RÚV

Heimskviður

News IS ↓ 263 episodes

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sumar-Heimskviður / Líf í geimnum og mannát 29.06.2024

Við fjöllum um það sem gerist úti í heimi í þessum þætti alla jafna en ætlum að seilast aðeins lengra í upphafi þáttar. Nánar tiltekið út í geim. Geimrannsóknarstofnun Bandaríkjanna - NASA - vill breyta umræðu um fljúgandi furðuhluti og færa á hærra plan. Nær vísindum og frá æsingu og samsæriskenningum. Og liður í því er einmitt að hætta að kalla þessi óþekktu fyrirbæri fljúgandi furðuhluti. Ólöf...

Sumar-Heimskviður / Ágangur ferðamanna á Tenerife og í Feneyjum 22.06.2024

Það var mótmælt hressilega á Tenerife nú í vor. Íbúar eyjunnar vinsælu eru orðnir langþreyttir á áhrifum ferðamannastraumsins þangað. Dagný Hulda Erlendsdóttir fór með okkur til Tene. Annar staður sem ferðmennskan hefur haft gríðarleg áhrif á eru Feneyjar. Borgaryfirvöld í Feneyjum byrjuðu í ár að rukka ferðamenn fyrir að koma til borgarinnar. Þar hefur íbúum fækkað hratt síðustu áratugi á meðan f...

Sumar-Heimskviður / Stríð vegna vatns og Óperudraugurinn 15.06.2024

Í Sumar-Heimskviðum rifjum við upp efni út þáttum vetrarins og búum til nýja þætti úr áður fluttu efni okkar. Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur enn brotist út stríð milli ríkja eingöngu vegna vatn...

187 - Draumar og rússneska rétttrúnaðarkirkjan 08.06.2024

Draumar og prestar verða í forgrunni í Heimskviðum í dag. Við ætlum fyrst að skyggnast á bak við kirkjutjöldin í Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Æðsti leiðtogi hennar í Moskvu, Kirill patríarki, hefur stutt allsherjarinnrás Rússlandshers í Úkraínu og sumir halda því fram að kirkjan sé í raun hluti af áróðursmaskínu stjórnvalda. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræddi við úkraínskan prest sem á árum áður...

186 - Kosningabaráttan í Bandaríkjunum, Hæstiréttur og dómsmál Trumps 01.06.2024

Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er í fullum gangi en Bandaríkjamenn kjósa sér nýjan forseta þriðjudaginn 5.nóvember. Nýr verður hann nú reyndar ekki, því þeir tveir sem til greina koma, eins og velflestir vita, heita Donald Trump og Joe Biden. Þetta er í fyrsta sinn í næstum sjötíu ár síðan sömu nöfnin eru á kjörseðlinum tvennar kosningar í röð. Trump var í vikunni sakfelldur í einu af fjórum dóm...

185 - Mengað blóð og mengað lýðræði 25.05.2024

Yfir 30 þúsund Bretar fengu sýkt blóð með veirum á borð við HIV og lifrarbólgu C við blóðgjöf á árunum 1970 til 1991. Samkvæmt rannsóknarskýrslu sem birt var í vikunni er ljóst að ráðamenn reyndu að breiða yfir hneykslið, til að mynda með því að eyða gögnum um það árið 1993. Þau sem þáðu smitaða blóðið gerðu það ýmist eftir slys, vegna skurðaðgerðar eða vegna einhvers konar blóðkvilla á borð við d...

184 - Gleymda stríðið og fegurðarsamkeppnir 18.05.2024

Stríðið í Súdan er stundum kallað gleymda stríðið en áralöng átök hafa valdið því að stór hluti súdönsku þjóðarinnar er á barmi hungursneyðar. Ógnarmargir íbúar þessa þriðja stærsta lands Afríku er á flótta en það hafa aldrei áður verið jafn margir á flótta innan eigin lands á heimsvísu. Það eru alls um 75,9 milljónir jarðarbúa og talsvert hefur fjölgað í þessum hópi undanfarið ár. Aukningin skrif...

183 - Innrásin í Rafah 11.05.2024

Rúm milljón manns í Rafah á Gaza bíður milli vonar og ótta hvort og þá hvenær allsherjarinnrás Ísraelshers í borgina hefjist. Við beinum sjónum okkar þangað í þættinum í dag. Við ætlum líka að rýna í söguna. Samband Bandaríkjanna og Ísraels hefur verið undir smásjánni nú þegar flest spjót standa á Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sem hefur notið mikils stuðnings Bandaríkjastjórnar ein...

