HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

Health IS ↓ 177 episodes

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.heilsuerla.is

Author

HeilsuErla

Category

Health

Podcast website

www.heilsuerla.is

Latest episode

Sep 25, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

111. Öndun er mitt hjartans mál. (Streita, öndunaræfingar, ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu og meðvirkni). Lilja Steingrímsdóttir 20.03.2026

Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða. Lilja sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í 44 ár segir öndun hafa bjargað lífi sínu og geðheilsu þegar hún skildi, flutti og fékk nýja vinnu allt á sama tíma. Hún kyn...

110. Allt mótlæti kemur frá okkur sjálfum. (Ævintýri, ögrun og sjálfsþroski). Inga Þóra Ingadóttir 07.03.2026

Í þættinum ræðir Erla við Ingu Þóru Ingadóttur, dásamlega stelpukonu um ævintýri lífsins, áskoranir, að ögra sjálfum sér, sjálfsvinnu, tækifæri og hvernig það er að flytja í ný lönd og kynnast ólíkri menningu.  Inga er algjör nagli en samt með svo ótrúlega róandi og trausta nærveru sem skín í gegn í viðtalinu. Hún er íþróttakona, þjálfari og móðir sem brennur fyrir það að hjálpa fólki að vera best...

109. A better you. (Declining nutrient status, food processing, soil degredation, absorption of supplements and wellness.) Andrew Thomas 28.02.2026

In this conversation, Andrew Thomas, founder of Better You, shares his personal journey from the fashion industry to the health sector, driven by his own health challenges as an asthmatic. He discusses the importance of magnesium and its role in overall health, the decline in nutritional quality of food, and the significance of vitamins and minerals in our diets.  Andrew emphasizes the need for ed...

108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar.) Kristborg Bóel Steindórsdóttir 20.02.2026

Í þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda. Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt foreldri, að missa foreldra, tilvistarkreppu, breytingarskeið, streitu, ADHD og drauma. Ástríða Kristborgar liggur í því að segja sögur og fá aðra til þess að segj...

107. Óútskýrðir langvinnir verkir. (Verndarkerfi líkamans, næming, öryggi, ótti og aðlögunarhæfni taugakerfisins.) Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur 07.02.2026

Í þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilausnir bæði á Instagram og Facebook. Í þættinum ræða þær um skilgreiningu óútskýrðra langvinnra verkja og hvað er til ráða þegar þeir eru til staðar. Það sem e...

Hvað er blóðsykurstjórnun? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 41) 30.01.2026

Í þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum. Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á eigin mataræði og eigin heilsu með því að hlusta á líkamann og margt fleira.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

Hvað er Nikkel óþol? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 39) 30.01.2026

Í þessum fyrsta Heilsumola af þremur ræðir Erla við Elísabetu Reynisdóttir næringarfræðing og næringarþerapista um Nikkel óþol.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

Magasýrur, hvers vegna skipta þær miklu máli? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 40) 30.01.2026

Í þessum öðrum Heilsumola af þremur ræðir Erla við Betu Reynis um magasýrur, einkenni um lágar magasýrur og einkenni ef magasýrur eru háar, hvernig við eigum að bregðast við og hvað við getum gert með mataræði til þess að hafa góð áhrif.   Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

Frábær febrúar, 28 daga heilsuáskorun HeilsuErlu. (Heilsumoli 38) 29.01.2026

Hefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað?  Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af stað og þá verður allt auðveldara í kjölfarið. Ein af uppáhalds tilvitnunum mínum er ACTION OFTEN COMES BEFORE MOTIVATION en þýðir að stundum þurfum við einfaldlega a...

106. Að veikjast á dularfullan hátt. (Óþol fyrir tækni, hljóðfælni, verkir, P-DTR meðferð, samvægi og núllstilling taugakerfisins). Sölvi Freyr Valdimarsson 23.01.2026

Í þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk.  Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækna, taugalækna, heimilislækna, sjúkraþjálfara, naprapata, heilara, nálastungu og margra fleiri fann hann loksins bót meina sinna eftir 10 kvalarfulla og krefjandi mánuð...

