KISS ARMY ICELAND
KISS Army Iceland Podcast
Þrír miðaldra karlmenn fjalla um allt á milli himins og jarðar.....bara svo lengi sem það er um hljómsveitina KISS. Heiðar Aðaldal Jónsson (forseti KISS ARMY ICELAND), Atli Hergeirsson og Páll Jakob Líndal eru allir forfallnir aðdáendur hljómsveitarinnar KISS og taka hér fyrir hin ýmsu málefni tengd bandinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
049 - Sambuca 01.02.2022 2:21:31
Eftir að hafa eytt síðustu 8 til 9 árum ævi sinnar í mikið ævintýri og rússíbanareið sem sólógítarleikari hinnar heimsfrægu hljómsveitar KISS þar sem hann upplifði bæði hæstu hæðir en einnig hina dimmu dali stóð Ace Frehley eftir sem atvinnulaus gítarhetja árið 1982 og það á besta aldri. Gera má ráð fyrir að Ace hafi nýtt fyrstu árin eftir KISS til að slaka svolítið á og djamma pínu. Pínu mikið ja...
048 - Tímabær þáttur 25.01.2022 1:58:50
Stanley Bert Eisen (síðar þekktur sem Paul Stanley) er fæddur í borginni New York í Bandaríkjunum þann 20.janúar árið 1952 og er hann því nýorðin sjötugur þegar þessi þáttur kemur út enda fóru upptökur fram á sjálfan afmælisdaginn. Foreldrar hans kynntust í New York þar sem þau voru bæði hluti af gyðingasamfélaginu þar í borg en þau flúðu sveitir Nasista sem börn ásamt fjölskyldum sínum í síðari h...
047 - Bobbað yfir sig 11.01.2022 2:22:47
Okkar menn rifjuðu upp gömul kynni við Bob Ezrin árið 1991 þegar Argent lagið „God Gave Rock n´ Roll To You II“ var tekið upp fyrir kvikmyndina Bill and Ted´s Bogus Journey. Hér voru KISS í raun að athuga stöðuna á Bobbaranum með það í huga að fá hann til að taka upp heila plötu með þeim á ný. Hann hafði þarna að mati Paul og Gene bæði gert eina af þeirra bestu plötum (Destroyer) en einnig eina af...
046 - Sundhestur 04.01.2022 2:17:29
Engin KISS plata leit dagsins ljós árið 1986 sem varð þá þegar þar er komið sögu fyrsta árið í KISSTORY sem slíkt gerðist og bandið fór í stutta pásu. Paul virðist hafa notað tímann vel í pásunni til að æfa sig á hljómborðið. Þegar bandið kom saman á ný var stefnan tekin á næstu plötu og Ron Nevison fenginn til að stýra upptökunum. Nevison var nefnilega talinn sannkallaður töframaður þegar kom að...
045 - Kisssíld 28.12.2021 2:10:01
Í þessum lokaþætti ársins o.þ.l fyrsta árgangs þessa hlaðvarps okkar kíkjum við á einu ´78 sólóplötuna sem við áttum eftir að fara yfir. Við endum árið á plötunni hans Ace Frehley sem kom út eins og hinar þrjár þann 18.september 1978. Ace fékk þar feyki sterkan dúett frá Suður Afríku til að vinna plötuna með sér, þá Eddie Kramer (sem tók herlegheitin upp) og Anton Fig sem trommaði að mestu. Mestme...
044 - Ástríkur/Steinríkur 21.12.2021 2:08:57
KISS urðu gjaldgengir inn í Frægðarhöll Rokksins árið 1999, en samt tók það 15 ár fyrir þá að komast þangað inn eins og frægt er orðið. Á þeim 15 árum voru þó fjölmargar hljómsveitir teknar inn sem okkar menn höfðu svo mikil áhrif á. Glórulaust segjum við! Í þessum þætti förum við yfir birtingarmyndir hinna ýmsu KISS laga í flutningi allskyns hljómsveita í hinum og þessum stefnum. Þátturinn óskar...
043 - Ljúgðu að mér! 14.12.2021 2:17:00
Þriðja plata KISS heitir Dressed to kill og kom hún út í mars 1975, rúmu ári eftir að frumburður þeirra leit dagsins ljós. Í þetta skiptið var það Neil Bogart, forstjóri Casablanca útgáfunnar sem stjórnaði upptökum. Bandið hafði ekki náð því flugi sem Bogart hafði vonað og í raun var útgáfufélag hans að tapa gríðarlegum peningum hvern þann dag sem leið. Núna varð bara eitthvað að gerast. "Getið þi...
042 - Svartholið 07.12.2021 2:10:06
Í síðasta þætti fórum við yfir verkið "Music from The Elder" þar sem rýnt var í lögin o.sv.fr. Þessi plata sem kom út árið 1981 markar svo stór og mikil tímamót hjá okkar mönnum að það var ekki hægt að segja skilið við hana strax. Því förum við aðeins dýpra í hlutina í þessum þætti sem við getum kallað "B-hliðina" eða jafnvel "Öldungurinn, tveir komma núll" Hosted on Acast. See acast.com/privacy f...
