KISS ARMY ICELAND

KISS Army Iceland Podcast

Music IS ↓ 99 episodes

Þrír miðaldra karlmenn fjalla um allt á milli himins og jarðar.....bara svo lengi sem það er um hljómsveitina KISS. Heiðar Aðaldal Jónsson (forseti KISS ARMY ICELAND), Atli Hergeirsson og Páll Jakob Líndal eru allir forfallnir aðdáendur hljómsveitarinnar KISS og taka hér fyrir hin ýmsu málefni tengd bandinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Author

KISS ARMY ICELAND

Category

Music

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Dec 29, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

099 - Djúpnetið 29.12.2025

Peter okkar Criss gaf út sína fyrstu sólóplötu í 18 ár þann 19.desember s.l. aðeins einum degi áður en hann fagnaði 80 ára afmæli sínu. Plötuna er erfitt að nálgast í netheimum en þættinum tókst það þó og hér förum við yfir þessa plötu sem sennilegast er hans síðasta afurð. Við dustum líka rykið af gömlu góðu stigagjöfinni sem var aldeilis og sérdeilis hressandi. Í lok þáttar heyrum við svo í dygg...

098 - Ace Frehley 1951-2025 21.10.2025

Við komum saman eftir nokkuð langt hlé og að beiðni forseta, til að fara yfir andlát elsku Ace Frehley og öllu sem því tengist. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

097 - Útpressa 10.04.2025

Við sáum okkur knúna til að henda í einn neyðarþátt þar sem margt er að grasserast í KISS heimum þessa dagana. Okkar menn eru að koma saman á ný og halda þannig upp á 50 ára afmæli KISS ARMY í Vegas síðar á þessu ári, 2025. Við höfum nú slegið á þráðinn til Bill Starkey af minna tilefni. Við förum hér yfir stöðuna og heyrum í okkar besta manni í lok þáttar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy f...

096 - The Broken Crack (1979 - seinni hluti) 14.02.2025

Við höldum hér yfirferð okkar áfram um sögu KISS þar sem við skellum henni að venju í takt við tíðaranda þess tíma sem fjallað er um hverju sinni. Þegar Dessarinn og Kramerinn trufluðu okkur vorum við rétt búnir að klára fyrri part ársins 1979. Eins og við komum inn á í þeim þætti (og við vissum reyndar fyrir) þá var þetta ár okkar mönnum afar erfitt. Það kemur þó eiginlega alltaf betur og betur í...

095 - Eddie "Fokking" Kramer 03.01.2025

Eddie Kramer er nafn sem allir KISS aðdáendur þekkja, og reyndar mun fleiri til enda á hann alveg ótrúlegan feril að baki. Burt séð frá störfum hans með Led Zeppelin, The Beatles, Jimi Hendrix og þeirri staðreynd að hann var sá sem hljóðritaði Woodstock hátíðina árið 1969 þá gerði þessi maður meira en margur fyrir okkar menn í KISS. Hann tók upp fyrstu demoin í Electric Lady Studios, hann tók upp...

094 - Desmond Child / Christmas Special 24.12.2024

Jóla-Special í ár er ansi stór biti krakkar mínir. Einkaviðtal við sjálfan Desmond Child. Allir KISS aðdáendur þekkja þetta nafn. Hann samdi "I was made for loving you" með Paul, hann samdi "Heaven´s on fire" með Paul og sirka 14 lög í viðbót. Svo auðvitað samdi hann "Poison" með Alice Cooper og reyndar stjórnaði hann upptökum á plötunni hans "Trash" líka og samdi fleiri lög á einmitt þeirri plötu...

093 - Norður-Amerískar Mýrarkanínur (1979 - fyrri hluti) 27.11.2024

Árið 1978 mokaði KISS samsteypan inn seðlum eins og enginn væri morgundagurinn. Það var því nóg til þegar árið 1979 gekk loks í garð. En þegar hér er komið sögu var farið að hrikta verulega í stoðunum og samstarfið gekk ekkert frábærlega hjá okkar mönnum. Frægð og frami hafði verið draumurinn sem nú hafði raungerst en samt kom mönnum ekki nægilega vel saman. 1978 hafði líka verið nokkuð skrítið ár...

092 - "Rað í punginn" 24.09.2024

Loks var komið að því óumflýjanlega. Við vissum að þessi dagur kæmi. Þetta var erfitt á marga vegu en við teljum okkur hafa komist nokkuð vel frá þessu, annað en herra Stanley reyndar. Það þurfti nánast að draga forsetann okkar inn í Stúdíó Sannleikans fyrir þessar upptökur. En þegar hann loks mætti þá var hann í sínu fínasta pússi og með plötuna "Now And Then" undir arminum, en það er einmitt pla...

