KISS ARMY ICELAND
KISS Army Iceland Podcast
Þrír miðaldra karlmenn fjalla um allt á milli himins og jarðar.....bara svo lengi sem það er um hljómsveitina KISS. Heiðar Aðaldal Jónsson (forseti KISS ARMY ICELAND), Atli Hergeirsson og Páll Jakob Líndal eru allir forfallnir aðdáendur hljómsveitarinnar KISS og taka hér fyrir hin ýmsu málefni tengd bandinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
074 - Kakó með rjóma 04.10.2022 2:54:16
Þessi misserin eru 49 ár síðan fjórir ungir piltar skröltu saman inn í BELL SOUND hljóðverið í New York til að taka upp sína fyrstu plötu. Kannski sína einu? Því enginn vissi þá hvað næstu 50 árin myndu gefa af sér. Í febrúar árið eftir kom þessi frumburður þeirra út og síðar það sama ár leit svo önnur platan þeirra dagsins ljós. Glöggir lesendur hafa þegar kveikt á perunni um hverja er talað hér....
073 - Viðsjárverðir tímar 30.09.2022 2:51:27
Þann 15.september árið 2009 sendi sjálfur Ace Frehley frá sér plötuna Anomaly, sem var hans fyrsta plata í 20 ár! Alveg frá því að Trouble Walkin´ kom út þarna árið 1989 var lítið að frétta nefnilega af kallinum fyrir utan að KISS komu jú auðvitað saman á ný þarna árið 1996. Eftir að því ævintýri lauk þurfti Ásinn aldeilis að taka á honum stóra sínum og kannski aðeins að taka sig einnig á í neyslu...
072 - McLauglogohlin 23.09.2022 2:49:19
WARNING! AÐEINS FYRIR GEGNHEILA KISS AÐDÁENDUR !!! Fimmta sólóplata Peter Criss ber heitið "One for all" og er hún að öllum líkindnum svanasöngur Kattarins hvað sólóplötur varðar. Hún kom út sumarið 2007 og geymir hún 12 lög. TÓLF! Þættinum bar skylda til að fara yfir þessa plötu og reyndist það þáttastjórnendum þrautinni þyngra svo ekki sé meira sagt. Hvað gekk Peter til með þessum gjörning eigin...
071 - Hundurinn 16.09.2022 3:14:44
Space-Ace og Kötturinn hafa verið duglegir að gefa út sólóplötur eftir sína bestu KISS daga. En hefur "Hundurinn" gert slíkt hið sama? Eeeehhhhh.....já! Bruce Kulick hefur sent frá sér þrjár sólóplötur eftir sína KISS daga. En er eitthvað varið í þær? Eeeehhhhhh......við skulum sjá. Það var löngu orðið tímabært að gera þessum manni góð skil í hlaðvarpinu okkar. Bjargaði hann KISS? Nei, sennilega a...
070 - Illuminati 09.09.2022 2:17:03
Í þessum tímamótaþætti sem er númer 70 í röðinni lítum við örlítið um öxl. Við ákváðum nefnilega í tilefni dagsins að gera eins og í "gamla daga" og koma með tvö málefni og svo gamla góða jókerinn að borðinu í þetta skiptið, það tókst skítsæmilega að við höldum. Þá kynntum við okkur aðeins sjálfan Doc McGhee umboðsmann KISS til næstum því 30 ára og skoðuðum hans bakgrunn nánar. Að lokum hentum við...
069 - Bobbari sannleikans 02.09.2022 2:26:13
Árið er 2014 og KISS eru á miðjum 40 ára afmælistúr sínum um heiminn. Tvö ár eru þarna síðan okkar menn gáfu út hljóðversplötu síðast sem einnig var mjög sennilega sú síðasta í röðinni. En gítarguðinn Ace Frehley var hins vegar ekki hættur að senda frá sér nýtt efni því þetta ár sendi Space-Ace frá sér plötuna „Space Invader“. Sá gripur fagnaði svo einmmitt 8 ára afmæli sínu þann 18.ágúst s.l. „Sp...
068 - Killers, Platinum & Hits 23.08.2022 2:31:38
Okkar menn hafa gefið út fjölmargar safnplötur í gegnum árin og þá oft til að halda lífi í glóðinni þegar engin er breiðskífan sem fylgja skal eftir. Þá hafa nokkrum sinnum verið sett ný lög inn á þessar plötur eða jafnvel nýjar upptökur af eldri lögum. Væntanlega hefur það verið gert til að auka söluna eða þá til að freista þess að koma nýjum afurðum á vinsældalistana víðsvegar um heiminn. Hér má...
067 - Forvitni drepur ekki 16.08.2022 2:34:29
KISS voru í þokkalegri lægð þarna um miðjan tíunda áratug síðustu aldar, þ.e áður en allt fór af stað á ný í kjölfarið á MTV Unplugged tónleikum þeirra sem fram fóru sumarið 1995. Ári fyrr, eða sumarið 1994 stóðu okkar menn í útgáfu á plötunni KISS MY ASS sem innihélt hina ýmsu KISS slagara í flutningi annara listamanna. S.s ekki mikið að frétta frá okkar mönnum hvað varðar nýtt efni, en þó voru þ...
