HeilsuErla
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
14. Heildræn heilsa, sjúkraþjálfun og stoðkerfisfræðingar. Hildur Kristín Sveinsdóttir 01.10.2023 1:03:44
Í þættinum ræðir Erla við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara og eiganda Sjúkrasport (Sjúkraþjálfunin í Sporthúsinu). Hildur Kristín ræðir um starf sjúkraþjálfara frá sínu sjónarhorni og hvernig henni þætti réttara að stéttin héti ,,stoðkerfisfræðingar" sem er meira lýsandi fyrir hennar starf. Hún vinnur mjög heildrænt og tekur inn í myndina alla ,,vinkla" sem hafa áhrif á heils...
13. Heilsumissir, skömm, sorg og samkennd. Anna Sigurðardóttir 24.09.2023 59:29
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur, sálfræðing og stofnanda og eiganda Samkenndar Heilsuseturs um það hvernig hún missti heilsuna eftir röð áfalla og hvernig hún hefur hægt og rólega komist aftur til betri heilsu. Þær stöllur ræða um hlutverk sálfræðinga, um skömm, sorg, samkennd, örmögnun, kulnun og heilsumissi. Anna útskýrir á skemmtilegan hátt afhverju það er svo erfitt að breyta ve...
12. Hvað er fjárhagsleg heilsa og fjárhagslegt heilbrigði? Björn Berg Gunnarsson 18.09.2023 1:05:14
Ég minni hlustendur hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum að með því að nota kóðann "heilsuerla" og fáið þið 20% afslátt af Under Armour og Mizuno vörum í Altis Bæjarhrauni, Altis.is og Under Armour verslun í Kringlunni út október 2023. Í þættinum ræðir Erla við Björn Berg Gunnarsson, viðskiptafræðing með meiru um fjárhagslega heilsu og hvað fjárhagslegt heilbrigði er og hvað það er ekki og...
Öndunaræfing 4-7-8. (Heilsumoli 3) 16.09.2023 7:00
Heilsumoli dagsins er öndunar- og núvitundaræfing. Öndunaræfingar aðstoða okkur við að slaka á og gleyma stað og stund. Öndunaræfingar róa taugakerfið og hugann, geta minnkað streitu og kvíða og bætt einbeitingu og svefn. Með því að hafa meiri stjórn á önduninni verður öndunin dýpri og hægari. Með því er hægt að lækka blóðþrýstinginn, slaka á spennu í líkamanum og bæta heilsu hjartans. Æfingin...
11. Hvernig getur sköpunargleði haft áhrif á heilsu okkar? Birna Dröfn Birgisdóttir 12.09.2023 37:10
Í þættinum ræðir Erla við Birnu Dröfn Birgisdóttur, sköpunargleðifræðing um það hvernig sköpunargleði getur haft áhrif á heilsu okkar og hvernig heilsa okkar getur haft áhrif á sköpunargleði. Birna er er doktorsnemi í Háskólanum í Reykjavík þar sem hún rannsakar sköpunargleði og hvernig leiðtogastíllinn þjónandi forysta hefur áhrif á sköpunargleði starfsmanna. Birna hefur safnað að sér ýmsum tólum...
Vangaveltur um félagslega heilsu. (Heilsumoli 2) 10.09.2023 3:42
Hefur þú upplifað félagslegt heiluleysi? Skilgreining Alþjóðaheilbrigðisstofnunar (WHO): ,,Heilsa er algjör líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan, en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og örorku.“ Við þurfum því að huga jafnt að öllum þessum þremur þáttum því að ef einn fer úr jafnvægi þá hefur það áhrif á hina þættina. Spurðu þig reglulega, Hvað þarf ég til þess að mér líði vel og Hve...
10. Félagsleg heilsa og mikilvægi hennar. Hrefna Hugosdóttir og Ragnhildur Bjarkadóttir 05.09.2023 1:00:55
Í þættinum ræðir Erla við Hrefnu Hugósdóttur, hjúkrunarfræðing og Ragnhildi Bjarkadóttur, sálfræðing um félagslega heilsu og mikilvægi hennar. Þær stöllur eru einnig fjölskyldufræðingar og stofnuðu Auðnast árið 2014 í þeim tilgangi að þjónusta atvinnulífið um allt er varðar heilsu og félagslegt öryggi starfsfólks. Sama ár var Auðnast klíník opnuð en þar er boðið upp á þverfaglega meðferð, handleið...
Leggðu daglega inn í heilsubankann. (Heilsumoli 1) 03.09.2023 9:47
Heilsumolar er stuttir þættir, vangaveltur og fræðsla sem einstaklingar geta nýtt sér til þess að hafa jákvæð áhrif á eigin heilsu og líðan. Í þessum fyrsta heislumola eru 5 ráð sem gætu gagnast þeim sem vilja bæta heilsuna. Á okkur dynja alls kyns upplýsingar um hvernig bæta megi heilsuna, bæði varðandi hreyfingu, matarræði og annað. En hvernig vitum við hvað er satt og rétt? Hverju eigum við að...
09. Lífið er kynlíf. Kynheilbrigði og áhrif þess á heilsu okkar. Áslaug Kristjánsdóttir 26.08.2023 43:47
Í þættinum ræðir Erla við Áslaugu Kristjánsdóttur, hjúkrunarfræðing, kynfræðing og kynlífsráðgjafa um kynlíf og kynheilbrigði og áhrif þess á heilsu okkar. Áslaug er forvitin um lífið og vissi snemma hvað hún ætlaði að verða þegar hún yrði stór og stóð við það. Hún starfar sem kynlífsráðgjafi og aðstoðar fólk við að vera í ástarsambandi sem færir því hamingju og gott kynlíf. Hún vill hálpa fólki...