091 - Rúllustigar (1978 - seinni hluti) 16.08.2024

Hér tökum við fyrir seinni hluta ársins 1978. Þetta var ekki fjörugasta árið í KISSögunni, en þó gerðist nú nokkuð hjá okkar mönnum. Sólóplöturnar fjórar litu dagsins ljós ásamt auðvitað sjónvarpsmyndinni KISS: Meets The Phantom Of The Park sem frumsýnd var á NBC sjónvarpsstöðinni þar sem nánast öll Ameríka poppaði, kom sér fyrir í sófanum og horfði. Okkar menn fengu frekar furðulegar Platinum plö...

090 - Soja Salúýt (1978 - fyrri hluti) 23.05.2024

Við erum komnir að árinu 1978. Í þessum þætti tökum við fyrir fyrri hluta þessa ágæta árs í KISSSögunni sem við svo berum auðvitað saman við hina almennu sögu. Á þessu ári var lítið um túralíf hjá okkar mönnum svona miðað við fyrri ár hið minnsta, en aðeins var um leyfar af ALIVE II túrnum að ræða. En okkar menn gáfu út sína fyrstu safnplötu á þessum fyrri helmingi ársins 1978 ásamt því að hefja t...

089 - Miklu meira en spenntir! 23.03.2024

Ace Frehley gaf út sína tíundu sólóplötu á dögunum. Þar sem hann er orðinn 73 ára gæti vel farið svo að um svanasöng Ása sé að ræða, hver veit? Er þessi plata nægilega góð til að vera hans síðasta? Hér förum við yfir það allt saman og hendum meira að segja í stigagjöf upp á gamla mátann. Við skemmtum okkur konunglega við greininguna á þessari plötu sem kallinn nefndi svo 10,000 Volts og vonum við...

088 - Føroyskur Forsetur í Gøtu? (1977 - seinni hluti) 22.02.2024

Hér tökum við fyrir seinni hluta ársins 1977 hjá okkar mönnum. Þetta er árið sem þeir toppuðu og áttu heiminn, enda á yfirborðinu var ekkert nema bjart framundan. Yfirferð okkar í hinu sögulega ljósi heldur hér áfram. Forsetinn kemur með sláandi "fréttir" og Starpower gluggar í Tímann og segir okkur helstu fréttir af Enterprise áætlunum Bandaríkjamanna ásamt öðru afar krassandi stöffi. Þá skoðum v...

087 - Tugur, tólf & tríó (1977 - fyrri hluti) 10.02.2024

Við erum komin að árinu 1977 í þessari sögulegu yfirferð okkar um KISSÖGUNA. Sennilega er þetta ár það ár sem okkar menn eru algerlega á toppnum á sínum ferli. En þetta er líka árið þar sem maskínan fer að liðast í sundur. KISS fá sín fyrstu verðlaun á ferlinum og það fyrir lagið Beth. Spurning hvort að sú staðreynd hafi ekki gillað egóið hans Peter ansi vel? Okkar menn gáfu út eina hljóðversplötu...

086 - Vilhjálmur Starkaðsson 10.01.2024

KISS hafa lagt árar í bát eftir 50 farsæl ár. Á lokatónleikum sínum í MSG, NY þann 2.desember 2023 kynntu þeir þó nýtt upphaf með orðunum "A New Era Begins" þar sem þeir ætla sér að notast við gervigreindina á komandi árum. Í þessum þætti förum við yfir það allt saman og reynum að koma okkar skoðun á því öllu í orð. Við heyrum fréttir af Brúsa okkar en mikið hefur borið á honum upp á síðkastið. Vi...

085 - Vasaprentari (1976 - seinni hluti) 04.10.2023

Seinni hluti þessa stóra og mikilvæga árs í KISSÖGUNNI, 1976. Okkar menn halda áfram túrnum sem nú breyttist í "Spirit of ´76 tour". Þeir drita frá sér smáskífum og fara í Star Theatre ásamt Eddie "effing" Kramer til að taka upp næstu plötu. Vélin er farin af stað og verður að fá olíu. Endalausa olíu. "KISS: The Originals" kemur út á fæðingardegi Forseta vors, þeir koma fram í hinum fræga "Paul Ly...

084 - Bandaríkjafólkið (1976 - fyrri hluti) 28.09.2023

Við gerðum heiðarlega tilraun til að koma árinu 1976 fyrir í einum þætti. Það var bara ekki hægt, þannig að við skiptum upp þessu ári í tvo þætti. Seinni hlutinn er svo væntanlegur um viku síðar. Það gekk nefnilega ofboðslega mikið á hjá KISS á árinu 1976. Við erum að tala um að á árinu komu þrír túrar við sögu, tvær hljóðversplötur og ein safnplata ásamt svo mörgu öðru, en þar má nefna fyrstu Evr...

