KISS ARMY ICELAND

KISS Army Iceland Podcast

Music IS ↓ 99 episodes

Þrír miðaldra karlmenn fjalla um allt á milli himins og jarðar.....bara svo lengi sem það er um hljómsveitina KISS. Heiðar Aðaldal Jónsson (forseti KISS ARMY ICELAND), Atli Hergeirsson og Páll Jakob Líndal eru allir forfallnir aðdáendur hljómsveitarinnar KISS og taka hér fyrir hin ýmsu málefni tengd bandinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Author

KISS ARMY ICELAND

Category

Music

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Dec 29, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

024 - Langir komnir 13.07.2021

A&E KISSTORY heimildarmyndirnar sem komu út í lok júní 2021 eru hér aftur til umfjöllunar líkt og í síðustu viku en nú er það seinni hlutinn sem við förum yfir og þar kennir ýmissa grasa. Spoiler-alert! Best er hlustendur séu búnir að horfa áður en hlustað er á þennan þátt. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

023 - Meira meyrir og eyrað 06.07.2021

Það er skylda allra KISSARA að horfa á A&E KISSTORY heimildarmyndirnar sem komu út í lok júní 2021. Þar er margt áhugavert þó þær séu ekki stútfullar af nýjum upplýsingum. En vandaðar eru þær vissulega og verulega skemmtilegar sem og áhrifamiklar. Myndirnar komu út í tveimur hlutum og í þessum þætti förum við yfir þann fyrri. Spoiler-alert! Best er hlustendur séu búnir að horfa áður en hlustað...

022 - Teknir á teppið, tvö 29.06.2021

Um þær mundir sem þessi þáttur sem er númer 22 í röðinni kom út átti hin feyki góða plata LOVE GUN 44 ára afmæli. Í tilefni þess kíktum við nánar á plötuna, baksögu hennar og innihald. Hún er merkileg fyrir margar sakir og má þar nefna að á henni leit söngrödd Ace fyrst dagsins ljós en einnig var þetta síðasta platan sem Peter trommaði að fullu ásamt mörgu öðru. Sannkölluð alvöru KISS plata hér á...

021 - Tárvotur StarPower 22.06.2021

Þegar hér er komið við sögu var svo sannarlega tími til kominn að beina sjónum okkar að Paul Stanley. Sjálfur Starchild á því þennan 21. þátt skuldlaust. Við tökum hér fyrir sólóplötu hans "Live to win" sem kom út árið 2006 og kryfjum hana til mergjar. Þáttastjórnendur voru hreint ekki alltaf sammála enda var tekist dálítið á en engum hurðum samt skellt, þó fékk StarPower súrt í augun um tíma. Við...

020 - Barnaby 15.06.2021

Í þessum þætti númer 20 og jafnframt síðasta þættinum í bili um textagerð okkar manna förum við yfir árin 1983 -1987 en þar kennir ýmissa grasa. Það er mjög fróðlegt að sjá hvernig yrkisefnin breytast með árunum þó svo reyndar að "ástin" hans Gene komi nokkuð oft fyrir enn. Dr. Love vikunnar er svo "KISSARI" af yngri tegundinni, hann Óskar Heiðar Hansson sem er þó grjótharður og skemmtilegur auðvi...

019 - Kafbátastúlkan 08.06.2021

Við höldum áfram að fara yfir textagerð og yrkisefni okkar manna. Margt frábært þar og margt....eeeehh.....bara gott. Við fórum yfir plöturnar Dynasty, Unmasked og Creatures of the night ásamt því að skoða aðeins Killers. Dr. Love vikunnar er tónlistarmaðurinn Rúnar Eff Rúnarsson og allt er eins og það á að vera. Frábær þáttur góðir hálsar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more informati...

