RÚV

Heimskviður

News IS ↓ 263 episodes

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

108 | Eftirspurn eftir úkraínskum konum og dauðarefsingar í Íran 14.05.2022

Þar sem er stríð, þar er kynferðislegu ofbeldi sömuleiðis beitt. Það virðist því miður vera einhverskonar lögmál, meira að segja enn þann dag í dag þrátt fyrir að aðgerðir gegn kynferðisofbeldi séu meira í umræðunni. Hluti af hjálparstarfi vegna stríðsins í Úkraínu miðar eingöngu að því að hjálpa konum á flótta undan mögulegu mansali, vændi eða öðru kynferðisofbeldi, og alveg ljóst að ekki er vanþ...

107 | Neyðarástand á Sri Lanka og Transnistría 07.05.2022

Rétt rúmur mánuður er líðinn frá því að neyðarástandi var lýst yfir á Srí Lanka í Indlandshafi vegna fjölmennrar mótmælaöldu. Þar er sögð dýpsta efnahagskreppa frá því að eyjan fékk sjálfstæði frá bretum árið 1948. Þau sem mótmæla krefjast þess að forseti landsins, Gotabaya Rajapaksa, ásamt ríkisstjórn segi af sér vegna meintrar spillingar og vanhæfni. Mótmælin hafa verið afar hörð. Lögreglan beit...

106 | Operation Mincemeat og Elon Musk 30.04.2022

Hvað eiga Adolf Hitler, heimilislaus maður sem lést eftir að hafa innbyrt rottueitur, augnhár og Ian Flemming, höfundur James Bond, sameiginlegt? Þau koma öll við sögu hernaðaraðgerð sem er talin ein sú best heppnaða í sögu síðari heimsstyrjaldarinnar. Nýlega var frumsýnd bíómyndin Operation Mincemeat, sem byggir á þessari sögu. Sögu sem á eiginlega meira skylt við kvikmyndir heldur en raunverulei...

105 | Símtalið frá Maríupol og hvað einkennir góða forsetafrú? 23.04.2022

Við hefjum Heimskviður í dag í hinni stríðshrjáðu Maríupol, og ræðum við Sergej Artamonov, sem ólst upp í Maríupol en hefur verið búsettur í Reykjavík undanfarinn áratug. Systir Sergejs, Natasha, varð eftir í Maríupol þegar rússneski herinn réðist inn í borgina og heyrði Sergej ekkert frá systur sinni í 56 daga. Þrjár bandarískar forsetafrúr eru í sviðsljósinu í nýrri þáttaröð úr smiðju danska lei...

104 | Ferðasaga frá Póllandi og hæstráðendur í Serbíu og Ungverjalandi 09.04.2022

Arnar Þór Ingólfsson, fréttamaður hjá Kjarnanum, fór á dögunum í fréttaferð til Póllands til að milja sögum af vettvangi, frá flóttafólki frá Úkraínu og sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum til að taka vel á móti þeim. Við heyrum áhugaverða ferðasögu Arnars Þórs í þættinum. Þeir Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands og Alexander Vucic, forseti Serbíu, gleðjast þessa dagana. Síðastliðna...

103 | Kvenréttindi í Afganistan og forsetakosningar í Frakklandi 02.04.2022

Heimskviður halda í dag til Afganistan og Frakklands. Talibanar skerða nú réttindi kvenna í Afganistan með reglulegum lagabreytingum, þvert á loforð um hið gagnsstæða þegar þeir náðu aftur völdum í landinu í ágúst í fyrra. Stúlknaskólum hefur verið lokað og konur mega ekki lengur ferðast með flugvélum án þess að hafa karlkyns ættingja með í ferð. Þróunin er einmitt í þær áttir sem mörg óttuðust, a...

102 | Af húðhvíttun og sögu Úkraínu 26.03.2022

Húðhvíttun á sér afar langa sögu þó aðferðir og áherslur í því að láta húð verða ljósari hafi tekið breytingum í gegnum aldirnar. Enn þann dag í dag er þetta iðnðaður upp á um átta milljarða Bandaríkjadala ár hvert og gangi spár sérfróðra eftir verður umfangið enn meira á næstu árum. En fórnarkostnaðurinn er umtalsverður, mikið af kremunum sem notuð eru í húðhvíttunarskyni innihalda hætturleg eitu...

101 |Dúgín, hið heilaga Rússland og bann við hinseginfræðslu í Flórída 19.03.2022

Stríðið í Úkraínu er sem fyrr helsta fréttaefni dagsins í dag. Mikið hefur verið rætt og ritað um afleiðingar þess og þær milljónir úkraínumanna sem hrakist hafa frá heimilum sínum, sem og að er virðist þá óskiljanlegu ákvörðun Rússlandsforseta að ráðast inn í fullvalda ríki. Minna hefur verið rætt þá menningarlegu, sögulegu, og ekki síst trúarlegu hugmyundafræði sem kann að liggja hér að baki. Gu...