Byrjaðu árið með stæl. (Heilsumoli 37) 17.01.2026

Smá pepp frá HeilsuErlu inn í árið 2026.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

Hjartsláttarbreytileiki (HRV). Sigrún Haraldsdóttir. (Heilsumoli 36) 10.01.2026

Í þessum stutta Heilsumola útskýrir Sigrún hvað Hjartsláttarbreytileiki (HRV) er og hvernig við getum mælt hversu sterk Vagus taugin er og bætt svokallað Vagal tone með öndun.  Heilsumolinn er framhald af viðtali nr. 105.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

105. Ert þú með ofþanið taugakerfi? (Vagus taugin, öndun, bandvefur, líkamsvitund og jafnvægi.) Sigrún Haraldsdóttir 09.01.2026

Í þættinum ræðir Erla við Sigrúnu Haraldsdóttur stofnanda Happy hips um Vagus taugina (Flökkutaugina), bandvef, ofþanið taugakerfi, hraðann í nútíma samfélagi, öndun, líkamsvitund og hvernig hægt er að núllstilla taugakerfið.   En hvað er Vagus taugin? Vagus taugine að Flökkutaugin eins og hún er líka nefnd er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans...

Box öndun í boði Sigrúnar Haralds (Heilsumoli 35) 07.01.2026

Á næstu dögum fer í loftið alveg frábært viðtal við Sigrún Haraldsdóttur eiganda Happy hips um Vagus taugina. Hún talar meðal annars um mikilvægi öndunar til þess að róa taugakerfið og býður ykkur hér upp á stutta öndunaræfingu sem þið getið nýtt ykkur hvar og hvenær sem er.  Box öndun (Kassaöndun) 6-4-8-4. Sigrún Haraldsdóttir leiðir okkur í gegnum áhrifaríka öndunaræfingu til þess að róa taugake...

2026 Himnastigar- Sjáumst á nýársdag (Heilsumoli 34) 31.12.2025

Sjáumst í Himnastiganum í Kópavogi á nýársdag.  Síðustu þrjú ár (á nýársdag) hef ég haldið viðburð í Himnastiganum sem er nú orðinn ómissandi hefð fyrir marga. Í þessum örstutta Heilsumola segi ég frá því hvernig þetta byrjaði allt á 365 Himnastigum árið 2023, sem urðu svo 1000 Himnastigar árið 2024 og loks 2025 Himnastigar árið 2025.  Á nýársdag 1.janúar 2026 ætlum við að endurtaka leikinn hafa g...

104. Mataræði er kóngur. (Heilsuvenjur, föstur, kríur, jarðtenging og fleira.) Sigurjón Ernir Sturluson 26.12.2025

Í þættinum ræðir Erla við Sigurjón Erni Sturluson, íþróttafræðing, ofurhlaupara og frumkvöðul um æsku hans og hvernig hún hefur mótað hann, heilsuvenjur, jarðtengingu, kríur, föstur, næringarþéttni, ranghugmyndir í samfélaginu, tilgang lífsins og fleira. Sigurjón er eigandi UltraForm og er einnig með hlaupaþjálfun og lífsstílsþjálfun. Hann hefur reynt flest á eigin skinni til að komast að því hver...

103. Að dúxa endurhæfingu. (Lýðheilsa, heilaheilsa, öndunaræfingar, næringarþéttni, hreyfing og svefn). Sonja Sif Jóhannsdóttir 12.12.2025

Í þættinum ræðir Erla við Sonju Sif Jóhannsdóttur, íþróttafræðing um lýðheilsu, heilaheilsu, endurhæfingu eftir höfuðhögg, Vagus taugina, mikilvægi öndunaræfinga, næringarþéttni, svefn, hreyfingu, spennandi rannsókn sem hún gerði á heilsu sjómanna og margt fleira.  Sonja starfar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Háskóla Íslands, hún er íþróttakona og mögnuð heilsufyrirmynd. Hún hefur starfað í „he...