018 - Einkadóttir sjóarans 01.06.2021

Doc McGhee umboðsmaður KISS sagði í viðtali á dögunum að ein af ástæðum velgengni okkar manna væri léleg textasmíð. Við ákváðum því að skoða málin nánar með þetta í huga í þessum þætti sem er sá 18. í röðinni. Við komumst þó ekki lengra en til ársins 1977 enda af svo feyki miklu efni að taka. En útkoman var engu að síður stórskemmtileg. Dr. Love vikunnar er svo ekki af verri endanum heldur, en það...

017 - Brennandi reykur 25.05.2021

Í þætti númer 17 er fjallað um demo upptökur okkar manna með áhersluna á þau lög sem ekki enduðu á KISS plötu, og af nægu er að taka gott fólk. Þá skoðum við einnig hvernig sum lög hljómuðu fyrst en hafa svo þróast í það sem við þekkjum öll svo vel í dag. Loks er Dr. Love vikunnar dyggur hlustandi þáttarins, hann Jóhannes Geir Númason. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

016 - Súr augu 18.05.2021

Í þessum 16. þætti kom StarPower með áhugavert verkefni fyrir Atla og forsetann að leysa úr, sem snérist um KISS árin 1983 - 1991. Það má því í raun færa rök fyrir því að þessi þáttur sé hálfgert framhald af síðasta þætti. Þá er Lauguhornið sérlega menntað í þetta skiptið sem og sannkallaður "forseta-jóker" fyrir allan peninginn án afslátta. Dr. Love vikunnar er svo Sigurður Bragi Ólafsson bruggme...

015 - Man down 11.05.2021

Þátturinn í þetta skiptið er í raun "óskaþáttur" frá hlustanda. Við beindum sjónum okkar að Eric Carr heitnum en með lykil áhersluna á Rockology verkefnið hans. Þá heyrðum við líka í öðrum trommara því Dr. Love vikunnar að þessu sinni er Jón Björn Ríkarðsson, eða Jónbi úr Brain Police og Rock, Paper, Sisters, en líka LICKS því áður starfaði Jónbi með sjálfum StarPower okkar í þeirri mögnuðu KISS c...

014 - Pain og ekkert bein 04.05.2021

Fyrir stuttu síðan átti platan DESTROYER 45 ára afmæli. Við kíktum á gripinn og fórum vel yfir þessa frumraun okkar manna með Bob Ezrin. Hvað er gott og hvað er ekki eins gott ásamt svo ýmsum fróðleik. Þá er Dr. Love vikunnar engin önnur en uppáhalds útvarpskona allra KISSARA, sjálf Hulda Geirsdóttir. Hulda sagði okkur sitt álit á innihaldi DESTROYER ásamt því að spjalla nokkuð almennt um bandið....

013 - Breytingaskeiðið 27.04.2021

Ace Frehley varð sjötugur daginn sem þessi þáttur fór í loftið. Honum til heiðurs kíktum við yfir söngspretti hans og horfðum helst til tímabilsins frá því hann hóf að syngja með KISS árið 1977 og til aldamóta. Þá hringdum við að sjálfsögðu í Dr. Love vikunnar en sá sem varð fyrir valinu í þetta skiptið var Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður á RÁS 2. Þar var ekki töluð öll vitleysan enda Ace ával...

012 - Beth metal 20.04.2021

Í þessum 12 þætti förum við yfir meðlagahöfunda okkar manna. Þar erum við að tala um utanaðkomandi aðila eins og Desmond Child, Vini Poncia, Bob Ezrin og mun fleiri til, sem er ekki furða þar sem lögin eru fjölmörg. Við hringdum líka í "Dr. Love vikunnar" sem að þessu sinni er bassaleikari MEIK, sjálfur Eiður Arnarsson og fengum hans input í málefni vikunnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy...

011 - Stóru strákarnir 13.04.2021

Þáttur 11 markaði nýtt upphaf í hlaðvarpinu okkar þar sem við breyttum aðeins um gír, en í þáttum 11-20 fáum við símavin sem tekur þátt í umræðunni að hluta og tekur með okkur eitt málefni plús jóker. Sá sem reið á vaðið var Jóhann Magnússon (Jói Kiss). Við höldum óbeint áfram frá síðasta þætti og tökum hér saman bestu bassa leikina sem Gene Simmons spilar EKKI á Kiss plötunum og af furðu miklu er...

