Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

HR Hlaðvarpið

HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).

Author

Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Category

Education

Podcast website

www.ru.is

Latest episode

Jun 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Verkfræðivarpið // 6. þáttur: Svana Helen Björnsdóttir 21.03.2023

Í sjötta þætti Verkfræðivarpsins ræddu þeir Haukur Ingi og Helgi Þór við Svönu Helen Björnsdóttur formann verkfræðingafélags Íslands og doktorsnema við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Í samtalinu er komið víða við og m.a. rætt um konur og verkfræði, möguleika verkfræðilegarar aðferðar, skuggahliðar verkfræðinnar og um hugsjónir Svönu hvað verkfræðina varðar. Verkfræðivarpið er hugarfóstur Ha...

Íþróttarabb HR // 1. þáttur: Clive Brewer 16.03.2023

Í fyrsta þætti af Íþróttarabbi HR á Spotify er rætt við Clive Brewer sem er einn þeirra erlendu sérfræðinga sem kemur reglulega hingað til lands að kenna nemendum meistaranáms íþróttafræðinnar í HR. Sérsvið Clive er styrk- og þrekþjálfun og afreksþjálfun. Hann hefur víðtæka reynslu af líkamlegri þjálfun íþróttafólks allt frá börnum til Ólympíufara. Clive hefur skrifað hagnýtar kennslubækur fyrir þ...

MBA-varpið // 1. þáttur: Sigríður Soffía Níelsdóttir 14.03.2023

Sigridur Soffia Nielsdóttir er fyrsti viðmælandi MBA-varpsins, sem er sjálfstæð syrpa innan HR hlaðvarpsfjölskyldunnar. Sigga Soffía, eins og hún er alltaf kölluð, er menntuð sem dansari frá Listaháskóla Íslands og lauk Executive MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021. Hún hefur komið víða við og unnið að fjölbreyttum verkefnum, til dæmis stýrt flugeldasýningum sem eru byggðar á danshreyfin...

Sprotasólin // 2. þáttur: Halldór Snær Kristjánsson, Myrkur Games 07.03.2023

Sprotasólin er sjálfstæð þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Gestur Sprotasólarinnar að þessu sinni er Halldór Snær Kristjánsson sem er forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Myrkur Games. Halldór var bara 11 ára þegar að hann ákvað að hann vildi starfa við það að búa til tölvuleiki. Í dag stýrir hann fjörtíu manna tölvuleikjafyrirtæki. Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði þegar að stofnendur þess voru í n...

Verkfræðivarpið // 5. þáttur: Erna Sif Arnardóttir 02.03.2023

Í fimmta þætti Verkfræðivarpsins ræðir Haukur Ingi Jónasson við Ernu Sif Arnardóttur, dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, um  svefnrannsóknir sem hún stundar með samstarfsfólki sínu. Í samtalinu er meðal annars rætt um rannsóknarsetur í svefnrannsóknum, stóran Evróupustyrk, eðli svefns, svefntruflanir, drauma, og um hlutverk og möguleika verkfræðinnar á þessu sviði.  Verkfræðivarpið e...

Vísindavagninn // 3. þáttur: Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen 22.02.2023

Ingunn S. Unnsteinsdóttir Kristensen stökk á Vísindavagninn að þessu sinni. Hún lauk nýverið doktorsprófi við sálfræðideild HR. Hún, ásamt fleiri vísindakonum, gerði viðamikla rannsókn á afleiðingum heilahristings í doktorsverkefninu sínu. Við ræddum aðallega heilahristing en komum einnig inn á öskudag í Grímsey og Vogunum og að sjálfsögðu Opna háskólann þar sem Ingunn hefur forstöðu. Í Vísindavag...

Sprotasólin // 1. þáttur: Mathieu G. Skúlason, Evolytes 11.01.2023

Fyrsti gestur Sprotasólarinnar er Mathieu G. Skúlason , framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins Evolytes. Evolytes var stofnað árið 2017 en fyrirtækið varð til við þverfaglegar rannsóknir í sálfræði og tölvunarfræði í hugbúnaðarkerfinu Aperio við Háskólann í Reykjavík. Hlutverk fyrirtækisins er að umbylta stærðfræðinámi með skemmtanavæddu, gagnadrifnu og einstaklingsmiðuðu námskerfi sem byggir á leið...

Vísindavagninn // 2. þáttur: Þóra Hallgrímsdóttir 20.12.2022

Þóra Hallgrímsdóttir, kennari við lagadeild HR, stökk á Vísindavagninn að þessu sinni. Hún ólst upp á Húsavík við Skjálfanda en flutti suður yfir heiðar um miðbik níunnar og hóf laganám. Þóra veit um það bil allt um úrlausn lögfræðilegra álitaefna, bótarétt og miskabætur, svo fátt eitt sé nefnt. Hún er líka fastheldin á jólahefðir, svo mjög að hún gerðist sek um lögbrot eitt árið til að geta haldi...