08. Breytingaskeið kvenna og heilsa. Halldóra Skúladóttir 22.08.2023 1:12:29
Í þættinum ræðir Erla við Halldóru Skúladóttur, eigenda Kvennaráð.is um breytingaskeið kvenna og áhrif þess á heilsu okkar. Þátturinn á erindi til allra, bæði kvenna og karla til þess að skilja þetta tímabil í lífi kvenna. Breytingaskeiðið er tímabil í lífi allra kvenna sem er oft tengt vanlíðan vegna þeirra einkenna sem því fylgja. Á breytingaskeiði gera ýmis einkenni og kvillar vart við sig veg...
07. Máttur matarins. Upplifðu alvöru lífsgæði sem fylgja heilsusamlegum lífsháttum. Geir Gunnar Markússon 17.08.2023 57:40
Í þættinum ræðir Erla við Geir Gunnar Markússon næringarfræðing og einkaþjálfara um mikilvægi mataræðis fyrir góða heilsu. Geir Gunnar eða Heilsugeirinn eins og hann er oftast nefndur brennur fyrir sem bestri heilsu allra landsmanna og vonar að sem flestir geti upplifað alvöru lífsgæði sem fylgja heilsusamlegum lífsháttum. Heilsugeirinn vinnur heildrænt að bættri heilsu og byggir á því að vinna í...
06. Geðheilbrigði og vellíðan starfsfólks er samfélagsleg ábyrgð en ekki einkamál hvers og eins. Helena Jónsdóttir 12.08.2023 52:13
Í þættinum ræðir Erla við Helenu Jónsdóttur, klíniskan sálfræðing og stofnanda og eiganda Mental ráðgjafar , um það hvernig geðheilbrigði og vellíðan starfsfólks er samfélagsleg ábyrgð en ekki einkamál hvers og eins. Þær stöllur ræða um hvers vegna það sé mikilvægt að stjórnendur taki geðheilbrigðismál föstum tökum og hafi tæki og tól til þess að takast á við þennan vanda auk þess að sýna sjálfir...
05. Bandvefur og heilsa. Að komast aftur inn á vinnumarkaðinn eftir 14 ára fjarveru vegna heilsuleysis. Hekla Guðmundsdóttir 08.08.2023 55:21
Í þættinum segir Hekla Guðmundsdóttir, eigandi bandvefslosun.is og Body Reroll æfingakerfisins á einlægan hátt frá áfallasögu sinni og hvernig hún komst aftur inn á vinnumarkaðinn eftir 14 ára fjarveru vegna heilsuleysis. Hekla hannaði æfingakerfið Body Reroll til þess að allir gætu fundið eitthvað fyrir sig í heilsurækt. Hún kennir nú í Dans og jóga og heldur einnig reglulega kennaranámskeið til...
04. Færni til framtíðar. (Hreyfifærni barna, náttúran og útivist). Sabína Steinunn Halldórsdóttir 01.08.2023 44:10
Sabína Steinunn Halldórsdóttir er íþrótta- og heilsufræðingur, móðir og stelpukona sem situr ekki auðum höndum. Hún heldur út síðunni Færni til framtíðar og hefur gefið út fjölmargar bækur varðandi útiveru og leikgleði. Í þættinum sem segir Sabína okkur frá sér, sinni menntun og ástríðu fyrir hreyfifærni barna og útivist. Hún hefur óbilandi trú á náttúrunni, sem hún segir að sé bæði heilandi og he...
03. Tengslaröskun og hvernig áföll hafa áhrif á taugakerfið okkar. Friederike Berger 01.08.2023 54:06
Í þættinum segir Friederike Berger, jógakennari og heilari okkur á einstaklega einlægan hátt frá erfiðum áföllum í æsku og hvernig þau hafa haft áhrif á líf hennar. Hún útskýrir tengslaröskun og hvernig áföll hafa áhrif á taugakerfið okkar. Friederike bendir á hvað það er mikilvægt að hlúa að sér, róa taugakefið með öndun, jóga og heilun og sýna sjálfum sér mildi en sjálfsmildi er leiðin að jafnvæ...
02. Að þykja vænt um eigin líkama hefur jákvæð áhrif á heilsuna til frambúðar. Elva Björk Ágústsdóttir 01.08.2023 33:21
Í þættinum ræðir Erla við Elvu Björk Ágústsdóttur sálfræðikennara í Menntaskólanum við Hamrahlíð, um áhrif líkamsvirðingar á heilsu okkar og mikilvægi reglulegrar hreyfingar hvort sem það er að fara út að skokka, fara í fjallgöngu eða stunda kraftlyftingar og hvað það er mikilvægt að gleyma alls ekki að huga að andlegu og félagslegu hliðinni. Það að þykja vænt um eigin líkama hefur jákvæð áhrif á...
01. Hver er HeilsuErla? Hvað er heilsa og hvað er frumnæring? Erla Guðmundsdóttir 28.07.2023 13:08
Í þessum fyrsta þætti kynnist þið Erlu, stjórnanda hlaðvarpsins. Erla er íþróttafræðingur M.sc og Heilsumarkþjálfi og hefur brennandi áhuga á því að fræða og hafa jákvæð áhrif á heilsu þjóðarinnar. Erla er einnig íþróttakennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hefur kennt ungbarnasund síðan árið 2006 í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Erla heldur einnig úti Instagram reikningi og heimasíðu þar sem...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.