HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

Health IS ↓ 167 episodes

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Author

HeilsuErla

Category

Health

Podcast website

www.heilsuerla.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

93. Að týnast í myrkrinu. (Andleg heilsa, áskoranir, sjósund og seigla). Sigurgeir Svanbergsson 02.08.2025

Í þættinum ræðir Erla við Sigurgeir Svanbergsson , íslenskan sjósundskappa sem lét ekki veðrið, öldurnar né marglyttur stoppa sig þegar hann lagði upp í eitt stærsta sundævintýri sem hægt er að ímynda sér, að synda yfir Ermasundið. Markmið hans var ekki aðeins að takast á við þessa gríðarlegu áskorun heldur einnig að vekja athygli og safna áheitum fyrir Píeta samtökin, sem vinna ómetanlegt starf í...

92. Frjósemi og heilsa. (Mögulegar ástæður ófrjósemi, mýtur, offita, úrræði og hlutverk lífsstíls). Snorri Einarsson 26.07.2025

Í þættinum ræðir Erla við Snorra Einarsson sérfræðing í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum um áhrif lífsstíls á frjósemi, mögulegar ástæður ófrjósemi, mýtur og hvaða úrræði eru í boði.                   Snorri hefur starfað við ófrjósemislækningar frá 2006 og er framkvæmdastjóri, yfirlæknir og einn af stofnendum Livio Reykjavík.  Í frítímanum er það fjölskyldan og börnin fjögur sem skipa stærstan s...

91. Turning obsession into purpose. (Mental health, OCD, passion and healing). Matt Moreman 12.07.2025

In this first English speaking episode Erla´s guest is Matt Moreman, the creator of the hugely popular YouTube channel “ Obsessed Garage .” With over half a million followers, Matt has built a loyal audience by sharing his deep passion for quality, detail, and all things garage-related. But behind the videos is a personal story. Matt was diagnosed with OCD, and what started as a personal struggle...

90. Hvað er fjórða vaktin? (Foreldrakulnun, hindranir í kerfinu og úrræði). Lóa Farestveit Ólafsdóttir og Sara Rós Kristinsdóttir 28.06.2025

Í þætti vikunnar komu til Erlu í afar áhugavert spjall þær Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir til að ræða um fjórðu vaktina, foreldrakulnun, hindranir í kerfinu, podcastið 4.vaktina og margt fleira. En hvað er fjórða vaktin? Þriðja vaktin hefur fengið töluverða umræðu síðustu ár og er þar verið að vitna í það huglæga sem fólk þarf að sinna umfram daglega vinnu. Fyrir foreldra fa...

89. Ertu að hella upp á gleði eða sorg? (Öryggi, tengslamyndun, tengslarof, taugakerfið, uppeldi og sjálfsvinna). Angelía Fjóla Vilhjálmsdóttir 14.06.2025

Í þættinum ræðir Erla við Angelíu Fjólu Vilhjálmsdóttur um öryggi, tengslamyndun, tengslarof, tilfinningar, viðbrögð taugakerfisins, ég og þú boð, uppeldi, bjargráð, mikilvægi þess að tilheyra og sjálfsvinnu. En þetta eru allt þættir sem hafa mikil áhrif á heilsu okkar. Angelía Fjóla segir á einlægan hátt sögu sína sem er átakanleg og mótaði hana mikið. Hún segir að lífsreynslan hafa skilið eftir...

Núvitund- 4 mínútna hleðsla (Heilsumoli 24) 10.06.2025

Þú getur nýtt þér þessa örstuttu núvitundaræfingu þegar þú átt erfitt með að einbeita þér eða þarft aðeins að taka þér hugrænt hlé og ,,hlaða batteríiin þín". Núvitund er hugtak sem lýsir þeirri athygli sem við beinum viljandi að því sem er að gerast hér og nú, á hlutlausan og opinn hátt. Núvitund felur í sér að: Vera í meðvitund Veita athygli t.d. öndun, líkamshlutum, hugsunum eða tilfinning...

88. Þegar áskoranir verða innblástur. (Nýtt líf eftir veikindi, nýsköpun, næring sem boðefni, magasýrur, insúlínviðnám og óþol). Beta Reynis 31.05.2025

Í þættinum ræðir Erla við Betu Reynis næringarfræðing, næringarþerapista og frumkvöðul um magnaða lífreynslu þegar hún greindist með taugasjúkdóminn Guillain–Barré og lamaðist en náði að vinna sig upp úr heilsuleysinu með hugarfari og lífstíl.  Þær stöllur ræða um næringu almennt og ýmsar næringarráðleggingar varðandi t.d. blóðsykur, magasýrur, fræolíur, soja prótein, eplaedik, bætiefni og steinef...

Astaxanthin. (Heilsumoli 23) 29.05.2025

Heilsuvara mánaðarins hjá HeilsuErlu og Heilsuhillunni er Astaxanthin. Astaxantín er öflugt andoxunarefni sem er aðallega unnið úr örþörungum (Haematococcus pluvialis) og gefur t.d. laxi, rækjum og flamingófuglum bleikarauðan litinn. Það er gagnlegt af nokkrum ástæðum en Astaxanthin hefur verið mikið rannsakað og er talið meðal annars:  •styðja við húðheilsu – bæði gegn sólarskemmdum og öldrun húð...