066 - Amsterdans 09.08.2022 2:27:57
Fyrsti þáttur eftir gott sumarfrí er mættur! Þátturinn fór í vettvangsferð á dögunum til Amsterdam. Um var að ræða lokatónleika okkar manna í Evrópu sem fram fóru í Ziggo Dome á sjálfan afmælisdag forsetans, 21.júlí 2022. Ekki er hægt að segja að þáttastjórnendum hafi leiðst mikið í þeirri för, svo mikið er víst. KISS stóðu klárlega undir væntingum og sýndu þar viðstöddum svo sannarlega hvernig st...
065 - Númason Group 31.05.2022 3:06:13
Síðasti þátturinn okkar fyrir sumarfrí var settur á uppboð og seldist hann á skrilljón trilljónir. Kaupandinn var "Númason Group" með Jóhannes Geir Númason í forsvari en hann hefur verið dyggur hlustandi frá upphafi. Jóhannes mætti því í stúdíóið og var sérstakur heiðursgestur og gestastjórnandi þáttarins og valdi því einnig málefnið. Útkoman var bara skrambi góð og við skemmtum okkur allir vel. A...
064 - Snurða á þræði 24.05.2022 2:43:24
Tuttugasta hljóðversplata KISS geymir 12 lög og kom hún út þann 9.október 2012. Gott fólk, hún er 10 ára gömul í ár. Það er ansi líklegt að hér sé einnig um að ræða þeirra síðustu plötu, eða okkur er farið að gruna það sterklega hið minnsta, sem er allt í lagi bara. Plata númer 20 varð auðvitað að koma, það hefði nefnilega verið bagalegt að stoppa í 19. Fyrirfram vorum við hálf hræddir við þennan...
063 - Ótroðnir 17.05.2022 3:01:48
Þegar árið 1980 gekk í garð fóru okkar menn að vinna sína næstu plötu sem yrði þá fyrsta platan án allra fjögurra meðlima sveitarinnar. Þarna var Peter hættur í KISS og sló því ekki högg á plötunni og söng ekki eitt einasta lag. Meðlimir voru hér nokkuð hræddir við hvað aðdáendur myndu segja ef þeir vissu að einn af þeim væri hættur og fóru þeir því með þetta eins og mannsmorð, enginn mátti vita a...
062 - Karlsöngvarinn 10.05.2022 2:46:34
Þann 13.október árið 1989 aðeins 4 dögum áður en KISS gáfu út sína 15.hljóðversplötu (Hot in the shade) sendi Ace Frehley frá sér sína fjórðu sólóplötu sem var í raun sú þriðja í röðinni eftir daga hans innan KISS. Hér var okkar maður búinn að leggja Frehley´s Comet nafninu og gaf núna út undir sínu nafni og platan sem þarna kom er hin tíu laga Trouble walkin´. Platan tæmir fjöldan allan af vönduð...
061 - Eighty Kramer 03.05.2022 2:41:40
Í yfir 50 ár hefur Eddie Kramer sett fingraför sín á sögu rokksins sem um munar, enda unnið með nokkrum af stærstu nöfnum þessarar sögu. Má þar nefna; The Rolling Stones, Eric Clapton, David Bowie, Bad Company, The Beatles og svo miklu, miklu fleiri. Kramer er þó hvað þekktastur fyrir þrjú langtímasambönd sín hvað upptökur varðar. Langtímasambönd við Jimi Hendrix, Led Zeppelin og okkar menn í KISS...
060 - Sumardagurinn fyrsti 26.04.2022 2:03:44
Sumarið 1982, eða á sama tíma og okkar menn í KISS stóðu í upptökum á plötunni „Creatures of the night“ gaf fyrrum trommari þeirra, sjálfur Peter Criss, út sína þriðju sólóplötu. Það má eiginlega segja að framboðið hafi alltaf verið talsvert meira en eftirspurnin þegar kemur að sólóefni frá herra Criss. Það sýndi sig ekki bara þegar sólóplöturnar fjórar frægu komu út árið 1978, heldur einnig árið...
059 - 750+150=1000 12.04.2022 2:15:39
KISS fóru í hljóðverið enn á ný í lok árs 1995 til að hljóðrita sína næstu plötu sem yrði sú 17. í röðinni, og stóðu þær upptökur fram í febrúar 1996. Gene vildi að allar KISS reglurnar yrðu brotnar í þessum upptökum í tilraun bandsins til að gera þá meira „current“ en eins og við vitum var þessi áratugur ekki sá sverasti hjá okkar mönnum og voru þeir því í mikilli lægð. Paul var þó ekki eins hrif...