100 | Hringferð um heiminn 12.03.2022

Í hundraðasta þætti Heimskviða höldum við í hringferð um heiminn, Við förum frá Skandinavíu til Suður-Ameríku, frá Ástralíu til Mið-Austurlanda, til Rússlands og Bretlands, og til Afríku og Asíu. Og fjöllum sem fyrr, um það sem gerist ekki á Íslandi. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar og umsjó...

99 | Herskylda og staðgöngumæður í Úkraínu og danskur njósnaskandall 05.03.2022

Rúmlega vikulangt stríðið í Úkraínu tekur eðlilega yfir flestallar fréttir þessa dagana. Innrás Rússa og afleiðingar hennar koma einnig við sögu í þættinum í dag. Frá innrás rússneskra herliðsins í Úkraínu hafa ótal Úkraínumenn rifið sig upp með rótum og lagt á flótta. En leiðir margra fjölskyldna hafa skilið vegna þess að stríðið kallar á hermenn. Víða hafa ættingjar þurft að kveðja nákominn karl...

98 | Innrás Rússa í Úkraínu 26.02.2022

Heimskviður heilsa laugardaginn 26. febrúar. Þetta er 98. þáttur Heimskviðna, sem hófu göngu sína haustið 2019 - og er eins og segir í kynningu þáttarins - þáttur sem fjallar um það sem gerist ekki á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem þátturinn er sendur út í beinni útsendingu hér úr Efstaleitinu, enda er tilefnið ærið. Rússar hafa ráðist inn í nágrannaríki sitt í vestri, Úkraínu - og staðan brey...

97 | Lúgansk, Donetsk og skaðabætur skotvopnaframleiðanda 19.02.2022

Neðri deild rússneska þingsins ákvað á þriðjudag að samþykkja ályktun sem viðurkennir sjálfstæði alþýðulýðveldanna Lúgansk og Donetsk í Donbas-héraði í austurhluta Úkraínu. Ályktunin fer nú inn á borð Vladimírs Pútíns forseta. En hvað þýðir þetta? Hvers vegna ætti Rússland að viðurkenna sjálfstæði tveggja nágrannaríkja, ríkja sem eru innan landamæra Úkraínu? Guðmundur Björn ræðir við Val Gunnarsso...

96 | Loddarar í Lundúnum og New York: Bókaþjófurinn og geðlæknirinn 12.02.2022

Það er loddaraþema í Heimskviðum í dag. Við hefjum þáttinn á umfjöllun um bókaþjófinn alræmda, sem herjað hefur á rithöfunda og útgefendur undanfarin fimm ár, og fengið hundurði óútgefinna handrita upp í hendurnar. 29 ára gamall Ítali, Filippo Bernardini, hefur nú verið handtekinn grunaður um þjófnaðinn. Guðmundur Björn fjallar um málið og ræðir við Fríðu Ísberg rithöfund, sem var ein þeirra fjölm...

95 | Ofbeldi gegn konum í Kanada og mótmæli gegn sóttvarnaraðgerðum 05.02.2022

94 | Þó konur af frumbyggjaættum séu einungis um 4% kvenna í Kanana þá eru þær 16% allra kvenna sem eru myrtar í landinu ár hvert. Þá eru ótaldar allar þær konur úr þeirra röðum sem hverfa sporlaust ár hvert. Illa gengur að rekja upp það munstur er ofbeldi gegn konum af frumbyggjaættum er í Kananda, þrátt fyrir fögur fyrirheit virðist viljinn til að bæta ástandið ekki nógur til að ráðast í aðgerði...

94 | Danir útvista fangelsun og milljónir íbúa Afríku án rafmagns 29.01.2022

Undir lok síðasta árs gerðu dönsk yfirvöld samkomulag við yfirvöld í Kósóvó um að leigja rými fyrir hundruði fanga frá Danmörku og fjárfesta um leið í grænni orkuþróun í Kósóvó. Engir fangaflutningar eru hafnir enn og málið ekki farið mjög hátt en það vekur upp stórar og flóknar spurningar um samvinnu Evrópuríkja, valdaójafnvægi og innflytjendamál. Er danska ríkið að útvista sínum vandamálum til a...

93 | Rússar og Úkraína og garðpartý Borisar Johnson 22.01.2022

Með falli Sovétríkjanna og lokum kalda stríðsins var almennt litið svo á að Rússar væru ekki lengur ógn við frið í Evrópu. Dregið var úr útgjöldum til varnarmála, sverðunum breytt í plóga. En í Rússlandi fannst mörgum að þeir hefðu verið niðurlægðir, Eystrasaltsríkin lýstu yfir sjálfstæði, Varsjárbandalagið hrundi með Sovétríkjunum og fyrrverandi bandalagsþjóðir Rússa gengu andstæðingunum á hönd o...

92 | Óöldin í Kasakstan er sagan að endurtaka sig í Bosníu? 15.01.2022

Við hefjum þáttinn í Kasakstan. Þetta dularfulla land Kasakstan náði nefnilega að fanga athygli umheimsins um stund í vikunni sem leið. Það er nefnilega svo að frá áramótum hafa að minnsta kostið 164 Kazakar, mest megnis almennir borgarar, látið lífið í átökum milli mótmælenda og öryggissveita, og tæplega tíu þúsund manns hafa verið handtekin. Þessum mótmælum, sem er nú er lokið, eru mestu átök se...