Heimur geðlæknisins, Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 20) 17.05.2025

Í fyrsta viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr. Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um heim geðlæknisins og geðlæknisfræðina.  Hvernig starfar geðlæknir og hefur starfið breyst mikið? Eru tengsl á milli þarmaflóru og geðheilsu? Hver er helsti misskilningurinn um geðsjúkdóma? ofl  Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran . Dásamlegur veitingastaður staðsettur í...

Forvarnir í geðheilsu. Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 21) 17.05.2025

Í öðru viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr. Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um forvarnir í geðheilsu. Hverjar eru helstu forvarnir í geðheilsu og eru þær árangursríkar? Afhverju er aukning í streitu og kulnun? Hvaða áhrif lífsstíll og kröfurnar í nútímasamfélagi? ofl Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran . Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðhei...

Heilsumissir í kjölfar áfalla. Dr. Ólafur Þór Ævarsson (Heilsumoli 22) 17.05.2025

Í þriðja viðtalinu (heilsumolanum) af þremur við Dr. Ólaf Þór Ævarsson geðlækni ræða þau Erla um heilsumissi í kjölfar áfalla.  Hvernig hafa áföll áhrif á heilsu okkar? Hvað er að gerast í heilanum? Hvað er að gerast í líkamanum? Geta áföll setið í taugakerfinu? Er hægt að ná bata? Dyggir samstarfsaðilar hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum eru: Spíran . Dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheim...

Sagan og maðurinn á bakvið Spíruna. (Heilsumoli 19) 15.05.2025

Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu. Næsti samstarfsaðili sem ég kynni til leiks er Spíran.  Sumarsalat HeilsuErlu er nú komið á matseðil Spírunnar og ekkert ykkar ætti að láta það fram hjá ykkur fara!  Spíran er dásamlegur veitingastaður staðsettur í Garðheimum við Álfabakka 6 í Reykjavík. Hann er fjölskylduvænn bistró-staður sem legg...

Gagnsemi kísils og GeoSilica. (Heilsumoli 18) 10.05.2025

Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu. Fyrst í spjall til mín var Steinunn Ósk Valsdóttir, markaðsstjóri Geo Silica sem er nýjasti samstarfsaðilinn. Steinunn segir okkur frá fyrirtækinu og gagnsemi kísils en GeoSilica® framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi til daglegrar inntöku, sem hjálpa til við endurnýjun líkamans frá toppi...

87. Töfrarnir í hinu óformlega. (Lýðskólar, innri vöxtur, heilsumissir, flæði og valdefling). Margrét Gauja Magnúsdóttir 03.05.2025

Í þætti vikunnar ræðir Erla við Margréti Gauju Magnúsdóttur sem er að eigin sögn orkusprengja með mjög litríka og skrautlega ferilskrá. Hún starfar nú sem skólastjóri Lýðskólans á Flateyri og brennur fyrir óformlega menntakerfinu, úrræðum og velferð ungmenna. Við ræddum um lýðskóla, þar sem nemendur koma í skólann af innri áhuga og forvitni, fá hrós, hvatningu og stuðning. Engar einkunnir og ekker...

86. Meðvirkni og heilsa. (Birtingarmyndir og áhrif, ytra og innra virði, hvatvísi, ADHD, hugleiðsla og heilsumissir). Valdimar Þór Svavarsson 19.04.2025

Í þætti vikunnar ræðir Erla við Valdimar Þór Svavarsson um meðvirkni og þau áhrif hún getur haft á líf okkar og heilsu. Meðvirknin er lævíst og lamandi fyrirbæri sem snertir fleiri en flesta grunar. Þau ræða um hvað meðvirkni er, hvernig hún þróast og hvernig hún getur birst í lífi okkar en einnig um heilsumissi Valdimars eftir að hann var bitinn af skógarmítli, ytra og innra virði, hvatvísi, ADHD...

85. Það er svo gaman að vera sterkur! (Agi, þolinmæði, vinnusemi, þyngdarflokkar, lífsstíll og Ólympíuleikar). Eygló Fanndal Sturludóttir 05.04.2025

Í þættinum ræðir Erla við Eygló Fanndal Sturludóttur, unga og efnilega íþróttakonu og læknisfræðinema um hvað þarf til þess að ná góðum árangri, þyngdarflokka, jafnvægi, heilbrigðan lífsstíl, imposter syndrome og hvernig það er að vera afreksíþróttakona á Íslandi og fleira.  Eygló er afrekskona í Ólympískum lyftingum sem hefur verið á þvílíkri „siglingu" undanfarið. Hún fékk nýverið tilnefnin...