083 - Gulur bíll! 22.08.2023

Í þessum fyrsta þætti eftir sumarfrí ætlum við að hita upp fyrir veturinn. Það hefur margt gerst í KISS heimum á meðan við vorum í fríinu þannig að við tökum sér þátt um það í þetta skiptið áður en lengra er haldið með ártölin góðu. Við tvískiptum þættinum og í fyrri hlutanum skoðum við hvað okkar menn eru búnir að vera brasa í sumar og kemur þar margt við sögu. Allt frá Taylor Swift til Rock &amp...

082 - Prins Póló (1975) 07.06.2023

Við erum komin að árinu 1975. KISS senda frá sér tvær plötur þetta ágæta ár. Dressed to kill kemur í mars en síðar á árinu mætir fyrsta tónleikaplatan þeirra, platan sem öllu breytti. ALIVE! Þetta og svo mikið og miklu meira í þessum þætti þar sem við höldum einnig áfram að gera tilraun til að setja allt í eitthvert samhengi við þá tímans tönn. Góða skemmtun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy...

081 - Daylight Saving (1974) 02.05.2023

Við höldum áfram að fara yfir KISSÖGUNA. Við erum komin á fyrsta heila KISS-árið, 1974. Okkar menn senda frá sér tvær breiðskífur þetta ár en hvorugar seldust sérlega vel. Bill Aucoin og Neil Bogart höfðu þó sterka trú á verkefninu og lögðu allt undir, sér í lagi umboðsmaðurinn Bill ásamt auðvitað meðlimum bandsins. KISS fóru strax á þessu ári í fyrsta skiptið út fyrir Bandaríkin að spila og komus...

080 - Þorskageit (1973) 05.04.2023

Í þessum fyrsta þætti í nýju fyrirkomulagi þáttarins tökum við fyrir árið sem bandið var stofnað. Upphafið. Árið er 1973. Ace kemur til liðs við tríóið sem skipað var Gene, Paul & Peter og bandið varð fullmótað. Við skoðum hvað var að gerast í tónlistarsenunni á þessum tíma? Voru augljósir áhrifavaldar þar á ferð fyrir okkar menn? En hvað gekk á í Bandaríkjunum, Íslandi og bara heiminum öllum...

079 - Dísel músin 28.02.2023

Fyrsta „læf“ plata okkar manna, KISS ALIVE! bjargaði ferli þeirra. Önnur „læf“ platan, ALIVE II, festi þá í sessi sem stórstjörnur á heimsvísu og sú þriðja sannaði að þeir gætu náð árangri og gert gott mót án tveggja upprunalegra meðlima og án frægu andlitsmálningar sinnar. Svo hvað gæti KISS mögulega gert til að gera fjórðu „læf“ plötuna sína, ALIVE IV, öðruvísi? Jú, þeir tóku seinni lestina og f...

078 - Fimmtíu ár! 30.01.2023

Við ákváðum að skella í einn aukaþátt sem við getum kallað "örþátt" (enda ekki nema rétt yfir klukkustund að lengd), og ekki að ástæðulausu góðir hálsar. Því daginn sem þátturinn kemur út (þann 30. janúar) eru einmitt 50 ár upp á dag síðan KISS spiluðu á sínum fyrstu tónleikum á Coventry klúbbnum (áður Popcorn pub). Þátturinn er óhefðbundinn. Starpower mætti með stórskemmtilegan og fræðandi pistil...

077 - Ættarmótið 24.01.2023

Herra Paul Stanley fagnaði 71 árs afmæli sínu nýverið og því fögnum við öll, meðal annars í þessum fyrsta þætti ársins 2023. Það er af nægu að taka enda heillangt síðan síðast. Mál málanna í þættinum að þessu sinni eru þó störf okkar manna með öðrum listamönnum, en sem meðlimir KISS á sama tíma. Við erum að tala um sem lagahöfundar, hljóðfæraleikarar, söngvarar, umboðsmenn, útgefendur nú eða upptö...

076 - Spirit of ´76 08.12.2022

Við lofuðum JÓLA-SPECIAL og við stöndum við það. Og ekki bara það, við tjöldum öllu til í þetta skiptið enda komnir í hátíðarskap. Við áttum stórkostlegt spjall við hinn eina sanna Jean Beauvoir þar sem við fórum um víðan völl en þó að sjálfsögðu með áhersluna á KISS. Eins og hlustendur vita þá spilaði Jean bassann inn á nokkur lög á bæði Animalize og Asylum ásamt því að semja þau flest í slagtogi...

075 - Opinn Hi-Hat 11.10.2022

Í þessum síðasta þætti KISS ARMY ICELAND PODCAST (the touring band) sem er númer 75 í röðinni tökum við fyrir KISS ALIVE! síðan 1975. Platan sem breytti öllu fyrir Gene, Paul, Ace og Peter. Þátturinn sem tekinn var upp ALIVE með gesti í sal laugardagskvöldið 8.október 2022 er með örlítið breyttu sniði í þetta skiptið þar sem við fengum til okkar gesti í settið ásamt óvæntu atriði. Við þökkum öllum...

Listen to the KISS Army Iceland Podcast podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.