91 | Ár frá árásinni á þinghúsið. Hvað svo? 08.01.2022

Fyrir ári sínu ruddu dundruðir stuðingsmanna Donalds Trump sér leið inn í þinghúsið í Washington D.C. þar sem þau freistuðu þess að koma í veg fyrir að öldungadeildin staðfesti kjör Joe Bidens til Bandaríkjaforseta. Síðan hefur liðið heilt ár, en eftirköst þessara atburða marka djúp spor í bandarísku samfélagi, atburða sem hefðu þótt óhugsandi að gætu gerst. Donald Trump þáverandi forseti var í kj...

90 | Svíþjóðardemókratar, Tikhanovsky og arfleið Angelu Merkel 18.12.2021

Eftir áratugi úti í kuldanum, virðist stjórnmálaflokkurinn Svíþjóðardemókratarnir nú smám saman vera að komast inn í hlýjuna í sænskum stjórnmálum. Flokkurinn, sem lengst af hafði nær ekkert mælanlegt fylgi, mælist nú ýmist annar eða þriðji stærsti flokkur landisins. Aðrir flokkar hunsuðu Svíþjóðardemókratana lengi, þar sem flokksmenn voru sakaðir um útlendingaandúð, jafnvel rasisma og hægriöfgast...

89 | Havana-heilkennið og tyrkneska lýran í frjálsu falli 11.12.2021

Havana heilkennið eru veikindi sem fyrst varð vart árið 2016. Ólikt flestum öðrum sjúkdómum virðast veikindin fara í manngreiningarálit. Um 200 tilkynningar um veikindin hafa borist bandarískum yfirvöldum. Um helmingur þess hóps eru starfsmenn leyniþjónustu Bandarikjanna og fjölskyldur þeirra, hinn helmingurinn dreifist jafnt á milli starfsmanna varnarmálaráðuneytis og utanríkisráðnuneytis Bandarí...

88 | Frystar eignir Afgana og ferðalag Sómalíu til lýðræðis 04.12.2021

Hryðjuverkin 11. september árið 2001 breyttu sannarlega heimsmyndinni og nú 20 árum síðar eru eftirmálar þeirra enn í fréttum. Fyrir utan ástandið í Afganistan eftir að bandaríkjaher yfirgaf landið og Talíbanar tóku völd er líka margt ennþá óuppgert í Bandaríkjunum. Ættingjar fórnarlamba hryðjuverkanna höfðuðu skaðabótamál fyrir 20 árum sem hafa ekki verið útkljáð. Um 150 ættingjar krefjast þess n...

87 | Grænlensku tilraunabörnin og hvar er Peng Shuai? 27.11.2021

Við hefjum Heimskviður í dag í Kína. Kínverska tennisstjarnan Peng Shuai greindi frá því í upphafi mánaðar að hátt settur kínverskur ráðamaður og fyrrum varaforseti landsins, hefði brotið á henni kynferðislega. Peng greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Weibo, og einungis 30 mínútum síðar var færsla hennar horfin. Ekkert spurðist til Peng svo vikum skipti. Í fyrri hluta þáttarins er rætt við Öldu...

86 | Þingmaður sem öllu ræður, ráðist á fótboltakonu, konur í myndlist 20.11.2021

Hver hefur raunverulega völdin í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum? Þó að Joe Biden sé forseti hefur einn af flokksbræðrum hans í öldungadeildinni, Joe Manchin, verið ötull við að nýta sér þann nauma meirihluta sem Demókratar hafa þar til að knýja fram ýmsar breytingar á málum sem forsetinn hefur lagt fyrir þingið - og jafnvel stoppa þau. Eitt af þeim eru miklar umbætur í loftslagsmálum sem núna virðas...

85 | Göngutúr í Addis Ababa og sár í norrænu samstarfi 13.11.2021

Þann 3. nóvember í fyrra brutust út átök á milli stjórnarhersins í Eþíópíu og frelsishers Tigray, TPLF, í Tigray héraði. Átökin hafa því staðið í heilt ár. Þúsundir hafa látið lífið í átökum síðastliðin árs og yfir tvær milljónir hrakist fráa heimilum sínum, hluti íbúa landsins glímir nú við mikla hungursneyð. Á þessu ári sem hefur liðið frá því átökin hófust hafa fregnir borist af hræðilegum mann...

84 | Assange, Kína og American Pie 06.11.2021

Við hefjum Heimskviður á umfjöllun um réttarhöldin yfir Julian Assange, stofnanda Wikileaks, en þau héldu áfram í síðustu viku á millidómstigi í Bretlandi. Bandarísk stjórnvöld freista þess að fá Assange framseldan. Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, blaðamaður, var viðstaddur réttarhöldin. Frá Bretlandi höldum við til Bandaríkjanna. Lagið American Pie eftir Don McLean, varð 50 ára á dögunum. Lagi...

Listen to the Heimskviður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.