Stúdentavarpið // 2. þáttur: Spjall við Grétu Matthíasdóttur, forstöðukonu náms- og starfsráðgjafar í HR 13.12.2022

Í þessum þætti Stúdentavarps SFHR spjalla þær Anna Júlía Magnúsdóttir og María Nína Gunnarsdóttir við Grétu Matthíasdóttur, forstöðumann náms- og starfsráðgjafar í HR. Þær fræðast um ýmislegt, þar á meðal prófkvíða og hvernig best sé að kljást við hann, námstækni og lífið og tilveruna.  Stúdentavarpið er sjálfstæð þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsfjölskyldunnar. Stúdentavarpið er vettvangur Stúdentafé...

Vísindavagninn // 1. þáttur: Anna Sigríður Islind 28.11.2022

Anna Sigríður Íslind er fyrsti farþeginn í Vísindavagni HR hlaðvarpsins. Anna Sigríður er dósent við tölvunarfræðideild HR. Hún sogaðist inn í heim vísindanna nánast alveg óvart og var komin alla leið til Kína að splitta vetni fyrir tvítugt. Allt um það og meira til í þessu góða spjalli.  Í Vísindavagni HR hlaðvarpsins kynnumst við vísindafólki HR, forvitnumst um það hvaðan það kemur og hvert það...

Verkfræðivarpið // 3. þáttur: Rafbílavæðing Íslands 21.11.2022

Rafbílavæðing Íslendinga er lyginni líkust en samkvæmt tölum um heildarinnflutning bíla árið 2021 er næstum annar hver nýr bíll það sem kallast nýorkubíll. Ísland, ásamt Noregi, er á þessu sviði í algjörum sérflokki á heimsvísu. Í Verkfræðivarpinu að þessu sinni verður upphaf þessarar byltingar á Íslandi skoðað með því að rifja upp skemmtilegtog áhugavert  frumkvöðlaverkefni frá 2009 þar sem Helgi...

Verkfræðivarpið // 4. þáttur: Árni Sigurður Ingason hjá Grein Research 21.11.2022

Gestur 4. þáttar Verkfræðivarpsins er Dr. Árni Sigurður Ingason vélaverkfræðingur. Hann er framkvæmdastjóri Grein Research, sprotafyrirtækis á sviði efnistækni, sem sprottið er upp úr rannsóknum Árna Sigurðar og samstarfsfólks. Grein Research hannar og smíðar frumgerðir efna samkvæmt óskum kröfuharðra viðskiptavina, sem yfirleitt eru erlend stórfyrirtæki eða rannsóknahópar. Efnin eru búin til með...

Stúdentavarpið // 1. þáttur: Að hefja háskólanám, loddaralíðan og ýmis heilræði 07.11.2022

Stúdentavarpið á vegum SFHR er vettvangur þar sem gestir og sérfræðingar ræða málefni sem tengjast háskólanemum. Í fyrsta þætti Stúdentavarpsins ræddu þau Emil Trausti Smyrilsson og Svanfríður Júlía Steingrímsdóttir ýmislegt sem tengist því að vera háskólanemi. Meðal annars ræddu þau þá upplifun að hefja háskólanám og þá líðan að finnast þau ekki vera með allt á hreinu. Sérstaklega var komið inn á...

Verkfræðivarpið // 2. þáttur: IMaR-ráðstefnan og verkefnastjórnun sem fag 26.10.2022

Í öðrum þætti Verkfræðivarpsins víkja þeir Haukur Ingi, Helgi Þór og Þóður Víkingur stuttlega að hinni vel heppnuðu IMaR-ráðstefnu, sem fór fram í samstarfi HR og Verkfræðingafélagsins hinn 20. október 2022. Einkum er þó rætt um hvað gerir verkefnastjórnun að fagi og mikilvægi þess út frá greinaflokki þeirra félaga um fagið er birtist í tímariti Verkfræðingafélags fyrir fáeinum árum. Saga fagsins...

Verkfræðivarpið // 1. þáttur: Staða verkfræðinnar í samfélaginu 12.10.2022

Verkfræðivarpið er sjálfstæð þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Verkfræðivarpið er hugarfóstur Hauks Inga Jónassonar, Helga Þórs Ingasonar og Þórðar Víkings Friðgeirssonar, en þeir  eru allir kennarar og fræðmenn við verkfræðideild HR. Í þessari hlaðvarpsþáttaröð leitast þeir við að færa þekkingarsvið verkfræðinnar til almennings og verkfræðinga á mannamáli.  Í fyrsta þætti fara þeir m.a. yfir stöð...

Listen to the HR Hlaðvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.