010 - Ástargöngin 06.04.2021

Sannkallaður Gene special hér á ferð. Við tókum fyrir The Demon í þetta skiptið með því að skoða bestu bassapartana og bestu söngsprettina. Þetta var auðvitað eins og áður algerlega óvinnandi vegur en við reyndum að skila af okkur þolanlegum niðurstöðum. Þá var jóker vikunnar vel yfir kostnaðarverði enda dregin upp úr "Laugu-horninu" að þessu sinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more...

009 - Daxrárlok 30.03.2021

Í níunda þættinum fóru félagarnir yfir nokkra af bestu trommusprettum Peter Criss með KISS og var þar af nægu að taka. Starpower mjólkaði svo gott concept frá málefninu sínu í síðasta þætti og mætti með skemmtilegt og krefjandi verkefni á ný fyrir þá Atla og forsetann að leysa úr. Þá snérist Jókerinn um bókmenntir að þessu sinni, enda þáttastjórnendur víðlesnir með eindæmum. Hosted on Acast. See a...

008 - Gubbí Danger 23.03.2021

Starpower mætti með gríðarlega skemmtilegt og frumlegt málefni í þennan þátt sem gaman var að taka á. Hvaða lög byrja ekkert sérstaklega en detta svo í hreina snilld? Forsetinn leiddi okkur svo í gegnum BEST OF plöturnar og jóker vikunnar er sennilegast sá frumlegasti hingað til. Áfram KISS! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

007 - Blessuð börnin 16.03.2021

“Í 7. þætti skal upphafið skoða” eins og segir í máltækinu góða. Þess vegna kíktum við á formálann að sjálfri KISSTORY, ungu mennina í Wicked Lester. En einnig skoðuðum við tónlistarmyndbönd okkar manna í gegnum tíðina og völdum okkar uppáhalds. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

006 - Stórir bræður 09.03.2021

Sjötti þáttur KISS ARMY ICELAND snérist að mestu um sólóferil Ace Frehley ásamt því að við skoðuðum nánar tribute plötuna "KISS MY A**" sem gefin var út árið 1994 í tilefni þess að 20 ár voru frá útgáfu fyrstu plötu okkar manna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

005 - Þriðja hjólið 02.03.2021

Í þessum fimmta þætti af KISS ARMY ICELAND kíkja félagarnir Heiðar, Atli og Páll á MTV Unplugged plötu KISS sem og að kryfja eina af "athygliverðustu" sólóplötum sem meðlimur KISS hefur nokkru sinni sent frá sér, svo ekki sé meira sagt. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

004 - Afmælisbarnið 23.02.2021

Við tókum tæknimálin fastari tökum og mætum hér með nýjan og bráðskemmtilegan þátt í betri hljómgæðum en nokkru sinni fyrr. Aftur erum við þó annað hvort ekki alltaf sammála eða hreinlega sammála því að vera sammála. En ástríðan fyrir KISS leynir sér aldeilis ekki. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

003 – Psycho Boom 17.02.2021

Við komum víða við í þessum þriðja þætti um bestu hljómsveit í heimi. ATH: Við biðjumst velvirðingar á slökum hljómburði að hluta til í þáttum 1, 2 og 3. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

002 - Disney túrinn 10.02.2021

Áfram höldum við. Bara KISS og ekkert annað. ATH: Við biðjumst velvirðingar á slökum hljómburði að hluta til í þáttum 1, 2 og 3. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

001 - Við höldum með þeim 10.02.2021

Við hefjum leika. Fyrsti þáttur af KISS ARMY ICELAND PODCAST er kominn í loftið. ATH: Við biðjumst velvirðingar á slökum hljómburði að hluta til í þáttum 1, 2 og 3. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Listen to the KISS Army Iceland Podcast podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.