041 - Magnús Magnús Magnússon 23.11.2021 2:15:00
Dýfan hjá KISS var hafin. Síðasta plata þeirra, "Unmasked" gerði ekkert sérstakt mót fyrir KISS (nema þá helst í Ástralíu kannski). Peter Criss var þarna búinn að yfirgefa skútuna og Eric Carr tekið við trommukjuðunum. Planið var að gera eina þunga rokkplötu til að rétta bandið við eftir niðurgang síðustu ára. En Ásnum til mikillar mæðu kemur þá Bob nokkur Ezrin inn í myndina á ný og úr varð conce...
040 - Aska Aucoin 16.11.2021 2:12:19
Eftir að hafa gefið út hina mikið unnu plötu Destroyer með Bob Ezrin árið 1976 fóru Kiss aftur í hljóðver til að taka upp næstu plötu sem átti heldur betur að verða hrárri. Þeir nenntu alls ekki aftur í járnkarl með Ezrin, sérstaklega ekki strax því árið er ennþá 1976. "Let´s keep it simple strákar". Eddie Kramer var fenginn að borðinu enda höfðu okkar menn unnið þægilega innivinnu með honum áður...
039 - Speed Metal 09.11.2021 2:03:56
Árið 1982 þurftu KISS nauðsynlega á góðri plötu að halda eftir ævintýrið með síðustu stúdíóplötu sína 'Music From The Elder'. Peter var auðvitað horfinn á brott og Eric Carr kominn í staðinn en segja má að hans hæfileikar hafi kannski ekki nýst best á The Elder. En hér var Ace Frehley orðinn tæpur og vann KISS því þessa næstu plötu sína sem tríó í hljóðverinu en með dyggri aðstoð Michael James Jac...
038 - Sokka selfies 02.11.2021 2:11:30
Þegar þessi þáttur var tekinn upp var KISS KRUISE 10 í fullum gangi en þar tilkynnti Paul Stanley á sail-away tónleikum okkar manna að KISS KRUISE 11 yrði að veruleika árið 2022. Við skoðum hvað hefur komið fram á yfirstandandi "krúsi" og rifjum loks upp nokkrar minningar frá ferðum okkar þáttastjórnenda á KISS KRUISE. Að lokum leiðir Starpower okkur í gegnum breytingar og þróun á flutningi okkar...
037 - Álfur út úr hól 26.10.2021 2:21:25
Það er ágúst 1974 og okkar menn eru á fullu að fylgja eftir fyrstu plötunni sinni sem kom út í febrúar sama ár. Hún var ekki að seljast nægilega vel. Neil Bogart eigandi og forstjóri Casablanca útgáfunnar sendi "strákana sína" því lóðbeint í hljóðverið á ný til að taka upp næstu plötu til að freista þess að "bústa" upp söluna og stækka bandið. Þá voru KISS staddir í Los Angeles við tónleikahald. Þ...
036 - Cher / Chair / Stóll 19.10.2021 2:13:58
Það var í október árið 2009 sem KISS sendu loksins frá sér nýja plötu sem jafnframt var sú fyrsta í heil 11 ár, eða síðan Psycho Circus kom út. Í raun voru hvorki Paul né Gene spenntir fyrir þessu verkefni svona fyrirfram, en tóku þó slaginn þegar þeim bauðst nokkuð góður samningur frá verslunarkeðjunni Wal-Mart sem í dag eiga ennþá réttinn á plötunni. Sonic Boom fékk góðar viðtökur bæði hjá gagnr...
035 - Traustur hvítvoðungur 12.10.2021 2:10:50
Það voru gestir í sal sem ákváðu málefni þáttarins að þessu sinni. Við tókum áskoruninni þeirra að sjálfsögðu og förum hér yfir ALIVE III sem kom út árið 1993. Platan sem tekin er upp að mestu á tónleikum okkar manna á REVENGE túrnum af engum öðrum en Eddie Kramer (en ekki hvað?) sýndi KISS í nokkuð nýju ljósi á sínum tíma. Nefnilega þyngri en venjulega. Rokk og ról ! Njótið. Hosted on Acast. See...
034 - Snerill. Frábært! 05.10.2021 2:10:06
Í þetta sinnið fóru upptökur fram fyrir opnum tjöldum, þ.e með áhorfendur í sal í SLIPPBÍÓ, Reykjavík. Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út í eða hvers vegna í ósköpunum við vorum að koma okkur í þessa stöðu. Við vorum ekki einu sinni vissir um hvort einhver myndi mæta. En þetta endaði á því að vera enn ein neglan. Hátt í tuttugu manns í salnum sem var bara fullkomin fjöldi fyrir okkur. (Fy...