182 - Baby Reindeer og skæð fuglaflensa 04.05.2024

Sjónvarpsþættirnir Baby Reindeer njóta mikilla vinsælda hér á landi og eru þeir vinsælustu á streymisveitunni Netflix um þessar mundir. Þættirnir segja sanna sögu ungs manns sem lendir í eltihrelli. Ólöf Ragnarsdóttir skoðaði fyrirbærið og þættina vinsælu. Skæð fuglaflensa, eða H5N1 eins og núverandi afbrigði er kallað, er vaxandi áhyggjuefni meðal heilbrigðisyfirvalda víða um heim. Vísbending er...

181 - Kosningar í Suður Afríku og Børsen sem brann 27.04.2024

Við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu bygginguBørsen brenna í fréttum á dögunum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst vegna drekaturnspíru sem teygði sig upp af húsþakinu,...

180 - Raunir Boeing og körfuboltastjarnan Caitlin Clark 20.04.2024

Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur verið í talsverðum vandræðum undanfarin ár. Fyrirtækið hafði átt áratuga sögu sem framleiðandi öruggra og góðra farþegavéla. Hvað fór eiginlega úrskeiðis? Hallgrímur Indriðason leitar svara við því. Körfuboltakonan Caitlin Clark er á vörum allra sem fylgjast með körfubolta í Bandarkjunum og víðar og hún er ekki einu sinni byrjuð í atvinnumennsku. Þorgils Jónsson...

179 - Árásir á Kharkiv í Úkraínu og hin hliðin á Tene 13.04.2024

Borgin Kharkviv er núna eitt helsta skotmark Rússa og skortur á öflugum loftvarnarkerfum hafa gert hana og ýmsa innviði í Úkraínu að auðveldari skotmörkum en áður. Rússar hafa hert mjög árásir undanfarið og margir, það á meðal forseti Úkraínu, búast við sókn þeirra á næstu vikum og mánuðum, þegar sumarið er komið og leðjan á vígvellinum er þornuð. Svo kynnum við okkur hina hliðina á ferðamannapara...

178 - Týndu börnin í tónlistarmyndbandinu og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna 06.04.2024

Árið 1993 kom út tónlistarmyndband við lagið Runaway Train með bandarísku hljómsveitinni Soul Asylum. Í myndbandinu voru sýndar myndir af börnum sem lýst hafði verið eftir. Mörg þeirra gáfu sig fram í kjölfar sýningar myndbandsins auk þess sem vinsældir myndbandsins skiluðu því að vitað varð um afdrif margra barnanna til viðbótar. Birta Björnsdóttir fjallar um þetta áhrifaríka tónlistarmyndband og...

177 - Höfuðborg í heljargreipum og skuggahliðar netsins 23.03.2024

Við skoðum baksögu óaldarinnar á Haítí sem náði hámarki fyrir nokkrum vikum þegar glæpagengi náðu stjórn í höfuðborginni Port au-Prince. Bjarni Pétur segir okkur einnig sögu valdamesta glæpamanns landsins. Saga Haítí er þyrnum stráð því auk mannskæðra náttúruhamfara hafa landsmenn þurft að greiða Frökkum skuld árum saman eftir að Haítí fékk sjálfstæði. Í síðari hluta þáttarins ætlar Hallgrímur Ind...

176 - Fólksfækkun í Japan og sprengjuleit í Úkraínu 16.03.2024

Fólksfækkun í Japan er mun hraðari en gert var ráð fyrir og hefur mikil áhrif á samfélagið. Tölur um fjölda barna sem fæddust í Japan í fyrra voru gefnar út á dögunum og urðu víða fréttaefni. Mörgum var brugðið því fólksfækkunin þar í landi hefur orðið hraðari en spár gerðu ráð fyrir. Árið 1983 fæddist ein og hálf milljón barna í Japan. Í fyrra voru þau helmingi færri. Afleiðingar fólksfækkunarinn...

175 - Fjölskyldustjórnmál á Filippseyjum og 20 ár frá sprengjuárásinni í Madríd 09.03.2024

Á Filippseyjum fara nokkrar fjölskyldur með mestöll völd í landinu. Þær tvær sem komist hafa í hár saman að undanförnu er fjölskylda forsetans, Ferdinands Marcos, sem er alnafni föður síns og fyrrum einræðisherra landsins. Hin er fjölskylda Rodrigos Dutertes, fyrrverandi forseta, sem oft var kallaður hinn filippeyski Donald Trump. Deilur þessara ættfeðra hafa stigmagnast og nú er svo komið að Dute...

174 - Stríð vegna vatns og hvarf flugvélar Malaysian Airlines 02.03.2024

Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur enn brotist út stríð milli ríkja eingöngu vegna vatns. Gæti það gerst í náinni framtíð? Ólöf Ragnarsdóttir reynir að svara því. Í næstu viku verða tíu ár liðin fr...