058 - Eiríkur Fjalar? 05.04.2022 2:06:48
Árið er 1985 og Paul situr í bílstjórasætinu eins og nokkur fyrri árin og stýrir rútunni. Uppstillingin á KISS virðist vera tiltölulega laus við allt rugl og drama fyrir utan það að Gene hefur ekki mikinn tíma fyrir hljómsveitina, enda á fullu að reyna fyrir sér við kvikmyndaleik. En tilkoma Bruce Kulick í bandið gefur þessu ákveðna ró enda hafa verið vandræði á gítarleikarastöðunni allt frá brott...
057 - "Upp á dag" 29.03.2022 1:56:00
Bob Ezrin hefur verið maðurinn á bak við tjöldin við upptökur margra sígildra platna, þar á meðal og bara svo við nefnum eitthvað þá sat hann við mixerinn og stýrði REC takkanum þegar plöturnar „Billion Dollar Babies“ með Alice Cooper, „The Wall“ með Pink Floyd og auðvitað „Destroyer“ með KISS voru hljóðritaðar. Ferill hans er ótrúlega fjölbreyttur og spannar allt frá Andrea Bocelli til Deftones,...
056 - Boðberi sannleikans 25.03.2022 2:43:23
Í janúar 1979 eða um fjórum mánuðum eftir útkomu þeirra margumtöluðu sólóplatna í september 1978, hentu KISS sér aftur í stúdíóið til að hefja upptökur á sinni sjöundu hljóðversplötu. Sú plata átti að marka „ENDURKOMU KISS“ eða „THE RETURN OF KISS“ enda hafði ekki komið breiðskífa frá bandinu sem slíku síðan Love Gun kom út árið 1977. KISS áttu hér í alvarlegum vandræðum með Peter Criss en til að...
055 - Það stendur hér 17.03.2022 2:43:25
Tíundi áratugurinn var ekki sá farsælasti fyrir okkar menn sem er í raun algjör synd, því það var þá sem liðsmenn KISS voru í einu sínu besta formi, ef ekki bara því besta. Sveitin hugsaði út fyrir kassann árið 1995 þegar bandið fór svokallaðan „Convention Tour“ um Bandaríkin og Ástralíu auk Kanada. Á þessum túr hittu þeir aðdáendur sína og blönduðu við þá geði auk þess að koma fram órafmagnaðir (...
054 - President Starkey 08.03.2022 2:34:20
Hvað er KISS ARMY? Hvaðan er KISS ARMY? Hver stofnaði KISS ARMY og hvers vegna? Við fáum svör við þessu öllu ásamt fleiru í þættinum í dag. Þegar Bill Starkey var 17 ára gamall uppgötvaði hann KISS sem um leið varð hans uppáhalds hljómsveit. Útvarpsstöðin heima í Terre Haute í Indiana, Bandaríkjunum hafði þó ekki sama áhuga á KISS og hinn ungi Bill. Hann tók þá til sinna ráða og ásamt vini sínum J...
053 - Pallborðsumræður 01.03.2022 2:09:12
Í þættinum bjóðum við upp á opnar pallborðsumræður þar sem hin og þessi mál ber á góma. Má þar nefna Bítlana, Aerosmith, Eddie Van Halen, KISS Army, hina alræmdu Frægðarhöll Rokksins, 20 ára starfsafmæli nokkuð, hinn ýmsa KISS varning, hljóðvegginn góða, stórmyndina KISS Meets The Phantom Of The Park og síðast en ekki síst Mini-KISS. Sannkallaður „lífsstílsþáttur“ í þetta skiptið. Hosted on Acast....
052 - Donahue 22.02.2022 2:33:48
Á sama tíma og KISS voru að klára upptökur á sinni áttundu hljóðversplötu árið 1980 var Peter Criss mættur í hljóðverið sjálfur ásamt Stan sínum Penridge til að taka upp sína aðra sólóplötu. Okkar menn gáfu svo út Unmasked þann 20.maí 1980 og þrátt fyrir að Peter bregði fyrir á framhlið plötunnar var það Anton Fig sem hana trommaði, en það var gert opinbert tveimur dögum fyrir útgáfu hennar að Pet...
051 - 1 árs 15.02.2022 2:46:25
Við fögnuðum 1 árs afmæli þáttarins frammi fyrir fullum sal af áhorfendum í Slippbíó á Icelandair Hotel Marina laugardagskvöldið 12.febrúar 2022 þar sem upptökur fóru fram. Málefnið var hreint ekki af verri endanum, frumburður okkar manna sem ber einfaldlega heitið KISS. Sú plata á einmitt 48 ára afmæli þann 18.febrúar. Þetta var mikið stuð og áhorfendur tóku virkan þátt í umræðum. Því er sennileg...
050 - Helgarpósturinn 08.02.2022 2:31:20
Sumarið 1983 fóru KISS í hljóðverið til að taka upp sína 11. hljóðversplötu, plötu sem átti að fylgja þeirri sem á undan kom (Creatures of the night) fast á eftir. Aftur var Michael James Jackson við stjórnvölinn en hann skilaði af sér flottu starfi á fyrrnefndri plötu og náði hreint út sagt mögnuðum tilþrifum úr okkar mönnum og þessum þunga hljómi. Vinnie Vincent var orðinn fullgildur meðlimur hl...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.