Svo lengi lærir sem lifir. Ólympískar lyftingar, HM ævintýrið og hugarfar. Kári Walter og HeisluErla (Heilsumoli 33) 05.12.2025

Í undirbúningi mínum fyrir HM í ólympískum lyftingum stakk Kári þjálfari upp á því að við myndum taka smá hlaðvarpsspjall um vegferðina. Úr varð skemmtilegur og óhefðbundinn þáttur þar sem að ég er ekki spyrillinn heldur er þetta spjall um muninn á ólympískum lyftingum og kraftlyftingum, hvers vegna styrktarþjálfun er mikilvæg fyrir alla og hvers vegna ólympískar lyftingar eru frábær stuðningur vi...

102. Hvað eru „triggerar"? (Áfallastreita, sjálfsvitund, taugakerfið og leiðavísir að ósýnilegum sárum). Anna Sigurðardóttir 28.11.2025

Í þessum þætti ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um triggera eða kveikjur. Leitast er við að svara ýmsum áhugaverðum spurningum. Hvað eru triggerar? Hver ber ábyrgð á því að við triggerumst? Afhverju bregðumst við við á ólíkan hátt og hvað getum við gert í kjölfarið? Hvað er áfallasteita? Hvað er kveikjuviðvörun? Trigger getur verið leiðavísir að ósýnlegum sárum og tækifæri til sjálfsv...

Hvað liggur að baki þörfinni fyrir að hafa stjórn? Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 31) 28.11.2025

Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um þörfina fyrir það að hafa stjórn. Hvað liggur að baki?  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

Sambandið við okkur sjálf. Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 32) 28.11.2025

Skemmtilegt spjall við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um tengslin eða sambandið við okkur sjálf.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

Hugleiðsla fyrir triggera. Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 30) 21.11.2025

Á næstunni kemur út þáttur um triggera eða kveikjur. Frábært viðtal við Önnu Sigurðardóttur sem lýsir á mannlegan og um leið faglegan hátt hvað gerist í líkamanum og afhverju þegar við ,,triggerumst".  Hér kemur ein stutt hugleiðsla sem hægt er að nýta við þessar aðstæður.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !

101. Sorg er eins og öldugangur. (Íþróttir, ofþjálfun, missir, áföll, örmögnun, lífsgleði og drifkraftur). Silja Úlfarsdóttir 15.11.2025

Í þættinum ræðir Erla við Silju Úlfarsdóttur um lífið, sorgina, missir, áföll, mikilvægi íþrótta, eldmóð, fyrirmyndir og margt fleira. Farið er yfir allan tilfinningaskallann frá hlátri til gráturs. Silja er að eigin sögn íþróttapönkari sem brennur fyrir málefni sem tengjast íþróttum og hefur verið mikill jáhrifavaldur í þeim málefnum síðustu ár. Hún er algjör gleðisprengja, vinur vina sinna, stór...

100. Heilsuspjall fegðina. (Fyrirmyndir, lágkolvetna mataræði, heilbrigðiskerfið, örmögnun og lífsstíll). Dr. Guðmundur Björnsson 01.11.2025

Í þættinum ræðir Erla við Guðmund Björnsson föður sinn og heilsufyrirmynd um starfsferil hans sem læknir, lífstíl, lágkolvetna mataræði, heilbrigðiskerfið, mikilvægi þess að hugsa vel um heilsuna, vera ekki fastur í vítahring þess að þurfa að taka þátt í öllu sem er í boði, stressaðu sig ekki of mikið og taka hlutunum ekki of alvarlega. Guðmundur er sérfræðingur endurhæfingarlækningum og hefur sta...

99. Ekki vera hrædd við að gera mistök. (Móðurmissir, dugnaður, þrjóska, mörk og hættuleg ímynd ofurkonunnar). Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir 25.10.2025

Í þættinum ræðir Erla við hina dásamlegu Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur um lífið og tilveruna, að alast upp hjá einstæðum föður, eldmóð í starfi, mikilvægi þess að setja mörk, hvernig það er að eiga tvíbura, hættulega ímynd ofurkonunnar, metnað, dugnað og þrjósku. Ragnhildur Steinunn er líklega flestum landsmönnum kunnug enda hefur hún verið ein öflugasta sjónvarps- og dagskrárgerðarkona landsins...

Listen to the Með lífið í lúkunum podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.