033 - Bobbarinn, Japparinn & Mamma 28.09.2021 2:11:33
Í þessum þætti snérum við okkur á ný að sóló verkefninu árið 1978. Við höfum þegar farið yfir plöturnar þeirra Peter og Gene en beinum sjónum okkar nú að Paul Stanley a.k.a The Starchild. Platan hans er oft nefnt til sögunnar sem besta sóló platan af þeim fjórum, m.a af okkar einlægum StarPower. En það eru ekki allir alltaf sammála þegar kemur að KISS fræðunum og við fengum svo sannarlega snef af...
032 - Búvíjér, Búvíjör, Búvíjaaar 21.09.2021 2:10:35
Þann 13. September árið 1984 sendu KISS frá sér 9 laga plötuna Animalize. Hún hefur lengi verið umdeild satt best að segja eins og reyndar margar aðrar plötur okkar manna og skiptist fólk hreinlega í fylkingar varðandi ágæti hennar. Gene hafði ekki mikinn tíma til að taka þátt í upptökunum sökum anna við kvikmyndaleik og náði hann þannig að reita Paul til reiði sem tók þá að sér upptökustjórnina í...
031 - Hornsteinar 14.09.2021 1:52:13
Í þetta skiptið létum við okkur dreyma smá. Set-listi okkar manna á "The End Of The Road" túrnum hefur fengið á sig þó nokkra gagnrýni þar sem mörgu fólki finnst vanta í hann einhverja vigt, eitthvað "nýtt". Hvernig væru hinir fullkomnu KISS tónleikar? Við settum okkar mat á það ásamt því að líta aðeins um öxl og fara örstutt yfir farinn veg, en okkar vegur er ekki á enda þó. Hosted on Acast. See...
030 - Boomerang í Bónus 07.09.2021 2:11:33
Þann 17.október 1989 gáfu okkar menn út sína 15. hljóðversplötu sem innihélt einmitt 15 lög. Aðdáendur annað hvort elska Hot in the shade eða einfaldlega elska að hata hana, sem er auðvitað dónalegt. Við ákváðum að kíkja betur á þessa plötu en fólki ber ekki alltaf saman um hvort hún sé góð eða slæm. Það var sko engin breyting á þeirri staðreynd við upptökur á þessum þætti okkar félagana sem er sá...
029 - Bændur & víxlar 31.08.2021 2:09:37
Þann 25. ágúst s.l. fagnaði „The Demon“ 72 ára afmæli sínu og í tilefni þess tókum við fyrir sólóplötuna hans síðan 1978 og krufðum hana. Útkoman er þessi fína skemmtun með dassi af fróðleik að vanda. Þá minntumst við þess einnig að þann 30. ágúst voru 33 ár liðin frá tónleikum okkar manna í Reiðhöllinni í Víðidal og leiddi StarPower okkur því í gegnum sögulegar staðreyndir frá þessum goðsagnakenn...
028 - Bara Gigolo 24.08.2021 2:00:36
Mögulega nörduðum við yfir okkur þessa vikuna því í þetta skiptið kíktum við á brúarsmíði okkar manna frá 1974 - 1983. Við erum s.s að ræða hér um marg umræddan "brúarþátt" sem við höfum hótað að gera lengi vel, "erindi-brú-viðlag". Þetta var erfiðara en við héldum en kom bara furðu vel út. Höldum við. Þá var StarPower mættur með fullt af fróðleik fyrir okkur og loks leit eitt nokkuð óvænt dagsins...
027 - Yngvi litli 17.08.2021 2:06:32
Vinnie Vincent leysti Ace af í KISS árið 1982 og gerði stórkostlega hluti með bandinu sem flestir ef ekki allir aðdáendur kunna verulega vel að meta. Sumir segja að hann hafi bjargað KISS á þessum erfiðu tímum sem þeir voru að ganga inn í á þessum árum á meðan aðrir segja það algjöra vitleysu. En hvað sem fólki finnst um það þá liggur það ljóst fyrir að Vinnie Vincent er fantagóður gítarleikari se...
026 - Dánarfregnir & vendipunktar 10.08.2021 1:59:26
Meðlimir KISS gáfu allir út sína sólóplötuna hver árið 1978 eins og allir eiga að vita. Þessar plötur voru auðvitað misgóðar en allar innihalda þær eitthvað gott, svo mikið er víst. Í þessum fyrsta þætti eftir sumarfrí kíkjum við á Peter Criss sólóplötuna en sú plata fékk einna verstu dómana á sínum tíma auk þess að seljast frekar hægt miðað við hinar þrjár. En allar enduðu þessar plötur þó í plat...
025 - Tvisvar tuttuguogfimm 20.07.2021 1:55:14
Okkar menn gáfu út plötuna Psycho Circus á 25 ára starfsafmæli sveitarinnar árið 1998 og var það fyrsta platan síðan 1979 sem innihélt alla upprunalegu meðlimi bandsins. Platan fékk misjafnar viðtökur en hefur þó elst nokkuð vel, verður að segjast. Í þessum 25. þætti af KISS ARMY ICELAND PODCAST förum við einmitt yfir þessa plötu og kryfjum hana til mergjar. Frábær þáttur þó við segjum sjálfir frá...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.