84. Alkóhólismi og heilsa. (Fíknisjúkdómar, afneitun, að taka ábyrgð, þakklæti, að sleppa fortíðinni og hætta að óttast framtíðina.) Kristján B. 22.03.2025

Í þættinum ræðir Erla við Kristján um alkóhólisma, fíknisjúkdóma, afneitun, að taka ábyrgð, þakklæti, erfiðar tilfinningar, hvað það er mikilvægt að sleppa fortíðinni og hætta að óttast framtíðina og nýtt upphaf. Ég bauð honum til mín eftir að hafa lesið falleg skrif hans á FaceBook í byrjun árs. Hann sagði þá frá því að eftir 17 ár edrú hafi sjúkdómurinn náð að komast inn fyrir varnir hans því ha...

Hundraðasti þátturinn! (Heilsumoli 17) 17.03.2025

Heil og sæl kæru hlustendur, í tilefni þess að þessi þáttur er sá hundraðasti sem ég gef út þá langar mig að koma með smá samantekt af því hvað ég hef lært á þessu ferli og smá vangaveltur um heilsu.  Ég hef sem sagt gefið út 83 viðtöl og þetta er 17. Heilsumolinn sem gerir samtals 100 þætti, hvorki meira né minna. Það sem ég upplifi þegar ég tek þetta saman er Stolt og þakklæti.  Ég er virkilega...

83. Lífsstílslækningar. (6 grunnstoðir heilsu, samfélagssjúkdóma, ME- sjúkdómurinn, blóðsykurstjórnun og lífsstílsbreytingar.) Kjartan Hrafn og Tekla Hrund 08.03.2025

Í þættinum ræðir Erla við hjónin og læknana, Kjartan Hrafn Loftsson og Teklu Hrund Karlsdóttur um Lífsstílslækningar, 6 grunnstoðir heilsu, þróun í læknavísindum, samfélagssjúkdóma, ME-sjúkdóminn, blóðsykurstjórnun og fleira auk þess hversu áhrifaríkar lífsstílsbreytingar geta verið til að fyrirbyggja eða bæta ástand flestra langvinna sjúkdóma og auka lífsgæði.  Tekla og Kjartan eru stofnendur fyr...

82. „Skipulag í óreiðunni" (Félagskvíði, átröskun, ófrjósemi, frestunarárátta, þakklæti og heilbrigðar venjur.) Katrín Edda Þorsteinsdóttir 22.02.2025

Í þættinum ræðir Erla við Katrínu Eddu Þorsteinsdóttur, tveggja barna móður og vélaverkfræðing um lífið og tilveruna, ófrjósemi, foreldrahlutverkið, heilbrigðar venjur, andlega heilsu, félagskvíða, átröskun, heilbrigt samband við mat, þakklæti, frestunaráráttu, ADHD, ofbeldissamband, samfélagsmiðla og fleira.  Katrín Edda sem búsett er í Þýskalandi hefur vakið mikla athygli á Instagram þar sem hún...

81. Náttúran kallar. (Að gista í hellum, sofa undir berum himni, elda mat á hverum og baða sig á leyndum baðstöðum.) Úlfar Jón Andrésson 08.02.2025

Í þessu áhugaverða spjalli kynnumst við Úlfari Jóni Andréssyni sem fer ekki hefðbundnar leiðir í lífinu. Hann er fæddur og uppalinn í Hveragerði og býr þar ásamt eiginkonu sinni og tveimur litlum börnum. Við ræðum um uppeldið og lífsstíl hans sem felst mikið í útivist, t.d. að gista í hellum, sofa undir berum himni og jafnvel í snjóstormi, elda mat á hverum, skauta á gígjum og baða sig á leyndum b...

Hvað er Lífshlaupið? (Heilsumoli 16) 03.02.2025

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. ÍSÍ styðst við ráðleggingar Embætti landlæknis um hreyfingu. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má f...

80. Heilsueflandi vinnustaðir og fyrirbyggjandi læknisfræði. (Hamingja, menning, kulnun og uppbyggingarleyfi). Hilda Hrönn Guðmundsdóttir 01.02.2025

Í þætti vikunnar ræðir Erla við Hildu Hrönn Guðmundsóttur sérnámslæknir í heimilislækningum um heilsueflandi vinnustaði, vellíðan, hamingju, viðhorf, menningu, kulnun, uppbyggingarleyfi, tækifæri á Íslandi og fleira.    Hilda Hrönn starfar á Heilsugæslunni á Akureyri og brennur fyrir fyrirbyggjandi læknisfræði og lýðheilsu og hefur sérstakan áhuga á heilsu lækna og heilbrigðisstarfsfólks almennt....

79. Í alvöru talað! (Streita, kulnun, áföll, veikindaleyfi og sjálfsvinna). Gulla og Lydía Ósk 25.01.2025

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum, spjallar Erla við stórskemmtilegu vinkonurnar, Gullu og Lydíu Ósk sem halda úti hlaðvarpinu Í alvöru talað!  Í þættinum ræða þær meðal annars um áföll, erfiða æsku, kulnun, streitu, veikindaleyfi, skömm, nauðsynlegar samfélagslegar breytingar og sjálfsvinnu. Þær stöllur eru að eigin sögn miðaldra mæður að láta móðan mása. Lydía er sálfræðingur og j...

Djúpslökun- 35 mínútur. (Heilsumoli 15) 20.01.2025

Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkam...

Listen to the Með lífið í lúkunum podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.