173 - Tvö ár síðan heimsmyndin breyttist og staða bænda í Evrópu 24.02.2024

Í dag eru tvö ár liðin frá því innrás Rússa hófst af fullum þunga inn í Úkraínu. Innrás sem mörg óttuðust að væri yfirvofandi en kom þó flestum í opna skjöldu. Við heyrum í Úkraínumönnum og þeim sem hafa sagt fréttir af þessu stríði auk þess sem Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir okkur frá stöðunni á vígvellinum. Flest eru sammála um að gengi Úkraínu standi og falli með stuðningi Vest...

172 - Mannát og Ungverjaland 17.02.2024

Verið er að sýna leikritið Kannibalen hér á landi sem er byggt á sönnum atburðum. Í stuttu máli fjallar það um mann sem langar til að borða annan mann og kemst í kynni við mann sem vill láta borða sig. Þrátt fyrir að það sé ekkert blóð í leikritinu þá eru lýsingarnar í því ítarlegar. Á frumsýningu verksins í Danmörku ældi áhorfandi og hér á landi féll einn í yfirlið. En sem fyrr segir þá er þetta...

171 - Glæpagengi í Mexíkó og Ingebrigtsen fjölskyldan 10.02.2024

Hvað gerir móðir þegar dóttur hennar er rænt og hún drepin af mönnum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum? Vitandi af gjörspilltu og um margt lömuðu stjórnkerfi heimalands síns ákvað hin mexíkóska Miriam Rodríguez að taka málin í sínar hendur og hefna dóttur sinnar. Saga hennar er sögð í nýlegri bók eftir Azam Ahmed, blaðamann á New York Times. Við ræðum við Azam í Heimskviðum í dag en í bókinni...

170 - Palestínuflóttamannahjálpin, skotárás í Serbíu og örlög Duffy 03.02.2024

Það er talið að um tvær milljónir íbúa á Gasa reiði sig á UNRWA, Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna. Það eru hátt í níutíu prósent þeirra sem þar búa. En nú er óvissa með fjármögnum samtakanna, eftir að fram komu ásakanir um að nokkrir starfsmenn þeirra hefði tekið þátt í árás Hamas á Ísrael í haust. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið. Í vikunni hófust réttarhöld yfir foreldrum drengs...

169 - Íþróttaþvætti Sádi Araba og kosningaeftirlit ÖSE 27.01.2024

Yfirvöld í einræðisríkinu Sádi-Arabíu eru sökuð um íþróttaþvætti (sportswashing á ensku) með því að setja fjármuni í íþróttir víða um heim til að bæta ímynd sína. Þetta hefur víða heppnast vel frá þeirra sjónarhóli. Eitt dæmi um þetta er að síðasta sumar komu margir af bestu knattspyrnumönnum heims í lið í sádiarabísku deildinni gegn himinháum launum. Sú tilraun virðist ekki ganga vel og farið er...

168 - Saga Húta og Jemen og staða grænlenskunnar 20.01.2024

Árásir Húta á Rauðahafi og árásir Bandaríkjamanna og Breta á Húta á móti hafa verið talsvert í fréttum það sem af er þessu ári og enginn friður í augsýn þar frekar en annars staðar í þessum heimshluta núna. Tilgangur þeirra árása, að sögn Húta er að hamla hefbundnum vöruflutningum til Ísraels þar til íbúum Gaza verði tryggðar alllar nauðsynjar á borð við mat, drykk og lyf. Hútar nota þessar aðferð...

167| Hvað er framundan árið 2024? 16.12.2023

Í þessum síðasta þætti ársins 2023 horfa Heimskviður til framtíðar, nánar tiltekið til ársins 2024 sem er handan við hornið. Við förum yfir sviðið með góðkunningjum þáttarins, Birni Malmquist, Dagnýju Huldu Erlendsdóttur, Hallgrími Indriðasyni, Oddi Þórðarsyni og Ólöfu Ragnarsdóttur og skoðum flestar heimsálfurnar. Hvernig þróast átökin sem geisa í heiminum og hvaða áhrif hafa þau utan átakasvæða?...

166| Samningaborðið á COP28 og Úkraínumenn breyta jólunum 09.12.2023

Heimskviður hefja leika í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í Dubai þar sem COP28 stendur nú sem hæst. Og hún á að verða ráðstefna aðgerða, svo að þau markmið sem sett hafa verið í loftslagsmálum síðustu ár náist. En er það yfir höfuð hægt? Erum við ef til vill orðin of sein að grípa í taumana? Þau sem eru við samningaborðið í Dubai telja að svo sé ekki. Og eru reyndar mörg hver á því að lokasamþy...

Listen to the Heimskviður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.