningastjórnun, frestunarárátta, kynjamunur, gagnsemi lyfja og fordómar). Anna Tara Andrésdóttir 22.08.2024 1:34:12
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þætti vikunnar ræðir Erla við Önnu Töru Andrésdóttur um ADHD, sjálfsvitund, vinnsluminni, tilfinningastjórnun, frestunaráráttu, kynjamun, gagnsemi lyfja, fordóma og áhrif ADHD á heilsu og öfugt. Þær stöllur ræða einnig um áhrif hreyfingar, mataræðis og svefns á ADHD og áhrif kynþroskaskeið...
57. Vertu listamaður í að lifa. (Venjur, hegðun, þarfir, neðansjávardjúpmarkþjálfun og morgunsíður). Guðbjörn Gunnarsson 15.08.2024 1:11:06
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þætti vikunnar ræðir Erla við Guðbjörn Gunnarsson sérlegan áhugamann um fólk, einkaþjálfara og markþjálfa um venjur, hegðun, þarfir, hvað það er að vera listamaður í að lifa, neðansjávardjúpmarkþjálfun, morgunsíður og hvernig við berum ábyrgð á eigin heilsu. Guðbjörn hefur unnið með fólki...
56. Að forðast kvíða er eins og að forðast skuggann af sér. (Heilsu- og næringarlæsi, skólaforðun, tilfinningalæsi, samkennd og meðvirkni). Davíð Aron Routley 08.08.2024 2:00:45
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þætti vikunnar ræðir Erla við Davíð Aron Routley, heilsumarkþjálfa, jógakennara og einkaþjálfara um heilsu- og næringarlæsi, skólakerfið, hegðunarvanda, skólaforðun, kvíða, tilfinningalæsi, samkennd og meðvirkni. Þau ræða einnig um áhrif umhverfis, markaðssetningar og efnahagskerfisins á h...
55. Félagslegir töfrar. (Tilfinningaleg smitun, félagslegt heilbrigði, stemmning og hlutverk íþrótta). Viðar Halldórsson 31.07.2024 1:24:18
Hlaðvarpið er unnið í samstarfi við: Nettó - netto.is Spíruna - spiran.is Heilsuhilluna - heilsuhillan.is Í þætti vikunnar ræðir Erla við Viðar Halldórsson, félagsfræðing og prófessor við Háskóla Íslands um samfélagið, félagslega töfra, tilfinningalega smitun, félagslegt heilbrigði, stemmningu, tæknilega skynsemisvæðingu, hlutverk íþrótta og fleira. Viðar bendir á að félagsleg samskipti eru grunnb...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.